Morgunblaðið - 23.10.2003, Síða 42
DAGBÓK
42 FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag er Mánafoss vænt-
anlegur.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 10 boccia, kl.
13 myndlist. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
bókband, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan opin,
almenn handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað, hár-
greiðslustofan og
postulín, kl. 13 handa-
vinna, kl. 9–16.30 pútt-
völlurinn opinn þegar
veður leyfir.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Í dag kl. 9 að-
stoð við böðun, alm.
handavinna, smíðar og
útskurður. Kl. 13.30
boccia.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
bað og glerskurður, kl.
10–11 leikfimi, kl. 9–12
hárgreiðsla, kl. 13.30
sönghópurinn, kl. 15.15
dans.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10
hárgr., kl. 13 föndur og
handav. Bingó kl. 15.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 9.45 gler-
bræðsla, kl. 13 málun,
kl. 13.15 leikfimi karla
og bútasaumur. Fé-
lagsvist í Holtsbúð kl.
19.30 í boði Rot-
aryklúbbsins Garða.
Rúta frá Álftanesi,
Hleinum og Kirkju-
hvoli kl. 19.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
videó og kaffi. Pútt í
hraunseli kl. 10–11.30.
Leikfimi í Bjarkarhúsi
kl. 11.20. Glerlist kl. 13,
bingó kl. 13.30. Æfing
Gaflarakórs kl. 17.
Ferð í listasöfn í
Reykjavík, rúta frá
Hraunseli kl. 13.30.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Framsögn kl. 16.15.
Félagsvist kl. 20.
Félagsstarf eldri borg-
ara, Mosfellssveit. Op-
ið kl. 13–16, bókband,
kl. 13 tréskurður, kl.
13.30 lesklúbbur, kl. 17
starf kórs eldri borg-
ara, Vorboða.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Sími
575 7720. Kl. 10.30
helgistund. Frá hádegi
vinnustofur og spilasal-
ur opinn. Á morgun kl.
10 „Gleðin léttir lim-
ina“, létt ganga o.fl.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna,
kl. 9.05 og 9.55 leikfimi,
kl. 9.30 glerlist og ker-
amik, kl. 10.50 róleg
leikfimi, kl. 13 gler og
postulín, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulín, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handav., brids kl. 13.
Hraunbær 105. Kl. 9
handav., perlusaumur,
kortagerð og hjúkr-
unarfræðingur, kl. 10
boccia, kl. 11 leikfimi,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10–11 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl. 13.30–16
félagsvist. Hársnyrting
og fótaaðgerðir.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Á morgun er sund-
leikfimi í Grafarvogs-
laug kl. 9.30.
Norðurbrún 1. Opin
vinnustofa kl. 9–16.45.
Kl. 10–11 ganga, leir.
Vesturgata. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hárgr.,
kl. 9.15–12 bað, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9–10 boccia, kl.
10.15–11.45 enska, kl.
13–14 leikfimi, kl. 13–
16 kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður,
perlusaumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og brids.
Eldri borgarar frá
Eskifirði og Reyð-
arfirði í Reykjavík og
nágr. halda árlegt vetr-
arkaffi sun. 26. október
kl. 15 í félagsheimili
eldri borgara, Gull-
smára 13, Kóp.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK
Gullsmára spilar í fé-
lagsheimilinu, Gull-
smára 13, mánu- og
fimmtud. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Bláa salnum
kl. 11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19.30 tafl.
Í dag er fimmtudagur 23. októ-
ber, 296. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Ég er stiginn niður af
himni, ekki til að gjöra vilja minn,
heldur vilja þess, er sendi mig.
(Jóh. 6,38.)
Bryndís Haraldsdóttirskrifaði um leik-
skólamál á tikin.is í gær
og setti spurningarmerki
við hugtakið „starfs-
dagur“ hjá leikskólum.
Hún telur að foreldrar
ættu að hafa eitthvað um
frídaga barnanna að
segja.
Bryndís segir: „Þegarég fór með dóttur
mína í leikskólann í
morgun blasti við mér á
töflu áberandi stöfum
„Foreldrar, munið starfs-
daginn föstudaginn 24.
okt.“
Frábært, hugsaði ég,æðislegt, mig langaði
einmitt að taka langa
helgi og kíkja upp í bú-
stað.
Æðislegt, nema hvað aðþessi dagur hentar
mér bara engan veginn.
Þetta er mikill annatími í
vinnunni. Ég er þegar
búin að bóka nokkra
fundi, það er afmæli í
vinahópnum og svo
mætti lengi telja.
Rök fagaðila um aðbörnin hafi gott af
fríi af og til eiga vissu-
lega rétt á sér en það að
leikskólinn ákveði hve-
nær foreldrar eigi að
taka þetta frí er auðvitað
fyrir neðan allar hellur.
