Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 38

Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 38
DAGBÓK 38 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Opið miðvikud. kl. 14–17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa og postulín, kl. 13 postulín. Hár- snyrting, fótaaðgerð. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og handav., kl. 10.30–11.30 heilsu- gæsla, kl. 13–16.30 smíðar og handav., kl. 13 spil. Kl. 13.30 keila í Keiluhöllinni í Mjódd. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 bað, kl. 9–12 gler- list, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–10.30 bankinn, kl. 13–16.30 bridge/vist, kl. 13–16 glerlist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað og hárgreiðsla, kl. 10 leikfimi, kl. 14.30 bank- inn, kl. 14.40 ferð í Bónus, kl. 9–16.30 pútt- völlurinn. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 13.30 bankinn, kl. 11–11.30 leikfimi. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9 postu- lín, kl. 13 trémálun, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 9– 16.30 fótaaðgerð. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30 hjúkrunarfræðingur, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handa- vinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kl. 9.30, 10.20 og 11.15 leikfimi. Kl. 13 handa- vinnuhornið, kl. 13.30 trésmíði, nýtt og notað. Bridsnámskeið er kl. 13 í Garðabergi. Félag eldri borgara Kópavogi. Skrifstofan er opin í dag frá kl. 10– 11.30, viðtalstími í Gjá- bakka kl. 15–16 Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Kl. 9 dagblöðin, rabb og kaffi á könnunni. Tréútskurður kl. 9, myndmennt kl. 10 og 16. Línudans kl. 11. Glerlist kl. 13, pílukast og billjard kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Síðdegisdans kl. 14.30. Sighvatur Sveinsson stjórnar og gestur er Þröstur Sig- tryggsson. Söngfélag FEB: kóræfing kl. 17. Línudans fellur niður. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Sími 575 7720. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. alm. handav. Kl. 10.30 gamlir íslenskir leikir og dansar, frá hádegi spilasalur opinn. Kór- æfing fellur niður. Veitingar í Kaffi Berg. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 boccia, kl. 9.30 og kl. 13 glerlist, kl. 13 félagsvist, kl. 16 hring- dansar, kl. 17. bobb. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 og 9.55 leikf., kl. 10 ganga, kl. 11 boccia. Línudans kl. 17. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, hárgreiðsla, fótaaðgerð og banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9– 10 og kl. 10–11 jóga, kl. 10.30–11.30 ganga, kl. 14.30 spænska, byrj- endur, kl. 15–18 mynd- list. Fótaað., hársn. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun, pútt á Korpúlsstöðum kl. 10. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 vinnustofa, kl. 9– 16 fótaaðgerð, kl. 13– 13.30 bankinn, kl. 14 fé- lagsvist, kaffi, verðl. