Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR 46 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ SÖLVI Geir Ottesen, varnarmað- urinn efnilegi sem leikur með Víkingi, mun dvelja við æfingar hjá ensku 1. deildarliðunum Barnsley og Stoke næstu vik- urnar. Sölvi hélt utan á sunnudag ásamt þjálfara sínum, Sigurði Jónssyni. Hann verður í eina viku hjá Barnsley, liði Guðjóns Þórð- arsonar, og þaðan fer hann til Stoke. Sölvi þykir mikið efni og hafa útsendarar frá erlendum félögum fylgst með honum. Sölvi Geir er 19 ára – lék 15 leiki með Víkingum í 1. deildinni í sumar. Hann missti af þremur síð- ustu leikjunum eftir að hann kinn- beinsbrotnaði og slasaðist á auga í leik gegn Þórsurum. Sölvi til Stoke og Barnsley SVEN Göran Eriksson, landsliðs- þjálfari Englendinga í knattspyrnu, frestaði á ný í gær að tilkynna enska landsliðshópinn sem ætlað er að leika við Tyrki í undankeppni EM í Instanbúl næsta laugardag. Upphaflega ætlaði Eriksson að kynna hópinn á sunnudag, en sló því þá á frest til dagsins í gær. Upp úr hádeginu í gær var það tilkynnt að hópurinn yrði ekki kynntur til sögunnar fyrr en eftir hádegi í dag. Ástæðan er sú að óvissa ríkir um þátttöku nokkurra leikmanna vegna meiðsla, aðaláhyggjur Eriks- son eru vegna Michaels Owens sem meiddist í leik Liverpool og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á laugar- dag. Leitt er að því líkur að ef Owen geti ekki tekið þátt í leiknum þá kalli Eriksson eftir kröftum Alans Shearers eða Teddys Sheringhams, en Shearer hætti að leika með enska landsliðinu eftir Evrópu- meistaramótið í Frakklandi fyrir þremur árum. Hann hefur leikið vel með Newcastle og er talið líklegt að hann skorist ekki undan leiti Eriks- son eftir kröftum hans. Þess má geta að Shearer skoraði sitt 250 mark í úrvalsdeildinni í Englandi um helgina – gegn South- ampton, 1:0. Leikurinn er báðum þjóðum afar mikilvægur því hann ræður úrslitum um hvor þeirra tryggir sér farseðilinn á EM í Portúgal á næsta ári. Alan Shearer Eriksson frestar lands- liðsvali á nýjan leik Þjóðverjar hafa leikið frábærlegaþað sem af er keppninni og skorað 20 mörk í fjórum leikjum. Á sama tíma hafa bandarísku stúlk- urnar aðeins fengið á sig eitt mark, gegn Svíum sem léku hinn undanúrslitaleikinn við Kanada. Bandaríkin og Þýskaland mættust síðast á móti í Kína fyrr á þessu ári og þar töpuðu Þjóðverjar naumlega, 1:0, og því full ástæða til að reikna með jöfnum og spennandi leik tveggja frábærra liða. Nokkurrar taugaveiklunar gætti meðal leikmanna beggja liða þegar leikurinn hófst en þýsku stúlkurnar voru fyrri til að hrista það af sér og á 15. mínútu skoraði Kersten Garefrekes fyrsta mark Þjóðverja með laglegum skalla í slána og inn eftir hornspyrnu frá Renate Lingor. Eftir markið sóttu bandarísku stúlkurnar mun meira en frábær markvarsla Silke Rottenberg hélt þeim þýsku inni í leiknum. Hún varði m.a. þrumuskot frá Kristine Lilly og Abby Wambach. Seinni hálfleikurinn var frábær skemmtun og einhverjar skemmti- legustu 45 mínútur af kvennaknatt- spyrnu sem undirrituð hefur séð. Bandarísku stúlkurnar sóttu nær látlaust allan hálfleikinn en stór- kostlegur varnarleikur þeirra þýsku ásamt frábærri markvörslu Silke Rottenberg var þeim ofviða. Þessi þunga pressa bandarísku stúlkn- anna varð sömuleiðis til þess að vörn þeirra opnaðist illa og voru þær Maren Meinert og Birgit Prinz oft nærri því að tryggja Þjóðverjum sigurinn. Þeim tókst það þó ekki innan venjulegs leiktíma en á þeim þremur uppbótarmínútum sem Silvia Davencourt, hinn kanadíski dómari leiksins, bætti við skoruðu þær Meinert og Prinz sitt hvort markið og var mark Prinz hennar sjöunda í mótinu. „Ég hafði mjög já- kvæða tilfinningu fyrir þessum leik,“ sagði Tina Thuene-Meyer, þjálfari þýska liðsins í leikslok. „Stelpurnar voru ákaflega vel stemmdar og staðráðnar í að gefa allt í leikinn. Við leyfðum þeim að sækja á okkur og treystum á að skora úr hraðaupphlaupum og sú áætlun heppnaðist fullkomlega. Að auki var Silke Rottenburg eins og klettur í markinu hjá okkur og lok- aði öllum leiðum,“ sagði Tina Thuene-Meyer. Stjarna bandaríska liðsins, Mia Hamm, átti einn sinn besta leik á ferlinum en þessi stórstjarna, sem er tekjuhæsta knattspyrnukona í heimi og þénar m.a. 1 milljón dollara á ári vegna samninga við Nike, var að vonum