Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 48

Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 48
THE STROKES – Room on Fire Ókei, kannski engin bylting hér á ferð, heldur meira af því sama. En þetta sama er bara svo fjandi gott, eigin- lega alveg frábært, í öllum sínum ófrumleika, kæruleysi og töffaraskap. Julian Casablanca er gjörsamlega fyrirmunað að semja lag sem ekki er grípandi.  MUSE – Absolution Matt Bellamy er séní. Það sýndi hann fyrst á síðustu plötu Origin of Simmetry og sann- ar hér á Absolution, rökréttu framhaldi. Enn skellir hann skollaeyrum við öllu tali um tilgerð og mikilmennskubrjálæði. Hin hliðin á þeim peningi er líka metnaður og hugrekki – sem hann á nóg af. Herslumuninn vantar þó upp á að hér sé á ferð jafnoki meistaraverksins síð- asta.  DIDO – Life For Rent Alltaf dúkka upp metsöluplöturnar sem hafa að geyma tvo til þrjá flotta og fræga smelli en restina rækilega skelli. Þessi önnur plata Dido kemst þó óþægilega nálægt því að komast í þann flokkinn. Frábær fyrsta smá- skífan, „White Flag“. Restin hættulega óspenn- andi en meinlaus þó ef hún er mjög lágt stillt, spiluð í bak- grunni í háværum saumaklúbbi.  ELBOW – Cast of Thousands Hljómaði satt best að segja ekki vel við fyrstu hlustun – enda þunglamanleg í meira lagi. En líkt og fyrsta platan vinnur hún gletti- lega vel á enda vandaðir tónlistar- menn með afbrigðum. Breytir þó því ekki að þeir mættu nú aðeins fara að létta lundina því einstaka lög verða hreint og beint leiðinleg í allri sinni eymd.  STING – Sacred Love Hvað sumum getur förlast! Að hugsa sér að þetta sé tón- list eftir mann sem var í The Police og sendi frá sér prýðissólóplötur á við Dream of the Blue Turtle og Nothing Like the Sun. Ekkert að því að hafa það náðugt og róast með árunum en það þýðir ekki að maður- inn þurfi að verða svona leiðinlegur. Eina glætan er fínt upphafslag, „In- side“.  Skarphéðinn Guðmundsson Erlendar plötur Hvað ertu að hlusta á um þessar mund- ir? Í gærkvöldi var ég að hlusta á Hana nú með Vilhjálmi Vil- hjálmssyni. Hann er bestur. Uppáhaldsplata? Fisherman’s Blues með The Waterboys. Hún minnir mig á fallegt sumar í suður-frönsku klaustri og hjólreiðatúra með- fram sólblómaökrum. Hvaða plötu setur þú á á laugardagskvöldi? In Search of ... með N*E*R*D eða Ten með Pearl Jam. Hvaða plötu setur þú á á sunnudagsmorgni? Long Gone Before Daylight með The Cardigans, Sea Change með Beck eða Vestmanna- eyjadiskinn með Sextett Ólafs Gauks. Ég þarf að læra textann við „Villta strengi“. Hver er fyrsta platan sem þú keyptir þér? Hún er með öllum bestu lögum Jimi Hendrix. Gerður Kristný rithöfundur og ritstjóri Mannlífs Þetta vil ég heyra 48 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ SG DV Empire Kvikmyndir.is SV MBL Ævintýraleg spenna, grín og hasari l , í KRINGLAN Kl. 5.50, 8 og 10.10. Með hinum hressa Seann William Scott úr “American Pie” myndunum og harðjaxlinum The Rock úr “Mummy “The Scorpion King.” e hinu hressa Seann illia Sc tt úr “ erican ie” yn unu har jaxlinu The ck úr “ u y “The Sc r i n in .” Beint á toppin n í USA ROGER EBERT KVIKMYNDIR.IS SG DV HJ MBL Ævintýraleg spenna, grín og hasari l í The Rundown er mikil rússíbanareið og hún nær þeim ævintýrablæ og húmor sem einkennir m.a. Indiana Jones myndirnar. H.K. DV. Heimsfr Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.Sýnd kl. 10. B.i. 16.Sýnd kl. 6. B.i. 14. 6 Edduverðlaunl  SG DV Empire Kvikmyndir.is SV MBL „Fyndnasta barátta kynjanna á tjaldinu um langa hríð“ ATH!AUKASÝNINGKL. 9.05 Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 5.45 og 8.15. Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones fara á kostum í myndinni. Nýjasta mynd Coen bræðra. Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að. Sýnd kl. 5.50, 8, 9.05 og 10.15. SV MBL Tvímælalaust ein albesta mynd ársins sem slegið hefur rækilega í gegn í USA Stórmynd sem engin má missa af. M.a. Besta mynd ársins Heimsfrumsýning 5. nóv. ÞAÐ þótti sæta tíðindum er ungt írskt söngvaskáld, Damien Rice, hreppti banda- rísku Mercury-verðlaunin (Shortlist Music Prize) og sló þar með fólki eins og Yeah Yeah Yeahs, Interpol, Cat Power og The Streets við. Ekki það að hann hafi ekki átt verðlaunin skilið en fyrsta plata hans, O, hefur vakið lærða sem leika upp til vitneskju um þennan unga Íra. Blæðandi einlægni hans á téðri plötu er að sönnu heillandi og merkilegt að um fyrstu plötu listamanns sé að ræða. Kom út fyrir einu og hálfu ári Rice óls upp í Kildare-sveit, sem liggur rétt utan við Dyflinni. Ungur hneigðist