Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞÓTT bæjaryfirvöld hafi vissulegaáhyggjur af fólksfækkun á Bíldudal,þar sem búa nú 258 manns, setja þauspurningarmerki við það hvort unnt sé að stöðva þróunina með sértækum aðgerðum. Ár- ið 1998 bjuggu 334 íbúar á staðnum, þannig að fækkunin er umtalsverð. Nú eru 145 vinnufærir íbúar á Bíldudal og 14 atvinnulausir. 54 börn upp að 15 ára aldri búa á staðnum og í Grunnskóla Vesturbyggðar voru 37 börn frá Bíldudal í fyrra eftir að hafa snarfækkað fyrir þremur árum, eða úr 50. Brynjólfur Gíslason, bæjarstjóri Vesturbyggð- ar, segist hafa áhyggjur af þessari þróun og segir einmitt fækkun grunnskólabarnanna endur- spegla það ástand sem blasir við augum. „Þessa stundina hljóta bæjaryfirvöld að hafa áhyggjur af þróun mála, en á hinn bóginn, litið á hlutina í stærra samhengi, spyr maður hver sé hin alþjóð- lega þróun,“ segir hann. „Eitt er þó það sem ekki fer hátt í umræðum um þessi mál, en það eru af- leiðingar hagræðingar. Það hefur komið fram að um 20% starfsfólks í fiskverkun eru erlendir rík- isborgarar. Einnig að starfsfólki í sjávarútvegi hafi fækkað um helming á tíu ára tímabili. Þetta er vegna hagræðingar í greininni og því þarf eng- an að undra þótt störfum skuli fækka. Að þessu hefur verið stefnt í mörg ár, þ.e. að létta störfin í frumframleiðslugreinunum, þannig að það þurfi færri hendur til að vinna þau. Af þessu leiðir að störfum fækkar. Fjölgun starfa hefur fyrst og fremst verið í opinbera geiranum síðasta áratug- inn. Þegar ekkert þeirra starfa verður til á minni stöðunum úti á landi, þá verð ég undrandi þegar stjórnmálamenn skilja ekki neitt í því sem er að gerast. Það er hagrætt og störfum fækkar í einni atvinnugrein. Ef þessi atvinnugrein er burðarás atvinnulífs á einhverjum til- teknum stað hlýtur það að koma mjög merkjanlega fram þar. Ef fjölgun starfa í sam- félaginu verður ekki til í þessu umhverfi, þá hlýtur þetta allt saman að vera í mínus og eng- inn ætti að verða undrandi á því.“ Á bæjarráðsfundi Vestur- byggðar 1. október síðastlið- inn var gerð samantekt á skoð- un opinberra aðila á atvinnulífi á Bíldudal, en Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Byggðastofn- un hafa tilnefnt tvo fulltrúa í starfshóp til að greina stöðu fyrirtækja á Bíldudal og gera tillögur til úrbóta. Þá hefur svæðismiðlun Vestfjarða verið að undirbúa Menntasmiðju fyrir konur á Bíldudal og víðar og við þetta bætist umfjöllun um atvinnu- mál í Vesturbyggð með starfi hópa sem gert er ráð fyrir að hefjist 9. október. Brynjólfur segir ekki hafa verið kallað eftir sértækum aðgerðum í atvinnumálum fyrir Bíldudal, en tveir Bílddæl- ingar sitja í sveitarstjórn. Talað hefur verið um nýsköpunarmöguleika á sviði kalkþörungavinnslu á Bíldudal og að verksmiðja verði reist sem muni útvega 15 manns atvinnu. Frestun hefur orðið á byggingu hennar vegna markaðsaðstæðna í Bandaríkjunum, en þangað átti að selja fram- leiðsluafurðirnar. Brynjólfur varar við því að litið verði á kalkþörungavinnslu, hvenær sem hún muni hefjast, sem allsherjar bjargvætt fyrir Bíldudal. „Ég hef lagt á það áherslu að kalkþör- ungavinnsla yrði viðbót við atvinnulífið en kæmi ekki í stað fiskvinnslu. Hún kemur ekki í staðinn fyrir það sem er fyrir. Þangað til búið er að útiloka aðra möguleika, mega menn ekki að líta framhjá þ s e e Þ i v e e v á s s s v ó V h á e s e i s h s s v v t b Fólk vonsv og þarf skýr Greiðslustöðvun hjá frystihúsi Þórðar Jónssonar ehf. á Bíldu unar hjá Rækjuveri og frestun á kalkþörungaverksmiðju á s um tíma í vor og hafði slæm áhrif á atvinnumálin skrifar Örly frá Bíldudal. Fólki hefur fækkað um ríflega þriðjung síðan 1 Brynjólfur Gíslason o VANDAMÁL BÍLDDÆLINGA Vandamál í atvinnulífi