Morgunblaðið - 01.11.2003, Síða 1
MÍKHAÍL Kasjanov, forsætisráð-
herra Rússlands, kvaðst í gær hafa
„miklar áhyggjur“ af því, að meiri-
hluti hlutafjár í olíufélaginu Yukos
hefur verið frystur. Skrifstofa ríkis-
saksóknara í Moskvu sagði síðdegis í
gær að aftur væri búið að leyfa við-
skipti með 4,5% hlutafjárins. Væri um
að ræða bréf í eigu fólks sem ekki
væri grunað um glæpsamlegt athæfi.
Kasjanov sagði um aðförina að
Yukos að ekki væri unnt að sjá afleið-
ingarnar fyrir enda hefði slíkum að-
ferðum ekki verið beitt fyrr af hálfu
yfirvalda. „Ég ætla ekki að kveða upp
neinn dóm en ég hef miklar áhyggjur
af þessu,“ sagði Kasjanov í viðtali við
Interfax-fréttastofuna. Vladímír Pút-
ín forseti sagði í vikunni að ráðherrar
ættu alls ekki að hafa nein afskipti af
rannsókninni á Yukos, þeir mættu
ekki grípa fram fyrir hendur réttvís-
innar. Að sögn fréttavefjar BBC virð-
ist Kasjanov hafa með ummælum sín-
um hundsað viðvörun Pútíns.
Kasjanov er nú eini frammámað-
urinn í stjórn Pút-
íns frá því í valda-
tíð Borís Jeltsíns,
fyrrverandi for-
seta landsins. Al-
exander Voloshín,
skrifstofustjóri
Pútíns, hefur sagt
af sér vegna
óánægju með að-
förina að Yukos
en Kasjanov sagðist ekki búast við
neinum breytingum á ríkisstjórninni
vegna afsagnarinnar. Pútín sagðist í
gær telja afsögn Voloshíns hafa verið
mistök og hrósaði honum fyrir að hafa
gert mikið til að leysa þau vandamál
sem þjóðin stæði frammi fyrir.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins, Richard Boucher,
sagði í gær að rússnesk stjórnvöld
yrðu að bregðast við ótta þeirra sem
teldu að reglur réttarríkisins væru
ekki lengur virtar í Rússlandi.
Mál olíufyrirtækisins Yukos
Moskvu, Washington. AFP, AP.
Míkhaíl Kasjanov
Áhyggjur/16
Kasjanov
lýsir „miklum
áhyggjum“
STOFNAÐ 1913 296. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Allir skap-
aðir hlutir
Hlynur Vagn á framabraut í
New York Daglegt líf 6
Enska
jólakakan
Paul Newton bakar lostætið sem er
ómissandi á jólum Breta Matarkistan 26
Alltaf að
bæta sig
Arnar Sigurðsson stendur sig vel í
tenniskeppni vestra Íþróttir 52
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, sagði í ræðu sinni við upphaf lands-
fundar flokksins í gær að Samfylkingin þyrfti
að skoða með opnum huga breytt rekstrarform
í heilbrigðisþjónustunni án þess þó að hróflað
verði við jöfnu aðgengi allra – óháð efnahag.
„Það þarf að láta markaðslögmálin vinna í þágu
markmiða jafnaðarstefnunnar,“ sagði hann
„Það er markmiðið sem skiptir máli en ekki
leiðin að því. Ríkið þarf að vera kaupandi en
það þarf ekki í öllum tilvikum að vera seljandi.“
Össur ítrekaði að Samfylkingin vildi ekki
hverfa frá samhjálp. Hún væri flokkur sam-
hjálpar „en við erum líka markaðssinnaður
flokkur,“ sagði hann. Össur sagði einnig að
einkarekstur væri ekki einkavæðing í þágu
gróðans, gróðans vegna. „Markaðurinn á alltaf
að vera þjónn okkar en ekki húsbóndi.“
Össur sagði að mörg nýleg dæmi sýndu að al-
varlegar brotalamir væru á heilbrigðiskerfinu.
Sagði hann það blasa við að núverandi kerfi
gengi ekki upp. „Við þurfum framtíðarlausn í
heilbrigðismálum þjóðarinnar. Við þurfum
ekki endilega aukið fjármagn en við þurfum
sárlega breytta stefnu.“
Sama aðferð og í Evrópumálunum
Össur sagði að ábyrgur flokkur yrði að taka
á málum með ábyrgum hætti. Samfylkingin
hefði haft kjark til að taka forystu í Evrópu-
málum og að hún ætti að hafa sama kjark til að
taka pólitíska forystu í heilbrigðismálum.
„Þess vegna standa mín áform til þess, nú þeg-
ar við höfum lokið stærstu áföngum í stefnu-
mótun okkar í Evrópumálum, að næsta póli-
tíska stórverkefni Samfylkingarinnar verði
stefnumótun á sviði heilbrigðismála.“ Sagði
hann að í þeirri stefnumótun ætti að nota sömu
aðferð og notuð var í Evrópumálinu. Til að
mynda með því að skilgreina vandamál í heil-
brigðiskerfinu og kalla til sérfræðinga. Síðan
ætti að leggja fram hugmyndir flokksins í sér-
stakri bók sem allir hefðu aðgang að. Sagðist
hann myndu ásamt forystu flokksins skipa fólk
til þessara verka strax eftir helgi.
