Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 16
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
Samsýning | Áhugaverð samsýning fimm-
tán þingeyskra áhugamyndlistarmanna
stendur í Safnahúsinu á Húsavík. Þar sýna
félagar í Myndlist-
arklúbbi Húsavík-
ur 56 myndverk,
ýmist máluð með
olíu-, vatns- eða
pastellitum auk
blýants- og túss-
teikninga auk þess
sem Þórunn Krist-
jánsdóttir er með glerverk á sýningunni.
Þeir sem sýna auk Þórunnar, eru Gunn-
hildur Ingólfsdóttir, Elsa S. Þorvaldsdóttir,
Frímann Sveinsson, Guðrún Steingríms-
dóttir, Húnbogi Valsson, Ólafur Guðmunds-
son, Þorsteinn Einarsson, Björk Halldórs-
dóttir, Úlfhildur Sigurðardóttir, Sigurður
Hákonarson, Sighvatur Karlsson, Berglind
Ólafsdóttir, Snæfríður Njálsdóttir og
Höskuldur Goði Karlsson.
Sýningin er til 2. nóvember og er margt
myndefnið kunnuglegt heimamönnum eins
og nöfn myndverkanna segja til um, t.d.
Aldeyjarfoss, Mývatnssveit, Flateyj-
ardalur, Vor við Skjálfanda og Sólarlag við
Tjörnes.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Höskuldur Goði Karlsson
við verk sitt Tilhugalíf.
Fram og til baka | Bréf sem Selfyssingar
senda innanbæjar í gegnum Íslandspóst
eru send til Reykjavíkur í flokkun áður en
þau eru send austur til viðtakanda á Sel-
fossi á nýjan leik. Málsvari Íslandspósts
segir í Dagskránni á Selfossi að þetta sé
gert vegna hagræðingar í rekstri og aðhaldi
eftir að fyrirtækið fjárfesti í dýrri flokk-
unarvél, sem er á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta bitni þó ekki á þjónustunni, pósturinn
eigi alltaf að komast til viðtakanda daginn
eftir að hann var póstlagður.
Vilja tvo lækna | Sveitarstjórn Aust-
urbyggðar samþykkti á fundi sínum nýverið
að gera þá kröfu á yfirvöld heilbrigðismála
að þau „... sjái til þess að í Austurbyggð sé
ávallt staðsettur læknir. Eðlilegast væri að í
Austurbyggð væru starfandi tveir læknar
þar sem sveitarfélagið rekur dvalar- og
hjúkrunarheimili og því hefur verksvið
læknisins aukist verulega og þörfin á tveim-
ur læknum því brýnni en áður“ segir í tillög-
unni. Læknir er starfandi á Fáskrúðsfirði og
er hann einn dag í viku á Stöðvarfirði, auk
þess að sinna þar útköllum.
Þorsteinn J. Vil-hjálmsson, BA íbókmenntafræði,
frétta- og dagskrárgerð-
armaður, er kennari á
námskeiði í skapandi
hugsun sem haldið verð-
ur miðvikudaginn 5. nóv-
ember nk. frá kl. 14 til
17.
Þorsteinn J, veitir
þátttakendum innsýn í
skapandi hugsun og
hvernig megi nota hana í
viðskiptalífinu. Það er
hæglega hægt að sækja
sér innblástur í við-
skiptum úr listum og
ekki síst lífinu sjálfu.
Það kostar ekkert að láta
sér detta eitthvað í hug.
Þetta þýðir að hægt er
að stækka sjóndeild-
arhringinn verulega með
því einu að gefa sér tíma
til að hugsa og fá hug-
myndir segir í tilkynn-
ingu um námskeiðið en
það verður haldið í húsa-
kynnum háskólans á Sól-
borg, stofu K 106.
Hugsun
Náttfatadagur var íLeikskólanumKrílakoti í Ólafs-
vík föstudaginn 24. októ-
ber sl. Þegar leikskóla-
krakkar bæjarins skriðu
fram úr um morguninn
var nóg að bursta tennurn-
ar og síðan var farið beint í
stígvélin og út í rigning-
una. Engir hnappar, smell-
ur, ermar eða skálmar
töfðu fyrir morgunverkun-
um. Í leikskólanum var
slegið upp balli með til-
heyrandi söng, dansi og
skálum fullum af popp-
korni. Í Krílakoti eru um
80 nemendur á aldrinum
2–6 ára. Nýr leikskóla-
stjóri, Ingigerður Stefáns-
dóttir, tók við í sumar sem
leið, stuttu eftir að ný við-
bygging var tekin í notkun
við skólann. 20 starfsmenn
starfa í Krílakoti og mættu
allir í náttfötum í vinnuna
þennan blauta náttfatadag
í Ólafsvík. Á myndinni eru
Súsana Sól og Þórhalla.
