Morgunblaðið - 29.10.2003, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 47
Nýr og betri
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg
Kvikmynd“
www .regnboginn.is
Hverfisgötu 551 9000
BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN!
Sýnd kl. 6, 8.30 og 11. B.i. 16.
„Frábær mynd“
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 12.
Stórkostlegur vestri frá
Kevin Costner leikstjóra
DANSAR VIÐ ÚLFA
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÞÞ FBL
Yfir 15000 gestir
TOPP
MYNDINÁ ÍSLANDI!
Ein magnaðasta
heimildarmynd
seinni ára!
ÞÞ FBL
HK DV
SV MBL
HK. DV
SKONROKK 90.9
Kvikmyndir.isi i .i
SV MBL
.
OPEN RANGE
www.laugarasbio.is
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 6. Bara sýnd um helgarSýnd kl. 8. Sýnd kl. 6. Með ísl tali
Miða
verð
kr. 50
0
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg
Kvikmynd“
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
„Frábær mynd“
BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12.
Stórkostlegur vestri frá Kevin Costner
leikstjóra DANSAR VIÐ ÚLFA
OPEN RANGE
ÞÞ FBL
Yfir 15000 gestir
TOPP
MYNDINÁ ÍSLANDI!
BLÓÐBAÐIÐ hans Tarantino, Bana
Billa (Kill Bill), fyrri hluti af tveimur,
hélt toppsætinu á listanum yfir vin-
sælustu myndir helgarinnar hérlend-
is. Rúmlega 14.000 manns eru búnir
að sjá mann og annan höggvinn í
herðar niður af Umu Thurman í hlut-
verki Brúðarinnar. Jón Gunnar Geir-
dal hjá Norðurljósum bendir á að að-
sóknin minnki aðeins um 16% frá
frumsýningarhelginni, sem sé góður
árangur. „Það var uppselt á margar
sýningar um helgina en umtal og
dómar haldast í hendur. Þetta er ein
besta mynd ársins og stefnir í að
verða með þeim stærstu að auki,“
segir hann en seinni hluti Bana Billa
verður frumsýndur hérlendis í mars
2004.
Önnur vinsæl mynd er í öðru sæti
og stendur í stað, Óbærileg grimmd
(Intolerable Cruelty) þeirra Coen-
bræðra en um 10.000 manns hafa lagt
leið sína á hana. „Ég er bara ofsakát-
ur með hvernig Óbærileg grimmd er
að halda sér. Hún stefnir í að verða
aðsóknarmesta mynd Coen-bræðra
hér á Íslandi. En auðvitað eru það
líka George Clooney og Catherine
Zeta Jones sem trekkja að,“ segir
Christof Wehmeier hjá Sambíóunum
en þetta fallega par er í aðalhlutverki
í þessari rómantísku gamanmynd í
gamla stílnum.
Í þriðja sæti kemur síðan mynd
sem er ný á lista, Hættuförin (The
Rundown) en það er hasarmynd með
unglingastjörnunni Seann William
Scott. „Ég er líka sáttur með Hættu-
förina því unglingar virðast fíla
myndina vel enda er hún uppfull af
gríni og hasar og svo hefur henni líka
verið líkt við Indiana Jones-myndirn-
ar,“ segir Christof.
Njósnakrakkarnir eru síðan í
fjórða sætinu. „Þrívíddaræðið heldur
áfram en rúmlega 20.000 manns eru
búnir að sjá þriðja hluta Njósna-
krakkanna og engin lát á vinsæld-
um,“ segir Jón Gunnar.