Taka þann tíma sem þarf
Össur vék í ræðu sinni einnig að Evrópumál-
unum og sagði að aðild Íslands að ESB væri
flókið viðfangsefni. „Rétt eins og við í Samfylk-
ingunni fyrir tveimur árum er almenningur
með margþættar áhyggjur af aðild og þarf upp-
lýsingar og umræðu við. Við þurfum að gæta
þess að hlusta á fólk – alveg eins og við gerðum
í umræðunni innan flokksins – og reyna að
forðast þá erfiðleika sem systurflokkar okkar á
Norðurlöndum og í Bretlandi hafa átt við að
etja þegar þeir hafa verið að skýra fyrir kjós-
endum hvað felst í aðild að ESB.“ Össur sagði
að það kynni að vera að það tæki tíma að út-
skýra að hagsmunum Íslendinga væri betur
borgið innan ESB en utan. „En við verðum að
taka þann tíma sem til þess þarf.“
Össur Skarphéðinsson við upphaf landsfundar Samfylkingarinnar
Skoða ber breytt rekstrar-
form í heilbrigðiskerfinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Össur Skarphéðinsson ávarpar fulltrúa á
landsfundi Samfylkingarinnar í gær.
Kann að vera að það taki tíma að útskýra að hagsmunum Íslendinga
verði betur borgið innan Evrópusambandsins en utan þess
Össur segir/10
Bendla Lithá-
ensforseta
við mafíuna
Vilnius. AFP.
VARNARMÁLARÁÐ
Litháens fyrirskipaði í
gær rannsókn á ásökunum
litháísku öryggislögregl-
unnar um að Rolandas
Paksas, forseti landsins,
og ráðgjafi hans í öryggis-
málum tengdust alþjóð-
legum glæpasamtökum.
Arturas Paulauskas,
forseti litháíska þingsins,
sagði eftir fund ráðsins að
ásakanirnar, sem komu fram í skýrslu frá ör-
yggislögreglunni, væru „mjög alvarlegar“. Í
skýrslunni er því haldið fram að ráðgjafi for-
setans tengdist Anzor Aksentjev Kikalishvili,
forstjóra Fyrirtækis 21. aldarinnar, sem er
rússneskt og hefur verið bendlað við alþjóð-
lega glæpastarfsemi.
Paksas, sem var kjörinn forseti í janúar,
sagði að ekkert væri hæft í ásökuninni en
ákvað þó að leysa ráðgjafann frá störfum þar
til rannsókninni lyki.
Rolandas
Paksas
Rándýrt
núll í Ósló
VERÐBRÉFASALI
hjá netfyrirtækinu
Netfonds í Ósló
gerði að því er virt-
ist smávægileg mis-
tök við tölvuna sína
í gær, að sögn Aft-
enposten. Afleið-
ingin varð sú að
hann keypti óvart
3,5% hlut í fiskeldisfyrirtækinu Pan
Fish upp á 39,6 milljónir norskra króna
eða rúmar 400 milljónir ísl. kr.
Mistökin munu hafa falist í því að ekki
var sett rétt þak á fjölda bréfanna í
pöntuninni, einu núlli var ofaukið.
Kauphöllin í Ósló neitar að ógilda við-
skiptin. „Menn geta ekki bara komið í
kauphöllina og iðrast,“ segir talsmaður
kauphallarinnar, Tor Arne Olsen.
Netfonds seldi bréfin aftur síðdegis
en tapaði þá sex milljónum norskra
króna, rúmlega 60 milljónum ísl. kr.
Fylgir sögunni að verðbréfasalinn, sem
er kona, verði ekki rekinn.
Læknar eru
slysarokkar
NÝ rannsókn í Bandaríkjunum gefur til
kynna að háskólanemar séu líklegastir allra
til að lenda í umferðarslysi en næstir í röð-
inni eru læknar, að sögn Jyllandsposten.
Stofnun í Kaliforníu, Quality Planning
Corporation, sem m.a. gefur trygginga-
félögum ráð varðandi áhættumat ýmissa
hópa, gerði umrædda könnun. Var safnað
upplýsingum um alls milljón slys, allt frá
minniháttar óhöppum yfir í dauðaslys og nið-
urstöðurnar notaðar til að kanna tíðnina hjá
40 viðmiðunarhópum. Lengi hefur verið vit-
að að tíðnin væri há hjá ungu fólki og í ljós
kom að á hálfu ári lentu 15% háskólanema í
umferðarslysi. En hjá læknum var hlutfallið
11% og hjá lögfræðingum litlu lægra. Lægst
var tíðnin hjá bændum.
Íraskar stúlkur með diska sína í biðröð við súpueldhús í grennd
við Abdul Kadr-mosku súnníta í Bagdad í gærkvöldi áður en
kvöldmáltíðin, er nefnist Iftar, hefst. Hinn heilagi föstumánuður
íslams, ramadan, er nú hafinn og mega sanntrúaðir múslímar þá
ekki neyta matar eða drykkjar og ekki heldur njóta ásta eða
reykja frá sólarupprás til sólarlags.
Reuters
Föstumánuður hafinn