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 9–16 fótaaðg. og hárgr., kl. 12.15–14.30 versl- unarferð, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 8.45 smiðja, kl. 10 búta- saumur, bókband og föndur kl. 13 kóræfing og verslunarferð kl. 12.30. Vinahjálp, brids á Hót- el Sögu kl. 13.30. Hafnargönguhóp- urinn. Kvöldganga kl. 20 miðvikud. frá horni Hafnarhússins norð- anmegin. Hana-nú Kópavogi. Fundur í Bókmennta- klúbbi Hana-nú kl. 20 á Bókasafni Kópavogs. Gestur er Pjétur Haf- stein Lárusson skáld. Kiwanisklúbburinn Geysir, Mosfellsbæ. Félagsvist fimmtu- dagskvöld kl. 20.30 í Kiwanishúsinu í Mosf. Félag eldri borgara í Kópavogi. Opið hús fyrir félagsmenn og gesti í Félagsmiðstöð- inni Gullsmára, laug- ard. 1. nóv. kl. 14. List- dans, Kristján Guðmundsson flytur fróðleiksmola, kaffi, spilað og spjallað með Árna Norðfjörð. Rangæingar – Skaft- fellingar. Spilakvöld í kvöld kl. 20 í Skaftfell- ingabúð, Laugavegi 178. Kaffiveitingar. Félag kennara á eft- irlaunum. Bókmennta- hópur félagsins kemur saman í Kennarahús- inu við Laufásveg fimmtud. 30. okt. Skemmti- og fræðslu- fundur í Húnabúð, Skeifunni 11, laugard. 1. nóv. kl. 13.30. Fé- lagsvist, veislukaffi og fræðslu- og skemmti- efni. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Félagsvist kl. 19.30. Í dag er miðvikudagur 29. októ- ber, 302. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.)     Í ritstjórnargrein á vef-riti ungra jafn- aðarmanna er sagt að Samfylkingin yrði leið- togalaus yrði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir næsti forseti Íslands. „Hennar persónukraftar eru að sjálfsögðu best geymdir í pólitík og það yrði hrein og bein martröð fyrir vinstrimenn ef hún hyrfi á Bessastaði,“ segir Dag- björt Hákonardóttir í pistlinum. Tilefni skrifanna er könnun Stöðvar tvö og Plússins á því hver njóti mestan stuðning til að gegna embætti forseta Ís- lands næsta kjörtímabil. Eru fimm útvaldir og ljóst að Ingibjörg Sólrún er ein þeirra.     Dagbjört segir að einnmaður vilji greinilega ólmur senda Ingibjörgu á Álftanesið eins og fram kom á Stöð tvö á mánu- dag. „Glöggir menn þurfa svo sem ekki að hugsa sig tvisvar um til að sjá hver sá maður er. Hann kemur þó ekki úr röðum sjálf- stæðismanna sem Ingi- björgu tekst svo listilega að ergja. Það virðist ekki aðeins vera æðsti draum- ur þeirra hægrimanna að losna við hana úr pólitík, því einn maður innan Samfylkingarinnar vill sjá hana sem forseta. Sá mað- ur er Össur Skarphéð- insson, formaður Sam- fylkingarinnar.     Össur er greinilega ekkienn búinn að meðtaka þá staðreynd að Ingibjörg Sólrún, svilkona hans og samherji, er svo gífurlega dýrmæt Samfylkingunni að færi hún í forseta- framboð væri það póli- tískt sjálfsmorð fyrir flokkinn,“ segir á vefriti ungra jafnaðarmanna. „Annar eins bjargvættur vinstri afla í íslenskri póli- tík hafði ekki sést í ára- raðir þegar hún tók við borginni 1994 og sigrum hennar er ekki lokið. Undirritaðri blöskraði heima í stofu þegar hinn svokallaði formaður okk- ar taldi upp kosti þess ef hún færi í framboð og sparaði ekki lofsyrðin; hún yrði glæsilegur for- seti og myndi sóma sér stórkostlega í forseta- embætti.