Morgunblaðið - 24.10.2003, Page 52
RAYMOND Robins lék sér í
knattspyrnu í íþróttahúsinu í
Þorlákshöfn og reyndi að snúa
knettinum í markið frá enda-
línu, hélt knettinum á lofti og
hafði greinilega gaman af því að
sparka í boltann – þrátt fyrir að
hafa atvinnu af því að leika
körfuknattleik.
Raymond er 23 ára gamall,
um tveir metrar á hæð, leikur í
stöðu framherja og er lipur
skytta. „Ísland og Þorlákshöfn
er ekki svo frábrugðið því sem
ég hef vanist. Ég kem frá smá-
bæ, háskólinn sem ég útskrif-
aðist úr sl. vor er einnig lítill –
allir þekktu alla og þannig er
það einnig hér. Ég kvarta ekki
þrátt fyrir að bærinn sé fámenn-
ur,“ segir Raymond en hann
kemur frá Suður-Kaliforníu en
lék með háskólaliði Princeton í
körfuknattleik og blaki.
„Það kom mér á óvart hve
margir góðir leikmenn eru í
deildinni. Það er leikið hratt,
það er meiri snerting leyfð úti á
vellinum hér og frjálsræðið er
einnig meira. Hér fá menn
frjálsræði sem ég var ekki van-
ur að fá í Princeton. En ég get
ekki sagt fyrir um hvar við
stöndum gagnvart hinum lið-
unum enda hef ég ekki séð neitt
þeirra spila.“
Spurður um hvort hann hafi
ávallt verið sá leikmaður sem
hefur skorað mikið af stigum
segir Raymond að svo hafi ekki
verið. „Ég hef skorað 32 stig að
meðaltali í deildinni hér, en í
Bandaríkjunum var það ekki
uppi á teningnum. Leikkerfin
voru öðruvísi uppbyggð en ég er
ekki að leita eftir því að skora
sem mest. Það er mikilvægara
að liðið vinni leikina.“
Raymond segir að hann líti á
Ísland sem áskorun og viður-
kennir fúslega að hann vonist til
þess að fá tækifæri á meginlandi
Evrópu á næstu misserum.
„Ég öðlast reynslu með því að
leika hér á landi og ef ég stend
mig vel opnast aðrir möguleikar
á öðrum vígstöðvum.“
Held með
Manchester United
Raymond segist vera mikill
knattspyrnuáhugamaður og er
Manchester United hans lið í
ensku knattspyrnunni. „Ég get
nú ekki neitt sjálfur í knatt-
spyrnu en ég heillaðist af leikn-
um á háskólaárum mínum og
Manchester United er eina liðið
sem við sjáum eða heyrum af
vestanhafs – þannig að valið var
ekki erfitt. Það er ótrúlega
gaman að horfa á knattspyrnu-
leiki og það er nóg af þeim í ís-
lensku sjónvarpi,“ segir Ray-
mond en hann vonast til þess að
geta fengið vinnu fljótlega. „Til
þess að láta tímann líða. Það er
ekki hollt að sitja heima og bíða
eftir æfingu á kvöldin. Ég hef
verið að aðstoða við að þjálfa
yngri flokka félagsins en von-
andi get ég sameinað það að
vera í vinnu og að leika körfu-
knattleik.“
„Ísland er áskorun“
KÖRFUKNATTLEIKUR
52 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Á
rangur liðsins hefur
ekki komið mér sér-
staklega óvart. Ég vissi
hvað ég hafði í höndun-
um og það hefur
kannski komið mörgum á óvart að
við skyldum hafa unnið fyrstu tvo
leiki okkar í deildinni. En ekki mér,“
sagði hinn 34 ára gamli Bandaríkja-
maður, William Dreher, en segja má
að hann sé með Þórsliðið í höndum
sér enda er hann leikstjórnandi liðs-
ins og að auki þjálfarinn.
„Billy“, eins og William er kallað-
ur, segir á heimasíðu liðsins að
markmið hans sé að gera Þór að Ís-
landsmeisturum en það voru ekki
margir sammála honum þegar spá
leikmanna og þjálfara Intersport-
deildarinnar var birt fyrir keppnis-
tímabilið. Nýliðunum er spáð 12. og
neðsta sæti deildarinnar.
„Heimavöllurinn sem við ráðum
yfir hefur reynst mörgum erfiður.
Það eru margir sem koma á leikina
og styðja við bakið á okkur og þannig
hefur það verið í mörg ár,“ segir
Billy en hann var leikmaður og þjálf-
ari Þórs á árunum 1998–2000 er liðið
var í 1. deild en úrslitakeppnin
reyndist liðinu erfið. „Við náðum
ekki að höndla þá spennu og það um-
hverfi sem fylgir úrslitakeppni. Liðið
var skipað ungum leikmönnum á
þeim tíma en ég tel að allir sem koma
að Þórsliðinu hafi lært mikið á und-
anförnum árum.“
Vissi að hverju ég gekk
Billy fór til heimalands síns eftir
að Þórsliðinu tókst ekki að komast í
úrsvalsdeild árið 2000 og kenndi
hann m.a. við menntaskóla ásamt því
að þjálfa körfuknattleik við skólann
en Billy var einnig tengdur liði sem
leikur í USBL-deildinni vestanhafs.
„Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi
um þegar ég fékk símtal frá for-
manni deildarinnar sl. vor um að
taka að mér þjálfun liðsins. Það
hentaði mér vel á þeim tímapunkti,
auk þess sem ég vissi að hverju ég
gengi. Hér er staðið vel að málum.
Samfélagið er lítið, allir þekkja alla
og ég kann vel við mig í Þorlákshöfn
þrátt fyrir að flestir hafi áhyggjur
yfir því að við skulum „þurfa“ að
vera hér.“
Í fyrstu tveimur leikjum Þórsliðs-
ins í Intersportdeildinni hefur liðið
skorað að meðaltali tæp 102 stig í
leik og skora erlendu leikmenn liðs-
ins um ¾ hluta þeirra, en auk Billy
leika þeir Leon Brisport og Ray-
mond Robins með liðinu – en þeir
eru frá Bandaríkjunum. Gunnlaugur
Erlendsson, fyrrum leikmaður
Hamars, hefur skorað 13 stig að
meðaltali og í nóvember mun annar
leikmaður frá Hamri, Svavar Birg-
isson, bætast í hópinn og þá telur
þjálfarinn að hjólin fari að snúast
fyrir alvöru hjá liðinu.
„Þegar allir verða á sínum stað
verðum við með byrjunarlið þar sem
allir leikmenn liðsins geta skorað
meira en 20 stig í leik að meðaltali.
Það verður erfitt fyrir öll lið að mæta
okkur þegar við verðum farnir að ná
betur saman. Ég tel að liðið eigi
mjög mikið inni,“ segir Billy og bætir
því við að yngri leikmenn liðsins séu
efnilegir og hafi veigamiklu hlut-
verki að gegna. „Við erum lið, við
þurfum hver á öðrum að halda og
það skilja allir hvaða hlutverk þeir
hafa í þessu liði. Sumir þurfa að
skora meira en aðrir, sumir taka
fleiri fráköst en aðrir og sumir leggja
áherslu á varnarleikinn.“
Um markmið vetrarins segir hinn
yfirvegaði þjálfari að liðið ætli sér að
komast í úrslitakeppni átta efstu
liða.
„Ég tel að við getum farið enn
lengra ef við verðum heppnir, þ.e.
sleppum við meiðsli og annað í þeim
dúr. Það er mín trú að við getum
komist í undanúrslit. Samt sem áður
er úrslitakeppnin frábrugðin að því
leyti að þar ertu að glíma við lið í
hreinum úrslitaleikjum og sum lið
henta okkur betur en önnur. Eins og
ég segi þá getum við verið heppnir
en það er best að láta verkin tala.
Það er erfiður leikur Njarðvík á
föstudag.“
Rígurinn er mikill
Billy segir að það sé gríðarlegur
áhugi á körfuknattleik í Þorlákshöfn,
bæjarbúar styðja vel við bakið á lið-
inu og er greinilegt að hann vill halda
merki liðsins sem hæst.
„Það eru ekki margir sem búa í
Þorlákshöfn en við tökum þátt til
þess að reyna okkur við bestu lið
landsins. Vonandi náum við að koma
Þorlákshöfn á kortið sem körfu-
knattleiksbæ, og það skemmir ekki
fyrir að það er úrvalsdeildarlið í
næsta bæ – Hveragerði. Rígurinn er
því mikill.“
Spurður um hvort ekki væri skyn-
samlegt að sameina lið Hamars,
Þórs og Selfoss – búa til enn sterk-
ara lið var þjálfarinn fljótur að svara:
„Það er skemmtilegra að hafa þetta
svona, en maður veit ekki hvað fram-
tíðin ber í skauti sér.“
Eftirtaldir leikmenn skipa leik-
mannahóp Þórs frá Þorláks-
höfn í Intersportdeildinni
keppnistímabilið 2003–2004:
Ágúst Örn Grétarsson,
26 ára bakvörður.
Finnur Andrésson,
19 ára framherji.
Grétar I. Erlendsson,
19 ára framherji.
Gunnlaugur Erlendsson,
22 ára framherji.
Guðni Ingason,
18 ára bakvörður.
Leon Brisport,
26 ára miðherji.
Magnús Guðmundsson,
20 ára framherji.
Magnús Sigurðsson,
21 árs bakvörður.
Raymond Lee Robins,
23 ára framherji.
Rúnar Freyr Sævarsson,
32 ára framherji.
Rúnar Pálmason,
22 ára bakvörður.
Svavar Atli Birgisson,
23 ára framherji.
William Dreher,
33 ára bakvörður.
Leikmanna-
hópur
William Dreher, körfuknattleiksþjálfari og leikmaður nýliða Þórs
Lið Þórs frá Þorlákshöfn hefur komið
verulega á óvart í fyrstu tveimur leikj-
um vetrarins í úrvalsdeildinni, Inter-
sportdeild karla, í körfuknattleik. Lið-
ið hefur unnið báða leiki sína, en flestir
hafa spáð því að vera liðsins í hópi
bestu liða landsins yrði skammgóður
vermir fyrir íbúa Þorlákshafnar. Enda
var liðinu spáð 12. og neðsta sætinu í
upphafi leiktíðar. Sigurður Elvar
Þórólfsson tók hús á nýliðunum og
leitaði skýringa á velgengni liðsins.
seth@mbl.is
„Eigum
enn mikið
inni“