Morgunblaðið - 29.10.2003, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 29.10.2003, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HUGMYNDIR Þórunnar Valdi- marsdóttur sagnfræðings um kirkjuþing og störf þess eru vægast sagt undarlegar. Hún virðist líta á það sem eins konar presta- stefnu aftan úr miðöldum, en staðreyndin er sú að prestar eru þar í minni- hluta. Árið 1997 samþykkti Al- þingi Íslendinga nýjan ramma um starfsemi þjóð- kirkjunnar sem jafnan gengur und- ir heitinu „þjóðkirkjulögin“. Þessi lög komu í stað samansafns af ým- iss konar lögum og reglum sem giltu áður um margvíslega þætti í starfsemi kirkjunnar. Þjóð- kirkjulögin voru þó ekki bara ‘laga- hreinsun’ af hálfu löggjafans heldur í raun opinber yfirlýsing um sjálf- ræði og sjálfstæði kirkjunnar. Þannig má segja að fyrir gildistöku laganna hafi Alþingi ráðið yfir söfn- uðum kirkjunnar, en að með þjóð- kirkjulögunum hafi kirkjan loks orðið myndug og þótti þá ýmsum kominn tími til! Þessum myndug- leika fylgdi sú breyting að ábyrgð á innri málum kirkjunnar fluttist frá ríkinu og til kirkjunnar sjálfrar. Frumkvæðið að þessu stóra skrefi í átt til lýðræðis innan kirkjunnar kom innan frá – frá kirkjufólkinu sjálfu sem trúði því að með sjálf- stæðinu myndi starf kirkjunnar efl- ast til góðs fyrir þá sem kjósa að nýta sér þjónustu hennar. Stjórnskipulag þjóðkirkjunnar Til að sinna þessu sjálfstæði sínu þurfti kirkjufólk að koma sér sam- an um stjórnskipulag sem væri heppilegast til að ná fram því sem að var stefnt, nefnilega sem bestri þjónustu við fólkið. Ákveðið var að taka mið af þeirri stjórnskipan sem við á Vesturlöndum erum hvað stoltust af í okkar menningu þ.e. lýðræðislegri stjórn. Öll stjórnun kirkjunnar skyldi vera í höndum fólksins sem henni tilheyrði og þeir sem mynduðu yfirstjórnina skyldu kosnir af fólkinu sjálfu. Að lýðræð- islegri fyrirmynd var ákveðið að kirkjuþing yrði æðsta vald í mál- efnum kirkjunnar og að fulltrúar á kirkjuþingi væru kosnir af fulltrú- um frá öllu landinu sem myndar kjördæmi, líkt og viðhaft er í Al- þingiskosningum. Þá þurfti að taka tillit til þess að kirkjan er saman sett af bæði leikum og lærðum og var ákveðið að vægi leikmanna yrði meira en hinna lærðu, því þjóð- kirkjufólk vildi ekki sjá kirkjuþing endurspegla eingöngu „presta- kirkju“ vegna þess að þjóðkirkjan er saman sett af almenningi úr öll- um áttum sem kýs að leggja kirkj- unni lið, ýmist gegn þóknun eða endurgjaldslaust. Niðurstaðan um skipan æðstu stjórnar þjóðkirkjunnar varð sem sagt sú að lýðræðislega er kosið til kirkjuþings á fjögurra ára fresti og eru leikmenn í meirihluta eða 12 en prestar 9. Forseti og varaforsetar þingsins eru kosnir úr röðum leik- manna. Aðrir hafa ekki atkvæð- isrétt á þinginu en seturétt, til- lögurétt og málfrelsi hafa biskup, vígslubiskupar, fulltrúi kirkju- málaráðherra og fulltrúi guð- fræðideildar. Fordómar sagnfræðings Er þetta það kirkjuþing sem frú Þórunn Valdimarsdóttir sagnfræð- ingur talar um í grein sinni í Morg- unblaðinu hinn 24. október síðast- liðinn? Það gustar um hvert orð í skrifum Þórunnar og hún fer mik- inn í fordæmingu sinni á kirkju- þingi. For-dómur hlýtur það a.m.k. að teljast þegar hún kastar því fram að kirkjuþing sé „þéttsetið af- komendum áhangenda þessarar bókstafstrúarhreyfingar, prestum, sóknarnefndarfólki og guð- fræðikennurum sem spegla miklu íhaldssamari trúartilfinningu en ís- lenskur almenningur aðhy Kirkjuþing er stolt af því a virðist Þórunn telja okkur urspegla almenning“ en við að fá það ekki framan í okk „M[m]eirihluti Kirkjuþing spegli[ar] ekki trúartilfinn meirihluta þjóðkirkjufólks veit frú Þórunn um „trúart ingar“ okkar sem höfum ko leggja fram kraftana í þágu unnar? Hvernig dettur virt