Morgunblaðið - 24.10.2003, Side 53
KÖRFUKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 53
Jú, það er rétt. Við höfum alltaffengið góðan stuðning í gegnum
árin. Þrátt fyrir að hafa ekki áður
verið í úrvalsdeild. Heimavöllur okk-
ar er sterkur þar sem margir koma á
leikina, rúmlega 300 manns, og að
auki er stór hópur í okkar 1300
manna samfélagi sem fylgir okkur í
útileikina,“ segir Kristinn og bætir
því við að sveitarfélagið Ölfus muni
gera samstarfssamning við deildina
á næstu vikum. „Við kvittum undir
þann samning þegar við fáum beina
sjónvarpsútsendingu frá leik héðan,
það er ekki langt í það. Sá samningur
mun hjálpa okkur mikið og ég er
þess fullviss að það eru ekki mörg
sveitarfélög sem gera slíka samn-
inga.“
Eins og sagt var frá á dögunum
þurfa íslensk úrvalsdeildarlið að
vinna eftir ákveðnu launaþaki hvað
varðar sporslur og laun leikmanna
og segir Kristinn að félagið sé nokk-
uð nálægt efri mörkum þess – eða
500 þúsund kr. á mánuði.
„Ég er mjög ánægður með að
þetta skuli vera með þessum hætti
en það eru samt sem áður margir
óvissuþættir sem við vildum til að
mynda fá svör við í haust en fengum
ekki frá Körfuknattleikssamband-
inu. Raymond Robins kom til að
mynda seint til okkar og þá vorum
við langt komnir með „kvótann“ en
hann vildi frekar koma til Íslands og
spila fyrir það sem við gátum boðið
honum í stað þess að sitja heima í
Bandaríkjunum og fá ekkert að
gera.“
Laun í takt við árangur
Kristinn brosir breitt þegar hann
segir frá því að erlendu leikmenn
liðsins fái greitt í takt við árangur
liðsins og tveir sigurleikir í Inter-
sportdeildinni hafi aukið útgjöld liðs-
ins – og lítur Kristinn jákvætt á þau
útgjöld.
„Við settumst niður um daginn og
reiknuðum það út hve marga leiki við
mættum vinna á mánuði til þess að
fara ekki yfir launaþakið. Það kom í
ljós að við megum vinna 7 leiki á
mánuði – annars förum við yfir
mörkin,“ segir Kristinn og getur
ekki leynt gleði sinni yfir því að Þór
sé komið í hóp þeirra bestu og sé að
standa sig á þeim vettvangi.
Í næsta bæ er lið Hamars frá
Hveragerði og hafa Þórsarar hug á
því að skáka grönnum sínum í Int-
ersportdeildinni. Nú þegar er búið
að setja rauðan hring á dagatalið
hvað varðar leikina við Hamar – sá
fyrri verður síðasti leikur fyrir
jólafrí í Hveragerði og sá síðari verð-
ur síðasti deildarleikur ársins – í
Þorlákshöfn.
Hamar fellur í Þorlákshöfn
Hamar lagði Þór í eftirminnileg-
um undanúrslitaleikjum árið 1999 og
náði Hamarsliðið alla leið það árið –
en Þór sat eftir með sárt ennið eftir
að hafa endað í efsta sæti í deildinni
en Hamarsmenn í því fjórða.
„Við fengum um 900 áhorfendur á
leikinn hér heima á þeim tíma – ég
býst við því að það verði enn fleiri í
vor þegar þeir koma á ný og þá spái
ég því að við tryggjum okkur sæti í
úrslitakeppninni og líklega verður
það hlutskipti Hamars að falla í 1.
deild,“ segir Kristinn og hlær. „En
það er bara óskhyggja, ef við lítum á
heildarmyndina þá er betra að hafa
tvö úrvalsdeildarlið á svæðinu – það
er skemmtilegur rígur á milli þess-
ara liða og hann mun ávallt vera til
staðar.“
ÞAÐ fór ekki á milli mála að Leon
Brisport, miðherji Þórs frá Þor-
lákshöfn, var einn í lyftingasal
íþróttahúss staðarins. Tónlistin var
á hæsta styrk og af og til heyrðust
háir hvellir er hann lét lóðin falla á
trégólfið á annarri hæð hússins.