Bílddæl-inga eru ekki ný af nálinni. Þauhafa skotið upp kollinum við og við á undanförnum áratugum. Þó hefur verið hljótt um þau í allmörg ár og á tímabili fyrir nokkrum árum virtist Bíldudalur vera að blómstra á ný en staðurinn á sér eins og kunnugt er glæsta fortíð í atvinnumálum og menn- ingarlífi. Nú búa 258 manns á Bíldudal og hef- ur þeim fækkað verulega frá árinu 1998, þegar íbúar voru 334. Nú eru 145 vinnufærir íbúar á Bíldudal og þar af eru 14 atvinnulausir. Með þeim breytingum, sem orðið hafa í atvinnuháttum og skipulagi at- vinnufyrirtækja er ekki hægt að búast við því að öll litlu sjávarplássin haldist í byggð. Það er heldur ekkert reiðarslag fyrir þjóðarbúskapinn þótt þeim fækki eitthvað. En það er jafnsárt fyrir íbúa þeirra staða sem standa höllum fæti að þurfa að horfast í augu við brottflutn- ing og jafnvel frá verðlausum eða verð- litlum eignum. Það er ekkert nýtt á Íslandi að sjáv- arplássum fækki. Eitt sinn var blómleg byggð á Hesteyri og í Aðalvík svo að dæmi séu nefnd en fólk flutti á brott frá þessum stöðum og afkomendurnir sækja nú í heimabyggðir sínar að sum- arlagi. Í eina tíð var líka róið frá Skála- vík utan Bolungarvíkur en í þeirri fal- legu vík, sem stendur fyrir opnu hafi, eru nú nokkur sumarhús. Það má ekki alltaf líta svo á að breyt- ing frá ríkjandi ástandi sé alvond. Sú tíð er liðin að hægt sé að halda uppi byggð á einstökum stöðum á Ís- landi með svokölluðum „sértækum að- gerðum“. Reynslan hefur kennt okkur að það er ekkert vit í því og íbúarnir standa í sömu sporum nokkrum miss- erum seinna. Byggðakjarninn við Djúpið er að verða býsna öflugur. Göngin hafa haft mikla þýðingu fyrir atvinnulífið og tengslin á milli staðanna. Margir hafa talið vissa möguleika á að byggja upp nokkuð sterkan byggða- kjarna á sunnanverðum Vestfjörðum í kringum byggðina á Patreksfirði. Þótt einhverjar tilfæringar verði á milli byggðanna á sunnanverðum Vestfjörð- um þarf ekki endilega að líta á það sem neikvæða þróun. Alla vega getur hún haft ákveðna kosti í för með sér. Þegar horft er til Tálknafjarðar, Bíldudals og Patreksfjarðar er ljóst að Tálknafjörður hefur skapað sér ákveðna sérstöðu og þar hefur staðan í atvinnumálum yfirleitt verið betri. Töluverðar sveiflur hafa verið í at- vinnulífi á Patreksfirði og er það bæði gömul saga og ný. Það eru sterk rök fyrir því að leggja áherzlu á öflugan byggðakjarna á sunnanverðum Vestfjörðum en það verður að gera ráð fyrir því að einhver hreyfing verði á milli byggðarlaga. Jafnframt er tímabært að Alþingi og ríkisstjórn hugleiði hvernig hægt er að auðvelda fólki flutning milli byggðar- laga, þannig að það standi ekki eigna- laust eftir ævistarf vegna þess að þró- un byggðar í landinu hefur verið þeim hinum sömu óhagstæð. SKÓLAFRÍ OG SKIPULAG Flestir foreldrar barna á grunn-skólaaldri þekkja þá röskun, sem svokallaðir starfsdagar í grunnskól- um og vetrarfrí barnanna valda. Það er undir hælinn lagt hvort vinnandi fólk getur fengið frí þegar börnin eru ekki í skólanum og oft verður niður- staðan sú að börnin þeytast á milli vina og ættingja úr einni pössuninni í aðra eða fylgja foreldrum sínum í vinnuna, sem oft hentar hvorki vinnu- staðnum, foreldrunum né börnunum. Foreldrar, sem eiga inni sumar- eða vetrarleyfi, reyna auðvitað oft að nota það með börnunum á skólafrí- dögum þeirra, en þá biðja margir starfsmenn á vinnustað gjarnan um frí á sama tíma, sem getur verið mjög óhagstætt fyrir atvinnulífið. Menn hafa rætt ýmsar lausnir á þessu vandamáli. Reykjavíkurborg hefur nú farið þá leið að leitast við að samræma starfsdaga í grunnskólum borgarinnar og í leikskólum líka. Það hefur þann kost að foreldrar, sem eiga t.d. börn bæði í grunnskóla og leikskóla, þurfa ekki að taka