Morgunblaðið - 24.10.2003, Page 30

Morgunblaðið - 24.10.2003, Page 30
LISTIR 30 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ HEIMSKUNNUR píanisti og píanó-kennari, Lydia Frumkin, er stödd hérá landi og heldur „masterklassa“ fyrirpíanónemendur á vegum tónlist- ardeildar Listaháskóla Íslands í Salnum í Kópa- vogi í dag og á morgun. Þegar Lydia Frumkin var á barnsaldri var faðir hennar veðurfræðingur í rússneska hernum í Síb- eríu, á slóðum þar sem engin píanó voru til. Hún komst yfir harmónikku sem hún lærði á til fjórtán ára aldurs, þegar fjölskyldan flutti aftur í borg- arsamfélagið. Eftir aðeins örfá ár í píanónámi var hún komin inn í Leníngrad-konservatoríið, þar sem hún lauk prófi í einleik og kammertónlist með hæstu einkunn 1971 og var strax ráðin kennari við skólann. Hún fékk fararleyfi ásamt eiginmanni sínum 1973 og hefur verið fastráðin við Oberlin- tónlistarskólann í Ohio í Bandaríkjunum frá 1974. Píanóleikur hennar þykir sameina afburða tækni- kunnáttu og einstaka tónlistargáfu, – hún er einn virtasti píanókennari af rússneska skólanum sem starfar vestanhafs. Frumkin kemur hingað fyrir tilstilli fyrrverandi nemanda síns frá Oberlin, Árna Heimis Ingólfssonar, kennara við Listahá- skólann. Lydia Frumkin segir erfitt að lýsa því í fáum orðum hver sérkenni rússneska píanóskólans séu, – og hvað greini hann frá píanóleik annarra þjóða. „Í Rússlandi eru ýmsir straumar í gangi og erfitt að tala um eitthvert eitt sameiginlegt kennileiti. Þó er hægt að segja, að það hvernig píanóið hljóm- ar sé atriði sem alls staðar er lögð áhersla á í rúss- neskum píanóleik. Píanóið þarf að syngja, og það þarf að hugsa um píanóið sem sönghljóðfæri. Ef þú veist hvað það er sem gerir söng fagran, þá er hægt að yfirfæra þann skilning yfir á píanóið. Sjálf met ég mikils það sem píanóleikarar alls staðar gera, til að leita sannleikans í tónlistinni, og það skiptir meira máli fyrir mig en hvert þjóðernið er.“ Það ræðst af hverjum nemanda fyrir sig, hvaða áherslur verða í kennslunni að sögn Lydiu Frumk- in. Hún segist ekki þröngva skoðunum sínum upp á nemandann, heldur reyna að leiða honum fyrir sjónir það sem hún heyrir og upplifir í píanóleik hans. „Mín skoðun er sú að til grundvallar tónlist- inni liggi alltaf ákveðin tilfinning tónskáldsins, hugsun og hugmynd, – það sem varð til þess að tónskáldið samdi það. Mitt verkefni er að opna augu nemandans fyrir því sem liggur að baki nót- unum sem hann spilar, og draga fram þetta bak- svið hvers verk. Svo fer það eftir hæfileikum og næmi hvers nemanda fyrir sig, hvar við mætumst í þessum þönkum. Ég vona í það minnsta að ég geti opnað augu einhverra þeirra fyrir ólíkum leiðum að túlkun tónlistarinnar.“ Tækni er hjálpartæki píanóleikarans að sögn Lydiu Frumkin, og góð tækni auðveldar píanóleik- aranum að takast á við tónlistina. „En það þarf fleira til, músíkalskt innsæi, skilning á hend- ingamótun og fleiru sem hjálpar til við að raða nót- unum saman til þess að landslag tónlistarinnar verði músíkalskt og nái til þeirra sem hlusta. Sum- ir nemendur hafa djúpan skilning á tilfinningunni í tónlistinni og eru fljótir að átta sig á hvernig má laða hana fram. En að mínu mati er hægt að finna ýmis lögmál til að hjálpa nemendum að átta sig á því hvernig tengja má eina nótu við aðra á mús- íkalskan hátt.