Brisport getur tekið vel á lóðunum
fram á sunnudag því hann var úr-
skurðaður í eins leiks keppnisbann
á þriðjudag eftir að hafa fengið
tvær tæknivillur í
síðari leik Þórs
gegn Haukum í
Hópbílabikar-
keppni KKÍ.
Brisport hristi
höfuðið er hann
var inntur eftir
því hvað hann
hefði sagt við
dómarann í um-
ræddum leik. „Ég
átti fyrri tækni-
villuna alveg skil-
ið, sagði þá hluti sem ég hefði ekki
átt að segja en sú síðari kom mér á
óvart því þá sagði ég við dómarann
að ég ætlaði mér ekki að tala við
hann það sem eftir væri leiks. Það
dugði til þess að mér var vísað af
leikvelli og fæ leikbann,“ segir
Brisport.
Hann brosir þegar hann svarar
hvað honum finnist um Þorláks-
höfn. „Ég er frá Brooklyn í New
York. Það ætti að segja alla sög-
una, hér er lítið um að vera en við
búum allir saman, Billy, Ray og ég.
Félagsskapurinn er því góður.“
Brisport er 26 ára gamall og hef-
ur leikið m.a. í Póllandi og víða í S-
Ameríku en hann segist ekki verða
ríkur á því að spila á Íslandi. „Ég
lít á þetta sem ævintýri, ég fæ
tækifæri til þess að ferðast um
heiminn, kynnast öðru fólki og mér
líður vel hérna. En þetta er alveg
rosalega lítill bær,“ segir Brisport
og skellihlær.
Hann telur að Þórsliðið eigi
ágæta möguleika og telur að félagi
hans, Raymond, muni reynast
flestum liðum erfiður ljár í þúfu.
„Flest lið hafa bakvörð og mið-
herja frá Bandaríkjunum en við
höfum Ray að auki í stöðu fram-
herja. Hann er fljótur, hávaxinn og
góð skytta. Það verður erfitt að
stöðva hann. Svo eru íslensku
strákarnir mun betri en ég átti von
á. Reyndar vissi ég ekki hverju ég
ætti von á því ég vissi ekkert um
landið áður en ég lenti í Keflavík í
haust.“
Spurður um hvort hann hafi
heillast af knattspyrnunni líkt og
félagi hans, Raymond, bendir
Brisport á skóna sína og segir.
„Sjáðu. Þetta eru risastórir fætur
og ekki skapaðir til þess að sparka
í bolta. Ég er alltaf á hausnum ef
ég reyni að sparka í boltann. Ég er
betri í því að nota hendurnar þegar
ég er með boltann.“
Brisport segir að liðið sé enn í
mótun og hann er bjartsýnn á
framhaldið. „Ef við vinnum rétt
með þá leikmenn sem við höfum
getum við gert margt gott í vetur.“
’ Verðekki rík-
ur á því
að spila
körfu-
knatt-
leik á Ís-
landi. ‘
„Skemmtilegur rígur á milli Þórs og Hamars,“ segir Kristinn Guðjón Kristinsson
„Megum vinna sjö
leiki á mánuði“
FORMAÐUR körfuknattleiksdeildar Þórs, Kristinn Guðjón Krist-
insson, var í óða önn að setja upp auglýsingaskilti í íþróttahúsið
ásamt starfsmönnum þess er Morgunblaðið náði tali af honum. Sé
miðað við þann fjölda af fyrirtækjum sem hafa lagt hönd á plóginn í
auglýsingaskiltunum er ekki annað að sjá en að Þór eigi gott bak-
land í Þorlákshöfn – bæði hvaða varðar stuðning áhorfenda og fyr-
irtækja á staðnum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kristinn Guðjón Kristins-
son, formaður körfuknatt-
leiksdeildar Þórs.
frá Þorlákshöfn, ætlar sér stóra hluti með liðið í úrvalsdeildinni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bandaríkjamennirnir þrír í liði Þórs frá Þorlákshöfn hafa látið mikið að sér kveða. Lengst til vinstri er framherjinn Raymond Robins,
þjálfarinn William Dreher er við hlið hans og hinn hávaxni miðherji Leon Brisport situr á bryggjunni.
„Svaka-
lega
lítill
bær“