Morgunblaðið - 01.11.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.11.2003, Blaðsíða 16
ERLENT 16 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ LÍKLEGA hefur aldrei áðurstaðið jafnmikill styr umVladímír Pútín, forsetaRússlands, en margir ala þann ugg í brjósti, að nýtt alræði sé í uppsiglingu í landinu. Um síðustu helgi var auðjöfurinn Míkhaíl Kho- dorkovskí handtekinn, sakaður um skattsvik og annað misferli, í fyrra- dag lögðu saksóknarar hald á meiri- hluta hlutafjár í fyrirtæki hans, olíu- félaginu Yukos, og nú hefur verið staðfest, að Alexander Voloshín, skrifstofustjóri Pútíns, hafi sagt af sér. Hafa þessi tíðindi valdið titringi á rússneskum fjármálamarkaði og miklu verðfalli í tvígang. Rússneskir fjármálamenn hafa til þessa verið einn helsti bakhjarl Pút- íns en þeir litu líka á Voloshín sem sinn mann meðal æðstu ráðamanna í Kreml. Hefur hann verið skrifstofu- stjóri Pútíns í hálft fimmta ár en var einnig valdamikill í tíð Borísar Jelts- íns þegar svokallaðir „ólígarkar“ auðguðust mjög á einkavæðingu rík- isfyrirtækja. Eru fréttaskýrendur sammála um, að með með brotthvarfi hans hafi orðið vatnaskil í Kreml. Þar sé kominn til valda nýr hópur, það er að segja fyrrverandi samstarfsmenn Pútíns innan rússnesku leyniþjónust- unnar, KGB. Þessi breyttu valdahlutföll hafa kynt undir þeim áhyggjum, að í for- setatíð Pútíns sé verið að snúa þróun- inni í Rússlandi við. Síðustu óháðu sjónvarpsstöðinni var lokað í júní og greinilegt er, að lýðræðið á undir högg að sækja. Sýndi það sig í kosn- ingunum í Tétsníu og í St. Pétursborg en þar voru sigurvegararnir, fram- bjóðendur hollir Pútín, sakaðir um margvíslegt misferli, hótanir og fals- anir. Andrej Píontkovskí, óháður stjórn- málaskýrandi, segir, að með brott- hvarfi Voloshíns sé aðeins einn valda- hópur í Kreml, KGB-mennnirnir fyrrverandi sem einnig eru kallaðir „Tsjekistar“. „Tsjekistarnir vilja verða ríkir“ „Uppbygging alræðiskerfisins er komin vel á veg. Efnahagslífið mun þróast mjög hægt en einkaeignarrétt- urinn verður ekki afnuminn vegna þess, að Tsjekistarnir vilja líka verða ríkir,“ segir Píontkovskí og hann spá- ir því, að áhersla Pútíns á náin sam- skipti við Bandaríkin og Vesturlönd muni minnka „vegna þess, að það var Voloshín og hópurinn kringum hann, sem barðist fyrir henni“. Pútín hefur þegar skipað Dmítrí Medvedev sem eftirmann Voloshíns en Medvedev stundaði nám við sama háskóla og Pútín og er einn úr þeim stóra hópi, sem Pútín kom með til Moskvu frá St. Pétursborg. Áður en aðförin að Khodorkovskí hófst var hann að mati Forbes-tíma- ritsins ríkasti maður Rússlands og einkaauður hans metinn á rúmlega 600 milljarða ísl. kr. Fréttir voru um, að hann ætlaði að selja Mobil Exxon og Chevron Texaco hlut í Yukos og talað var um, að hann hygðist leggja olíuleiðslu til Kína. Ýmsar kenningar eru uppi um hvers vegna hann var handtekinn en flest bendir til, að ástæðan sé stuðningur hans við tvo stjórnarandstöðuflokka. Sagt er, að þegar Pútín kom til valda fyrir þremur árum, hafi hann boðið „ólígörkunum“ upp á þennan samning: Skiptið ykkur ekki af pólitík og við munum gleyma ykkar gömlu syndum. Khodorkovskí hélt ekki samning- inn. Hann studdi opinberlega tvo stjórnarandstöðuflokka og ekki bætti úr skák fyrir honum, að farið var að Áhyggjur af vaxandi alræði í Rússlandi AP Tvær skúringakonur spjalla saman við mynd af Míkhaíl Khodorkovskí, að- aleiganda olíufélagsins Yukos, í höfuðstöðvum þess í Moskvu. Margir telja, að aðför rússneskra stjórn- valda að auðjöfrinum Míkhaíl Khodorkovskí sé til marks um aukna einræðistilburði og sýni vel áhrif hins nýja valdahóps í Kreml, KGB-mannanna fyrrverandi. Sagt er, að þeir ætli sér ekki aðeins að endurheimta auðinn, sem útdeilt var í forsetatíð Jeltsíns, heldur einnig að vinda ofan af áherslunni á náin samskipti við Vesturlönd. DR. Howard Tolley er prófessor í stjórnmálafræði og aðjúnkt í lög- fræði við háskólann í Cincinnati í Bandaríkjunum, en er þetta miss- erið gestaprófessor á vegum Ful- bright-stofnunarinnar við háskólann í Nijmegen í Hollandi. Yfirskrift fyr- irlesturs Tolleys var „Pax Americ- ana and Human Rights: U.S. Secu- rity Strategy and the Rule of Law“, en hann var haldinn á vegum félags- vísindadeildar Háskóla Íslands, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála. Í fyrirlestrinum gerði Tolley greiningu á þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna eins og hún birtist í þar að lútandi plaggi sem ríkisstjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta kynnti í september 2002, en hún var unnin í kjölfar hryðjuverkanna 11. september 2001. Tolley athugaði hvernig nýja þjóðaröryggisstefnan rímaði við nokkrar grundvallar- reglur alþjóðlegrar mannréttinda- löggjafar, þ.