“ Lydia Frumkin segist hafa átt því láni að fagna að umgangast alls konar tónlistarfólk á námsárum sínum í Rússlandi, ekki bara píanóleikara, heldur líka kennara í kammertónlist og söng. „Ég sótti tíma hjá þessu fólki, – líka í söngnum, því mig langaði að skilja hvernig tónlistin hljómar svo eðli- lega og náttúrulega í söng. Hjá píanóleikaranum er flæðið ekki það sama, – hreyfingin er upp og niður við það að slá á nóturnar. Mig langaði að finna betur út hvernig píanóið gæti verið lagrænt hljóðfæri fremur en eins konar ásláttarhljóðfæri. Auðvitað er til ýmis píanótónlist sem krefst þess að hljóma meir í ætt við slagverk, en það heillaði mig alltaf að geta náð góðum tökum á því lagræna í píanóleiknum. Það var einstakt fyrir mig að alast upp í umhverfi sem var byggt á svo sterkri tónlist- arhefð.“ Lydia Frumkin segir löngun sína til að læra á píanóið hafa verið mikla, og að það hafi haft bæði galla og kosti að geta ekki byrjað formlegt píanó- nám fyrr en fjórtán ára gömul. „Það var mitt lán hvað ég fékk góða kennara strax í upphafi, og þeir hjálpuðu mér að yfirvinna það sem á vantaði við það að hefja námið svo seint. Ég hefði viljað byrja fimm ára, þegar hæfileikinn til að taka á móti og læra er svo mikill. En í staðinn lærði ég að taka á svo um munaði til að vinna upp þetta forskot. Það hefur hver sína aðferð og hver sitt lag á að nálgast tónlistina og læra.“ Það hefur fyrir löngu verið viðurkennt hve gott nemendur í tónlistarnámi hafa af því að kynnast nýjum kennurum og fá álit annarra á því sem þeir eru að gera. Vinsældir masterklassa eru líka mikl- ar, og Lydia Frumkin hefur farið víða í þeim er- indagjörðum að kenna á slíkum námskeiðum. En hvað getur kennarinn lært af þeim? „Ég læri alltaf mikið af nemendum mínum. Það skerpir skilning manns á tónlistinni á ýmsan hátt. Stundum gerist það líka að maður sér nemendur koma með lausnir sem manni hefði sjálfum ekki dottið í hug. Það er altaf ánægjulegt. En kennslan kennir manni þó ekki síst þolinmæði. Rússar eru fremur óþolinmóðir, og þegar ég kom til Ameríku var ég fremur óþolinmóð. Ég lærði að nemandinn skilur ekki allt jafn hratt og þú gerir, og nemendur eru misjafnir. Nú spyr ég, ef einhver skilur ekki í fyrstu tilraun, hvort ég sjálf hafi ef til vill ekki út- skýrt nógu vel. Þá þarf maður að leita annarra leiða. Að þessu leyti er kennarinn líka alltaf að læra.“ Sem fyrr segir fer kennslan fram í Salnum í Kópavogi; í dag milli kl. 10 og 17 og á morgun frá kl. 14 til 18. Áheyrendur eru velkomnir. Kennarinn er alltaf að læra Morgunblaðið/Kristinn Lydia Frumkin píanóleikari frá Rússlandi: „Það er hægt að finna ýmis lögmál til að hjálpa nem- endum að átta sig á því hvernig tengja má eina nótu við aðra á músíkalskan hátt.“ RÁÐSTEFNA um rými verður haldin í ráðstefnusal Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 kl. 9–16.30 á morg- un, laugardag. Yfirskriftin er Verð- andi rými: Hugmyndafræði, sköpun & ívera í manngerðu umhverfi. Meg- in þemað er „atburða-rými“ eða list- rýmið: rými í list og list í rými. Ráð- stefnan er „blönduð“ með fyrirlestr- um og gjörningum. Fyrirlestrarnir fjalla um það rými sem finna má í listaverkum og það rými sem listin skapar (og öfugt). Umfjöllunin er bæði á fræðilegum og hagnýtum nót- um. Þátttakendur eru myndlistar- menn, listfræðingar og arkitektar. Þeir síðastnefndu hafa allir reynslu af því að vinna við listrýmið, gallerí eða söfn og í því. Ráðstefnan er m.a. haldin til að veita fræðilegri