Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 44
KVIKMYNDIR
44 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VESTRAR eiga ekki upp á pall-
borðið hjá bíógestum þessa dagana
og spurning hvort þeir ná því marki í
stafrænni brelluframtíð. Þessi deyj-
andi kvikmyndagrein á veika von á
meðan karlar, gamlir í hettunni eins
og Eastwood og Costner, eru á meðal
vor. Costner skráði nafn sitt í kvik-
myndasöguna með Dönsum við úlfa
(Dances With Wolves) (’90), síðan
hefur gengi hans farið smám saman
fallandi. Eftir margvíslega tilrauna-
starfsemi á síðari árum snýr Costner
nokkuð brattur til baka með vestra á
sígildu nótunum. Hér eru góðir menn
og vondir, víðáttan mikla, kvenkostur
sem finnur ástina í þann mund sem
piparinn er að verða hennar megin-
krydd í tilveruna, skuggaleg fortíð
sem plagar garpinn, óhrjálegur land-
nemabær, blóði drifinn lokabardagi,
reið inn í sólsetrið. Hráefnið er til
staðar líkt og þekking á vinnubrögð-
um Johns Ford, Sergios Leone, o.fl.
meistara formsins.
Menn víðáttunnar eru Boss Spear-
man (Robert Duvall), roskinn kúa-
bóndi sem elur hjörð sína á beitilönd-
um villta vestursins með aðstoð
félaga síns, Charley Waite (Kevin
Costner), og kúasmalanna Button
(Dirgo Luna) og Mose (Abraham
Benrubi). Komið er fram á ofanverða
19. öld. Vestrið að breytast, voldugir
landeigendur og kúabændur þola illa
beitarmenn sem Spearman og í
myndarbyrjun lendir hann í útistöð-
um við Baxter (Michael Gambon),
sem ríkir yfir landinu þar sem hjörð
farandbóndans heldur sig. Mose er
sendur erinda í landnemaþorpið þar
sem hann er barinn til óbóta. Baxter,
sem ræður yfir bænum og löggæsl-
unni, er að kenna þeim lexíu. Þegar
Spearman og Waite finna Mose í
fangelsinu er þeim tjáð af Baxter að
hlutirnir fari enn verr ef þeir hypji sig
ekki á brott með sitt stóð.
Þannig hefjast átök góðs og ills á
gamalkunnan máta. Baxter grunar
ekki, í skjóli valds, auðs og spilltrar
löggæslu, að hann hefur kallað yfir
sig réttláta reiði óbilgjarnra heiðurs-
manna sem líða engum átroðning.
Aukinheldur kemur ástin til sögunn-
ar og blandast inn í grimmilegt upp-
gjör beitarmanna og óaldarlýðs Baxt-
ers. Lokabardaginn minnir frekar á
vestrana hans Leones, blóði drifinn
og heiftarlegur. Að öðru leyti heldur
leikstjórinn Costner sig í hjólförum
Fords, Stevens auk annarra landa
sinna og ratar slóðina ásættanlega
lengst af. Í lokin tapar hann þó áttum,
eða öllu frekar handritshöfundurinn,
sem íþyngir áhorfandanum með lang-
dreginni og ósannfærandi rómantík.
Costner hefur fengið til liðs við sig
hæfileikaríkan kvikmyndatökumann
sem bætir Menn víðáttunnar til
muna, en hún er tekin á óspilltum víð-
áttum norður í Kanada. Sviðsmyndir
eru hráar og trúverðugar. Duvall er
hjarta myndarinnar, uppstökkur og
sérsinna en öðlingur undir hrjúfu yf-
irborðinu. Á sama hátt er Gambon í
essinu sínu sem fantur og hörkutól
undir enn groddalegri skráp. Allir
þessir þættir gera Menn víðáttunnar
mikilúðlega fyrir augað. Bening get-
ur ekki mikið gert fyrir vanskrifað
hlutverk en Michael Jeter (The
Green Mile), skilar með ágætum
smáhlutverki stallarans.
Costner er ábúðarmikill en skelfi-
lega húmorslaus og í sannleika sagt
eru þau ekki upplífgandi hjónaefni að
sjá, hann og Bening. Costner á þó
þakkir skildar fyrir að halda lífinu í
vestranum.
Öðlingar og morðingjar
MENN VÍÐÁTTUNNAR /
OPEN RANGE
Regnboginn
Leikstjóri: Kevin Costner. Handrit: Craig
Storper, byggt á bókinni „The Open
Range Men“ eftir Lauran Paine. Kvik-
myndatökustjóri: James Muro. Tónlist:
Michael Kamen. Aðalleikendur: Robert
Duvall, Kevin Costner, Annette Bening,
Michael Gambon, Michael Jeter, Diego
Luna, James Russo, Abraham Berubi,
Dean McDermott. 135 mínútur. Touch-
stone Pictures 2003.
Sæbjörn Valdimarsson
¡Viva España!
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hljómsveitarstjóri ::: Philippe Entremont
Einsöngvari ::: Ginesa Ortega
FIMMTUDAGINN 6. NÓVEMBER KL. 19:30
Kvikmyndatónleikar
Hljómsveitarstjóri ::: Rick Benjamin
Edwin S. Porter ::: Lestarránið mikla
Buster Keaton ::: Hershöfðinginn
LAUGARDAGINN 8. NÓVEMBER KL. 15:00
Kvikmyndatónleikar
Hljómsveitarstjóri ::: Rick Benjamin
Amerískar gamanmyndir eftir
Charlie Chaplin, Harold Lloyd og
Buster Keaton
TÓNLEIKAR Í HÁSKÓLABÍÓI FIMMTUDAGINN 30. OKTÓBER KL. 19:30
Juan Arriaga ::: Sinfónía í d-moll
E. Granados/Guimovart ::: Goyescas svíta
Jesús Guridi ::: Diez melodías vascas
Manuel De Falla ::: El amor brujo
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Lau 1/11 kl 14 - UPPSELT,
Su 2/11 kl 11 - UPPSELT
Su 2/11 kl 14 - UPPSELT, Lau 8/11 kl 14 - UPPSELT,
Su 9/11 kl 14 - UPPSELT, Lau 15/11 kl 14 - UPPSELT
Su 16/11 kl 14 - UPPSELT, Lau 22/11 kl 14, - UPPSELT
Su 23/11 kl 14- UPPSELT, Lau 29/11 kl 14 - UPPSELT,
Lau 29/11 kl 17 - AUKASÝNING, Su 30/11 kl 14 - UPPSELT,
Lau 6/12 kl 14, Lau 6/12 kl 17 - AUKASÝNING
Su 7/12 kl 14 - UPPSELT Lau 13/12 kl 14,
Su 14/12 kl 14, Lau 27/12 kl 14, Su 28/12 kl 14
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
NÝJUNG - GLEÐISTUND Í FORSALNUM
Forsalurinn opnar klukkutíma fyrir kvöldsýningu
Girnileg smábrauð og léttar veitingar á tilboðsverði
Njótið þess að gefa ykkur góðan tíma í leikhúsinu
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN SÝNIR:
THE MATCH eftir Lonneke Van Leth -heimsfrums.
SYMBIOSIS eftir Itzik Galili
PARTY eftir Guðmund Helgason
4. sýn fi 30/10 kl 20 - græn kort
5. sýn su 2/11 kl 20 - blá kort
Fö 7/11 kl 20, Su 16/11 kl 20
COMMONNONSENSE e. CommonNonsense
byggt á myndlist Ilmar Stefánsdóttur
Frumsýning fi 6/11 kl 20, Su 9/11 kl 20,
Mi 12/11 kl 20, Fi 13/11 kl 20, Lau 15/11 kl 20
ATH. Takmarkaður sýnngafjöldi
KVETCH e. Steven Berkoff
í samstarfi við á SENUNNI
Fi 30/10 kl 20- UPPSELT, Fö 31/10 kl 20 - UPPSELT
Su 2/11 kl 20- UPPSELT, Fö 7/11 kl 20,
Lau 8/11kl 20-UPPSELT, Fö 14/11 kl 20, Su 16/11 kl 20
Ath: Aðeins örfáar sýningar
15:15 TÓNLEIKAR - Mussorgski
Barnaherbergið - Söngvar og dansar um dauðann
Lau 1/11 kl 15:15
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
Meira (en) leikhús!
HÆTTULEG KYNNI byggt á sögu Laclos
í samstarfi við DANSLEIKHÚS MEÐ EKKA
Fö 31/10 kl 20, Lau 1/11 kl 20
Aðeins þessar sýningar
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Lau 1/11 kl 20, Su 9/11 kl 20, Lau 15/11 kl 20
Síðustu sýningar
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Fö 31/10 kl 20, Lau 8/11 kl 20, Fö 14/11 kl 20
Lau 22/11 kl 20
Tónleikar laugardagskvöldið 1. nóvember 2003 kl. 20
eftir Kristínu Ómarsdóttur
sýn. fim. 30. okt
Lokasýning
Örfá sæti
Sýningin hefst klukkan 20.
„Fólk hættir ekki að hugsa um þetta leikrit
eftir að ljósin kvikna....;“
Ármann Jakobsson á murinn.is
Miðasala í 555 2222 eða á theater@vortex.is
Mink
leikhús
erling
Fös 31.10. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 08.11. kl. 20 LAUS SÆTI
Fös 14.11 kl. 20 LAUS SÆTI
Lau 22.11. kl. 20 LAUS SÆTI
Fös 28.11. kl. 20 LAUS SÆTI
Ósóttar pantanir seldar daglega
Miðasala í síma 552 3000
Miðasala opin 15-18 virka daga
Ósóttar pantanir seldar daglega
loftkastalinn@simnet.is
Einnig sýnt í Freyvangi
Edda Björgvinsdóttir
tekur á móti gestum og losar um
hömlur á hádegi föstudaga kl. 11.45.
Tenórinn
Sýn. sunnud. 2. nóv. kl. 20.00.
Sýn. laugard. 8. nóv. kl. 20.00.
Sýn. sunnud. 16. nóv. kl. 20.00.
Sýn. laugard. 22. nóv. kl. 20.00.
Sýn. sunnud. 29. nóv. kl. 20.00.
Sýn. laugard. 2. des. kl. 20.00.
Sellófon
Gríman 2003: „Besta leiksýningin“
að mati áhorfenda
150 sýning
Fim. 30. okt. kl. 21.00. UPPSELT
Fös. 31. okt. kl. 21.00. UPPSELT
Félagsheimilið Hvolur, Hvolsvelli.
Lau. 01. nóv.kl. 21.00. UPPSELT
Kiwanishúsið Vestmannaeyjum.
Fös. 07. nóv. og 8 nóv. kl. 21.00.
WWW.sellofon.is og sellofon@mmedia.is
Ólafía
Sýn. mið. 29. okt. kl. 20.00. UPPSELT
Miðasala í síma 562 9700
www.idno.is
MIÐVIKUDAGINN 29/10 - KL. 19 UPPSELT
MIÐVIKUDAGINN 5/11 - KL. 19 LAUS SÆTI
FIMMTUDAGINN 6/11 - kl. 19 LAUS SÆTI
ATH! SÝNINGUM FER FÆKKANDI - ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA