Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 15 Við höfum verið beðnir um að útvega til kaups fasteignir í útleigu með traustum leigutökum á höfuðborgarsvæðinu. Eignir án leigutaka koma til greina ef seljandi er tilbúinn til að taka sjálfur eignina á leigu til langs tíma. Um er að ræða trausta aðila með öruggar greiðslur og koma eignir á verðbilinu frá 50.000.000 - 2.500.000.000 til greina. Áhugasamir eru beðnir um að setja sig í samband við Óskar Rúnar Harðarson lögfræðing eða Sverri Kristinsson löggiltan fasteignasala hjá Eignamiðlun.Óskar Rúnar Harðarson, lögfræðingur Sverri Kristinsson, löggiltur fasteignasali EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS ATHUGIÐ FRELSISFYLKING jarðar, sam- tök róttækustu umhverfisverndar- sinna í Bandaríkjunum, hafa í heilt ár staðið fyrir íkveikjuárásum í út- hverfum Los Angeles, Detroit, San Diego og Fíladelfíu. Enginn hefur þó verið ákærður enn. Tjónið, sem samtökin hafa valdið, er það mesta, sem um getur í bar- áttusögu umhverfisverndarmanna í Bandaríkjunum, en þau hafa sér- staklega ráðist gegn lúxusvillum og glæsijeppum, sem sumir umhverf- isverndarmenn líta á sem samnefn- ara fyrir allt það illa, sem að nátt- úrunni steðjar. Kom þetta fram á fréttavef Chicago Sun-Times. Ron Arnold, sem skrifað hefur nokkrar bækur um öfgafullar um- hverfisverndarhreyfingar, segir, að nokkur áherslubreyting hafi orðið hjá þeim að undanförnu. Þær berjist nú ekki aðeins fyrir verndun ósnort- innar náttúru, heldur einnig gegn því, sem þær kalla kapítalisma. Nú í sumar brenndu einhverjir liðsmenn samtakanna til grunna fjölbýlishús með 206 íbúðum, sem verið var að reisa í Suður-Kaliforn- íu, og sprengdu upp nokkra rándýra Hummer-jeppa. Ron Coronado, talsmaður sam- takanna, segir, að með tilkomu nýrr- ar kynslóðar umhverfisverndar- manna hafi baráttuaðferðirnar breyst. „Þegar ég gekk til liðs við þau um miðjan níunda áratuginn var það stóra málið að reka nagla í tré til að skógarhöggsmenn gætu ekki beitt vélsögunum á þau,“ segir Coronado en hann tók þátt í að sökkva tveimur hvalbátum á Íslandi og sat um tíma í fangelsi fyrir íkveikjuárás á til- raunastofu með dýr við ríkisháskól- ann í Michigan. „Nú er áherslan á að vernda síðustu óspilltu svæðin í úthverfum borganna.“ Sagði hann, að ungir umhverfisverndarmenn gerðu „það eina, sem þeir kunna, til að vekja athygli á málstaðnum, það er að kveikja á eldspýtu“. Hika ekki við að grípa til byssunnar Frelsisfylking jarðar, The Earth Liberation Front, ELF, eru efst á lista FBI, bandarísku alríkislögregl- unnar, yfir innlend hryðjuverkasam- tök en þau urðu til eftir klofning í öðrum öfgasamtökum, Earth First!, fyrir fimm árum. Hafa ELF valdið tjóni, sem metið er á nærri átta milljarða ísl. kr. Á fréttavef samtakanna voru liðs- menn þeirra lengi vel hvattir til að gera allt til að forðast manntjón í að- gerðum sínum en á síðasta ári var farið að kveða við annan tón. Þar sagði, að þótt saklausu fólki yrði hlíft „munum við ekki lengur hika við að grípa til byssunnar til að full- nægja réttlætinu“. Samtökin eru byggð upp af ein- angruðum hópum, sem hafa ein- göngu samband um netið. Ekki er um nein félagsgjöld að ræða eða fé- lagaskrár og er það meginskýringin á því hve illa hefur gengið að upp- ræta þau. Umhverfisverndarsamtökin ELF á lista yfir hryðjuverkamenn Brenna lúxusvillur og dýra glæsijeppa Talsmaðurinn átti þátt í að sökkva hvalbát- um í Reykjavík Sokknir hvalbátar í Reykjavíkur- höfn árið 1988. MOAMAR Gaddafi Líbýuleiðtogi, sem barist hefur árum og áratug- um saman fyrir samstöðu araba- ríkja, lýsti yfir nú um helgina, að hann væri bú- inn að fá sig full- saddan af arab- ískri þjóð- erniskennd og arabískri ein- ingu. Í ræðu, sem Gaddafi flutti fyrir hópi kvenna í bænum Syrte, kvaðst hann fyrst og fremst vera Afr- íkumaður en arabísk eining og þjóðerniskennd heyrðu sögunni til. Var ekki annað á honum að heyra en hann vildi ekkert hafa með arabaríkin að gera og hann skor- aði á Líbýuþing „að staðfesta úr- sögn Líbýu úr Arababandalaginu“. Hefur Gaddafi raunar hótað því áður en ekki látið verða af því. Þótt enginn láti sér bregða við stórkarlalegar yfirlýsingar hjá Gaddafi hafa þessi ummæli hans samt vakið nokkra athygli. Þegar hann komst til valda í Líbýu 1969 var hann upptendraður af hug- sjónum Gamal Abdel Nassers, fyrrverandi Egyptalandsforseta, og þá vildi hann helst sameinast öllum arabaríkjunum bæði nær og fjær. Á laugardag sagði hann, að arabísk þjóðerniskennd heyrði sögunni til. Verða aldrei sterkir „Arabar munu aldrei verða öfl- ugir, jafnvel þótt þeir sameinist. Þeir munu láta sér nægja að horfa á blóði drifnar fréttamyndir frá Palestínu og Írak,“ sagði Gaddafi. „Líbýumenn hafa allt of lengi umborið Arabaríkin og mátt greiða fyrir það með blóði og pen- ingum,“ bætti hann við og sagði, að vegna þessa hefðu þeir verið beittir refsiaðgerðum og verið út- hrópaðir á Vesturlöndum. Araba- ríkin hefðu aftur á móti tekið höndum saman við Bandaríkin og Ísrael gegn Líbýu. Við konurnar sagði Gaddafi, að þær væru „betri og hæfileikaríkari en karlmenn“ og hann hvatti þær til að taka sér afrískar konur til fyrirmyndar en hann hefur áður sagt, að hlutskipti þeirra sé betra en kvenna í arabaríkjunum og á Vesturlöndum. Gaddafi úthúðar arabaríkjunum Segir arabíska einingu heyra sögunni til Gaddafi Trípólí. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.