Morgunblaðið - 22.10.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MÖGULEIKAR Á BATA
Laufey Tryggvadóttir, fram-
kvæmdastjóri krabbameinsskrár
Krabbameinsfélagsins, greindi frá
því í erindi í gær að um 1.700 konur
sem greinst hefðu með brjósta-
krabbamein væru nú á lífi og hefðu
margar þeirra læknast. Góðir mögu-
leikar væru á því að konur sem
greindust með brjóstakrabbamein
næðu bata.
Nýtt félag um rækjuvinnslu
Vísir hf. í Grindavík hefur keypt
allan hlut Húsavíkurbæjar í Fisk-
iðjusamlagi Húsavíkur en bærinn
hefur ákveðið að leggja í staðinn 150
milljónir í hlutafé nýs félags sem
stofnað verður um rækjuvinnslu á
Húsavík. Stefnt er að aukinni rækju-
vinnslu á Húsavík í framtíðinni.
Greiðslustöðvun hafnað
Beiðni Ferskra afurða um áfram-
haldandi greiðslustöðvun var hafnað
af Héraðsdómi Norðurlands vestra í
gær. Strax og niðurstaðan lá fyrir
óskaði Kaupþing-Búnaðarbanki eftir
því að fyrirtækið yrði tekið til gjald-
þrotaskipta.
Búast má við eldgosi
Mælingar á landhæðarbreytingum
í Grímsvötnum og Kötlu sýna að
landris hefur átt sér stað. Jarðvís-
indamenn segja að búast megi við
eldgosi í Kötlu nánast hvenær sem er
og eldgosi í Grímsvötnum hugs-
anlega á næstu tveimur árum.
Eldislax ógnar villtum
Sleppi eldislax ítrekað úr kvíum
getur hann hæglega útrýmt villtum
laxastofnum í Norður-Atlantshafi.
Þetta er niðurstaða umfangsmikilla
rannsókna er staðið hafa í tíu ár í
Skotlandi og Írlandi.
Snurða á þráðinn
Snurða hljóp á þráðinn í frið-
arumleitunum á Norður-Írlandi í
gær. Leiðtogi Sambandssinna sagði
ekki nægar upplýsingar liggja fyrir
um afvopnun Írska lýðveldishersins,
og gæti því ekki heitið þátttöku í end-
urreisn n-írsku heimastjórnarinnar.
Heita samstarfi
Stjórnvöld í Íran lýstu því yfir í
gær, að þau ætluðu að hafa „fullt
samstarf“ við eftirlitsmenn Al-
þjóðlegu kjarnorkumálastofnunar-
innar, og engin áform væru uppi um
að smíða kjarnavopn.
MÓTORHJÓLADELLA
KONA STÝRIR B&L
SIGRAR SCHUMACHERS
RISA JEPPADEKK
BÍLLINN OG VETURINN
LÍFRÆNT ELDSNEYTI
STÆRRI OG BREYTTUR AUDI A3
VEL SMÍÐAÐUR OG VANDAÐUR
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
KIA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
Láttu flér ekki ver›a kalt!
Fjarstart með eða án þjófavarnar.
Hlýleg tilhugsun.
S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2
S í m i 5 4 0 1 5 0 0
w w w. l y s i n g . i s
LÝSING
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Kirkjustarf 34
Viðskipti 12 Minningar 34
Erlent 13/15 Bréf 36
Höfuðborgin 18 Staksteinar 38
Akureyri 19 Dagbók 38/39
Suðurnes 20 Íþróttir 40/41
Landið 21 Fólk 44/49
Listir 23/24 Bíó 46/49
Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50
Viðhorf 30 Veður 51
* * *
MÆLINGAR á landhæðarbreytingum í Gríms-
vötnum og Kötlu sýna glögg merki um landris og
má búast við eldgosi í báðum þessum eldstöðvum
fyrr en síðar. Í Grímsvötnum hefur átt sér stað
stöðugt landris allt frá eldgosinu árið 1998.
„Fjallið sjálft virðist vera komið í svipaða land-
hæð og það var í fyrir gosið 1998. Túlkun okkar er
sú að þrýstingurinn í kvikuhólfi undir Grímsvötn-
um sé orðinn sambærilegur við það sem var fyrir
eldgosið 1998 og þetta þýðir að mínu mati að það
má búast við eldgosi í Grímsvötnum, hugsanlega á
næstu tveimur árum.