Flest ungt fólk á nefni-lega ekki nema 24
daga í orlof og því sjálf-
sagt að fólk fái að ráð-
stafa þessu sjálft í sam-
vinnu við atvinnurekanda
án þess að leikskólinn
þurfi að blanda sér inn í
þá ráðagerð.
Hvað þýðir þetta orðstarfsdagur? Fyrir
mér og eflaust mörgum
foreldrum þýðir þetta
reddingar og vesen.
Jafnmikilvæg þjónustu-fyrirtæki og leikskólar
eiga ekki að loka nokkra
daga á ári fyrir stefnu-
mótunarvinnu og endur-
menntun starfsmanna.
Það er einfaldlega for-kastanlegt og ég veit
ekki til þess að þetta
þekkist hjá öðrum fyr-
irtækjum eða stofnunum,
ef frá eru skildir skól-
arnir.
Ég skora á foreldra aðláta rödd sína heyr-
ast sem og á rekstr-
araðila leikskóla, sem í
mörgum tilfellum eru
bæjarfélög, að bæta þjón-
ustuna.
Ég skil vel að starfsfólkleikskóla þurfi á því
að halda að skipuleggja
starfið og sinna endur-
menntun.
Til þess að svo verði áþó ekki að þurfa að
loka leikskólunum,“ segir
Bryndís að lokum í pistli
sínum á tikin.is.
STAKSTEINAR
Starfsdagar hjá
leikskólum
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI átti erfitt með að setjasig í spor verkamanna á Kára-
hnjúkum, þegar fyrst heyrðist af
vanlíðan þeirra í haustkuldum. Þrátt
fyrir að vandræði þeirra virðist tölu-
verð, má ljóst vera að þetta er aðeins
byrjunin. Fyrsti vetrardagur er 25.
október og þeir hafa enn ekki kynnst
alvöru vetri á Íslandi, þótt það hafi
aðeins kólnað þarna upp frá. Vík-
verji viðurkennir að fyrst fannst
honum fyndið að heyra af blessuðum
verkamönnunum í kuldanum uppi á
hálendinu, en honum er löngu orðið
ljóst að þetta er ekkert grín – jafnvel
þótt Spaugstofumenn geti séð
fyndnar hliðar á þessu öllu saman.
Mikið fannst Víkverja líka gott hjá
verkamönnunum að neita að fara út
úr húsi fyrr en þeir fengju almenni-
leg föt.
Meira af kuldum. Það fer í taug-
arnar á Víkverja hvað margir þátta-
stjórnendur í útvarpi geta verið
kjánalegir í tali sínu um veður. Segj-
um sem svo að það sé spáð norðanátt
með kulda og frosti, þá er það ótrú-
leg tíska að upplýsa útvarpshlust-
endur um það hvort það þurfi hugs-
anlega að „skafa“ morguninn eftir.
Það hvort nauðsyn sé að „skafa“ er
sem sagt aðalógnin. Hvers konar of-
vernduð borgarbörn erum við eig-
inlega orðin? Oft fylgir líka hugleið-
ing hjá útvarpsfólkinu um það hvað
það sé leiðinlegt að „skafa“ í kuld-
anum. Þetta er nú eitt, en annað er
enn kjánalegra og það er að höfða
eingöngu til þeirra sem eiga bíla og
þurfa að „skafa“. Hvað með hina,
alla unglingana og aldraða? Hvernig
væri að víkja að þeim einhverjum
varnaðarorðum, t.d. að brýna fyrir
þeim að setja húfu á hausinn á köld-
um vetrarmorgni, til að fyrirbyggja
ofkælingu vegna hins gífurlega hita-
taps sem á sér alltaf stað í gegnum
höfuðið? Víkverji er ekkert að
skálda þetta. Húfa á hausinn er
ótrúlega mikið hjálpargagn í kulda.
x x x
EINU sinni heyrði Víkverji kenn-ingu um „brúnu fituna“. Þetta
mun vera fita sem líkaminn ræktar
upp sem einhvers konar kuldavörn.
Þessi fita er ekki sjáanleg utan á lík-
amanum og fæst með því að vera
léttklæddur í kulda. Þætti mörgum
án efa lítt eftirsóknarvert að herða
sig með þessum hætti. Víkverja þyk-
ir þessi kenning með eindæmum að-
laðandi en hefur samt aldrei heyrt
fagfólk tala um hana. Hvernig skyldi
standa á því?
Þeir tímar eru nú liðnir að þjóðin
var blaut í fæturna mestallt árið og
lifði á hungurmörkum. Víkverji
leiddi hugann að lífi fólks fyrr á öld-
um dag einn er hann gekk framhjá
bæjarrústum í gömlu túni. Nútíma-
fólk myndi ekki lifa af daginn ef því
væri kippt aftur um 200 ár og sett
niður á meðalkot.
