Morgunblaðið - 29.10.2003, Page 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu
Glerá 2
Einbýlishús á tveimur hæðum 226 fm. Í húsinu
er rekið gistiheimili. Á efri hæð eru 5 herb.
ásamt setustofu, eldhúsi og baði. Verð 15,0
millj. Nánari uppl. á skrifstofu.
Víðilundur 2
Mjög vel staðsett stór 3ja herb. íbúð á 1. hæð,
101 fm. Parket á stofu, holi og eldhúsi, spraut-
ulökkuð eldhúsinnrétting, mikið skápapláss.
Íbúðin er LAUS. Verð 10,3 millj.
FASTEIGNASALA
AKUREYRI
Franz Jezorski, lögfr. og löggiltur fasteignasali
Vilhelm Jónsson
Sími 461 2010
Gsm 891 8363
hollak@simnet.is
Sjá einnig Fasteignablað
Morgunblaðsins
Fyrirlestur | Þórir Guðmundsson,
upplýsinga-
fulltrúi Rauða
krossins, flytur
fyrirlestur á Fé-
lagsvísindatorgi í
dag, miðvikudag.
Hann nefnist
Hjálparstarf á
hættutímum og
verður í Þing-
vallastræti 23,
stofu 14, og hefst
kl. 16.30.
Starf Rauða krossins á vígvell-
inum byggist á því að stríðandi fylk-
ingar virði mannúðarlög en á því
verður oft misbrestur. Í erindi sínu á
Félagsvísindatorgi fjallar Þórir m.a.
um hvernig óöryggi, fjárskortur og
virðingarleysi fyrir mannúðarlögum
ógnar hjálparstarfi.
Þórir
Guðmundsson
Efnið loforðið | Sjálfstæðisflokk-
urinn í Norðausturkjördæmi skorar
á ríkisstjórnina að standa við gefin
loforð um gerð jarðganga milli
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og
tryggja að byrjað verði á fram-
kvæmdum eigi síðar en árið 2004.
Ályktun þessa efnis var samþykkt á
aðalfundi Kjördæmisráðs Sjálfstæð-
isflokksins í Norðausturkjördæmi
sem haldinn var á Akureyri um
helgina. „Þessi samþykkt end-
urspeglar óánægju manna og
gremju með málalyktir í þessu jarð-
gangamáli,“ sagði Gunnar Ragnars
formaður kjördæmisráðs. „Það er
enn þungt í mönnum vegna þessa.“
NÁTTÚRUVERNDARNEFND
samþykkti á fundi sínum nýlega að
beina því til framkvæmdaráðs að hið
fyrsta verði hafinn undirbúningur
þess að sorphirðugjald heimila taki
mið af magni þess úrgangs sem frá
þeim kemur. Ingimar Eydal formað-
ur náttúruverndarráðs sagði að hér á
landi væri um að ræða nefskatt á
hvert heimili og þá skipti fjölskyldu-
stærð eða það magn sem hver íbúð
lætur frá sér af sorpi ekki neinu máli.
Hann sagði að víða á Norðurlöndum
væri búið að þróa leiðir til þess að
fólk borgaði sorphirðugjald í sam-
ræmi við það magn sem það lætur frá
sér.
„Okkar hugmyndir ganga út á það
að hægt verði að magntengja gjaldið
og þá líklega miðað við rúmmál eða
fjölda daga sem þarf að losa sorpið.
Tilgangurinn er tvíþættur, annars
vegar að fólk fái betri vitund um að
það skipti máli hversu miklu sorpi
það hendir frá sér, sem þá aftur get-
ur hvatt fólk til að flokka sorpið bet-
ur og fara þá sjálft með það á gáma-
stöð. Og hins vegar þá að umbuna
þeim sem ekki láta frá sér mikið
sorp. Aðalkostnaðurinn við sorpið er
hirðingin sjálf, auk þess sem það þarf
að finna pláss fyrir sorpið og urða
það, sem einnig kostar peninga. Eins
og staðan er í dag er ekkert land til
fyrir sorpurðun í Eyjafirði. Við erum
að renna út á tíma uppi á Glerárdal
en það vill enginn taka við sorpinu.
Það er því fyrirsjáanlegt að kostn-
aðurinn við sorpið mun aukast.“
Ingimar sagði að víða erlendis
stæði fólki til boða að vera með minni
sorpílát og borga þá lægra gjald.
„Við erum að borga algjört lág-
marksgjald fyrir sorphirðu og erum
að borga með þessu með öðrum
sköttum. Á Norðurlöndunum eru
dæmi um að fólk hafi verið að borga
allt að 100.000 krónur á ári í sorp-
hirðugjald, miðað við dýrasta kost-
inn. En þar getur gjaldið verið á
bilinu 10.000-100.000 krónur á ári.
Við getum hæglega lent í þessari að-
stöðu hér. Ef við komust að þeirri
niðurstöðu að hér í firðinum finnist
ekki staður til að urða sorp og við
förum í samlag með sveitarfélögum
af stærra svæði á Norðurlandi og
þurfum að fara flytja sorpið um
lengri veg, verður þetta allt dýrara.
Maður getur ekki endalaust grafið
ruslið í garðinum hjá sér, það kemur
einhvern tíma að því að maður verð-
ur uppiskroppa með pláss og þá þarf
að leita annarra leiða.“
Ingimar sagði að í dag væru gerð-
ar mun strangari kröfur um með-
höndlun sorps en áður fyrr og hefði
umhverfi sorphauganna lagast mik-
ið. „Menn eru að reyna gera eins vel
og þeir geta í dag.“
Síðastliðið vor var hafin gjaldtaka
fyrir móttöku úrgangs frá fyrirtækj-
um á urðunarstað á Glerárdal en
markmiðið með gjaldtökunni er m.a.
að minnka það magn sem kemur til
urðunar. Áætlaðar tekjur af gjald-
tökunni á þessu ári eru 23 milljónir
króna. Heimilin á Akureyri borguðu
um 28 milljónir króna í sorphirðu-
gjald á síðasta ári. Ingimar sagði að
ekki hefði borið á mikilli óánægju
með þessa gjaldtöku af fyrirtækjun-
um en þau greiða eftir vigt. „Þetta
hefur í raun gengið miklum mun bet-
ur en nokkur þorði að vona.“
Morgunblaðið/Kristján
Oft fjörugt
Jóhann Emilsson, starfsmaður
gámasvæðisins, t.h., tekur á móti
sorpi frá Ara Jónssyni. Á gáma-
svæðinu er sorpið flokkað og sagði
Jóhann að oft væri þar mjög líflegt,
sérstaklega seinni part dags og um
helgar. Gámasvæðið er opið kl.
12.30–18.30 virka daga og kl. 10–16
um helgar.
Gjald taki mið
af magni sorps
Sorphirðugjald
23 milljónir í ár
Mjög sýktur þorskur í trollið hjá Kleifaberginu þar
sem skipið var að veiðum utan á Deildargrunni
Fiskurinn lifandi en sýk-
ingin kraumaði í holdinu
sýktir þorskar komu þá upp í einu
holi og voru þeir ekki fallegir á að
líta, alsettir opnum sárum þar sem
sýkingin hreinlega kraumaði í hold-
inu og var með ólíkindum að þeir
hefðu lifað með þessi sár,“ segir
Björn Valur Gíslason, stýrimaður á
Kleifabergi, í grein á heimasíðu
sinni, www.bvg.is.
Björn Valur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði sent
myndir af hinum sýkta fiski til Haf-
rannsóknastofnunar og þar verið
vísað á rannsóknastofuna á Keldum.
„Þetta þótti býsna athyglisvert, en
ekki hægt að segja neitt um hvað
SKIPVERJAR á Kleifabergi frá
Ólafsfirði fengu á milli 20 og 30 mjög
sýkta þorska í trollið nú á dögunum
þar sem þeir voru að veiðum utan á
Deildargrunni.
„Stundum kemur það fyrir að einn
og einn sýktur fiskur slæðist með í
trollið. Þetta eru þá fiskar með ein-
hvers konar kýli eða sýkingu sem
annaðhvort sést utan á þeim eða
kemur í ljós þegar fiskurinn er flak-
aður. Það kemur þó afar sjaldan fyr-
ir að margir slíkir komi í einu en það
gerðist þó á dögunum hjá Kleifa-
berginu þegar það var að veiðum ut-
an á Deildargrunni. 20–30 mjög
þarna er á ferðinni fyrr en búið er að
rannsaka fiskinn,“ sagði Björn Val-
ur. Skipverjar geymdu nokkra fiska
og verða þeir sendir til rannsóknar
syðra nú á næstu dögum. „Það er
mjög sérstakt að sjá þetta, sá fiskur
sem verst var farinn var bókstaflega
étinn inn að dálki, en það furðulega
var að þeir voru á lífi, þetta var bara
spriklandi fiskur,“ sagði Björn Val-
ur.
Hann sagði að síðar hefðu fundist
nokkrir ufsar og hlýrar sem einnig
voru með ljót sár á sér þannig að
þessi sýking einskorðaðist greini-
lega ekki við þorskana.