Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 22
Borgarfirði | Snorrastofa í Reykholti býður upp á fjölbreytta dagskrá í haust og hófst hún með fyrirlestri dr. Sverris Tómassonar „Á bók þessi lét ek rita“. Nokkur einkenni Heimskringlu. Að sögn Sigríðar Bjarkar Jónsdóttur verkefnisstjóra hefur undanfar- ið verið lögð áhersla á bókmenntir í dagskrá Snorrastofu. Fjallað verður um íslensk og norræn bók- menntasetur í evrópsku samhengi á sam- norrænu málþingi 9.–12. október næstkom- andi. Þar verður sjónum beint að rannsóknum á lærdómsmiðstöðvum mið- alda og áhersla lögð á að skoða og bera saman norræn lærdómssetur í ljósi evr- ópskrar ritmenningar. Málþingið heyrir undir Reykholtsverk- efnið sem hleypt var af stokkunum árið 1999 og skiptist í þrjá þætti, fornleifarann- Fjölbreytt dagskrá í Snorrastofu í haust sóknir, mannvist og umhverfi og miðstöðina Reykholt. Almenningi verður gefinn kostur á að kynnast starfsemi Snorrastofu, skoða bók- hlöðu og annan húsakost á opnu húsi 8. nóv- ember nk. Spurningunni „Af hverju ritaði Snorri Eglu?“ mun dr. Torfi H. Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, velta fyrir sér á fyrirlestri í bókhlöðu Snorrastofu hinn 25. nóvember. Þá verður bókmenntakynn- ing þriðjudaginn 16. desember og munu rit- höfundar og skáld lesa úr nýútkomnum verkum sínum, einnig í bókhlöðu Snorra- stofu. Í fyrsta sinn í haust munu Viðskiptahá- skólinn á Bifröst, ReykjavíkurAkademían og Snorrastofa efna til sameiginlegs nám- skeiðs um samtímamenningu. Námskeiðið er öllum opið en er einnig hugsað sem val- fag fyrir nemendur á Bifröst. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur, hefst 23. október og lýkur 4. desember. Kennt er á fimmtudags- morgnum í húsnæði gamla héraðsskólans í Reykholti og hefur dr. Jón Ólafsson heim- spekingur umsjón með námskeiðinu. Sigríður Björk segir miklu skipta fyrir framhald þessa samstarfs hvernig þessu námskeiði verður tekið. Mikill áhugi sé fyr- ir hendi hjá háskólastofnununum í Borg- arfjarðarhéraði á ýmiss konar samstarfi og er þetta námskeið liður í því að efla slíkt samstarf. Því sé almenningur hvattur til að nýta sér þetta tækifæri því ekki sé nóg að hafa áhuga á samvinnunni, það þurfi að koma í ljós hvort grundvöllur sé fyrir henni. Í Snorrastofu er Bókhlaða sem opin er daglega frá 13–16.45. Þar er gott fræði- bókasafn, en einnig almennt bókasafn. LANDIÐ 22 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Laxamýri | Uppskera á kartöflum í Þingeyjarsýslu hefur verið með besta móti og margir hafa fengið gríðarlega mikið upp úr görðum sín- um. Hildigunnur Jónsdóttir í Lyngbrekku í Þingeyjarsveit ræktar mikið af garðmat og fékk hún stærri kartöflur en venja er til á þessu hausti. Sú stærsta var 755 grömm að þyngd og nægði því að sjóða eina slíka handa fjölskyldunni í matinn. Hér er um fljótsprottið afbrigði að ræða og eins og sjá má á myndinni er eldspýtnastokkurinn heldur lítill hjá þessum risavöxnu jarðeplum sem Hildigunnur hefur ræktað í garði sínum. Risakartöflur Morgunblaðið/Atli Vigfússon Skorradal | Friðrik Aspelund og Guðmundur Sigurðsson frá Vesturlandsskógum ferð- uðust með finnskum skógarbændum, sem voru hér á landi, dagana 29. september til 2. október sl. Í hópnum voru 50 finnskir skógarbændur og ferðuðust þeir um Vestur- og Suðurland. Ferðin var skipulögð á vegum finnska skógareigendablaðsins Metsälehti og í sam- ráði við íslenska skógræktendur. Enginn í hópnum hafði áður komið til Ís- lands og áttu flestir von á því, að hér væri enginn skógur. Það kom þeim því mest á óvart að sjá hér skóga og ekki síður að sjá hversu góður vöxtur virtist yfirleitt vera í þeim skógum sem þeir skoðuðu. Paavo Seppänen ritstjóri Metsälehti sagði, að það kæmi þeim einnig mjög á óvart hvað Íslendingar væru komnir langt í því að skipuleggja markvisst skógræktina í ljósi þess, hve bændaskógrækt á Íslandi hefur verið stunduð í fá ár. Bændaskógrækt í Finn- landi á sér hins vegar 150 ára sögu og þar eru