orðræðu um hugtak- ið rými inn í íslenska menningarum- ræðu. Þessum markmiðum verður fylgt eftir með útgáfu fyrirlestranna á Atviksbók, vorið 2004. Ráðstefnan er haldin á vegum Atvika-Reykjavík- urAkademíunnar og Nýlistasafns- ins. Ráðstefnan fer fram á ensku. Hvar á listin sér stað? Einar Garibaldi Eiríksson Anna Hallin Í SAFNI, Laugavegi 23, verða fimm nýjar teiknimyndir eftir bandaríska listamanninn Lawrence Weiner sýndar hver á fætur annarri fram í marsmán- uð næsta árs. Lawrence Weiner er heimsþekktur fyrir verk sín sem eru iðulega sam- spil texta og um- hverfis. Í mynd- unum, sem taka um fimm til 20 mín. í flutningi, má sjá sampil texta, teikninga, talaðs máls, leikins efnis og hljóðs. Myndirnar heita Blue Moon Over, 2001, Wild Blue Yonder, 2002, Deep Blue Sky, 2002, Light Blue Sky, 2002 og Sink or Swim, 2003. Sýningin er í samstarfi við kvikmyndafyrirtækið Moved Pict- ures og Lawrence Weiner. Framundan í Safni er sýning breska listamannsins, Adam Bark- er-Mill og kynning á verkum Hreins Friðfinnssonar. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu, www.safn.is. Aðgangur að Safni er ókeypis. Op- ið miðvikudaga til föstudaga kl. 14- 18. Laugardaga og sunnudaga kl. 14- 17. Leiðsögn um sýningarnar er alla laugardaga kl. 14. Teiknimyndir eftir Weiner Lawrence Weiner SÝNINGUM á leikriti Kristínar Ómarsdóttur, Vinur minn heimsend- ir, sem sýnt er í Hafnarfjarðarleik- húsinu, fer að ljúka. Þrjár sýningnar eru eftir, í kvöld, sunnudags- og fimmtudagskvöld. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir og með helstu hlutverk fara Ólafía Hrönn Jóns- dóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Guð- mundur Ingi Þorvaldsson. Leikritið er framleitt af Mink-leik- húsinu í samvinnu við Hafnarfjarð- arleikhúsið. Vinur minn heimsendir á förum Í TÓNLEIKASYRPU 15:15 á Nýja sviði Borgarleikhússins í vetur verða alls 13 tónleikar. Þar kennir ýmissa grasa. Caput-hópurinn verður nokk- uð áberandi í vetur auk Ferðalaga, en meðal nýrra þátttakenda í tón- leikahaldinu eru Voces Thules, Cam- erarctica og Tilraunaeldhúsið. Á efn- isskrám í vetur má finna Kvartett fyrir endalok tímans eftir Messiaen, Ljóðaflokka Mussorgskis og 4 Grand duo eftir Atla Heimi Sveins- son. Frumflutt verða ný verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Þuríði Jónsdóttur, Hafdísi Bjarnadóttur, Hafliða Hallgrímsson, Þórólf Eiríks- son, Atla Ingólfsson, Harald Svein- björnsson og Svein Lúðvík Björns- son. Á morgun frumflytur Tilraunaeld- húsið örverkið Pleace make my space noisy. Fjölmörg ný verk í 15:15- syrpunni Í TILEFNI útkomu þriðju Vinjettu- bókar Ármanns Reynissonar verður útgáfuhátíð í Galleríi Vélarsal í Vest- mannaeyjum í dag kl. 18. Ármann sagði að í tilefni af 30 ára gosloka- afmæli fyrr á árinu hafi hann ákveðið að kynna bókina fyrst í Vestmanna- eyjum enda er einn kafli hennar helgaður goslokunum. Ármann mun afhenda Bergi Ágústssyni, bæjar- stjóra í Vestmannaeyjum, fyrsta ein- takið. Hann mun lesa úr bókinni við undirleik Sigurmundar Einarssonar á gítar og Védísar Guðmundsdóttur á þverflautu. Einnig opnar Þórður Svansson, myndhöggvari frá Vestmannaeyj- um, sýningu á verkum sínum. Vinjettur kynnt- ar í Eyjum Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. TÓNLEIKAR í tónleikaröðinni 15:15, sem haldnir voru sl. laugardag í Borgarleikhúsinu, hófust á verki eftir Hafdísi Bjarnadóttur sem hún