fræðimanni í hug að fleipra finningar fólks og leggja m í þá trú sem við, kirkjuþing kunnum að upplifa innan v kirkjunnar okkar? Hvenær „Kirkjuþing […] fordæmt alþýðan notar til að sefa til líf sitt sem ekki er hrein-ki legt …“? Og hvernig má þa að sagnfræðingurinn telji „ þing eins og það er í dag í e of danskt, bókstafstrúar og samt til að sinna tilfinninga arinnar …“ og hvaða gama íhaldssemi birtist í því að k þing eigi „að fara aftur und veldi alþingis …“? Það má lega gera athugasemdir við þeirra spurninga sem nota verið að undanförnu í skoð anakönnunum um afstöðu sambands ríkis og kirkju, e sýna þær svo ekki verður u og það er að fólk vill ekki a isvaldið, Alþingi og ríkisstj stjórni kirkjunni og skilgre semi hennar. Alvarlegar ásakani tengslin við raunverul Það er alvarlegt mál þeg unn kastar því framan í okk höfum verið kosin til ábyrg arstarfa á kirkjuþingi, að v „ … óbeina ábyrgð á því [… hverju ári fyrirfari sér einh samkynhneigðir drengir.“ af þessu tagi ætti eflaust ek svara, þau dæma sig vissul en það er ótrúlega ósmekk Morgunblaðinu að birta slí óhróður. Skrif Þórunnar voru birt blaðinu á lokadegi kirkjuþi í þann mund sem verið var Skáldlegar hugmynd um kirkjuþing Eftir Huldu Guðmundsdóttur Svar til Þórunnar Valdimarsdóttur Í VIÐTALI við Hannes Pétursson, sviðsstjóra geðsviðs LSH, sem birt- ist í Mbl. 1. október sl. benti hann á vanda 90 geð- fatlaðra ein- staklinga á spít- alanum sem eru á biðlista eftir heimili. Í viðtal- inu var dregið fram enn eitt dæmið um þjón- ustu við sjúk- linga í íslensku heilbrigðiskerfi sem er veitt á of háu stigi, með þeim afleiðingum að þjónustan er bæði dýrari en nauð- synlegt er og ekki í samræmi við þarfir sjúklinganna. Um fjórðungur sjúklinga LSH á biðlista eftir heimili Á Landspítala – háskólasjúkra- húsi (LSH) eru um 940 sjúkrarúm. Skv. nýlegum stjórnunarupplýs- ingum spítalans bíða nú um 150 aldraðir einstaklingar eftir að út- skrifast af sjúkrahúsinu í viðeig- andi úrræði utan spítala, en grein- ingu og meðferð þeirra á sjúkrahúsinu er lokið. Af þeim eru 30 geðfatlaðir aldraðir ein- staklingar sem eru inniliggjandi á geðsviði LSH. Til viðbótar eru 60 yngri geðfatlaðir á geðdeildum LSH, sem gætu verið utan sjúkra- húsa ef næg úrræði væru fyrir hendi. Alls eru þetta um 210 manns eða tæplega fjórðungur inniliggj- andi sjúklinga, en áætlaður kostn- aður við rekstur spítalans er 26,3 milljarðar króna skv. frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2004. Svipt möguleikum á meiri lífsgæðum Vegna skorts á öðrum úrræðum að sjúkrahúsvist lokinni eru þessir einstaklingar sviptir möguleikum á að njóta meiri lífsgæða við að- stæður sem henta þeim betur og eru þar að auki ódýrari fyrir sam- félagið s.s. búseta á hjúkr- unarheimilum, vistheimilum, vernduðum heimilum og sam- býlum. Á sama tíma eru margir á biðlista eftir að komast í meðferð á sjúkrahúsinu. Það er samdóma álit sérfræðinga að félagslegur stuðningur við geð- fatlaða til sjálfstæðrar búsetu eyk- ur sjálfstæði þeirra og vellíðan og dregur úr tíðni innlagna á geðdeild- ir. Þannig er það bæði hagkvæm- ara þjónustuform og heppilegra frá meðferðarlegu sjónarmiði en sjúkrahúsvist, að því gefnu að sjúk- dómurinn sé í því jafnvægi að við- komandi geti verið utan sjúkra- húsa. Ólíkur kostnaður Ég hef að undanförnu skoðað kostnað á legurými á geðsviði LSH og borið saman við kostnað við þjónustu við geðfatlaða á s býlum. Skv. stjórnunarupp ingum LSH frá september kostar legurými á geðdeild að lágmarki 29 þúsund kró dag eða 10,6 milljónir krón Kostnaður við þá 90 geðfat staklinga sem nú eru innili á geðdeildum LSH og eru eftir heimili er því a.m.k. 9 ónir króna á ári. Til saman er kostnaður ríkisins um ei króna á ári fyrir hvern geð einstakling á sambýli með hringsþjónustu og um 4,5 m króna á ári á hjúkrunarhei Í fyrrgreindu viðtali kom af þeim 90 geðfötluðu ein- staklingum á LSH sem eru lista eftir heimili eru 30 ald bið eftir að komast á hjúkr unarheimili. 