Morgunblaðið/RAX
Senn kemur vetur. Upp með húf-
urnar. Og gleymið ekki að „skafa“.
TÖLUVERT fjaðrafok hef-
ur myndast vegna ummæla
útvarpsstjóra undanfarið.
Það virðist lenska hjá
vinstrisinnum að fjand-
skapast út í Bandaríkja-
menn og má þar einnig
nefna Ísraela og skín það
oft í gegn í umfjöllun þeirra
um þessar þjóðir.
Fyrrverandi fréttamað-
ur lét hafa eftir sér hér um
árið að hann teldi að 90%
starfsmanna á ríkisfjöl-
miðlunum væru vinstri-
sinnaðir. Kannski hefur
slagsíðan eitthvað breyst
síðan.
Mörgum er í fersku
minni áróðurinn á gufunni
hér áður fyrr. Var það sér-
staklega áberandi fyrir al-
þingiskosningar. Eftir að
múrinn hrundi hefur sem
betur fer mikið dregið úr
þeirri óværu. Ég get ekki
skilið að ríkisfjölmiðlarnir
sem við erum skyldug til að
borga af, hvort sem við not-
um þá eða ekki, sé hafinn
yfir gagnrýni. Sannleikan-
um verður hver sárreiðast-
ur.
211123-7619.
Póstútibúin
UNDANFARIÐ hafa
mörg póstútibú verið lögð
niður og verið færð í Nóa-
túnsbúðir. Finnst mér að
auglýsa mætti þessar
breytingar og hvar útibúin
eru núna.
H.G.
Ekkert hefur breyst
Í ÞÆTTINUM Ísland í
dag sl. þriðjudagskvöld töl-
uðu þáttastjórnendur við
tvær mæður barna sem
þjást af sjaldgæfum sjúk-
dómi. Lýstu þær baráttu
sinni við kerfið, þ.e. Trygg-
ingastofnun, við að fá barn-
ið viðurkennt fatlað og að fá
bætur samkvæmt því.
Ég á sjálf fatlað barn,
sem reyndar er orðið 18
ára, en það undraði mig að
enn þá skuli foreldrar þurfa
að berjast fyrir sjálfsögð-
um réttindum barna sinna
og að staðan skuli ekkert
hafa breyst í 18 ár hvað
þetta varðar.
Móðir.
Slæm þjónusta
NÝLEGA þurfti ég að hafa
samband við innheimtu
Landssímans. Byrjaði ég
að hringja tíu mínútur í tvö
í þjónustunúmerið og var
gefið samband, og beið ég
og beið á línunni. Gerðist
þetta þrisvar sinnum. Að
lokum var mér bent á beint
númer til að hringja í, fyrst
hringdi út en að lokum náði
ég sambandi. Tók þetta
ferli um 35 mínútur. Finnst
mér ekki hægt að bjóða
fólki upp á þetta og er ég
orðlaus yfir þessari þjón-
ustu.
Hulda.
Dýrahald
Fress týndur
í Hafnarfirði
TÆPLEGA ársgamals
fress, sem er búsettur ná-
lægt miðbæ Hafnarfjarðar,
að nafni Anakin, er sárt
saknað. Hann er svartur
með hvítan blett á nefi og
loppum, ólarlaus og
ómerktur. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 565 2372.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Sannleikanum
verður hver
sárreiðastur
Morgunblaðið/Kristinn
LÁRÉTT
1 heimskingi, 8 sól, 9
fróð, 10 kusk, 11 lítið
herbergi, 13 vætla, 15
höfuðfats, 18 lýkur, 21
ætt, 22 galla, 23 gnægð,
24 skömmustulega.
LÓÐRÉTT
2 niðurfelling, 3 bik, 4 sí-
valnings, 5 herkví, 6 sak-
laus, 7 elska, 12 smávegis
ýtni, 14 nautpeningur, 15
álít, 16 tornæmur nem-
andi, 17 ljómuðu, 18 guð-
lega veru, 19 hirð þjóð-
höfðingja, 20 óbogin.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 strit, 4 snögg, 7 reiks, 8 rúlla, 9 smá, 11 kött,
13 atti, 14 umráð, 15 lærð, 17 alda, 20 inn, 22 gáfuð, 23
arkar, 24 renna, 25 gramm.
Lóðrétt: 1 strok, 2 reimt, 3 Tass, 4 strá, 5 örlát, 6 glati,
10 mærin, 12 tuð, 13 aða, 15 lögur, 16 rófan, 18 lokka, 19
aurum, 20 iðja, 21 nagg.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16