“     Ekki er efast um ágætiIngibjargar til að gegna forsetaembættinu en það sagt dularfullt að Össur tilkynni það í fjöl- miðlum að þar eigi hún heima. Allir stuðnings- menn Ingibjargar séu á því að pólitíkin sé hennar vettvangur þó að formað- ur Samfylkingarinnar hafi ekki nefnt það. „Öss- ur vill ef til vill að Ingi- björg fari í framboð, þótt það brjóti í bága við vilja stuðningsmanna hennar. Við getum ef til vill reikn- að með því að Ingibjörg fari í forsetaframboð á þeim degi sem Össur hættir að tala af sér, því langt verður í það,“ segir í ritstjórnargrein á poli- tik.is, vefriti ungra jafn- aðarmanna. STAKSTEINAR Brotthvarf Ingibjargar yrði pólitískt sjálfsmorð Samfylkingarinnar Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur að undanförnugert heiðarlegar tilraunir til að selja fjölskyldubílinn. Áður en lagt var af stað í þá gönguför var ríkjandi mikil bjartsýni á heimilinu um að bíllinn myndi rjúka út. Ökutækið er vel með farið og það sem hefur gefið sig hefur verið endurnýjað eins og til dæmis staðalbúnaður sem fram- ljósin eru. Bíllinn hefur reglulega verið smurður, þveginn, bónaður og þjónustuskoðaður og því hlotið allt það viðhald sem við, mannfólkið, klikkum stundum á að veita okkur. Víkverji hefur uppi áform um að skipta bílnum út fyrir annan stærri og nýrri og vill því reyna að selja hann beint og sleppa við að láta um- boðið taka gripinn upp í. Uppítöku- verð umboðanna er nefnilega tölu- vert frábrugðið markaðsvirði, meira en Víkverji hafði látið sér detta í hug. Í söluskoðunum eru minnstu áverkar og útlitsgallar verðlagðir á tugi þúsunda króna og smásmugu- legar aðfinnslur gerðar. x x x FYRST var bíllinn auglýstur í blöð-unum og fékk hann nokkra at- hygli. Mikið var hringt, það vantaði ekki, og alls konar spurningum rigndi yfir Víkverja. Þannig hringdi ung kona og spurði hvað vélin væri stór í bílnum. „1.600,“ svaraði Vík- verji og taldi sig vera nokkuð hreyk- inn af þeirri stærð, hvað sem sú tala þýðir nákvæmlega í hans huga. En þetta dugði ekki konunni ungu. „Nú, bara 1.600,“ sagði hún og var víst að leita sér að 2.000-vél. Þar með lauk því símtali, eins og svo mörgum án þess að gefa meira af sér. Karlmenn hafa að vísu oftast hringt og sumir þeirra verið afar áhugasamir. Reyndar voru tveir komnir á fremsta hlunn með að kaupa bílinn en á síðustu stundu hættu þeir við. Víkverji fékk sterk- lega á tilfinninguna að þar hefði „rödd skynseminnar“ náð sínu fram, því í gegnum símalínurnar heyrðist í síspyrjandi kvenmannsröddum. x x x NÚ hefur för Víkverja endað hjáfagmönnum, öflugum bílasölum sem ætla að gera sitt besta til að fjöl- skyldubíllinn seljist. Þeir taka að vísu sín laun fyrir en Víkverji láir þeim það ekki. Hann hefur komist að því að framboðið á markaðnum er gríðarlegt og fjölbreytnin eftir því. Eflaust gleðjast bílasalar í hvert sinn sem sala tekst eftir „gamla lag- inu“. Víkverji hefur nefnilega sterk- an grun um að sönnum bíleigendum hafi snarfækkað hér á landi síðustu misserin. Endar þetta eflaust með því að FÍB, Félag íslenskra bifreiða- eigenda, verður annaðhvort að skipta um nafn eða innlima fjármála- fyrirtækin í félagið. Rifjast af þessu tilefni upp ágæt saga af lands- frægum poppara sem skoðaði glæ- nýjan jeppa vinnufélaga síns, gekk í kringum hann, sparkaði í dekkin og spurði: „Glitnir eða Lýsing?