Þrjár aðrar myndir eru nýjar á
lista. Barnamyndin Tristan og Ísold
er í sjöunda sæti, vestrinn hans Kev-
ins Kostners, Á víðavangi (Open
Range) er í níunda sæti og ný íslensk
heimildarmynd, Mótmælandi Ís-
lands, er í 13. sæti en hún fjallar um
Helga Hóseasson. „Mótmælandi Ís-
lands fór vel af stað,“ segir Guðmund-
ur Breiðfjörð hjá Norðurljósum en
hann segir skemmtilega kynningu
hafa vakið athygli. „Í kynningarher-
ferð myndarinnar á föstudag héldu
nemendur í Kvikmyndaskóla Íslands
á mótmælaspjöldum Helga víðs veg-
ar um borgina, meðal annars á fjöl-
förnum gatnamótum til að vekja at-
hygli á myndinni,“ segir hann en hátt
í 400 manns hafa séð myndina.
! " #$ %
& '
) (* +,(
! "#$
%& '(
(
)
%
%
*%+ $
,
,
-
+(!. &
/
0
12
%
3
$
/
3
0
-(
#(
,
.(
/(
0(
,
1(
,
-.(
--(
2(
,
-/(
##(
-1(
-0(
-$(
3(
4(
#
#
-
/
.
#
-
.1
-
4
0
/
-
1
/
--
/
-#
.
0
! 5678 9 8 !5678 :67 ; 67 < +8 = 8 ; 8 >57 67
67 < +8 = 8 ; 5678 9 8 !5678 :67 ; 5678 !5678 :67 ; 8 = + 68 ?+@A
5678 !5678 :67 ; 67 < +8 = 8 = + 68 ; >57 67
!5678 9 67 < +8 = 8 = + 68 ; 67 = 8 ; 8 '
67 < +8 = + 6
9 5678 >B 68 ;
9 67 < +8 ?+@A
!5678 9 67 < +8 >57 678 : A7
67 < +8 = + 6
5678
57
Vinsælustu myndir helgarinnar á Íslandi
Blóðbað á
toppnum
Uma Thurman í hlutverki Brúð-
arinnar á sitthvað vantalað við
þetta fereyki, sem Daryl Hannah,
Michael Madsen, Vivica A. Fox og
Lucy Liu leika.
SÖNGVARINN Rod Stewart hefur
látið skotin flakka hægri og vinstri
á starfsbræður sína og félaga úr
söngbransanum. Í nýlegu viðtali við
breska tímaritið Radio Times, talar
hann um „ömurlegan“ Sir Elton
John og Sting sem „Herra al-
vörugefinn“.
Einnig segist hann sár yfir því
hvernig fjölmiðlar hafi ráðist á sig
vegna ástarsambanda við yngri
konur á meðan Sir Paul McCartney
fái algjöran frið.
Stewart segist viss um að það
hafi eitthvað að gera með ridd-
aratignina. Hann segist ekki skilja
hvers vegna drottningin er ekki
líka búin að heiðra hann: „Ég hef
lagt mitt af mörkum til góðgerð-
armála.“
Í viðtalinu var Stewart að kynna
nýjan söngleik Tonight’s the Night,
sem byggist á lögum sem hann hef-
ur sungið í gegnum tíðina, sem
frumsýndur var á West End í gær.
Einnig á hann tvær plötur á topp 20
þessa dagana í Bretlandi.
Í viðtalinu notar Stewart gælu-
nafn Sir Eltons, Sharon, þegar
hann lýsir honum sem „ömurlegum
gaur fyrir að bjóða sér aldrei í
veislurnar“ sínar. „Kannski er það
út af hárinu. Mitt er fínt og alvöru
og lítur vel út en ekki hennar. Nei
ég tek þetta aftur. Hann lítur vel út,
en mætti missa nokkur kíló.“
Hinn 58 ára gamli Stewart er um
þessar mundir í sambandi með fyr-
irsætunni Penny Lancaster sem er
26 ára.
Hann segist í viðtalinu agndofa
yfir því að hafa aldrei fengið
Grammy-verðlaun. „Tilhneigingin
er að veita Bretum ekki þessi verð-
laun, nema þá Sting … Herra al-
vörugefnum, sem hjálpar indján-
unum.“
Rod Stewart skýtur á starfsbræður sína
Sir Elton ömurlegur
og Sting alvörugefinn
Rod Stewart og spúsa: Beiskur
kvennabósi.