Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 49
Hallgrímskirkja. Eldri borgara starf
kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og
spjall.
Háteigskirkja, eldri borgara starf.
Bridsaðstoð kl. 13. Kaffi kl. 15.
Haustfagnaður í safnaðarheimilinu
laugardaginn 25. okt. kl. 14. Bingó,
kaffi og söngur með Þorvaldi.
Neskirkja. Kóræfing laugardag kl.
11–13. Nýstofnaður kór sérstaklega
fyrir þá sem hafa lengi langað til að
syngja en aldrei þorað. Stjórnandi
Steingrímur Þórhallsson organisti.
Uppl. og skráning í síma 896 8192.
Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri
deildarstarf Lindakirkju og KFUM&K
í húsinu á Sléttunni, Uppsölum 3.
Krakkar á aldrinum 8–12 ára vel-
komnir.
Keflavíkurkirkja. Dr. Sigurlína Dav-
íðsdóttir, lektor við Háskóla Íslands,
fjallar um sjálfsímyndina og hvað
verður um hana í kreppum og áföll-
um á morgun, laugardag, kl. 10–12.
Boðið verður upp á léttan hádegis-
verð á eftir.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stjörnukórinn;
barnakór fyrir 3 til 5 ára gömul börn
æfir í kirkjunni laugardaginn 25. okt.
kl. 14.15. Kennari Natalía Chow
Hewlett og undirleikari Julian Mich-
ael Hewlett.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið sam-
veruna í Víkurskóla á morgun, laug-
ardag, kl. 11.15. Rebbi refur fræðist
meira um kristna trú. Söngur, sögur,
biblíufræðsla og litastund. Sóknar-
prestur og starfsfólk Kirkjuskólans.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl.
11.00. Bænastund alla þriðjudaga
kl. 20.00. Biblíufræðsla allan sólar-
hringinn á Útvarp Boðun FM 105,5.
Allir velkomnir.
Fríkirkjan Kefas: Í kvöld er 10–12
ára starf kl. 19.30. Samvera,
fræðsla og fjör. Allir velkomnir. Nán-
ari uppl. á www.kefas.is
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl.
17.30 barnagospel fyrir krakka 4–
12 ára. Kl. 10–18 okkar vinsæli
flóamarkaður opinn.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 49
Tvö námskeið
hjá Biblíu-
skólanum
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg
býður upp á tvö námskeið laug-
ardaginn 25. október 2003.
Námskeiðið Smitandi trú fjallar
um lifandi kirkju en umfjöllun um
námskeiðið verður tengd spurning-
unni að vera lifandi kirkja í nútíma-
menningu.
Námskeiðið Undraland (Promise
land) er mjög athyglisvert efni til
notkunar í barnastarfi sem notað er
af söfnuðum og samtökum víða um
heim.
Bæði námskeiðin eru upprunnin
hjá Willow Creek-kirkjunni í
Bandaríkjunum sem náð hefur
undraverðum árangri við að ná til
fólks sem ekki venur komur sínar í
kirkju eða á samkomur.
Hjónin Turid og sr. Kåre Rune
Hauge munu kenna þessi námskeið
sem munu fara fram á norsku. Sr.
Kåre Rune er framkvæmdastjóri
kristilegu skólahreyfingarinnar í
Noregi en einnig stjórnarformaður
í Willow Creek-samtökunum þar í
landi en slík samtök hafa verið
stofnuð á Norðurlöndunum og víða
um heim og hafa um 10.000 kirkjur
og félög innan sinna vébanda.
Námskeiðin verða haldin í húsi
KFUM og KFUK Holtavegi 28,
Reykjavík.
Námskeiðið um Undraland verð-
ur kl. 10–13. Námskeiðsgjald er
1.200 kr. og er léttur hádegisverður
innifalinn.
Námskeiðið um Smitandi trú
verður kl. 10–15.30. Námskeiðs-
gjald er 1.500 kr. og er léttur há-
degismatur innifalinn.
Skráning fer fram á skrifstofu
skólans í síma 588 8899 og með raf-
pósti á skrifstofa@krist.is.
