Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN 32 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ F élag þar sem allir eru samtímis við stjórn og enginn hefur um- boð til að taka af skarið getur verið eins og heillandi fuglabjarg. En gagnsemin er lítil. Og eitt er víst: enginn óbrjálaður maður myndi mæla með því að heiminum væri stjórnað af slíkri samkundu. En samt láta margir sig dreyma um að það verði gert og halda að þá yrði allt svo friðsamlegt og allar deilur leystar á siðlegan hátt. Veruleikinn er allt annar, málræði færir þjóðum oft einræði af ein- hverju tagi vegna þess að þær gef- ast loks upp á froðusnökkum sem geta ekki tryggt þeim öryggi. Fólk fer að hugsa með söknuði til þeirra tíma þegar hægt var að ganga um göturnar án þess að óttast ofbeldislýð og biður um sterkan leið- toga. Hvernig var ástandið um mestallan heim í blessuðu kalda stríðinu? Tvö risa- veldi, Bandaríkin og Sovétríkin, gnæfðu yfir önnur ríki. Þau héldu, annað þeirra aðallega með góðu og hitt illu, uppi ákveðinni lögreglu sem tryggði að oftast ríkti þokka- legur friður. Spennan vegna stöð- ugs óttans við kjarnorkustríð skemmir að vísu þessa glansmynd af fortíðinni, friðurinn var ótrygg- ur. En öflugustu ríki heims þyrftu nú að taka sig saman um að gera það eina sem þau geta öðrum fremur: að tryggja frið og öryggi, með hervaldi þegar þörf krefur. Það er vítavert ábyrgðarleysi af hálfu annarra stórþjóða að láta Bandaríkjamenn eina um að stöðva glæpahunda eins og Sadd- am Hussein og leyfa Sameinuðu þjóðunum að koðna niður í áhrifa- leysi vegna ofuráherslu á að aldrei megi grípa inn í innri mál aðild- arríkis með valdi. Grimmir harð- stjórar eins og Castro og Gaddafi komast enn upp með að þykjast vera menn en ekki ómenni. En hvernig er hægt að fá lög- regluvaldið í hendur þeim sem ráða yfir tækjunum til að halda uppi lágmarksreglu, hvernig er hægt að þvinga fram aukin áhrif stórveldanna á kostnað smáþjóð- anna í fuglabjarginu? Einfaldast væri sennilega að stokka algerlega upp öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna og hafa þá að leiðarljósi veru- leikann en láta draumana um heim þar sem öll dýrin í skóginum eru vinir ekki villa sér sýn. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, segir að samtökin standi á tímamótum eftir Íraksstríðið og brýn þörf sé á endurskipulagningu sem taki mið af gerbreyttum heimi frá því að þau voru stofnuð 1945. Nú hafa fimm ríki fast sæti og neitunarvald í öryggisráðinu og tíu ríki að auki eru kosin þar til setu um nokkurra ára skeið í senn en hafa ekki neitunarvald. Ef Evr- ópusambandinu tekst einhvern tíma að klambra saman utanríkis- og varnarstefnu er eðlilegast að í nýju, fámennara öryggisráði yrðu Bandaríkin, Evrópa, Indland og Kína. Vegna stærðar og legu Rússlands og efnahagsmáttar Japans má færa rök að því að í nýju öryggisráði eigi að sitja alls sex fulltrúar. Þau verða öll að hafa neitunarvald, ella myndi eitthvert ríkjanna á endanum neita að hlíta meirihlutaákvörðun og þá fengi ráðið hægt andlát. Veruleikinn gæti verið betri en svona er hann. Einhver rís nú upp á afturlapp- irnar og segir