Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Fjölgun íbúa | Mikill hluti fjölgunar íbúa í
Borgarbyggð er á Bifröst og svæðinu þar í
kring. Samkvæmt upplýsingum Hagstofu
Íslands hefur íbúum Borgarbyggðar fjölg-
að um 56 á tímabilinu júlí til september.
Í heild hefur íbúum Borgarbyggðar fjölg-
að um 72 á þessu ári sem er tæplega 3% en
mjög fá sveitarfélög geta státað af slíkri
fólksfjölgun á árinu, segir á heimasíðu
Borgarbyggðar.
Á Vesturlandi hefur íbúum hins vegar
fækkað um 123 á árinu 2003 en þeir voru
14.495 1. desember sl.
Engin bið | Í Mosfellsbæ er nú enginn bið-
listi eftir plássum í leikskóla. Öll börn 2 ára
(börn fædd 2001) og eldri hafa fengið tilboð
um leikskólavist, segir á heimasíðu bæj-
arins. Í októbermánuði voru 404 börn í leik-
skólunum fjórum. Þar af voru 86% barna í
heilsdagsvistun og er það 8% aukning milli
ára, 14 % barna voru í hálfsdagsvistun fyrir
hádegi og eftir hádegi.
MARGRÉT Tóm-asdóttir aðstoð-arskátahöfðingi
hefur ákveðið að gefa kost
á sér í emb-
ætti skáta-
höfðingja á
næsta skáta-
þingi Banda-
lags íslenskra
skáta, en
Ólafur Ás-
geirsson
skátahöfðingi lýkur þá
sínu síðasta kjörtímabili.
Þetta kemur fram á
heimsíðu Bandalags ís-
lenskra skáta. Ef Margrét
verður kjörin verður hún
fyrsta konan til að gegna
embætti Skátahöfðingja
Íslands eftir að kven-
skátar og drengjaskátar
sameinuðust í Bandalag
íslenskra skáta.
Skátahöfðingi?
Margrét
Tómasdóttir SÍMASTÚLKUR Landsímans á Siglufirði og íFljótum eru hættar að tengja númerin með hand-afli, eins og gert var hér áður fyrr. Þessi fríði hóp-
ur kom saman í fyrrakvöld til að minnast gömlu góðu
daganna og var að sjálfsögðu um margt að tala.
Á myndinn eru í aftari röð f.v.: Kristrún Halldórs-
dóttir, Kristín Þorgeirsdóttir,Guðlaug Márusdóttir Sig-
urbjörg Bjarnadóttir, Kristín Baldursdóttir, Björg Frið-
riksdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Halldóra Jónsdóttir,
Sigurlína Káradóttir, Margrét Hallgrímsdóttir, Erla
Ingimarsdóttir. Fremri röð: Sigurlína Gísladóttir, Svan-
hildur Eggertsdóttir, Margrét Björnsdóttir, Magðalena
Hallsdóttir, Anna Snorradóttir, Gréta Jóhannsdóttir.
Ljósmynd/Steingrímur Kristinsson
Endurfundir símastúlkna
VeitingastaðurinnRauða ljónið á Eið-istorgi verður opn-
aður innan fárra vikna, að
því er fram kemur í Nes-
fréttum. Árni Björgvinsson
veitingamaður hefur keypt
staðinn og hefur unnið að
endurbótum. Salurinn hef-
ur verið stækkaður, m.a.
með lifandi tónlistarflutn-
ing í huga.
Ljónið vaknar
Í hagyrðingahorniAusturgluggansbirti Ágústa Ósk
nokkrar vísur í síðasta
tölublaði og segist vilja
með því bjarga þeim frá
gleymsku, en minna sé
vitað um höfundinn. Nú
fer að líða að árshátíðum
og öðru líku, segir Ágústa
Ósk, þá vakna sumir held-
ur óhressir í líkingu við
þetta:
Á hann sækir þorstinn þrár,
þurr er kverk og gómur.
Maginn æpir illar spár,
er með herkjum rómur.
Þorstinn þrár
VEIÐAFÆRI íslenzkra fiski-
skipa verða sífellt þróaðri og
hönnuð með það að markmiði að
ná sem mestu af fiski. Flot-
trollið og síldar- og loðnunótin
eru stærstu veiðarfærin. Flot-
troll eru nú nær eingöngu notuð
til veiða á uppsjávarfiski, eins
og síld, loðnu og kolmunna, en
síld og loðna eru einnig veiddar í
nótina. Flottrollið er einnig not-
að á úthafskarfa, en botntroll á
gullkarfa og við veiðar á öðrum
botnfiski. Flottrollinn geta verið
gríðarlega stór og eru stærstu
möskvarnir fremst í trollinu
margir tugir metra að lengd.
Svo stór eru trollin að opin á
þeim eru að flatarmáli eins og
nokkrir fótboltavellir og far-
þegaþota af stærstu gerð gæti
auðveldlega komizt inn í trollið.
Flækist trollið er því mikið verk
að greiða úr flækjunni og getur
jafnvel þurft að koma með það í
land til að láta laga það.
Munurinn á flottrolli og botn-
trolli er sá, að hið síðarnefnda er
dregið alveg niður við botn, en
flottrollið er mun ofar í sjónum
og er því oft notað við veiðar á
síld og loðnu sem stendur of
djúpt til nótaveiða.
