Morgunblaðið - 24.10.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 288. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Mikilvægasta máltíð dagsins
Vetnisknúinn
Grandi-Vogar
Gaman að verða vitni að
framtíðinni | 22
Jamie Oliver um litlu dótturina og
nýja sjónvarpsþáttinn | Fólkið 4
Koma Þorláks-
höfn á kortið
Körfuknattleikslið Þórs hefur
komið mjög á óvart | Íþróttir 52
DANSKT fyrirtæki, Euromedicin, stefnir
að því að rjúfa þann einkarétt, sem lyfja-
verslanir hafa haft á sölu lyfseðilsskyldra
lyfja. Verður ávallt leitað að ódýrasta lyfinu
í Evrópu og það síðan sent neytandanum.
Þannig megi lækka lyfjaverðið um allt að
30%.
„Við teljum, að danskir neytendur eigi að
fá að njóta allra kosta innri markaðar Evr-
ópusambandsins og það er í þeirra þágu og
alls samfélagsins að ná fram sparnaði á
þessu sviði, hvort sem um er að ræða sam-
heitalyf eða frumheitalyf,“ sagði Allan Raft
læknir og stofnandi Euromedicin. Á hann
nú í samningum við fjölda lyfjaverslana í
öðrum ESB-ríkjum og mun í hverju tilfelli
kaupa inn frá þeim, sem bjóða lægsta verð-
ið. Gerir hann þetta í krafti ESB-reglna um
frjálst flæði vöru og þjónustu.
„Fagnaðarefni“
„Svo lengi sem alls öryggis er gætt,
sjáum við ekkert athugavert við, að neyt-
endur kaupi lyfin erlendis. Það gæti líka
aukið samkeppnina á danska markaðnum
og það væri fagnaðarefni,“ sagði Gitte
Munk, talsmaður danska Neytendaráðsins,
þegar þetta var borið undir hana. Sagði frá
þessu í Jyllands-Posten í gær.
Paul Bundgaard, formaður í sambandi
lyfjaverslana, kvaðst hafa nokkrar efa-
semdir um, að þessi fyrirhugaða lyfjasala
stæðist lög um lyfjaverslun í Danmörku, en
læknar eru almennt jákvæðir. Jørgen Las-
sen, formaður í félagi starfandi lækna,
sagði, að þetta gæti verið raunhæft fyrir
óniðurgreidd lyf, til dæmis getnaðarvarn-
arpillur, svefnpillur, róandi töflur af ýmsum
gerðum, nikótíntyggjó og dýr fúkalyf.
Hyggst rjúfa
einkarétt
lyfjaverslana
BRESKUR ferðamaður, sem missti út úr
sér gervitennurnar þegar hann var á
sundi undan strönd grísku eyjunnar Krít,
fékk þær aftur hálfum mánuði síðar eftir
að þær fundust í neti grískra sjómanna,
að sögn breska dagblaðsins The Times í
gær.
Don Masey, 59 ára Breti, fór í skrið-
sund og kappið var svo mikið að hann
blés tönnunum út úr sér. Þrátt fyrir
ákafa leit með hjálp barna sinna tókst
honum ekki að finna þær áður en hann
hélt aftur til Bretlands. Nokkru síðar
birtust þó tennurnar í neti grískra sjó-
manna sem fóru með þær á bar og spurðu
hvort einhver hefði týnt fölsku tönnunum
sínum. Þeim var þá sagt að tannlaus Eng-
lendingur hefði sést á staðnum.
Sjómennirnir fóru með tennurnar á
skrifstofu grísks fyrirtækis, sem veitir
breskum ferðamönnum þjónustu, og það
sendi tennurnar til breskrar ferðaskrif-
stofu. „Ég fékk þær aftur á laugardaginn
og sunnudagssteikin var besta máltíðin
sem ég hef fengið á ævinni,“ sagði Masey.
Veiddu gervi-
tennurnar í net
TÍMAMÓT hafa orðið í sakamála-
rannsóknum hérlendis með því að
margra ára hulu hefur verið svipt af
Skeljungsráninu svokallaða frá
árinu 1995. Lögreglan hefur fengið
fram játningar að hluta til í yfir-
heyrslum yfir nokkrum mönnum að
undanförnu. Rannsókninni, sem
tekið hefur nærri áratug, er því svo
gott sem lokið og verður málið sent
ákæruvaldi til ákvörðunar um op-
inbera málshöfðun á hendur hinum
grunuðu.
Um er að ræða tvo karlmenn um
fertugt sem grunaðir eru um rán á
5,2 milljónum króna að morgni 27.
febrúar 1995 við Íslandsbanka í
Lækjargötu. Beitt var ofbeldi í rán-
inu, þegar einn starfsmaður Skelj-
ungs var laminn með slökkvitæki.
Ræningjarnir flúðu á stolnum bíl og
tókst að leynast í áraraðir. Stefndi í
að lögreglunni tækist ekki að leysa
málið áður en 10 ára fyrningarfrest-
ur rynni út, en í vetur bárust henni
vísbendingar sem leiddu hana á
sporið. „Niðurstaða rannsóknar
okkar er sú að þrír karlmenn hafi
framið ránið og hafa tveir grunaðir
verið yfirheyrðir,“ segir Hörður Jó-
hannesson yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, um málið. „Við lítum svo
á að málið sé upplýst.“
Erfiðleikarnir sem lögreglan átti
við að etja í upphafi rannsóknarinn-
ar fólust einkum í því að hún hafði
engar haldbærar vísbendingar til að
fara eftir.
Tókst að hylja slóð sína
Rækilegur undirbúningur ræn-
ingjanna hjálpaði þeim við að hylja
slóð sína, auk þess sem ránið sjálft
tók mjög stuttan tíma. Þá voru
þarna á ferð aðilar sem voru nær
óþekktir hjá lögreglunni. Gerði
þetta rannsókn málsins erfiða, jafn-
vel þótt hinir grunuðu hefðu haldið
sig hérlendis til þessa dags.
Ræningjarnir sátu fyrir tveimur
starfsmönnum Skeljungs í Lækjar-
götu, sem ætluðu að leggja helgar-
uppgjör bensínstöðva félagsins í Ís-
landsbanka. Ræningjarnir voru
tveir á ferð, hettuklæddir og létu til
skarar skríða er starfsmennirnir
stigu út úr fyrirtækisbílnum um
klukkan 10 að morgni. Þeir flúðu
síðan á stolnum SAAB-bíl sem
þriðji maðurinn ók. Gögn úr ráninu
fundust sama dag í Hvalfirði og
hafði verið kveikt í þeim. Lögregla
hóf þegar viðamikla leit að ræningj-
unum, en um var að ræða eina um-
fangsmestu lögregluaðgerð seinni
ára.
Átta ára rannsókn lögreglunnar í Reykjavík er loks á enda
Skeljungsránið í Lækj-
argötu telst nú upplýst
Játning vegna…/6
KYNNT var nýtt spálíkan hagdeild-
ar ASÍ um þróunina á næstu tveimur
árum sem unnið er út frá mismun-
andi forsendum. Að mati ASÍ skap-
ast svigrúm fyrir kaupmáttaraukn-
ingu á næstu árum en vaxandi
verðbólguþrýstingur muni fylgja
miklum framkvæmdum og Seðla-
bankinn því grípa til vaxtahækkana.
Skv. grunnspá ASÍ verður verð-
bólga 3,7% á næsta ári og 5,7% 2005.
Nafnvextir verða 5,9% á næsta ári og
9,2% árið 2005. Aukist samneysla um
4% á hvoru ári munu verðbólga og
vextir aukast enn meira.
Fram kom í máli forystumanna við
umræðurnar í gær að hreyfingin
stæði frammi fyrir mjög snúnum
efnahagsaðstæðum þegar gengið
verður að samningaborðinu.
Fyrir fundinum liggja drög að
uppleggi í kjaramálum þar sem segir
að lagfæringar á velferðarkerfinu
þurfi og eigi að hafa forgang fram yf-
ir skattalækkanir. Lagt er til að
hafnar verði formlegar viðræður
milli aðila vinnumarkaðar og stjórn-
valda um skýrari verkaskiptingu
milli almannatrygginga og lífeyris-
sjóða vegna lífeyris- og örorkubóta.
Lögð er m.a. áhersla á að hafin verði
skoðun á kostum þess að tengja at-
vinnuleysisbætur við fyrri tekjur
einstaklings og hækkun barnabóta.
Rætt um breytingar í velferðarmálum og kjarasamninga á ársfundi ASÍ
Morgunblaðið/Kristinn
Halldór Björnsson, fráfarandi varaforseti ASÍ, og Grétar Þorsteins-
son forseti hlýða á umræður á ársþingi ASÍ í gærdag.
Samningsgerð
á miklum
óvissutímum
Áhersla/10
Miklar umræður fara fram um undirbúning kjarasamninga og efna-
hagsþróunina á ársþingi ASÍ, sem hófst í gær. Fram kom að mikil
óvissa ríki um hvernig hagkerfið muni bregðast við þeim óvenjulegu
aðstæðum sem framundan eru vegna stórframkvæmda.
Börn elska
kryddjurtir
♦ ♦ ♦