að SÞ séu samtök sjálfstæðra ríkja og eðlilegt sé að þau hafi öll eitthvað um öryggis- mál heimsins að segja. Nær væri að fella niður neitunarvaldið og fjölga í öryggisráðinu. En hér skal spurt hvort markmiðið með starfi ráðsins sé ræðuhöld fremur en að tryggja öryggi og sameinast um viðbrögð þegar viðvaranir og skammir duga ekki. Sumum finnst að nauðsynlegt sé fyrir smáþjóðir að geta þóst hafa afgerandi áhrif á heimsfrið- inn. Ekki skal gert of lítið úr sið- ferðislegu aðhaldi sem smáþjóð- irnar geta veitt ósvífnum ráðamönnum í Kína, Indlandi eða Rússlandi, löndum þar sem ann- aðhvort ríkir ekkert lýðræði eða mjög takmarkað. En gagnrýnin á betur heima á allsherjarþinginu. Öryggisráðinu ætti að breyta í samráðsvettvang þeirra sem ráða í reynd og líklega best að hafa fundina þar lokaða fjölmiðlum; þá yrði minna um innantóman áróður í yfirlýsingunum. Einhver gæti spurt hvort það sé ekki óraunsæi að halda að sex stórveldi geti komið sér saman um að tryggja öryggi í heiminum. En þá er margs að gæta. Mestu and- stæðurnar í öryggisráðinu yrðu sennilega milli Kína og Bandaríkj- anna vegna harðstjórnarinnar í fyrrnefnda landinu en á hinn bóg- inn verður að minna á að við- skiptatengsl milli ríkjanna tveggja eru orðin geysimikil og vaxa hratt. Þar eru því sameiginlegir snerti- fletir. Öll eiga ríkin sex það sam- eiginlegt að ógnin sem steðjar að heimsfriði er nú af öðrum toga en hún var. Þau eru á vissan hátt öll í sama bátnum. Ógnin við heimsfrið stafar nú ekki síst af því að mörg bláfátæk ríki í þriðja heiminum eru að breytast í óskapnað. Þau eru ófær um að halda uppi lögum og reglu, mistekst að stemma stigu við mannfjölgun og geta ekki haft hemil á glæpasamtökum sem stundum flagga pólitísku flaggi, eins og til dæmis í Líberíu. Rík- isvald í hefðbundnum skilningi er að leysast upp í umræddum lönd- um. Hryðjuverkahópar hreiðra þar um sig og leggja þau jafnvel undir sig, eins og reyndin varð í Afganistan þegar Osama bin Lad- en keypti talibanana. En örygg- isráðið gæti virkjað þekkingu og reynslu SÞ til að taka að sér vel- viljaða umboðsstjórn í umræddum löndum í nafni heimsbyggð- arinnar. Samtökin gætu smám saman byggt þar upp siðað sam- félag og réttarríki. Stórveldin myndu annast löggæsluna. Sagt er að nýjar hættur geti skerpt mönnum sýn. Fámennir hryðjuverkahópar gætu jafnvel einhvern tíma í framtíðinni komið stórveldi á kné, sundrað innviðum þess með gereyðingarvopnum eða tölvuárásum. Þrátt fyrir stærðina eru stórveldi og einnig risaveldið Bandaríkin berskjölduð fyrir slík- um hættum – nema þau vinni sam- an. Eflum nú stórveldin Öryggisráðinu ætti að breyta í samráðs- vettvang þeirra sem ráða í reynd og lík- lega best að hafa fundina þar lokaða fjölmiðlum; þá yrði minna um innan- tóman áróður í yfirlýsingunum. VIÐHORF Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is EINU sinni fyrir langa löngu á árinu 1914 var stofnað lítið skipa- félag til að bjarga umkomuleysi þjóðarinnar við flutninga til og frá landinu. Það var nefnt Eimskipafélag Íslands hf. því að þá voru aðeins til gufu- skip eða eimskip. Landsmenn voru þá svo aumir að þeir urðu að leita á náðir landflótta Íslendinga í Vest- urheimi til að geta stofnað þetta fé- lag og komið því á legg. Lengi áttu Vestur-Íslendingar menn í stjórn Eimskips, og komu löngum fulltrú- ar þeirra til landsins til að sitja að- alfundi félagsins. Þeir urðu þó um síðir þreyttir á þessu og seldu sinn hlut til ríkisins á spottprís. Seinna, þegar Íslendigar höfðu lítillega rétt úr kútnum eftir síðari heimsstyrj- öldina komu svonefndir íslenzkir athafnamenn til skjalanna og keyptu upp gamalt hlutafé Eim- skips á sömu spottprísunum þar til þeir höfðu náð fullum tökum á hlutafé félagsins og stóðu þau upp- kaup yfir fram á lok sjöunda ára- tugs síðustu aldar. Eftir að Eimskip hafði losað sig við samkeppni með gjaldþroti Haf- skips hf. 1989 og í kjölfarið Útvegs- bankans hf. sem Framsókn studdi að venju á Alþingi, hefir vegur Eimskips farið stöðugt vaxandi, enda hafa þeir verið einráðir um ákvörðun allra flutningataxta til landsins síðan. Samskip hf. hafa síðan siglt góðum byr í skjóli verndar af háum flutningatöxtum Eimskips. Eftir að lögin um einka- hlutafélög voru sett árið 1994, hefir Eimskip síðan stofnað níu einka- hlutafélög, en einkenni þeirra er að Eimskip á allt hlutafé þeirra og að- eins stjórnarmönnum í Eimskip er heimill aðgangur að upplýsingum um rekstur þeirra. Þannig veit enginn nema stjórnarmenn í Eim- skip hvaða millifærslur frá Eimskip hafa átt sér stað til þessara einka- hlutafélaga á liðnum árum. Þannig er t.d. ekki vitað hvaðan Burðarás ehf. hefir fengið allt sitt fé til kaupa á margvíslegum eignum þessa einkahlutafélags. Reykjavíkurborg í hafti hugarfarsins Nú skýrir Mbl. frá því að Eim- skip hafi sótt um að byggja nýjar höfuðstöðvar félagsins á bílaplan- inu austan Pósthússtrætis og því hafi verið vel tekið af bæjarráði. Vitlausari tillaga hefir ekki sést síðan Þorsteinn Pálsson staðsetti Hæstarétt á byggingarlóð Stjórn- arráðsins en hann hefir verið land- flótta síðan. Nýjar höfuðstöðvar Eimskips gætu verið staðsettar hvar sem er í bænum, en eðlilegast væri að hafa þær í grennd við Sundahöfn. Stjórnendur Reykjavík- urborgar eru í eilífum vanda út af uppbyggingu Miðbæjarins sem þeir telja að sé aðeins í Kvosinni. Þeir sýnast aldrei sjá lengra nefi sínu. Stórt bílageymsluhús fyrir Kvosina Bílastæðavandinn í Kvosinni verður ekki leystur nema með stóru bílastæðahúsi. Kvosin er að- eins lítið svæði, og bílahús á þess- ari lóð austan Pósthússtrætis er upplögð lausn á vandanum. Lóðin er utan fluglínu á Reykjavík- urflugvelli og því unnt að byggja þarna hátt, t.d. tvær hæðir í kjall- ara fyrir bílageymslur, næstu tvær hæðir fyrir verzlanir og skrifstofur, og síðan t.d. sex hæðir fyrir lang- tímabílageymslur, en síðan mætti og ætti að loka öllum öðrum bíla- stæðum í Kvosinni, banna þar allar bílastöður á götunum og byggja hús á núverandi opnum bílastæða- lóðum. Menn verða að varast að vinna sér ekki til óþurftar. Ekki veldur sá er varar. Vandræðabarn þjóðarinnar Eftir Ønund Ásgeirsson Höfundur er fyrrverandi forstjóri. NÚ ER rætt um að „úrelda“ sláturhús á Kópaskeri, Vopnafirði og á Fosshóli. Keyra lömbum lengri leið, stressa