Morgunblaðið - 01.11.2003, Blaðsíða 17
tala um hann sem hugsanlegan for-
seta Rússlands 2008. Sama ástæða
virðist vera fyrir aðförinni að tveimur
öðrum „ólígörkum“, þeim Vladímír
Gúsínskí og Borís Berezovskí, sem
báðir eru í útlegð.
Gúsínskí átti sjónvarpsstöðina
NTV, sem flutti oft fréttir óhagstæð-
ar stjórnvöldum, og Berezovskí var
líka umsvifamikill í fjölmiðlaheimin-
um. Báðir sýndu þeir áhuga á stjórn-
málum. Aðrir auðjöfrar eins og þeir
Vladímír Potanín, Míkhaíl Friedman
og Roman Abramovítsj, eigandi
knattspyrnufélagsins Chelsea, hafa
gætt sín betur og verið látnir í friði,
hingað til að minnsta kosti.
Sú ástæða er raunar líka nefnd fyr-
ir handtöku Khodorkovskís, að hann
hafi ætlað að selja bandarískum olíu-
félögum hlut í Yukos og þar að auki
innleitt vestrænar stjórnunaraðferðir
í fyrirtæki sínu með aukinni upplýs-
ingagjöf og gegnsæi. Áhrif ráða-
mannanna í Kreml byggjast hins veg-
ar á því að farið sé eftir gömlu,
rússnesku leikreglunum, sem byggja
á leynd og baktjaldamakki.
Khodorkovskí og tveir nánir sam-
starfsmenn hans, Platon Lebedev og
Vasílí Shakhnovskí, eru sakaðir um
að hafa svikið ríkið um 76 milljarða
kr. í skatta og saksóknarar segja, að
meirihluti hlutafjár í Yukos hafi verið
frystur til að tryggja hagsmuni rík-
isins verði þeir fundnir sekir. Um leið
er öllum hluthöfum bannað að selja
sín bréf en talsmaður Yukos, Alex-
ander Shadrín, segir, að það sé ekkert
annað en gróft lögbrot.
Á fimmtudag tilkynnti Shadrín, að
hluthöfum í fyrirtækinu yrðu greiddir
152 milljarðar kr. í arð og er hlutur
Khodorkovskís af þeim áætlaður 55,5
milljarðar kr.
Spáir fjármagnsflótta
Þessir atburðir hafa ekki aðeins
valdið ótta á rússneska fjármála-
markaðinum, heldur einnig meðal er-
lendra fjárfesta. Financial Times seg-
ir, að franska matvælafyrirtækið
Danone hafi frestað yfirtöku á rúss-
neska matvælafyrirtækinu Wim-Bill-
Dan og Jevgení Jasín, efnahagsmála-
ráðherra í tíð Jeltsíns, segist óttast
fjármagnsflótta frá Rússlandi.
„Frysting hlutabréfanna í Yukos
verður notuð sem átylla fyrir því að
selja þau og koma þeim aftur í hendur
þeirra, sem upphaflega stóðu að út-
deilingunni,“ sagði Jasín í viðtali við
Interfax-fréttastofuna. „Röðin mun
koma að öðrum en ekki strax. Úlf-
urinn þarf tíma til að melta fyrsta
fórnarlambið.“
Júlía Latínína, pólitískur frétta-
skýrandi við Echo, útvarpsstöð í
Moskvu, segir, að Pútín sé nú í gísl-
ingu KGB-mannanna. Með því sé
hann í raun að taka sína eigin gröf,
jafnvel þótt almenningur hati auðjöfr-
ana og styðji aðförina að þeim.
„Þegar olíuverðið lækkar og fjár-
magnsflóttinn hefst fyrir alvöru, er
ekki víst, að stuðningurinn við hann
verði mikill. Auðjöfrarnir hljóta að
vera búnir að átta sig á, að það að vera
þægur og góður þýðir bara, að þeir
verði étnir síðast.“
’ Röðin mun komaað öðrum en ekki
strax. Úlfurinn þarf
tíma til að melta
fyrsta fórnarlamb-
ið. ‘
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 17
LENGRI sumur valda því, að Norð-
uríshafshellan þynnist og minnkar,
og er þetta alvarleg ógn við ís-
bjarnastofninn, að því er vís-
indamenn greindu frá í gær. Þetta
var í annað sinn á innan við viku
sem varað var við þeirri ógn er
steðjar að íshellunni á norðurhjar-
anum.
Breskir vísindamenn könnuðu
gögn sem safnað var með tveim
gervihnöttum og mátu þykkt íshell-
unnar sem þekur norðurheim-
skautssvæðið á átta ára tímabili.