niðurbrotin í leikslok og þótt April Heinrics, þjálfari banda- ríska liðsins, hafi teflt fram stjörn- um eins og Cindy Parlow, Ali Wagn- er og Tiffeny Milbrett, dugði það ekki til. Þýska liðið var einfaldlega ofjarl þeirra og verðskuldaði sigur- inn. Silke Rottenberg var hetja Þjóð- verja í þessum leik. Hún sýndi stór- brotna markvörslu og hirti boltann hvað eftir annað af tám bandarísku sóknarleikmannanna. Renata Ling- or og Pia Wunderlich léku einnig ákaflega vel í þýska liðinu eins og reyndar liðið allt. Fögnuður Þjóðverja í leikslok var gríðarlegur. Tina Thuene-Meyer sem ekki hefur verið þekkt fyrir að brosa mikið var eitt sólskinsbros enda hafa líkur Þjóðverja á að fagna heimsmeistaratitli sjálfsagt aldrei verið eins miklir og einmitt nú. Svíar í úrslit í fyrsta sinn Fyrir 45 árum léku Svíar til úr- slita á heimsmeistaramóti í knatt- spyrnu í fyrsta og eina skiptið þang- að til á sunnudag er kvennalandslið þeirra mætir Evrópumeisturum Þjóðverja í úrslitum heimsmeistara- AP Sænska stúlkan Josefine Öqvist (20) fagnar sigurmarki sínu gegn Kanada, ásamt samherjum, 2:1. ÞAÐ verður nýtt nafn skráð á bikarinn sem veittur er í lok heims- meistaramóts kvenna sem nú fer fram í Bandaríkjunum. Í fyrrinótt léku heimsmeistarar Bandaríkjanna undanúrslitaleik við Evrópu- meistara Þjóðverja í borginni Portland í Oregon-fylki og máttu sætta sig við tap, 3:0, fyrir framan 33.000 áhorfendur. Liðin tvö voru álitin sigurstranglegust fyrir keppnina og því var talið að leik- urinn væri hinn óformlegi úrslitaleikur, liðið sem sigraði myndi fara alla leið. Það verða Svíar sem leika við Þjóðverja í úrslitum á sunnu- daginn, en Svíar lögðu Kanada í hinum undanúrslitaleiknum, 2:1. Eftir Ingibjörgu Hinriksdóttur Heimsmeist- ararnir úr leik  RAGNAR Óskarsson skoraði 7mörk og var markahæstur í liðiDunkerque þegar liðið sigraði Nim-es á útivelli, 23:22, í frönsku 1. deild-inni í handknattleik á sunnudaginn. Dunkerque er í 6. sæti með 9 stig eft- ir sex umferðir en Montpellier er með 18 stig, hefur unnið alla leiki sína, og Paris SG er í öðru sæti með 11 stig.  HALLDÓR Jóhann Sigfússon skoraði 5 mörk fyrir Friesenheim sem tapaði fyrir Römerswall, 26.25, í suðurriðli þýsku 2. deildarinnar í handknattleik. Friesenheim er í átt- unda sæti af 18 liðum.  ALEXANDERS Petersons gerði 6 mörk fyrir Düsseldorf þegar liðið vann TSG Groß-Bieberau, 33:22, á útivelli í suðurhluta þýsku 2. deild- arinnar í handknattleik. Düsseldorf er í öðru til fimmta sæti deildarinnar með 8 stig þegar 5 leikir eru að baki.  HRAFNHILDUR Skúladóttir skoraði 5 mörk fyrir Tvis/Holstebro í dönsku 1. deildinni, vesturhluta, þegar liðið tapaði 29:24, fyrir Es- bjerg. Kristín Guðmundsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Tvis/Holstebro og Hanna G. Stefánsdóttir eitt. Inga Fríða Tryggvadóttir komst ekki á blað. Helga Torfadóttir stóð í marki Tvis/Holstebro í leiknum.  EIGENDUR NBA-liðsins New Jersey Nets hafa komist að sam- komulagi við miðherjann Dikembe Mutombo þess efnis að hann verði leystur undan samningi sínum við fé- lagið. Mutombo kom til liðsins fyrir ári frá Philadelphiu 76’ers.  TALIÐ er að Mutombo fái um 2,3 milljarða ísl. kr. í sinn hlut frá Nets en Mutombo mun örugglega finna sér nýtt lið á næstunni en hann hóf ferilinn hjá Denver Nuggets, fór til Atlanta Hawks, Philadelphiu og nú síðast New Jersey Nets.  EGIL Olsen fyrrum landsliðsþjálf- ari Norðmanna segir í viðtali við norska ríkisútvarpið að dagar fram- herjans snjalla, John Carew, séu taldir í norska landsliðinu. Carew sem leikur með Róma á Ítalíu gaf ekki kost á sér í næstu verkefni liðs- ins og hefur gagnrýnt landsliðsþjálf- arann, Nils Johan Semb, í gegnum norska fjölmiðla.  CAREW var sendur heim úr æf- ingabúðum norska liðsins í byrjun september eftir að honum lenti sam- an við John Arne Riise á æfingu liðs- ins. Carew var afar ósáttur við fram- komu norska knattspyrnusam- bandsins og gaf ekki kost á sér í næsta verkefni liðsins.  FRANSKI varnarmaðurinn Ah- med Madouni, sem leikur með þýska liðinu Borussia Dortmund, verður frá æfingum og keppni næstu sex vikurnar en hann meiddist í leik gegn Eintracht Frankfurt sl. laugardag. Madouni varð 23 ára í gær og er talið að liðbönd í ökkla séu rifin eða slitin. FÓLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.