nefnir Á milli svefns og vöku. Verkið er samið fyrir rafgítar og söngkvart- ett en texti „fyrirfinnst“ enginn. Tónferlið byggist á þrástefjun og framvinda verksins hefst á því að þrástefjunum er fjölgað, þ.e. tón- bálkurinn hleðst smám saman upp í fulla hljómskipan. Þrástefjun er gömul aðferð sem birtist í tónverk- um frá ýmsum tímum og tilheyrir að nokkru formskipan passakalíunnar. Þrástefjun varð sérlega vinsæl á Vesturlöndum eftir tónleika gamel- an-hljómsveitar frá Balí á heimssýn- ingunni í París 1889, en þessi tón- smíðaaðferð er aðaleinkenni gamelan-tónlistar. Aðferðina má nota til að skapa kyrrstöðu, á sama hátt og orgel- punkt, en heldur er það einföld lausn að nota þessar aðferðir eingöngu, ekki aðeins í mótun tónferlis heldur og sem formskipan, eins og átti sér stað í öllum verkum Hafdísar sem flutt voru á þessum tónleikum. Því miður hefur þessi tónsmíðaaðferð verið í fyrirrúmi í tónsmíðakennslu hér á landi um langan tíma og kveður svo rammt að þessu, að ætla má, að tónsmíðanemum sé ekki kennd önn- ur aðferð. Þrátt fyrir þetta var hug- þekkur blær yfir sumum verkunum, sem nefndust Kyrrð, Dropi í hafið, Fjallganga, Festa og lokaverkið Landslag, þar sem fitjað var upp á ýmsum óhefðbundnum tónmyndun- araðferðum með því að notast við glamur úr steinflögum, slátt með bambusvöndlum og kassa með sandi, sem troðinn var, en með í þessum hljóðtilraunaleik var leikið þrástefj- að á þrjá gítara og trompet. Að frá- dreginni þrástefjuninni var ýmislegt áferðarfallegt og vonandi tekst Haf- dísi að losa sig úr viðjum þrástefj- unarinnar, því margt í verkum henn- ar er beinlínis fallega mótað og umfram allt er hér um að ræða til- raun til að nálgast hljóðheim dagsins í dag á persónulegan máta, þótt „experimental“ tónmyndunaraðferð- irnar frá 1950 séu nú kallaðar gamlar og hafi fyrir löngu verið aflagðar. Segja má að tónleikarnir hafi verið eins konar nútíma endurreisn, því á móti nútímalegum tónverkum Haf- dísar söng Voces Thules endurreisn- arsöngva eftir Clement Janequin (1485–1558), franskan prest er samdi ríflega 250 „chansons“ (franski madrígalinn), sem nutu mikilla vin- sælda fyrir leikræna meðferð text- ans og teljast því vera hermitónlist og merkilegt framlag, sem jafnvel er talið hafa haft áhrif á þróun óper- unnar. Meðal frægustu verka Jane- quins eru Veiðiferðin, Orrustan við Marignano (1515) og Heyrið hróp Parísar. Síðustu verkin eftir Jane- quin eru tónsetningar við Davíðs- sálma og Orðskviði Salómons. Vand- inn við að syngja kansónurnar hans Janequins er framburður textans, því hraður framburður hans dregur mjög úr hljómgun raddarinnar og til að útkoman verði bæði söngur og tal þurfa söngvararnir að hafa gengið í gegnum sérstaka þjálfun, sem ekki er til að dreifa hjá félögunum í Voces Thules, að undanteknum einum, þótt þeir séu allir annars vel menntaðir tónlistarmenn. Fyrir bragðið var söngurinn í heild sérlega hljómvana, allt að því neyðarlega hljómlítill og vesæll, og gildir þetta um öll lögin eftir Janequin, sem voru sex talsins. Endurreisn í nútímanum TÓNLIST Nýja sviðið í Borgarleikhúsinu Flutt voru söng- og kammerverk eftir Janequin og Hafdísi Bjarnadóttur. Flytjendur Voces Thules, Hafdís Bjarnadóttir og félagar. Laugardagurinn 18. október. SÖNGUR OG KAMMERTÓNLIST Hafdís Bjarnadóttir: Hugþekkur blær yfir sumum verkunum. Jón Ásgeirsson ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.