Morgunblaðið/Þorkell
Greitt úr flækjunni
Við höfnina
Stykkishólmi | Það getur verið mikill að-
stöðumunur að búa úti á landi í stað þess að
vera á höfuðborgarsvæðinu og hafa versl-
un og þjónustu í næsta nágrenni. Hár
flutningskostnaður er einn þeirra þátta
sem fer mjög fyrir brjósið á landsbyggð-
arfólki. Sem dæmi má nefna að forráð-
mönnum Tónlistarskólans brá í brún er
þeir opnuðu pakka sem pantaður hafði ver-
ið frá Reykjavík og litu á reikninginn.
Um var að ræða 5 lítil hjól undir skrif-
stofustól sem pöntuð voru frá Pennanum.
Verð þeirra var samtals 1.330 kr. sem ef-
laust er hagstætt verð. En það sem vakti
athygli var að flutningskostnaður við pakk-
ann, sem ekki var nú stór né þungur, frá
verslun að flutningamiðstöð var 1.600 kr.
Frá Reykjavík til Stykkishólms kostaði
400 kr að flytja pakkann. Kostuðu hjólin
hingað kominn kr 3.330 og varð flutnings-
kostnaðurinn á þessum litla pakka til þess
að varan hækkaði um 148 %, sem er dágóð-
ur landsbyggðartollur. Það er athyglisvert
að fjórum sinnum meira er tekið fyrir að
flytja pakkann innan höfuðborgarsvæðis-
ins heldur en kostar að flytja hann 175 km
leið frá Reykjavík til Stykkishólms.
Dýrara
að flytja en
að kaupa
pakkann
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Búðardal | Framkvæmdum er að ljúka við
gamla „kaupfélagshúsið“ í Búðardal. Húsið
á að gera að safnhúsi – safni Leifs Eiríks-
sonar. Verktaki er Burkni ehf. Jón Ingi
Hjálmarsson er framkvæmdarstjóri
Burkna.
Framkvæmdir
á lokastigi
Morgunblaðið/Helga H. Ágústsd.
Borgarnesi | Hollvinasamtök Englendingavíkur voru formlega stofnuð ný-
lega. Haldinn var stofnfundur á Hótel Borgarnesi í framhaldi af því að
Borgarbyggð hefur eignast gömlu pakkhúsin tvö í Englendingavík og
einnig hefur sveitarfélagið áhuga á að festa kaup á gömlu verslunarhús-
unum á sama stað sem voru lengst af í eigu Kaupfélags Borgfirðinga.
Markmið Hollvinasamtakanna er að stuðla að endurreisn þeirra í sam-
ráði við eigendur og halda sögu svæðisins á lofti. Annað markmið samtak-
anna er að vinna að verndun umhverfis og dýralífs í og við Englend-
ingavík. Um fjörutíu manns voru á stofnfundinum og gerðust þeir félagar í
samtökunum. Vilji kom fram hjá mörgum til þess að leggja fram vinnu við
endurgerð húsanna í Englendingavík en eitt af verkefnum samtakanna
verður að leita eftir fjármagni hjá fyrirtækjum, félögum, einstaklingum og
opinberum stofnunum til að standa straum af kostnaði við endurbæturnar.
Fyrstu stjórn Hollvinasamtakanna skipa Ingibjörg Hargrave, Finnbogi
Rögnvaldsson og Gísli Einarsson. Varamenn í stjórn eru Finnur Torfi Hjör-
leifsson og Þorkell Valdimarsson.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Hollvinir Englendingavíkur
Sveitarstjórnarnámskeið | Ákveðið
hefur verið að endurtaka námskeið fyrir
sveitarstjórnarmenn, en í febrúar sl. stóð
Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir
slíkum námskeiðum. Námskeiðið verður
haldið í Reykjavík 7. og
8. nóvember í framhaldi
af fjármálaráðstefnu
sambandsins sem verð-
ur haldin 5.–6. nóv-
ember. Þátttaka í fyrra
námskeiðinu er þó ekki
skilyrði.
Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarða-
byggð, mun stjórna námskeiðinu. Hann
var stjórnandi á tveimur námskeiðum í
febrúar sl. og létu þátttakendur í ljós
mikla ánægju með hans framlag til nám-
skeiðanna, segir á heimasíðu Sambands
ísl. sveitarfélaga. Smári mun halda fyr-
irlestur, stjórna umræðum, fyrirspurnum
og raunhæfum verkefnum. Sviðsstjórar
sambandsins munu einnig flytja fyr-
irlestra, taka þátt í umræðum og svara
fyrirspurnum.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Með á nótunum | Þátttakendur voru vel
með á nótunum á námskeiði Jóns Böðv-
arssonar í Svarfdælasögu á Rimum fyrir
nokkru. Framfarafélag Dalvíkur gekkst
fyrir námskeiðinu og sóttu það um 80
manns. Í Norðurslóð kemur fram að mikill
áhugi sé fyrir sögum og þáttum þeim sem
tengjast Svarfaðardal. Segir í blaðinu að
Jón hafi haft á orði að námskeiðið hafi ekki
síður verið lærdómsríkt fyrir sig.