“ Morgunblaðið/Kristinn Erfiðara er en margur heldur að selja bíl um þessar mundir. Of feitar – þriðja flokks konur? ÉG er ein af þeim sem þurfa meðferð glasafrjóvg- unardeildar LSH til að verða ófrísk, að ég hélt. Er ég fór í viðtal til eins af læknum deildarinnar var mér tjáð að ég kæmist ekki í meðferð vegna þess að ég væri of feit, ég skyldi heim í megrun og hafa svo sam- band eftir að x mörg kíló væru farin. Aldrei áður hefur mér verið hafnað í læknismeð- ferð vegna þyngdar. Mér er því spurn hvort konur sem eru of þungar séu orðnar þriðja flokks? Hver ákveður hverjar geta fengið meðferð og hverjar ekki? Er verið að búa til sérreglur fyrir feitar konur sem hægt er að neita um meðferðir? Ekki er hlaupið að því að grennast um 10–40 kg, jafnvel á skömmum tíma. Eftir því sem konan eldist minnka líkur á árangri og vinnur tíminn því gegn okkur. Konan gæti þurft fleiri og erfiðari meðferðir. Fyrsta meðferð í glasafrjóvgun kostar 137.000, fjárhæð sem reynist flestum erfitt að reiða fram. Feitar konur hafa alla tíð átt börn og hvers vegna megum við það ekki líka sem þurfum á aðstoð að halda? Barnlaus og feit. Veitingastaður í Bessastaðahreppi NÝLEGA var ég á ferð í Bessastaðahreppi en það er gaman að fylgjast með hvað byggð vex ört á þess- um friðsæla stað. Ég kom að lítilli verslun í nýbyggðu húsi er kallast Bess-inn en einnig er lítill fallegur veitingastaður í sama húsi. Ég og kona mín ákváðum að prufa þennan veitinga- stað og síðan höfum við far- ið fjórum sinnum í Bess-inn aðeins til að borða og því- líkur matur, algjört lostæti á mjög góðu verði og við er- um sammála um að við munum halda áfram að keyra á Álftanesið aðeins til að borða ljúffengan mat. Ég vil því vekja athygli á þessum glæsilega litla veit- ingastað. Friðrik Ingi Óskarsson. Hafið bláa – frábær veitingastaður GOTT fólk vildi gleðja mig að gefnu tilefni er haldið var upp á stórafmæli og fyrir valinu varð Hafið bláa sem er við ósa Ölfusár eða réttara sagt spölkorn frá Selfossi. Hafið bláa er á hól við veginn og góð bílastæði þar í kring. Veitingasalurinn er látlaus en huggulegur, þjónusta frábær og bæði kjötréttir og fiskréttir mjög góðir. Setið er við stóran glugga og hafið er rétt hjá og öldurnar ekki langt undan. Mér fannst frábært að koma þarna og ætla svo sannarlega að bjóða þang- að gestum sem heimsækja mig. En Vegagerðin og eig- endur veitingastaðarins ættu að koma upp áberandi sjálflýsandi vegvísi sem komið væri fyrir ekki langt frá er farið er frá Selfossi, það myndi örugglega koma sér vel fyrir væntanlega gesti. Vilhjálmur K. Sigurðsson, Njálsgötu 48a, Rvík. Tapað/fundið GSM-sími í óskilum GSM-sími fannst á bíla- stæði við Ármúlaskóla 16. okt. sl. Upplýsingar í síma 663 4855. Gullhringur týndist BREIÐUR gullhringur með ígreyptum rákum týndist sl. laugardag, lík- lega Kringlunni, Garðabæ eða í miðbænum. Skilvís finnandi hafi samband í síma 899 6669. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn LÁRÉTT 1 tvöfaldan hnút, 8 býsn, 9 heitir, 10 gljúfur, 11 kroppa, 13 tautar, 15 óþokka, 18 svera, 21 leðja, 22 fatnaður, 23 gufa, 24 útdauð dýr. LÓÐRÉTT 2 bál, 3 greiða, 4 heil- næmt, 5 ósætti, 6 þekkt, 7 konur, 12 álít, 14 sætti mig við, 15 fébætur, 16 forstöðumaður klausturs, 17 svala, 18 auðveld, 19 börðu, 20 nytjalanda. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hemla, 4 þokki, 7 nakin, 8 örkin, 9 sól, 11 arra, 13 grun, 14 glæta, 15 haga, 17 trúr, 20 eta, 22 fúlar, 23 fælum, 24 sinnna, 25 afurð. Lóðrétt: 1 henda, 2 mókir, 3 agns, 4 þjöl, 5 kækur, 6 innan, 10 ófætt, 12 aga, 13 gat, 15 hafís, 16 galin, 18 rellu, 19 rómuð, 20 erta, 21 afla. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.