Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 45 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake VOG Afmælisbörn dagsins: Þú ert hugsjónamaður og vilt breyta heiminum til hins betra. Ákveðni einkennir þig og þú veist hvernig á að stjórna aðgerðum annarra. Ef þú leggur hart að þér næsta árið mun árangurinn skila sér 2005. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú lætur þér ekki á sama standa um trúmál og pólitík en hins vegar er ekkert unnið með því að hafa hátt. Sumir vilja einfaldlega ekki hlusta. Naut (20. apríl - 20. maí)  Komið gæti til lítils háttar ágreinings við vin í dag um peninga eða eitthvað sameig- inlegt. Vináttan er peningum mikilvægari. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Aðrir virðast halda að þeir viti hvað þér er fyrir bestu, en það þarf ekki að vera og þú þarft ekki að hlusta á þeirra ráð frekar en þú vilt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Viðskiptavinur eða starfs- félagi gæti reynst ýtinn í dag. Þú átt tvo kosti; að svara í sömu mynt eða sýna fram á að önnur framkoma væri heppilegri. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Afbrýðisemi gæti blossað upp í dag og er best að doka við og sjá hver staðan verður á morgun. Afstaða þín gæti breyst. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Láttu verða af hugmyndum um að taka til hendinni heimafyrir. Best væri að hefj- ast handa í þvottahúsinu eða baðherberginu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Örðugleikar gætu komið upp í samstarfi í vinnunni í dag. Þetta á að hluta rót í tor- tryggni, en láttu það ekki trufla þig. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú kannt að líta svo á að þú verðir að kaupa ákveðinn hlut í dag. Ef þú lætur undan er betra að gera það fyrri hluta dags. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú kannt að vilja koma með einhverjar tillögur eða gagn- rýni á nákomna, en eins víst er að litið verði á slíkt sem óþarfa afskiptasemi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ekki leggja of hart að þér við að sannfæra aðra í dag. Þú kannt að vera gagntekin/n, en öðrum stendur á sama. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Einhver áhrifaríkur gæti reynt að segja þér fyrir verk- um í dag. Það kann að vaxa þér í augum, en þú verður að fylgja þinni sannfæringu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Varastu að bjóða yfirboð- urum byrginn í dag. Þetta er ekki góður dagur til að efna til ágreinings. Líklegra er að þú náir árangri síðar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÁRNAÐ HEILLA 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 e6 4. Dc2 dxc4 5. Dxc4 Rf6 6. Bg5 b5 7. Dc2 Bb7 8. e4 Rbd7 9. Bd3 Db6 10. a4 a6 11. O-O Hc8 12. Rc3 h6 13. Be3 Rg4 14. Bf4 Be7 15. De2 O-O 16. h3 Rgf6 17. e5 Rd5 18. De4 f5 19. exf6 Hxf6 20. Dh7+ Kf7 21. Re5+ Ke8 22. Bg3 Dxd4 23. Had1 Rxe5 24. Be4 Db4 25. Bxe5 Kf7 26. axb5 axb5 27. Hd3 Hg8 28. Bxf6 Bxf6 29. Bg6+ Kf8 30. Rxd5 cxd5 31. Hf3 Dxb2 32. Hb1 De5 33. Hxb5 Bc6 Staðan kom upp á rússneska meistaramótinu sem lauk fyrir skömmu. Andrei Kharlov (2596) hafði hvítt gegn Bator Sambuev (2496). 34. Hxf6+! og svartur gafst upp enda verður hann mát eftir 34... gxf6 35. Df7# og verður hróki undir eftir 34... Dxf6 35. Hb8+. MP- mótinu, meistaramóti Tafl- félags Reykjavíkur lýkur í vikunni með umferðum miðvikudaginn 8. október og föstudaginn 10. október. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. SUÐUR á 24 punkta og þarf því ekki mikla hvatn- ingu á móti til að segja slemmu. En þrátt fyrir drjúgan styrk og rennilegan tromplit er slemman afleit: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ 9532 ♥ 10986 ♦ D543 ♣Á Suður ♠ ÁK86 ♥ ÁKDG3 ♦ Á10 ♣DG Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 2 lauf Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu Pass 4 lauf * Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Norður afmeldar fyrst við alkröfunni, en sýnir svo stutt lauf og góðan hjarta- stuðning með „splinter“ stökki í fjögur lauf. Suður veit sem er að litlu hjónin í laufi nýtast illa á móti ein- spili, en kærir sig kollóttan og segir slemmuna. Vestur spilar út lauftíu og við sagnhafa blasa tveir lík- legir tapslagir, annar á spaða og hinn á tígul. Hvað er til ráða? Það verður að spila út frá þeirri forsendu að sami mót- herji haldi á þrílit í spaða og tígulkóng. Þá er hugsanlegt að senda viðkomandi inn á þriðja spaðann og láta hann spila frá kóngnum í tígli. En fyrst þarf að trompa lauf og taka tvisvar hjarta. Sem þýðir að hjörtu varnarinnar þurfa helst að vera 2-2: Norður ♠ 9532 ♥ 10986 ♦ D543 ♣Á Vestur Austur ♠ G4 ♠ D107 ♥ 752 ♥ 4 ♦ G2 ♦ K9876 ♣1098754 ♣K632 Suður ♠ ÁK86 ♥ ÁKDG3 ♦ Á10 ♣DG Það er ekki endilega nauðsynlegt að trompið sé 2-2. Sagnhafi spilar þannig: tekur ÁK í trompi, fer heim spaðaás og stingur lauf. Spilar svo spaða á kónginn og meiri spaða. Austur lend- ir inni á spaðadrottningu og verður að spila tígli frá kóngnum eða laufi í tvöfalda eyðu. En bíðum við. Vestur get- ur trompað þriðja spaðann! Það væri góð vörn, en dugir ekki til í þetta sinn, því suð- ur á tígultíuna. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 19. júlí sl. í Víðistaða- kirkju af sr. Braga J. Ingi- bergssyni þau Linda Sig- urðardóttir og Páll Jóhannes Aðalsteinsson. Þau eiga heimili í Hafn- arfirði. Mynd, Hafnarfirði Ljósmynd/Árni Sæberg BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 14. júní sl. í Háteigs- kirkju af séra Hjálmari Jónssyni þau Valdís Sig- urgeirsdóttir og Björn Jak- obsson. HLUTAVELTA Morgunblaðið/Kristján Þessir ungu piltar héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 2.600 krónur. Þeir heita Gunnar Torfi Steinarsson og Hreiðar Kristinn Hreiðarsson. BRÚÐURIN BLÁRRA FJALLA Þið trúið því aldrei, hve langur var tíminn sem leið og löngunin sár: með ástina í hjartanu sat ég við sjóinn og beið í sjö hundruð ár. Ég sat þar í fjötrum – og stormarnir stóðu um mig vörð við stjarnanna skin. Og oft fannst mér ég vera einasta veran á jörð, sem átti engan vin. Ég beið eftir honum. Mig dreymdi hann dagsetrin hljóð, hinn dýrðlega mann. Og fávís og einmana orti ég sögu eða ljóð – og alltaf um hann. - - - Jóhannes úr Kötlum LJÓÐABROT MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmæl- isbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/eða nafn ábyrgð- armanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569- 1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bridsfélag Selfoss og nágrennis Fimmtudaginn 2. október sl. var spilaður eins kvölds tvímenningur. Þátt tóku 13 pör, sem er mjög góð þátttaka miðað við að þetta var fyrsta mót vetrarins. Þessi pör voru með meira en meðalskor: Höskuldur Gunnarss. – Jón S. Péturss. +48 Sigurjón Pálsson – Páll Skaftason +28 Auðunn Hermannss. – Gunnar Þórðars. +21 Ólafur Steinason – Guðjón Einarsson +18 Þórður Sigurðsson – Gísli Þórarinsson +16 Nk. fimmtudagskvöld (9. október) hefst 3 kvölda Málarabutler. Spilar- ar eru beðnir um að mæta tímanlega til leiks, þannig að spilamennska geti hafist stundvíslega kl. 19:30. Spilað verður að venju í Tryggvaskála. Þess má geta að félagið hefur nú opnað heimasíðu, þar sem hægt er að fletta upp úrslitum, ásamt því að hægt verður að nálgast fleiri upplýs- ingar. Vefslóðin er: http:// www.bridge.is/fel/selfoss. Íslandsmót í einmenningi Mótið verður spilað 17.–18. októ- ber í Síðumúla 37. Spilamennska hefst föstudag kl. 19:00 og lýkur laugardag um kl. 18:00. Spilaður verður barometer. Allir spila sama kerfið þ.e. einfalt Standard-kerfi og er hægt að nálgast það á skrifstof- unni eða á www.bridge.is Skráning er í s. 587 9360 eða bridge@bridge.is Skráningar verða að berast í síðasta lagi fimmtudaginn 16. okt. kl. 17:00. Keppnisstjóri er Björgvin Már Kristinsson og keppnisgjald er kr. 3.000. Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Spilaður var Mitchel-tvímenning- ur föstudaginn 3. október á sex borð- um. Miðlungur var 100. Norður/suður Kristján Ólafsson – Friðrik Hermannss. 127 Sævar Magnússon – Bjarnar Ingimarss. 110 Þorvarður S. Guðm. – Árni Bjarnason 107 Austur/vestur Lilja Kristjánsd. – Sigríður Gunnarsd. 119 Árni Guðmundss. – Hera Guðjónsdóttir 106 Jón Gunnarsson – Kristján Þorláksson 105 Það verður ekki spilað föstudag- inn 10. október. Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 20 pör þriðjudaginn 30. sept og var hörkukeppni í báðum riðlum. Lokastaða efstu para í N/S varð þessi: Jón Stefánsson - Þorsteinn Laufdal 266 Vilhj. Sigurðss. - Þórður Jörundss. 264 Hörður Davíðss. - Einar Einarss. 235 Hæsta skorin í A/V: Jóhannes Guðmannss. Unnar Guðmss. 255 Haukur Guðmundss. - Valdimar Elíass. 245 Garðar Sigurðss. - Haukur Ísakssson 238 Sl. föstudag var góð mæting en þá spiluðu 24 pör. Lokastaða efstu para í N/S: Jón Stefánss. - Þorsteinn Laufdal 259 Lárus Hermannss. - Sigurður Karlss. 254 Vilhj. Sigurðss. - Þórður Jörundss. 250 Hæsta skorin í A/V: Eysteinn Einarss. - Magnús Halldórss. 266 Einar Markússon - Magnús Oddsson 245 Oddur Jónsson - Katarinus Jónsson 235 Meðalskor báða dagana var 216. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Hann? Jóhanna Guðrún Jónsdóttir fjölskylduráðgjafi Skemmtilegt námskeið fyrir konur á öllum aldri af öllum stærðum og gerðum verður haldið í Brautarholti 4A laugardaginn 11. október frá kl. 13-17. Efni námskeiðsins er m.a.:  Eigi vil ek hornkerling vera  BE-ástandið  „Þóknast þér“-skeiðið  Seinkunartæknin  Hverjir voru heimsmeistarar í sektarkennd 2002? Stuttir fyrirlestrar með léttu ívafi og meðlæti Skráning í síma 588 2092 og 862 7916 ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.