sér frí eða finna pössun fyrir börnin sín jafnmarga daga og ella. Hins vegar getur það haft ofangreindan ókost í för með sér fyrir atvinnulífið; að margir foreldrar þurfi frí á sama tíma. Hér á Íslandi hefur ekki skap- azt sú hefð, sem til er víða í ná- grannalöndunum, að starfsemi margra fyrirtækja sé í lágmarki á sama tíma og frí eru í skólum, þannig að foreldrar og börn geti verið saman í fríi. Samtök atvinnulífsins hafa þó lýst sig tilbúin „til samstarfs um að koma orlofsmálum hér á landi í fast- ari skorður“ eins og það var orðað þegar þessi mál voru rædd í fyrravet- ur. Íslandsbanki gerir nú tilraun með lausn á þessum vanda. Í Morgun- blaðinu í dag er sagt frá því að bjóða eigi starfsmönnum bankans, sem eigi börn í 1.–5. bekk grunnskóla, upp á að fara með þau í Heilsuskóla á veg- um bankans þá daga, sem vetrarfrí stendur yfir. Herdís Pála Pálsdóttir, starfsmaður bankans, segir í samtali við blaðið að með þessu fái allir eitt- hvað fyrir sinn snúð; álagi sé létt af foreldrum, komið sé í veg fyrir að starfsemi bankans raskist og börnum starfsfólksins sé boðið upp á skemmtilegan skóla. Þetta er snjöll hugmynd til að leysa úr áðurnefndu vandamáli og sjálfsagt geta fleiri fyrirtæki nýtt sér hana ef vel gengur; jafnvel gæti orðið til grundvöllur fyrir fleiri einkarekna „skóla“, sem bjóða upp á fræðslu og skemmtun fyrir börn þá daga, sem hið opinbera skólakerfi fer í frí. Hins vegar er þeirri spurningu í raun ósvarað hvort betra er að dreifa skólafrídögum þannig að tiltölulega fá börn séu í fríi á hverjum tíma, eða hvort samræma eigi fríin á milli skóla, skólastiga, hverfa og jafnvel sveitarfélaga, þannig að allir fari í frí á sama tíma. Svo er það líka spurning, hvort börn verðskuldi það ekki að fá stund- um alveg frí frá öllu, sem heitir skóli og fræðsla og fái bara að leika sér – helzt með foreldrum sínum. JÓN Þórðarson, framkvæmdastjóri Þórð-ar Jónssonar ehf. á Bíldudal, sem fór ígreiðslustöðvun nú í vor, bindur vonirvið að starfsemin geti komist í fullan gang bráðlega og unnt verði að fjölga starfsfólki, en nú starfa 20 manns í fyrirtækinu. Unnið er að endurfjármögnun á fyrirtækinu og segir Jón lík- legast að það fari í nauðasamninga við lánar- drottna sína. Undanfarin ár hefur fyrirtækið byggt á vinnslu 260 tonna þorskkvóta og til við- bótar unnið úr 1200 til 1500 tonnum af hráefni árlega. „Til að fyrirtækið geti starfað þarf aukið hlutafé upp á 50 milljónir og einnig þarf trygg hráefnisöflun að vera fyrir hendi,“ segir Jón. Fyrirtækið fór í greiðslustöðvun vegna óhag- stæðra ytri skilyrða svo sem lækkun afurða- verðs og gengisbreytinga, en því til viðbótar hafði hækkun á leigukvóta slæm áhrif á rekst- urinn svo og erfitt aðgengi að hráefni. Greiðslu- stöðvunin stendur til 1. desember. „Ef allt geng- ur samkvæmt áætlun ætti fyrirtækið að vera orðið eðlilegt um miðjan nóv- ember. Ég er bjartsýnn á að það takist, þótt erfitt sé að sjá alla framvindu mála ná- kvæmlega fyrir á þessu stigi málsins.“ Starfsmenn hætta vegna óvissu Um fjörutíu manns unnu hjá fyrirtækinu áður en það fór í greiðslustöðvun, en ekki hefur verið um uppsagnir að ræða vegna henn- ar, heldur hættu flestir vegna óvissu um framtíð fyrirtækisins. „Óöryggi verkafólks hefur auðvit- að það í för með sér að fólk hugsar sér til hreyf- ings,“ segir Jón. „Það gildir um sjávarbyggðir almennt að atvinnuöryggi í sjávarútvegi er allt of lítið, sérstaklega á minni stöðunum. Það kem- ur til af því að ekki er verið að gera út skip sem eru hæf til þess að afla hráefnis yfir vetrarmán- uðina. Stór hluti þeirra báta sem gerðir eru út í d h o v v k a u e á e u k s h B þ A s s á Allt of lítið atv öryggi í sjávarú Jón Þórðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.