markaðsmál skógræktarinnar fyrirferð- armest – „nokkuð sem einnig þarf að huga að í tíma hér á landi, þó íslenskir skógar séu ungir“. Þeir komu í Skorradal, skoðuðu Stálpa- staðaskóg og komu síðan að Fitjum í boði skógarbóndans þar, Huldu Guðmundsdóttur. Fyrst var gengið til kirkju, sem rúmaði allan hópinn, en þröngt varð inni í litlu kirkjunni. Eftir stuttan fyrirlestur og kynningu var öllum boðið í bæinn og þar voru veitingar fram bornar. Heimsóknin í Skorradalinn heppnaðist með ágætum. Fæstir áttu von á því að hér væri skógur Morgunblaðið/Davíð Pétursson Fræðast um íslenskan skóg: Til hægri eru þau Hulda Guðmundsdóttir, skógarbóndi á Fitjum, og Friðrik Aspelund, starfsmaður Vesturlandsskóga, að halda fyrirlestur fyrir hópinn í Fitjakirkju. Grundarfirði | Á þessu ári fer Norræna skóla- hlaupið fram í 19. skipti í grunnskólum á öll- um Norðurlöndum. Í hlaupinu hafa nem- endur val um 3 vegalengdir. 2,5 km, 5 km og 10 km. Með hlaupinu er fyrst og fremst verið að stofna til hollrar hreyfingar en ekki keppni og áhersla lögð á að allir séu með. Þau notuðu góðviðrisdaginn fimmtudaginn 25. september í Grunnskóla Grundarfjarðar til þess að hlaupa og þátttakan var mjög góð, 187 nemendur af 198 hlupu, samtals 1.281,5 km og það var 9. bekkur sem hljóp lengst að meðaltali, 9,28 km. Hermann Þór Haralds- son, nemandi í 5. bekk, hljóp 10 km á 44 mín. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Góð þátttaka í Norræna skólahlaupinu Fagradal | Víkurhamrar austan við Vík í Mýr- dal eru frekar slæmir yfirferðar þó að þeir séu vel grónir. Oft vilja kindur lenda þar í teppu og komast ekki burt af sjálfsdáðum. Jón Hjálmarsson og Grétar Einarsson sigu í bandi niður í hamrana til að bjarga nokkrum kindum sem komust ekki þar upp. Þeir hlóðu undir og mynduðu með því nokkurskonar tröppu sem lömbin stukku síð- an upp á þegar þeir ráku þau upp. Lömbin voru síðan handsömuð þegar þau voru komin upp á Víkurheiði. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Erfitt að smala    Eyrarbakka | Íbúaþing, það fyrsta sem haldið hefur verið á Eyrarbakka, var sett af bæj- arstjóra Árborgar, Einari Njáls- syni, laugardaginn 4. október og stóð frá kl.10 að morgni til kl. 18. Mæting var mjög góð. Það mun láta nærri að rúmlega tíundi hver íbúi hafi tekið þátt í störfum þings þessa, auk þess sem nemendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri unnu að sama verkefni og skiluðu sín- um skoðunum inn á þingið. Arnar Páll Gunnlaugsson nemandi 9. bekkjar gerði grein fyrir nið- urstöðum nemenda, sem voru í flestu samhljóma því sem fram kom hjá hinum ýmsu vinnuhópum fullorðna fólksins þótt röðun hug- mynda og áherslur væru örlítið aðrar. Auðséð var að fólk hafði brennandi áhuga á málefnunum sem til umfjöllunar voru og stefndu til framfara í byggðarlag- inu og var ófeimið við að láta skoðanir sínar í ljós bæði á því sem aflaga hefði farið og hvernig bæta mætti úr og um framtíð Eyrarbakka. Aðeins munar tveim kílómetr- um á vegalengdinni frá Reykjavík til Selfoss og frá Reykjavík til Eyrarbakka og því má gera ráð fyrir auknum áhuga á búsetu niðri við ströndina í næstu framtíð. Vel heppnað íbúaþing Selfossi | Samband sunnlenskra kvenna færði Sjúkrahúsi Suðurlands að gjöf tvö tæki, skoðunarlampa og „monitor“ til notkunar á fæðing- ardeild. Andvirði gjafanna nemur 1,1 milljón. Sambandið er 75 ára í ár og eru gjafirnar afhentar í tilefni þess. Þórunn Drífa Oddsdóttir formaður SSK sagði mikilvægt í huga kvenfélagskvenna að stofnun eins og sjúkrahúsið væri vel tækjum búin. Esther Óskarsdóttir fram- kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fagnaði gjöfinni og sagði kvenfélagskonur mikinn stuðningsaðila stofnunarinnar sem sýndi hug sinn í verki á hverju ári með rausnarlegum gjöfum. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Gjafir: Gefendur ásamt framkvæmdastjóra og fulltrúum starfsfólks. SSK færði fæðingardeildinni gjafir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.