á m. réttinn til lífs og friðar, réttinn til sjálfsákvörðunar og réttinn til íhlutunar í mannúðar- skyni. Í þjóðaröryggisstefnunni – eða Bush-kenningunni eins og hún er gjarnan kölluð – eru grundvallar- atriði stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna viðurkennd, en skýrt kveð- ið á um að Bandaríkin áskilji sér rétt til einhliða, fyrirbyggjandi aðgerða, jafnvel hernaðaríhlutunar, þegar bandarísk stjórnvöld telja að þeirra sé þörf eða öryggi Bandaríkjanna ógnað. Eins og fundarstjórinn Lilja Hjartardóttir stjórnmálafræðingur tók fram sköpuðust við lok kalda stríðsins tækifæri til að endurskoða og taka á vanmætti hins alþjóðlega lagakerfis til að varðveita frið og mannréttindi, en vert sé að spyrja hvernig þau hafi nýtzt. Tolley rakti hvernig viðurkennt var að hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 hefðu verið glæpir gegn mannkyni, skv. skilgreiningu alþjóðalaga. Aðgerðirnar sem Bandaríkjamenn gripu til, í banda- lagi við aðrar þjóðir, í Afganistan, hefðu samkvæmt þessu verið lög- mætar að alþjóðalögum. Hitt væri eins skýrt, að hernaðaríhlutunin í Írak hefði ekki samræmzt alþjóða- lögum, þar sem fyrir þeim hefði ekki legið ótvírætt samþykki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna – og reyndar heldur ekki Bandaríkjaþings. Spurð- ur nánar út í þetta sagði Tolley að rök mætti færa fyrir því að með nýju ályktuninni um Íraksmálin, sem samþykkt var í öryggisráði SÞ á dögunum, hefði alþjóðasamfélagið lagt eftiráblessun yfir aðgerðirnar, sem breytti þó engu um ólögmæti þeirra í upphafi. Tolley lýsti efasemdum um hygg- indi þess til lengri tíma litið að Bandaríkjastjórn taki sér rétt til að breyta þeim reglum sem viðtekin al- þjóðalög kveða á um, að því er varð- ar „fyrirbyggjandi“ hernaðarað- gerðir gegn öðru ríki. Einu tilfellin þar sem slíkar aðgerðir hafa haft til- kall til þess að teljast lögmætar sam- kvæmt hefðbundnum þjóðarétti er ef ógnin sé mikil og yfirvofandi. Nú hafi Bandaríkjastjórn skapað for- dæmi, sem gæti komið þeim í koll þegar fram í sækir og grafið undan agandi virkni alþjóðalöggjafar á „Bush-kenningin“ getur komið Banda- ríkjamönnum í koll Bandaríski stjórnmála- og lögfræðingurinn Howard Tolley, sérfræðingur í mannréttinda- málum, hélt erindi um öryggisstefnu Bandaríkj- anna í ljósi alþjóðalaga í Norræna húsinu á fimmtudag. Auðunn Arnórsson ræddi við hann. BANDARÍSK fyrirtæki, sem hafa fengið samninga að andvirði millj- arða dollara vegna uppbyggingar- innar í Írak og Afganistan, lögðu verulegt fé í kosningasjóð George W. Bush Bandaríkjaforseta fyrir for- setakosningarnar árið 2000. Margir af þessum samningum voru gerðir án útboðs. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu óopinberrar stofnunar, Center for Public Integrity, sem rannsakar fjárhagsleg tengsl fyrirtækja og stjórnmálamanna. Stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að tugir fyrir- tækja, sem fengu samninga vegna uppbyggingarinnar, hefðu reitt fram fé í kosningasjóði í Bandaríkjunum og að George W. Bush hefði fengið meira af þessu fé en nokkur annar frambjóðandi frá 1990 – um hálfa milljón dollara (38 millj. kr.). Fyrirtækin sem fengu tíu stærstu samningana í Írak og Afganistan höfðu lagt fram um milljón dollara (76 millj. kr.) á ári í sjóði stjórnmála- flokka, frambjóðenda og pólitískra hreyfinga frá 1990. Stofnunin rakti slík fjárframlög að andvirði alls 49 milljóna dollara (3,7 milljarða kr.) til meira en 70 fyrir- tækja sem hafa fengið samninga að andvirði átta milljarða dollara (608 milljarða kr.) vegna uppbyggingar- innar í Írak og Afganistan á árunum 2002–2003. Repúblikanar fengu 12,7 milljónir dollara og demókratar 7,1 milljón. Skýrsluhöfundarnir fjalla m.a. um olíufyrirtækið Halliburton, sem Dick Cheney varaforseti veitti áður for- stöðu. Fyrirtækið fékk samninga í Írak að andvirði rúma 1,7 milljarða dollara (130 milljarða kr.) og gert er ráð fyrir því það fái hundruð milljóna dollara til viðbótar vegna samnings sem herinn hyggst gera án útboðs. Tveir þingmenn demókrata, Henry Waxman og John Dingell, hafa sakað Halliburton um að hafa sett upp alltof hátt verð fyrir bensín sem fyrirtækið hefur flutt frá Kúveit til Íraks. Þeir segja að Bandaríkja- stjórn hafi greitt 2,65 dollara að meðaltali fyrir gallonið (3,785 l) en sérfræðingar hafi sagt þinginu að það ætti að kosta um það bil dollar. Reuters Bíll bandarískra hermanna skreyttur leikfangakrókódíl í íraska þorpinu Awja, nálægt borginni Tikrit. Fjárframlög verktaka í Írak til stjórnmálamanna Fyrirtækin voru örlátust við Bush Washington. The Washington Post, AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.