kjötið, fleiri marbletti, borga meiri akstur, meiri þungaskatt og slátra í sláturhúsi sem skuld- ar milljarða – „til að auka hagræðingu“. Þegar „hagræðing“ heyrist hrekk ég við, að öðru leyti er ég góður á taugum. Dýralæknar EB virðast svo drullusvekktir út af salmonellu og kamfýlobakter í kjúk- lingum og svínum að þeir heimta að slátrun fjallalamba fari fram eins og heiðarlömbin séu smituð þessum bakt- eríum! Í Grikklandi – sem er í EB – virðist enginn hafa hug- mynd um reglugerðir dýrulækna EB. Á Krít er ferskt lambakjöt og ferskur fiskur selt hlið við hlið á mörkuðum – inni og úti (bannað hér- lendis). Á innimörkuðum er galopið í allar áttir (bannað hérlendis) og engar hurðir, bara járnrimlar. Gólfið á þessum mörkuðum er malbik (bannað hérlendis) og vinalegir kettir að sníkja í matinn. Af hverju er allt morandi í öfgum hérlendis en menning Grikklands fær að blómstra – í EB? Kjöt var höggvið á harðviðarhnalli (bannað hér). Í næsta bás, opið á milli (bannað hér), var fisksali að selja ferskan fisk ísaðan í tré- kössum (bannað hér). Greitt var með evrum sem settar voru í trékassa ofan á einum fiskikassanum (engin sjóðsvél!). Garðyrkjubændur seldu grænmeti og ávexti beint sjálfir á þessum mörkuðum – borgað í tré- kassann! Allt framkallaði þetta stemmingu sem var sérstök, menning þessa lands – beint í æð. Enginn virtist hafa áhyggjur af dýralæknum EB. Ég borðaði bæði fisk og lambakjöt – eflaust keypt á þessum mörk- uðum – sem bragðaðist frábærlega. Á hvaða leið erum við svo hér heima á Fróni? Eru reglugerðir EB heilagri en rótgróin íslensk sveitamenning? Má fórna íslenskri sveita- menningu á altari duttlunga dýralækna EB? Má ekki alveg eins ræða að snúa þessari þróun við – og fjölga sláturhúsum? Bændur geta vel slátrað sjálfir og selt afurðir sínar – merktum héraðs-, bæjar- eða fjallamerkjum. Bændur verða að hætta að vera fórnarlömb í eigin gæðaframleiðslu og fá svo bara afganginn – 1⁄3 eða jafnvel ekkert! Allir aðrir hirða sitt á þurru! Bændur eru duglegt fólk sem fara létt með að þróa lítil og ódýr sláturhús – t.d. úr notuðum frystigámum – klæddum ryðfríu stáli að innan. Ryðfrítt stál hlýtur að duga dýralæknum EB. Varðandi ríkisstyrki til bænda hérlendis, þá eru þeir ekkert meiri en í EB! Við látum ekki EB múta okkur með skitnum silfurpeningum – eða niðurgreiddu salmonellufóðri til svína og kjúklingaræktar – til að rústa rótgóinni íslenskri sveitarmenningu? Það er eðlilegt að strangar reglugerðir EB gildi um slátrun búfén- aðar sem er sífellt með skitu af salmonellu eða kamfýlobakter. En að gera sömu kröfur um slátrun ósýktra heiðarlamba er lítið faglegt. Hvað með hrefnuskurð á sjó sem fær „vottun“! Hreindýrakjöt – skotið á fjalli – fær „vottun“. Heiðagæsir, svartfugl, svartfuglsegg o.fl fær „vottun“. Allt er þetta svo selt í sama kjötborðinu í Hagkaup! Eru þetta bæði kindarlegar og sauðheimskar reglugerðir frá EB? Kindarlegar reglugerðir Eftir Kristin Pétursson Höfundur rekur fiskverkun. HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra hefur mikinn hug á að koma fulltrúa í öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna. Hann