Menn ættu því að hafa varann á sér gagnvart
Grímsvötnum með sama hætti og vegna Kötlu,“
segir Freysteinn Sigmundsson, forstöðumaður
Norrænu eldfjallastöðvarinnar.
Mæla landris með nokkurra
millimetra nákvæmni
Hann greindi frá niðurstöðum mælinga jarðvís-
indamanna á landrisi í Grímsvötnum og Kötlu í er-
indi á haustfundi Jöklarannsóknafélags Íslands í
gærkvöldi.
Á síðustu árum hafa landmælingar með GPS-
tækjum og svonefndum InSAR-ratsjármyndum
valdið byltingu í könnun á eldfjöllum. Hægt er að
mæla landris og sig með nokkurra millimetra ná-
kvæmni og sjá þannig hvaða eldfjöll eru að þenjast
út vegna þess að ný kvika hefur safnast fyrir undir
þeim. Rannsóknarhópur á vegum Norrænu eld-
fjallastöðvarinnar, Verðurstofunnar og Raunvís-
indastofnunar HÍ hefur mælt landbreytingar við
nokkur eldfjöll á síðustu árum, þar á meðal í
Grímsvötnum og Kötlu.
„Grímsvötn og Katla skera sig úr því þar sjáum
við landris sem nemur nokkrum sentimetrum á
ári. Það þýðir að það er kvika að flæða inn í þessi
eldfjöll eftir mjóum aðfærsluæðum og hún safnast
fyrir á litlu dýpi í jarðskorpunni. Landið rís og
þrýstingur eykst í þessum kvikuhólfum. Í Kötlu
staðfesta þessar mælingar það sem við jarðvís-
indamenn höfum sagt, að búast megi við eldgosi í
Kötlu nánast hvenær sem er úr þessu,“ segir
Freysteinn.
Aðspurður hvort búast megi við svipuðu eldgosi
í Grímsvötnum og varð árið 1998 segir Freysteinn
erfitt að segja til um það af nákvæmni en telja
megi líklegt að eldgos þar yrði svipað og 1998.
Mælingar jarðvísindamanna sýna stöðugt landris í Kötlu og Grímsvötnum
Búast má við eldgosi í Gríms-
vötnum innan tveggja ára
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
vestra hafnaði í gær beiðni Ferskra
afurða á Hvammstanga um áfram-
haldandi greiðslustöðvun. Strax og
niðurstaðan lá fyrir óskaði Kaup-
þing-Búnaðarbanki eftir því að fyr-
irtækið yrði tekið til gjaldþrota-
skipta.
Ferskar afurðir fengu greiðslu-
stöðvun 23. september sl. til þriggja
vikna. Fyrirtækið óskaði eftir áfram-
haldandi greiðslustöðvun, en Kaup-
þing-Búnaðarbanki, sem er við-
skiptabanki fyrirtækisins, lagðist
gegn því að hún yrði veitt.
Þegar greiðslustöðvun var veitt
23. september kom fram hjá lög-
manni Ferskra afurða að félagið ætti
fyrir öllum skuldum, en þegar farið
var fram á framlengingu á greiðslu-
stöðvun kom fram að 147 milljónir
vantaði upp á að félagið ætti fyrir
skuldum.
„Það hefði átt að vera forgangs-
verkefni sóknaraðila [Ferskar afurð-
ir] að gera fullkomna grein fyrir
ástæðum þessara breytinga er hann
lagði fram beiðni um áframhaldandi
greiðslustöðvun enda mátti honum
vera ljóst að ein meginforsenda
greiðslustöðvunarinnar í upphafi var
góð eignastaða. Fyrir dóminn hafa
ekki verið lögð gögn sem skýra
lækkun á mati birgða til fulls. Þó svo
fallist verði á að birgðir séu lágt
metnar og raunvirði þeirra sé
55.000.000 til 75.000.000 króna meira
en bókfært er eftir breytingu þá hef-
ur verðmæti þeirra eigi að síður
lækkað um meira en 110.000.000
króna,“ segir í forsendum úrskurð-
arins.
Verulegur ágreiningur aðila
Í úrskurðinum segir að verulegur
ágreiningur sé milli aðila máls um
nánast alla hluti. Ekkert hafi þokast
í samkomulagsátt á greiðslustöðvun-
artímanum. Nánast útilokað sé fyrir
Ferskar afurðir að koma skipan á
fjárhag sinn án samkomulags við
viðskiptabanka sinn. Niðurstaða
dómara var því að áframhaldandi
greiðslustöðvun mundi ekki þjóna
tilgangi sínum.