25 einstakling sérhæfð búsetuúrræði með stuðningi, sem ekki er fyrir dag. 35 einstaklingar gætu sambýlum eða á vernduðum ilum. Hægt að spara yf 700 milljónir Með grófu mati og gefnu sendum að kostnaður vegn sérhæfðu búsetuúrræða se eru fyrir hendi í dag sé 2–3 meiri en á sambýlum væri veita þessum skjólstæðing þjónustu sem bæði er hepp hagkvæmari og veitir þeim lífsgæði utan spítala fyrir u 245 milljónir króna á ári. S aður fyrir heilbrigðiskerfið um 710–735 milljónir krón eingöngu horft til hinna 90 uðu einstaklinga á LSH, en sama hætti má skoða þann Allir tapa Eftir Ástu Möller ÓHJÁKVÆMILEG FÆKKUN Varnarliðið á Keflavíkurflugvellihefur ákveðið að segja 90 íslenzk-um starfsmönnum upp störfum. Það er u.þ.b. tíundi hluti þeirra Íslend- inga, sem starfa í varnarstöðinni. Af þess- um 90 eru um 70 búsettir á Suðurnesjum og uppsagnirnar eru Suðurnesjamönnum því talsvert áfall, enda hefur atvinnuleysi verið nokkurt á Suðurnesjum að undan- förnu. Það er skiljanlegt að mörgum sé brugðið við þessar fregnir. Um það er deilt, hvort varnarliðið hafi farið að lögum um hópuppsagnir í þessu máli og að sjálfsögðu hljóta menn að gera þá kröfu til þess eins og annarra vinnu- veitenda að það fari að lögum. En þótt í ljós komi, að vantaði hafi upp á forms- atriðin við uppsagnirnar, breytir það varla nokkru nema í mesta lagi að gild- istöku þeirra seinki eitthvað. Það verður að horfa til annarra en varnarliðsins um ný störf handa þeim, sem nú missa vinn- una. Við fækkun í starfsliði varnarliðsins sem slíkri er aftur á móti ekkert að segja og Íslendingar geta ekkert haft út á hana að setja. Hún er þáttur í því að Banda- ríkjamenn leitast nú við að lækka kostn- að, hagræða og fækka starfsfólki í her- stöðvum sínum um allan heim, jafnt heima fyrir sem í fjarlægum löndum. Af hálfu íslenzkra stjórnvalda hefur á undanförnum árum verið leitazt við að auðvelda Bandaríkjunum að lækka kostn- að við rekstur varnarstöðvarinnar, m.a. með útboðum á framkvæmdum og þjón- ustusamningum. Bandarískum starfs- mönnum í stöðinni hefur fækkað talsvert og ekki er óeðlilegt að það leiði af sér fækkun í innlendu starfsliði. Raunar er það ein forsenda þess, að Bandaríkin sjái sér áfram fært að hafa hér þann varnar- búnað, sem nauðsynlegur er vegna varna Íslands, að rekstur varnarstöðvarinnar sé eins hagkvæmur og framast má verða. Það eru hinir stóru, gagnkvæmu hags- munir Íslands og Bandaríkjanna. Það virðist stundum nauðsynlegt að rifja upp að bandarískt varnarlið kom ekki hingað til lands til að halda uppi at- vinnu á Suðurnesjum eða annars staðar á landinu. Það hefur aldrei verið markmiðið að varnarliðið væri hér til að hjálpa ís- lenzku efnahagslífi. Eini tilgangur þess hér á landi er að verja landið gegn utan- aðkomandi ógn og stuðla að sameiginleg- um vörnum og öryggi vestrænna ríkja. Íslendingar geta ekki með neinum rökum amazt við því að það sé gert með sem hag- kvæmustum hætti. ÖFLUGT NORÐURLANDASAMSTARF Hrakspár um að draga myndi úr sam-starfi Norðurlandanna og það missa gildi sitt vegna aðildar Svía og Finna að Evrópusambandinu hafa reynst rangar. Fyrir áttu Danir aðild að sambandinu og óttuðust margir að þegar þrjú Norðurlandanna væru komin inn í sambandið myndu þau kjósa að beina sjónum sínum að meginlandi Evrópu í stað Norðurlandanna. Vissulega hefur Norðurlandasam- starfið tekið breytingum. Þær breyting- ar hafa hins vegar að mörgu leyti verið til góðs. Lengi vel byggðist samstarfið fyrst og fremst á menningarlegum tengslum auk þess að standa