Vetri fagnað
í Háteigskirkju
Á MORGUN, laugardaginn 25.
október, býður Háteigskirkja eldri
borgara velkomna á vetrarfagnað í
safnaðarheimili kirkjunnar. Dag-
skráin hefst klukkan tvö með bingói
þar sem spjaldið kostar 100 krónur.
Að loknum veitingum sér Þorvald-
ur Halldórsson um tónlistarstund.
Eldri borgarar eru hvattir til að
fjölmenna.
Nánari upplýsingar gefur Þórdís
Ásgeirsdóttir í síma 511 5405 en
hún hefur umsjón með öllu eldri
borgara starfi Háteigskirkju.
„Vinir í vetrarfríi“
í Grafarvogskirkju
DAGANA 30., 31. október og 3. nóv-
ember verður vetrarfrí í Folda-,
Hamra-, Rima-, Engja-, Víkur-, og
Korpuskóla í Grafarvogi.
Þessa daga býður Grafarvogs-
kirkja öllum nemendum í þriðja
bekk fyrrnefndra skóla (sem eru 8
ára á þessu ári) að taka þátt í nám-
skeiði sem heitir: „Vinir í vetr-
arfríi“.
Námskeiðið stendur yfir í þrjá
klukkutíma á dag í umrædda daga,
frá kl. 9–12.
Börnunum verður boðið upp á
fræðslu, leiki og söng, og gestir
munu koma í heimsókn. Þá mun
íþróttakennari verða með í leið-
beinendahópnum. Þetta námskeið
er foreldrum að kostnaðarlausu.
Hins vegar þarf að nesta börnin fyr-
ir hvern dag. Börnin fá sérstaka
boli að gjöf með merki námskeiðs-
ins.
Uppskeruhátíð „Vina í vetr-
arfríi“ verður síðan mánudags-
kvöldið 3. nóvember kl. 19.00. Þar
munu börnin sýna fjölskyldum sín-
um hvað þau hafa verið að gera á
námskeiðinu. Viðurkenningarskjöl
fyrir þátttöku verða afhent.
Uppskeruhátíðinni lýkur með „Pál-
ínuboði“ þar sem fjölskyldurnar
leggja eitthvað matarkyns á hlað-
borð. Kirkjan sér um kaffi og djús.
Skráning fer fram á skrifstofu
Grafarvogskirkju 23., 24. og 27.
október nk. kl. 09.00–12.00 í síma
587 9070.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 26. október nk.
kl. 14.00 verður haldin ensk messa í
Hallgrímskirkju. Prestur verður sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
verður Hörður Bragason. Guðrún
Finnbjarnardóttir mun leiða al-
mennan safnaðarsöng. Krakkakór
Grafarvogskirkju syngur við at-
höfnina undir stjórn Oddnýjar J.
Þorsteinsdóttur. Messukaffi að at-
höfn lokinni.
Annað árið í röð er boðið upp á
enska messu í Hallgrímskirkju síð-
asta sunnudag hvers mánaðar.
Service in English
SERVICE in English at the Church
of Hallgrímur (Hallgrímskirkja).
Sunday 26th of October at 2 pm.
Holy Communion. The Nineteenth
Sunday after Trinity. Celebrant
and Preacher: The Revd Bjarni
Thor Bjarnason. Organist: Hörður
Bragason. Leading singer: Guðrún
Finnbjarnardóttir. The Childreńs
Choir of Grafarvogskirkja. Conduc-
tor: Oddný J. Thorsteinsdóttir.
Refreshments after the Service.
Haustmót Fíladelfíu
DAGANA 23. til 26. október verður
haldið „Haustmót Fíladelfíu“ að
Hátúni 2 í Reykjavík. Sérstakur
gestur mótsins verður Åge M.
Åleskjær, forstöðumaður Oslo
Kristne Senter í Noregi.
Vakningasamkomur verða kl.
20.00 fimmtudag, föstudag og laug-
ardag, og síðan mun Åge einnig
tala á samkomu kl. 16.30 á sunnu-
deginum.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Morgunblaðið/Þorkell
Örvar Kristjánsson
heldur uppi Kanaríeyjarstemmningu
föstudags- og laugardagskvöld
ATH. aðeins þessi eina helgi
Aðgangur ókeypis.