Steingrímur Þormóðsson, aðstoð-
armaður skuldara, þ.e. Ferskra af-
urða, sagði í gær að Ferskar afurðir
hefðu ekki tekið neina ákvörðun um
viðbrögð við úrskurðinum.
Beiðni Ferskra afurða um áframhaldandi greiðslustöðvun hafnað
Búnaðarbankinn óskaði
eftir gjaldþrotaskiptum
„SVONA framkoma er hvergi boð-
leg og ekki íþróttamönnum sæm-
andi,“ segir Elín Sigríður Óladóttir,
hótelstjóri Smárahótels í Kópavogi,
um liðsmenn rússneska handbolta-
liðsins Stepan Razin sem dvöldu á
hótelinu um síðastliðna helgi. Þeir
komu til landsins á föstudag til að
keppa við HK daginn eftir, í 2. um-
ferð Evrópukeppni bikarhafa í
handknattleik, en um nóttina fór
allt úr böndunum.
Handboltamennirnir höguðu sér
eins og „villidýr“ og voru með mikil
drykkjulæti og dónaskap á hótel-
inu. Elín segir þetta hafa átt við um
helming hópsins, eða um 10 liðs-
menn. Öðrum gestum á hótelinu
varð ekki svefnsamt aðfaranótt
sunnudags og herbergin hjá þeim
liðsmönnum sem verst höguðu sér
voru í rúst. Komu þeir drukknir
heim á hótel á laugardagskvöld og
voru á fylliríi þar til þeir yfirgáfu
hótelið að sögn Elínar. „Á sunnu-
dagsmorgun komu þeir ósofnir nið-
ur í morgunmat og voru með stæla
og læti,“ segir Elín. „Það var eins
og þeir hefðu aldrei séð mat áður og
þeir höguðu sér eins og villidýr.
Herbergin eftir þá voru með þeim
hætti að við höfum aldrei séð annað
eins. Þarna var þvílíkt drasl og
einnig höfðu þeir stolið langflestum
handklæðunum og hárþurrkunum.
Einnig stálu þeir kertum úr hótel-
móttökunni. Þeir voru skelfilega
hrokafullir og meira og minna
drukknir frá því leiknum lauk á
laugardag og þangað til þeir fóru.
Línumaðurinn þeirra baðst afsök-
unar á framferðinu þegar rann af
honum á sunnudag.“
Tjón upp á tugi þúsunda króna
Tjónið sem þeir ollu hleypur á
tugum þúsunda króna auk þess sem
fjárhagslegt tjón lýsir sér í auknum
vinnukostnaði við að þrífa herberg-
in, sem tók helmingi lengri tíma en
ella, að sögn Elínar.
Vegna málsins var Handknatt-
leikssambandi Íslands gert viðvart
og kom fulltrúi sambandsins á hót-
elið á sunnudag. Að sögn Einars
Þorvarðarsonar, framkvæmda-
stjóra HSÍ, verður að öllum líkind-
um lögð fram kvörtun til Evrópska
handknattleikssambandsins vegna
atviksins.
Fulltrúi HK var einnig kallaður
til vegna látanna og segir Hilmar
Sigurgíslason, formaður HK, að
ástandið hafi ekki verið gott. Hann
gengur þó ekki svo langt að tala um
alvarlegt ástand. Engu að síður
muni HK þó bregðast við þessu
með því að fyrirbyggja eftir mætti
að slíkt endurtaki sig þegar næsta
gestalið komi til landsins. Í Evrópu-
leikjum er það hlutverk heimaliðs-
ins, í þessu tilviki HK, að útvega
hótel og gistingu fyrir gestina og að
því leyti er heimaliðið ábyrgt fyrir
hótelinu. Hilmar bendir þó á sjálfs-
ábyrgð fullorðinna manna í þessu
samhengi en þetta atvik gefi engu
að síður tilefni til að betur verði
fylgst með erlendum handboltalið-
um utan vallar í framtíðinni.
Kvartað undan rússneskum handboltamönnum á hóteli í Smáranum
Brutu húsgögn
og stálu mun-
um hótelsins
HSÍ hyggst senda inn kæru
Morgunblaðið/Ásdís
Handboltamennirnir eyðilögðu m.a. þennan stól. Elín Sigríður Óladóttir
hótelstjóri telur framkomu rússnesku leikmannanna óboðlega.