vörð um ýmiskonar sameiginleg réttindi Norður- landabúa, t.d. varðandi búseturétt Norð- urlandabúa annars staðar á Norðurlönd- um og gagnkvæman aðgang að skólum, félags- og heilbrigðiskerfi. Samstarfið sneiddi hins vegar hjá pólitískum spurningum enda höfðu Norðurlöndin kosið að fara mjög ólíkar leiðir, t.d. í öryggismálum. Þróun síðustu ára hefur verið sú að samstarf þessara vinaþjóða er orðið póli- tískara en áður var og að mörgu leyti hagnýtara. Það er ekki lengur feimnis- mál að ræða pólitísk málefni og hefur það leitt til þess að ríkin geta nú átt sam- starf á fleiri sviðum en áður var og rætt ýmis sameiginleg hagsmunamál á þeim vettvangi sem Norðurlandaráð er. Samstarfið er nú heldur ekki lengur bundið við Norðurlöndin sem þröngt skilgreinda landfræðilega og pólitíska einingu heldur hefur verið nýtt til að efla samstarf við nærsvæði á borð við Eystrasalt og Norður-Atlantshafið, jafnt til að gæta sameiginlegra hags- muna t.d. varðandi umhverfismál sem og stuðla að uppbyggingu nýfrjálsu ríkjanna við Eystrasalt. Þessar breyttu áherslur hafa komið greinilega í ljós á því þingi Norðurlanda- ráðs sem nú stendur yfir í Ósló. Þar hafa ráðherrar og þingmenn Norðurlandanna rætt fjölmörg málefni er tengjast jafnt Norðurlöndunum sem tengslum þeirra við Evrópu. Meðal annars fóru í gær fram líflegar umræður um það hvernig ríkisstjórnir á Norðurlöndum ættu að bregðast við síauknum kröfum um lækk- un á áfengisverði vegna þrýstings frá Evrópusambandinu, jafnt beinum sem óbeinum í gegnum tollfrjálsan innflutn- ing ferðamanna. Þá má nefna að ákveðið hefur verið að veita Eystrasaltsríkjun- um aðild að Norræna fjárfestingabank- anum. Samstarfið við Eystrasaltsríkin er einhver mikilvægasti þáttur Norður- landasamstarfsins nú um stundir og þar eru mikil tækifæri, jafnt pólitísk sem efnahagsleg. Per Unckel, framkvæmdastjóri Nor- rænu ráðherranefndarinnar, segir í grein í Morgunblaðinu á mánudag að norrænt samstarf hafi reynst árangurs- ríkast þegar Norðurlöndin hafa valið að láta samstarfið taka mið af þróuninni í Evrópu í víðara samhengi. Unckel segir einnig í grein sinni: „Norðurlönd búa að svo líkri menningu, sögu og samfélagssýn að sameiginleg af- staða í evrópsku samhengi myndast oft af sjálfu sér. Það er ástæða til að styrkja leiðir til að mynda sameiginlega afstöðu Norðurlandanna, svo að tillit verði tekið til mikilvægra sameiginlegra hagsmuna norðanverðrar Evrópu í samevrópskri ákvarðanatöku. Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin saman mynda vænan hluta ESB og ráða yfir umtalsverðu at- kvæðavægi innan þess. Því ber að beita þegar hagsmunirnir eru líkir. Þetta þýðir ekki að löndin í Norður- Evrópu geti ekki eða skuli eiga samstarf við lönd í öðrum hlutum álfunnar. Það er bæði eðlilegt og heillavænlegt. Án þess að útiloka annars konar samstarf ætti hið norræna og norræn-baltneska sam- starf að verða eins konar „heimabæki- stöð“ landa sem eiga mikið sameiginlegt. Ekki nauðsynlega meira, en heldur ekki minna.“ Mikilvægt framlag Íslendinga í hinu norræna samstarfi er einmitt að tryggja að samstarfið beinist einnig að öðrum þáttum og svæðum í Norður-Evrópu. Til þess gefst tækifæri á næsta ári er Ís- lendingar taka við formennsku í ráðinu. Í ræðu sem Davíð Oddsson forsætisráð- herra flutti í Ósló á mánudag kom fram að í formennskutíð Íslendinga verður lögð áhersla á öflugra samstarf við ríki við Norður-Atlantshaf. „Nauðsynlegt er að vaka yfir vistkerfi hafsins og það verður eingöngu gert í nánu samstarfi þjóða. Við leggjum því ríka áherslu á að efla norrænt samstarf við grannsvæði við Norður-Atlantshaf um verndun hafs- ins, sjálfbæra nýtingu og auðlinda- stjórnun,“ sagði forsætisráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.