Morgunblaðið/Elín Una
Náttfataball í rigningunni
Þegar Jón IngvarJónsson settist viðlimrusmíðar sótti
hann yrkisefnið í Grettis-
sögu. Lýsingin á rimmu
Grettis og Gláms er með
háskalegustu bardaga-
lýsingum Íslendingasagn-
anna:
Hann Glámur sem oft yfir
ám hékk
og aldrei að mönnum á
tám gekk
varð öldungis bit
og ört skipti lit
er Grettir lá aleinn á
glámbekk.
Grettir og Glámur
Hjálmar Frey-steinsson hefurlíka ort limru um
Gretti, en hún var „geð-
læknisfræðileg“ og Glám-
ur kemur þar ekki við
sögu. Hann tekur fram að
ólmhuga sé íslenskun á
orðinu manískur, – út-
lenskan skiljist betur:
Ungur var Grettir með gort
við glímur og hverskonar
sport,
hann var ólmhuga og ör
hann var útlægur gjör,
það var allt fyrir
Ritalínskort.
Meira um Gretti
Laxamýri | Heimagerðir sperðl-
ar þykja mikið hnossgæti, enda
hefð fyrir þeim víða í sveitum.
Núorðið er ekki algengt að
fólk noti ekta garnir til sperðla-
gerðarinnar en það gerir Guðný
J. Buch á Einarsstöðum í
Reykjahverfi sem vill ekkert
annað en kindagarnir sem hún
hreinsar sjálf. Hún hakkar ekki
hálsæðarnar sem hún notar sem
sperðlaefni heldur brytjar hún
eins og gert var fyrr á árum, salt-
ar þær og sykrar örlítið. Síðan
treður hún í þannig að úr verða
langir sperðlar, sem hún svo
reykir sjálf. Að fimm til sjö dög-
um liðnum verður ilmandi
sperðlalykt í reykhúsinu hjá
henni, en það fer svolítið eftir
veðri hve marga daga tekur að
reykja.
Þegar fréttaritari Morgun-
blaðsins leit inn hjá Guðnýju um
helgina var hún önnum kafin í
haustmatargerð og tróð af kappi
í garnirnar.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Hreinsar garnir og gerir sperðla
Haustverk
Hvammstanga | Kynningarfundur um at-
vinnumál í Húnaþingi vestra var haldinn í
Félagsheimili Hvammstanga hinn 27.
október. Fundurinn var boðaður af sveit-
arstjórn og er sá fyrsti í ferli, sem ráðgert
er að standi í 3–4 mánuði. Leitað var til
Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um
stjórnun og er Ásgeir Jónsson hagfræð-
ingur ráðinn verkefnisstjóri. Kom hann á
fundinn ásamt Baldri Valgeirssyni frá
Anvest og Snorra Birni Sigurðssyni frá
Byggðastofnun, en þessir aðilar eru í stýri-
hópi með sveitarstjórn og sveitarstjóra.
Heimir Ágústsson oddviti sagði frá
væntingum um árangur verkefnisins og
hvatti fundarmenn til dáða.
Ásgeir Jónsson sagði uppbyggingu
verkefnisins skiptast í þrjá meginþætti;
Húnaþing vestra í samanburði við önnur
héruð, innra skipulag héraðsins og loks
mótun framtíðarstefnu í atvinnumálum
héraðsins. Lagt er upp með að skipa verk-
efninu í fjögur svið. Búsetuhópur, sem
hugar m.a. að orsökum búferlaflutninga til
og frá héraðinu og hvað sé til ráða. Land-
nýtingarhópur, sem skilgreinir fjölbreytt-
ari nýtingu hinna miklu víðerna héraðsins í
byggð og óbyggðum, m.a. frístundabyggð.
Þekkingarhópur, sem skoðar menntunar-
mál í víðum skilningi og atvinnuframboð
sem krefst menntunar. Möguleikahópur,
sem skoðar aukningu á því sem fyrir er og
einnig hvers kyns nýsköpun.
Jákvætt framtak
Elín R. Líndal sagði mikilvægt að hér-
aðsbúar skilgreindu sjálfir framtíðarsýn
sína í búsetumálum, atvinnu, menntun og
búsetu. Opna þyrfti augu stjórnvalda og
fyrirtækja fyrir getu og gildi svæðisins.
Margir tóku til máls og voru jákvæðir fyrir
framtaki sveitarstjórnar að hrinda verk-
efni sem þessu í framkvæmd.
Atvinnu- og
búsetumál í
brennidepli
Húnaþing vestra
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirs
Ásgeir Jónsson ræðir verkefnið við fund-
argesti í Félagsheimilinu, Hvammstanga.