Morgunblaðið - 24.10.2003, Síða 61
Steinn Ármann sigurreifur, enda fyndnasti maðurinn á svæðinu.
TROÐFULLT var út úr dyrum í
Leikhúskjallaranum á miðvikudag
þegar Steinn Ármann kom, sá og
sigraði á fyrsta úrslitakvöldi
keppninnar um Uppistandarann.
Grínistakeppnina hélt útvarps-
stöðin FM957 í tilefni af opnun
gamanstöðvarinnar Stöðvar 3 og
eftir tvö undanúrslitakvöld stóðu
eftir fimm grínistar sem kepptu til
úrslita. Auk sigurvegara kvöldsins,
Steins Ármanns Magnússonar,
kepptu þeir Sveinn Waage, Haukur
Sig., Böðvar Bergsson og Guð-
mundur Atlason. Dómnefndin, skip-
uð þeim Pétri „Ding Dong“ Sigfús-
syni, Nikka frá Thule, Kára frá
Símanum GSM og Þresti 3000, dag-
skrárstjóra FM957, valdi Stein Ár-
mann fyndnasta uppistandarann.
Sveinn Waage lenti í öðru sæti og
Guðmundur Atlason í því þriðja, en
hann komst síðastur manna í úrslit-
in. Kynnir kvöldsins var Love Guru.
Uppistandarinn 2003 er fundinn
„Síminn til þín, konan þín er að óska þér til hamingju.“ Inga Þórsdóttir
réttir Steini Ármanni símann eftir að úrslitin höfðu verið tilkynnt.
Steinn Ármann kom,
var fyndinn og sigraði
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 61
Í GÆR var ný forvarnamynd frum-
sýnd í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti í tengslum við Forvarnadag FB.
Myndin kallast Fíkniefni, með eða
móti? og var sýnd á tjaldi í hátíðarsal
skólans. Um er að ræða tæplega
fimmtíu mínútna langa mynd þar sem
rætt er við alls tíu manns; fíkla, full-
trúa fíkniefnalögreglunnar, skólafólk
og fólk innan heilbrigðisstéttarinnar,
þar með talda meðferðarfulltrúa.
Þrír ungir menn standa að mynd-
inni, þeir Sverrir Þór Gunnarsson,
Ríkharður Grétar Kolbeinsson og
Steindór Þórarinsson. Sverrir er
spyrill, Ríkharður sá um tökur og
klippingu en Steindór framleiðir. Þá á
Ívar Kolbeinsson frumsamda tónlist í
myndinni. Steindór segir að fleiri
framhaldsskólar hafi óskað eftir að
taka myndina til sýningar.
„Þau mál eru í vinnslu
núna,“ segir hann. „Upp-
runalega var hún bara ætl-
uð fyrir FB en meðan á
vinnslu stóð fór þetta að
spyrjast út. Við ætlum því
að hafa samband við Félag
framhaldsskólanema.
Presturinn í Fellakirkju sá
þetta líka og hefur sýnt því
áhuga að nota myndina í
æskulýðsstarfinu þar.“
Steindór segir að vinnan
við myndina hafi tekið sjö
vikur, ásamt heilnæmum
skammti af blóði, svita og tárum.
„Þetta var gert af hugsjón. Aðal-
málið núna finnst mér að krakkarnir
sem eru að dufla við fíkniefni eru
orðnir svo ungir. Það eru líka svo
margir komnir í þetta, bæði íþrótta-
fólkið og fyrirmyndarnemendurnir.“
Steindór segir að lokum að viðtök-
ur hafi verið mjög góðar en sumum
hafi fundist hún of gróf.
„En þannig er þetta líka. Þetta er
grófur heimur.“
Forvarnamyndin „Fíkniefni, með eða móti?“
Frumkvæði að forvörnum
Ungir aðstandendur forvarnamyndarinnar.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.55, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones fara á kostum í
myndinni.Nýjasta mynd Coen bræðra.
Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
SG DV
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
SG DV
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4.. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. B.i.10
ÁLFABAKKI
Kl. 3.40, 5.50 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10. B.i. 6.
ÁLFABAKKI
kl. 5.45, 8 og 10.15.
Frábær teiknimynd byggð á sígildu þjóðsögu
um Tristan og Ísold.
r r t i i í il j
ri t Í l .
Beint átoppinn
í USA
Ævintýraleg spenna, grín og hasar
Frumsýning
Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones fara á kostum í
myndinni.Nýjasta mynd Coen bræðra.
Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.
ÍSLENSKT
TAL
Miðave
rð
500 k
r.
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.15.
KEFLAVÍK
kl. 5.45 og 8.
ROGER EBERT