hann til lista; fór að mála og glamra á gítar. Hann setti svo saman band sem kallaðist Juniper og lék það fremur hefbundið nýbylgjurokk. Þeim auðnaðist þó að komast að hjá Polydor árið 1997 eftir sex ára barning og gáfu út tvær smáskífur þar sem fengu ágætis spilun í írska útvarpinu. Rice hætti svo árið 1999, fór í bakpokaferðalag um Evrópu í ár og hressti sig við (félagar hans héldu áfram undir öðru nafni, Bell X1, og eru enn starfandi). Rice sneri svo aftur innan árs og náði að nurla saman peningum til að taka upp prufuupp- tökur. Þær rötuðu m.a. til David Arnold, dans- og kvikmyndatónlistargerðarmanns sem varð þegar yfir sig hrifinn (og sér m.a. um strengjaútsetningu í einu laginu). Arnold tók upp fyrstu smáskífu Rice, „The Blower’s Daughter“, og gaf út haustið 2001. Platan O kom svo út í febrúar 2002 í Írlandi þannig að það er ljóst að hún er búin að vera til í um eitt og hálft ár! Líkt og með David Gray og White Ladder þá er O búin að vera nettur svefn- gengill en er núna heldur betur glaðvöknuð. Næsta plata? Það sem er einkennandi fyrir O eru stríp- aðar útsetningar en oft eru það bara Rice og kassagítarinn sem eru á ferðinni. Þá er það tilfinningaþrunginn flutningur Rice sem hitt- ir menn beint í hjartað. Heildarpakkinn er einnig afar aðlaðandi en í umbúðum eru myndir eftir Rice, ljóð og síðan ljósmyndir af vinum og félögum. Nú hafa verið gefnar út fjórar smáskífur af plötunni, áðurnefnt lag, „The Blower’s Daughter“, en einnig „Cannonball“, „Volcano“ og stuttskífan Woman like a Man. Myndbandið við „Volcano“ hefur verið sýnt í sjónvarpi hér á landi, þar sem sellóleikarinn Vyvienne Long kemur einnig fram. Þá syng- ur söngkonan Lisa Hannigan einnig með hon- um á plötunni og á tónleikum nýtur hann að- stoðar þeirra tveggja og hljómsveitar. Og nú er þegar farið að tala um næstu plötu. Menn vilja bóka hljóðverstíma, eitt- hvað sem er fáránlegt að mati Rice sjálfs. Hann segist ekki hafa hugmynd um hvenær og hvort hann vilji hljóðrita meira. „Að bóka hljóðver er eins og að bóka tíma á salernið,“ segir hann, harðákveðinn í hafa báða fætur á jörðinni. Damien Rice hittir í hjartastað Viðkvæma eldfjallið Damien Rice hefur verið hylltur mjög fyrir frumburð sinn, O. O er komin út. www.damienrice.com arnart@mbl.is SAFNPLATAN 30#1 Hits – sem inniheldur 30 lög sem rokkkóng- urinn kom á topp vinsældalista – hefur selst í 9 milljónum ein- taka síðan hún kom út í fyrra og fór á toppinn í 26 löndum. Því þarf vart að koma á óvart að út sé komið hálfgert fram- hald hennar. Nýja safnplatan heitir Elvis 2nd To None og inniheldur sem fyrr 30 af vinsælustu lögum Presleys, nokkur af þeim sem ekki komust fyrir á forveranum vinsæla. Og til að fara algjörlega að sigurform- úlunni frá í fyrra – þegar hið óþekkta „A Little Less Conversa- tion“ var fært í nýjan búning og sló í gegn – hefur plötusnúður verið fenginn til að krukka í gamlan slag- ara, í þeim meinta tilgangi að „nú- tímavæða“ hann. Bretinn Paul Oakenfold valdi að eiga við hið lítt þekkta „Rubberneckin’“ sem þegar er farið að njóta töluverðra vin- sælda og hefur vermt efstu sæti sölulista í Bandaríkjunum og víðar. Nýja safnplatan spannar breiðara svið en sú fyrri, sýnir fleiri hliðar á söngvara sem segja má að farið hafi um víðan völl á tveggja áratuga löngum ferli; var ekki ein- asta í gamla rokkinu, heldur daðr- aði einnig við kántrí, sálartónlist, danstónlist, gospel og rokkabillí svo eitthvað sé nefnt. Þannig eru ekki einasta topplög af vinsælda- listum á safnplötunni heldur einnig lög sem minnisstæð eru fyrir ann- arra hluta sakir, eftirlætislög aðdá- enda, lög sem t.a.m. hafa hlotið uppreisn æru mörgum árum eftir að þau komu fyrst út. Fyrir gallharða Presley-nagla er gripurinn hvað eftirsóknarverð- astur fyrir tveggja hluta sakir. All- ar hljóðritanir sem finna má á plöt- unni hafa verið teknar til rækilegrar endurnýjunar, hreins- aðar upp og trúlega aldrei hljómað betur. Allra merkilegast þykir þó trúlegast áður óútgefið lag, „I’m A Roustabout“, sem upphaflega var samið fyrir Presley-myndina Roustabout frá 1964 af Presley- höfundunum Winfield Scott og Otis Blackwell en var aldrei notað. Lag- ið kom í leitirnar eftir að Scott gat þess í viðtali sem hann veitti fyrr á árinu. Þetta barst til eyrna umsjón- armanna nýju safnútgáfunnar sem ólmir vildu hafa uppi á því og svo heppilega vildi til að Scott átti upp- tökurnar í kjallara heimilis síns. Ný Elvis Presley-safnplata komin út Enginn annar Elvis 2nd to None kom út 7. október.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.