Morgunblaðið - 24.10.2003, Side 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hvernig getur nokkurri manneskju dottið í hug að við þessi myndarhjón brjótum stjórnar-
skrána með sterkum brotavilja, Solla mín?
Fyrirlestur um örnefni í nágrenni Hóla
Geta sagt okk-
ur heilmikið
RÚNA K. Tetzschnerflytur fyrirlestur ávegum Nafnfræði-
félagsins á morgun, laugar-
dag, kl. 13.30 í stofu 106 í
Odda, húsi Háskóla Ís-
lands. Fyrirlesturinn,
„Nytjar í nöfnum, örnefni í
nágrenni Hóla í Hjaltadal,“
er byggður á samnefndri
BA-ritgerð og rannsókn,
sem Rúna vann við ís-
lenskuskor í Háskóla Ís-
lands og skilaði í vor. Rit-
gerðin er 80 blaðsíður og
upp á 10 einingar og hyggst
Örnefnastofnun gefa hana
út.
Sem stendur fer fram
viðamikil fornleifafræði-
rannsókn á Hólum og ná-
grenni og hefur Rúna tekið
þátt í henni. Hún dvaldi þar
í þrjá mánuði sumarið 2002 og tvo
mánuði síðastliðið sumar. Hóla-
rannsóknin stendur til 2007 og
reiknar Rúna með að taka áfram
þátt í henni.
Fyrir vinnuna á vettvangi fór
hún meðal annars gaumgæfilega í
gegnum húsalýsingar Hólastaðar
frá 17. og 18. öld sem fram að því
höfðu legið óprentaðar á Þjóð-
skjalasafni Íslands. Afrakstur
þeirrar vinnu má sjá á heimasíðu
rannsóknarinnar á vef Hólaskóla,
www. holar.is.
Örnefnafræðin er vaxandi fræði-
grein á Íslandi, segir Rúna, sem
segir örnefnalýsingar oft góðar
heimildir og gefa upplýsingar um
fornleifar.
Hvað gera örnefnafræðingar?
„Örnefnafræðingar eru svolítið
að skrá það sama og fornleifafræð-
ingar. Þetta skarast. Þetta kemur
til þannig að mig langaði að sam-
eina einhvern veginn íslenskuna og
fornleifafræði. Þá var örnefna-
fræðin sameiningargrundvöllur-
inn. Örnefni geta sagt okkur heil-
mikið. Það eru margar
fræðigreinar sem skarast í ör-
nefnafræðinni, ekki bara fornleifa-
fræði og íslenska heldur líka landa-
fræði, þjóðfræði, sagnfræði og
ýmsar greinar.“
Hvað er sérstakt við örnefni?
„Öll orð tungumáls eru nátengd
merkingarmiðum sínum en örnefni
þó meir en önnur. Til skilnings á
þeim er mikilvægt að þekkja bak-
grunninn, bæði sögu og umhverfi.
Þegar örnefnum er safnað þarf að
huga að ýmsu og oft á tíðum skrá
örnefnafræðingar jafnframt forn-
leifar. Lýsingar þeirra eru því mik-
ilvægar heimildir áður en ráðist er
í fornleifaskráningu. Stundum
kemur jafnvel fyrir að búsetutengt
örnefni sé skráð með fornleifum
þótt engar minjar sjáist á yfir-
borði.“
Hvaða bæjarheiti hefur þú rann-
sakað?
„Örnefni sem vísa til byggðar
kallast búsetunöfn en í rannsókn-
inni er með tilliti til uppruna fjallað
um nokkur slík í nágrenni Hóla.
Annars vegar eru heiti tveggja
jarða sem verið hafa í ábúð frá
fornum tímum: Kálfsstaðir og
Nautabú, hins vegar
fjögur nöfn sem orðuð
hafa verið við byggð á
síðari öldum: Geitagerði
og Kollugerði, Traðar-
hóll og Bygghóll. Nöfn-
in eru skoðuð með samanburði við
önnur sambærileg og orðin sem
mynda fyrri og seinni liði greind.“
Hvað segja þessi nöfn okkur um
bæi eins og Kálfsstaði?
„Um staðina er fjallað með hlið-
sjón af kenningum Svavars Sig-
mundssonar sem telur að við upp-
haf byggðar hér á landi og fram
eftir 10. öld hafi seinni nafnliðurinn
vísað sérstaklega til nytjaeininga
stofnaðra út frá landnámsjörðum.
Í íslensku stöðunum hafa hugsan-
lega verið miðstöðvar skógarhöggs
með tímabundinni búsetu. Vera má
að þar hafi verið önnur hlunnindi
líka en um það leyti sem gróður-
eyðing fór að hafa tilfinnanleg áhrif
hefur þó verið efnt til fastrar bú-
setu.“
Nafnið Nautabú er sérstakt.
„Í tengslum við Nautabú eru
skoðuð dæmi um notkun orðanna
bú og útbú í fornum textum en svo
virðist sem stundum hafi verið rek-
in sérhæfð bú fyrir nautgripa- og
geitarækt frá stórum jörðum. Fáir
bæir hafa verið stofnaðir á Íslandi
undir slíkum nöfnum en á 13., 14.
og 15. öld segir frá útbúarekstri frá
biskupssetrunum tveimur, einkum
Hólum.“
Segja örnefnin eitthvað um bú-
skaparhætti?
„Hugmyndir um býli með gerðis
nöfnum eiga sér þó oft litla stoð og
endurspegla ef til vill fremur minni
um búsetu vegna sérhæfðrar árs-
tíðabundinnar starfsemi. Upphaf-
lega hafa gerðin hugsanlega tengst
ræktunaraðferðum með tiltekinni
reitaskiptingu og hringferli sem
gerðu mönnum kleift að iðka báðar
atvinnugreinar saman. Þá voru
skepnurnar á beit í ósánum akur-
tröðum meðan kornið óx í sánum
akurreinum. Í tengslum við gerðin
er því einnig fjallað um
Traðarhól og Bygghól.
Að lokum bendir ýmis-
legt til að gerði hafi sér-
staklega tengst þéttbýli
eins og myndaðist
kringum biskupssetrið á Hólum. Í
Hjaltadal er gerði á nánast hverri
jörð.“
Hafa nöfnin breyst mikið í gegn-
um tíðina?
„Öll þessi nöfn haldast óbreytt
eða lítið breytt gegnum aldirnar.
Þau eru gegnsæ og bergmála upp-
hafið en starfsemin sem fram fer
undir merkjum þeirra tekur breyt-
ingu.“
Rúna K. Tetzschner
Rúna er fædd í Reykjavík 6.
mars 1967. Hún stundaði nám í
Myndlistaskólanum í Reykjavík
og í íslensku í HÍ. Hún tekur
þátt í fornleifarannsókninni á
Hólum í Hjaltadal. BA-
ritgerðin hennar upp á 10 ein-
ingar og 80 blaðsíður fjallar
um örnefni í nágenni Hóla í
Hjaltadal. Hefur Örnefna-
stofnun hug á að gefa hana út.
Rúna vinnur á Þjóðminjasafn-
inu auk þess að starfrækja eig-
ið fyrirtæki, Lítil ljós á jörð,
sem hún stofnaði í minningu
eiginmanns síns, Þorgeirs Rún-
ars Kjartanssonar, sem lést eft-
ir langvarandi veikindi í árslok
1998.
Vaxandi
fræðigrein á
Íslandi
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
22
47
9
10
/2
00
3
Eig
end
avi
ka
Toy
ota
20
03
ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR ERU BESTI MÆLIKVARÐINN
á þjónustu fyrirtækis. Nýleg þjónustukönnun á meðal bílaumboða á Íslandi leiddi í
ljós að ánægja er mest á meðal við skiptavina Toyota. Við erum staðráðin í að halda
áfram á sömu braut. Við efnum til sérstakrar Eigendaviku og bjóðum ókeypis
vetrarskoðun á Toyota bílum 20. - 24. okt. Opið verður alla dagana til kl. 19.00.
Ilmandi heitt gæðakaffi á kaffibarnum á meðan við yfirförum bílinn fyrir veturinn.
Komdu á Nýbýlaveginn, nánari upplýsingar í síma 570 5000 eða á www.toyota.is
Ókeypis vetrarskoðun:
- mælt frostþol í kælikerfi
- smurðar læsingar og
hurðir
- ljósbúnaður athugaður
- bætt á rúðuvökva
- athuguð þurrkublöð
- rafgeymir athugaður
Gerum tilboð í alla réttinga-
og málningarvinnu.
15% afsláttur af
varahlutum.
15% afsláttur af vinnu.
Óvæntar uppákomur á
Nýbýlaveginum alla vikuna.
20. - 24. okt.
GJÖRIÐ SVO VEL: OKKAR ER ÁNÆGJAN
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn