Morgunblaðið - 29.10.2003, Page 21
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 21
Borgartúni 28, 562 2901
www.ef.is
Dönsku Varde viðarofnarnir hafa
hlotið sérstaka viðurkenningu í
Danmörku, Svíþjóð og Þýska-
landi fyrir fullkomna brennslu og
lágmarksreykmengun. Smíðaðir
úr þykku stáli, tvöfalt byrði og
steypt hurð með barnaöryggi.
Gæðavara á góðu verði,
34 gerðir fáanlegar.
KAMÍNUR -
VIÐAROFNAR
Borgartúni 28, 562 2901
www.ef.is
Dönsku Varde viðarofnarnir hafa
hlotið sérstaka viðurkenningu í
Danmörku, Svíþjóð og Þýska-
landi fyrir fullkomna brennslu og
lágmarksreykmengun. Smíðaðir
úr þykku stáli, tvöfalt byrði og
steypt hurð með barnaöryggi.
Gæðavara á góðu verði,
34 gerðir fáanlegar.
KAMÍNUR -
VIÐAROFNAR
Borgartúni 28,
520 7901 & 520 7900
www.ef.is
LEIKSKÓLINN Iðavöllurá Akureyri hreppti nýver-ið þriðja sætið í keppnisem ber heitið „eLearn-
ing Awards“ og er samvinnuverk-
efni evrópska skólanetsins. Að
keppninni standa 26 mennta-
málaráðuneyti í Evrópu og mark-
miðið með keppninni er að verð-
launa upplýsinga- og samskipta-
verkefni frá leikskólum, grunn-
skólum og framhaldsskólum. Þegar
verkefni eru send inn í keppnina
þarf að fylgja með lýsing á verkefn-
inu á ensku, til dæmis hver sé saga
verkefnisins, markmið og fyrir
hvaða aldur það er, en verkefnið
sjálft mátti vera á íslensku.
Í keppnina í ár bárust um 600
verkefni af öllum skólastigum. Af
þeim voru hundrað valin til að halda
áfram. Forstöðukona Iðavallar,
Kristlaug Svavarsdóttir, segir að-
standendur leikskólans að vonum
hafa verið mjög ánægða þegar þeir
fréttu að Iðavöllur væri í þeim
hundrað verkefna hópi.
„Okkur fannst það bara vel af sér
vikið,“ segir hún, „en síðan héldu
þau verkefni áfram í dómnefndir
sem völdu tíu til úr-
slita. Forvalið fór
fram í þremur þrep-
um og að því komu
fimmtíu aðilar frá
tuttugu löndum,
þannig að það var
nokkuð mikil sía sem við þurftum
að fara í gegnum. Á lokastiginu,
þegar verið var að raða tíu bestu
verkefnunum niður, sátu fjórtán
dómarar frá tólf löndum í dóm-
nefndinni. Formaður hennar er pró-
fessor frá Kanada.“
Tölvan í leikrýmum barnanna
Um hvað snerist ykkar verkefni?
„Við höfum verið að vinna með
tölvur á leikskólanum frá 1998, þeg-
ar við eignuðumst eina tölvu fyrir
börnin til að leika sér að. Hún var
staðsett í miðrými í skólanum. Síð-
an bættust fleiri tölvur við. Við
fluttum í nýtt húsnæði í mars 2001
og notuðum þá tækifærið til þess að
bæta tölvukostinn. Í ljósi reynsl-
unnar sem á var komin, héldum við
áfram að hafa tölvurnar í leik-
rýmum barnanna.
Okkur til stuðnings notum við
ákveðna hugmyndafræði dansks
prófessors, Castens Jensen, sem
hefur gert rannsóknir á notkun
barna á tölvum og við erum mjög
hrifin af hans hugmyndum, sem
fjalla um það að ekki eigi að loka
tölvuna af í sérstöku rými. Tölvan
er notuð í tvíþættum tilgangi; hún
er notuð sem leikfang og sem
vinnutæki.
Við erum komin með þó nokkra
reynslu í að vinna með tölvuna. Í
mars á þessu ári var haldin hér á
Akureyri upplýsingaráðstefna þar
sem við lýstum starfi okkar. Hjá
okkur er deildarstjóri sem heitir
Anna Elísa Hreiðarsdóttir. Hún
komst á snoðir um keppnina þegar
við vorum að taka saman heimasíð-
una okkar og fékk þá hugmynd að
við gengjum alla leið og settum
verkefni barnanna inn á heimasíð-
una og sendum vefinn inn til þátt-
töku. Þetta var fyrst og fremst
hugsað til að sýna hann. Anna Elísa
settist niður, ásamt öðrum starfs-
manni, Arnari Yngvarssyni og þau
settu upp þennan
vef. Arnar hannaði
sjálfan vefinn og
Anna Elísa bar
ábyrgð á og sá um
textann sem fór
þarna inn. Þá var
komin fram saga tölvunotkunar á
Iðavelli, hugmyndafræðin sem við
styðjumst við og svo verkefni
barnanna. Þetta er hugsað sem
verkefnabanki. Síðan er hugsuð til
þess að halda utan um verkefni
þeirra og á að vera í stöðugri þró-
un.“
Keppnin tvíþætt
„Við kölluðum síðuna „Það er
leikur að læra“, sem er einkunn-
arorð Iðavallar og notum það, með-
al annars, til að leggja áherslu á að
ung börn læri best í gegnum leik.
Hún var síðan sett á vísindavefinn
okkar og heitir á ensku „Learning
Science through play“.
Við sendum vefinn inn í keppn-
ina, sem er tvíþætt, í maí. Annars
vegar er um að ræða sýnisvef, þar
sem skólar geta sent inn verkefni
sín til þess að sýna þau, hins vegar
er þátttaka í „eLarning awards“-
keppninni. Að því búnu snerum við
okkur að öðrum viðfangsefnum og
fengum síðan upplýsingar um að
búið væri að sía verkefnin og við
værum í hópi þeirra sem hefðu ver-
ið valin.
Í byrjun september fengum við
þau tíðindi að við værum í einu af
tíu efstu sætunum. Með fylgdi að
við værum boðin velkomin til Genf-
ar hinn 9. október til að vera við-
stödd hátíðarkvöldverð þar sem í
ljós kæmi í hvaða sæti við höfn-
uðum. Akureyrarbær var svo vin-
samlegur að gera okkur þremur
kleift að vera við athöfnina, auk
þess sem við fengum stuðning frá
menntamálaráðuneytinu.
Ekki með formlega
tölvukennslu
Gleði okkar var mikil þegar við
hrepptum þriðju verðlaun. Í fyrsta
sæti var verkefni frá Írlandi, sem er
unnið af grunnskólabörnum. Í öðru
sæti var ítalskt verkefni sem fjallar
um vatnið og var unnið af börnum á
aldrinum 9–11 ára.
Daginn eftir verðlaunaafhend-
inguna hittust allir tíu aðilarnir og
kynntu verkefni sín hver fyrir öðr-
um og það var mjög gaman að sjá
hvað aðrir voru að gera og hvaða
hugmyndir lægju að baki þeim. Það
vakti mjög mikla athygli að við
skyldum vera með tölvurnar sem
leikföng hjá svo ungum börnum.“
Hvernig fer tölvukennslan fram
hjá ykkur?
„Við erum ekki með neina form-
lega tölvukennslu, heldur gildir það
sama um tölvurnar og kubbana.
Þær eru leikföng. Það er áhugi
barnanna sem ræður.“
TÖLVUR | Leikskólinn Iðavöllur vann þriðju verðlaun í keppninni „eLearning Awards“
Það er leikur að læra
Tölvuleikur: Sigrún Birna og Hrannar Ingi leika sér. Útileikur: Börnin una hag sínum vel jafnt úti sem inni.
Sama gildir um
tölvurnar og kubb-
ana. Þær eru leik-
föng. Það er áhugi
barnanna sem ræður.
Hönnuðirnir: Hjónin Arnar Yngvason og Anna Elísa Hreiðarsdóttir vef-
hönnuðir ásamt Indíru, Alexi Daða og Heimi.
Morgunblaðið/Kristján