telur að þessi herlausa þjóð, með þessa herskáu stjórn, muni á ein- hvern hátt efla ráð- ið. Þó virðist hann hafa veður af því, að litið sé á Ísland sem leppríki Bandaríkjanna í kjöl- far stuðningsyfirlýsingar rík- isstjórnarinnar við innrás í Írak. Þetta viðhorf þeirra at- kvæðabæru þjóða, sem andvígar voru innrásinni, mun ekki auka lík- ur þess að Íslendingar fái nægan stuðning til að ná sæti í örygg- isráðinu. Utanríkisráðherra, hins- vegar, reynir að fela þessa raun- verulegu ástæðu þess hversu umsókn Íslands í öryggisráðið er á fótinn, með því að benda á að þró- unaraðstoð Íslands er langt undir því sem gerist í tilgreindum Evr- ópulöndum, og að aukning þar á muni auka líkur til þess að Ísland fengi nægan stuðning til að koma hinum langþráða fulltrúa utanrík- isráðherra í ráðið. Máli sínu til stuðnings tíundar ráðherra að Ísland sé rík þjóð, og því beri okkur skylda til að styðja við bakið á þeim þjóðum, sem ekki eru eins lánssamar. Þetta hefur honum sjálfsagt verið efst í huga þegar hann samþykkti auknar álögur á nauðsynjavörur nú í upp- hafi þings, álögur á almenning, sem væntanlega duga til að bæta fyrir tekjumissi ríkisins vegna af- náms hátekjuskattsins. Sjái einhver hræsni í þessu, þá ættu þau sömu að sjá hræsnina sem felst í því að tala um aukningu á þróunaraðstoð til ríkja sem vel eru til landbúnaðar fallin, á sama tíma og reistir eru tollamúrar í kringum öll helstu markaðssvæði þeirra, sem koma í veg fyrir að þau geti nokkurn tíma auðgast af því sem þau gera best. Vestrænar þjóðir hafa kerf- isbundið haldið þróunarlöndunum niðri með verndartollum og nið- urgreiðslu á eigin framleiðslu. Evrópusambandið, sem dæmi, er ekkert annað en bandalag, sem stofnað var af hinum upprunalegu nýlenduherrum, sem lögðu undir sig heilu álfurnar, og mergsugu svo lengi sem þeir komust upp með það. Nú koma þessar sömu þjóðir í veg fyrir fjárhagslegt sjálfstæði þessara fyrrverandi ný- lendna, og uppbyggingu þeirra á eigin afurðum með því að slá upp skjaldborg verndartolla í kringum sig. Þá er svokölluð þróunaraðstoð með fjárframlögum bæði gulrót og svipa í senn. Þær þjóðir, sem eru háðar erlendum fjárframlögum, vegna þess að þær eru ekki sjálf- bærar, búa ætíð í skugga þess að missa þessi fjárframlög, hvort sem það er vegna þess að þær komu ekki í veg fyrir einhver voðaverk, eða einfaldlega vegna þess að þær kusu ekki rétt í einhverju alþjóða- máli, eins og hvalveiðum. Ef Íslendingar vilja vera í fram- varðarsveit þeirra þjóða, sem vilja búa þróunarlöndunum sem besta framtíð, þá á Ísland að ríða á vaðið með frjálsan innflutning á land- búnaðarafurðum frá þróunarlönd- unum, og hvetja önnur lönd til að gera slíkt hið sama. Þau áhrif sem það mun fyr- irsjáanlega hafa á íslenskan land- búnað verða sársaukafull fyrir bændastéttina til skemmri tíma lit- ið, en þess ánægjulegri fyrir alla neytendur í landinu. Ádeila á fyr- irkomulag landbúnaðarstefnu Ís- lands er efni í fleiri pistla, og verð- ur ekki rakin hér. Þróunar- aðstoð og ánauð Eftir Sigurð Inga Jónsson Höfundur er í miðstjórn Frjálslynda flokksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.