Var niðurstaða þeirra sú, að þótt ís-
inn hafi í heild þynnst um 40% síðan
á sjöunda áratugnum geti þykktin
verið mjög breytileg á einu ári og
einnig frá einu ári til annars.
Meðalþykkt íshellunnar á vet-
urna á tímabilinu 1993-2001 var
rétt tæplega þrír metrar, en á til-
teknu tímabili gat þykktin verið allt
að 25 sm meiri eða minni. Á einu ári
getur þykktin verið breytileg um
allt að 16 prósent. Þetta er um 50%
meiri breytileiki en fyrri tölvulíkön
hafa sýnt.
Við gerð þeirra hefur jafnan ver-
ið gengið út frá því, að breytingar á
hafstraumum og vindum valdi álagi
á ísinn og séu þannig orsakir
breytileikans. En samkvæmt nýju
rannsókninni vega þessir þættir
ekki nærri eins þungt og hækkun
hitastigs í andrúmslofti jarðar.
Niðurstöður nýju rannsóknar-
innar sýndu, að breytileg lengd
sumarhláku, sem orsakast af hærra
hitastigi sjávar frá apríl til septem-
ber, endurspeglar breytileikann í
þykkt íshellunnar. Einnig kemur
fram, að til lengri tíma litið hefur
hlákutíðin smám saman verið að
lengjast, jafnhliða þynningu íshell-
unnar.
Styttist veturinn getur það haft
afdrifaríkar afleiðingar fyrir ís-
birni, sem reiða sig á íshelluna til
að geta veitt sel sér til viðurværis,
segir í niðurstöðum rannsóknar-
innar. Fari ísinn að brotna upp fyrr
geta birnirnir ekki veitt sel eins
stóran hluta ársins og þeir hafa get-
að.
Niðurstöðurnar birtust í vísinda-
ritinu Nature í gær, en aðalhöfund-
ur rannsóknarinnar er Seymor
Laxon við Miðstöð heimskautaeftir-
lits og líkanasmíðar við University
College í London.
Fyrir viku birti bandaríska geim-
vísindastofnunin, NASA, gervi-
tunglamyndir sem sýna, að íshellan
á norðurskautssvæðinu hefur
minnkað um 10% á hverjum áratug
undanfarinn aldarfjórðung. Einnig
greindi stofnunin frá því, að sá hluti
íshafsins sem er frosinn árið um
kring hefði aldrei verið minni en í
ár og í fyrra.
Í niðurstöðum NASA er orsökin
sögð vera hækkun hitastigs í and-
rúmslofti jarðar, og tekið er fram,
að Norður-Íshafið og landið um-
hverfis það hafi hitnað að meðaltali
um eina gráðu á undanförnum ára-
tug.
Auk þeirra áhrifa sem bráðnun
íshellunnar hefur á dýralíf getur
hún haft áhrif á hafstrauma, og
samkvæmt sumum kenningum gæti
hún til dæmis dregið úr styrk Golf-
straumsins. En bráðnunin mun ekki
hafa áhrif á hæð yfirborðs sjávar
því að íshellan á norðurskautssvæð-
inu er hafís, það er að segja, flýtur
á sjónum og tekur því sama særými
og væri hann fljótandi.
Þetta á aftur á móti ekki við um
ísinn á Suðurskautinu. Hann liggur
að mestu á landi – og er auk þess
margfalt þykkri en ísinn á norður-
skautssvæðinu – og ef hann bráðn-
ar myndu milljarðar tonna af vatni
bætast í sjóinn og þá myndi hætta
steðja að láglendi.
Tvær rannsóknir sýna þynningu norðurskautsíshellunnar
Hlýnun andrúmsloftsins
talin helsta ástæðan
!"#$%&&
%'
& & & &( &) &* && %
(
(
!"#$
# +
& & & &( &) &* && %
(
(
(
(
(*
)
)(
*
*
'
+
,
-#
.
#/
. /
$1
!"
#
$
2
0
###
/
0
$"# -" /
#-##
#
#/
/
$
0 #
3
4
5
6
París. AFP.
þessu sviði og þar með undan frið-
vænleika í heiminum.
Meðhöndlun Guantanamo-
fanga brot á Genfarsáttmála
Tolley staðfesti einnig aðspurður
að meðhöndlun bandarískra yfir-
valda á föngunum úr stríðinu í
Afganistan, sem haldið er í Guantan-
amo-búðunum á Kúbu, sé skýlaust
brot á Genfarsáttmálanum um
stríðsfanga. Ljóst sé að fangana beri
að skilgreina sem stríðsfanga og til-
raun bandarískra stjórnvalda til að
skilgreina þá einhvern veginn öðru
vísi, til að ákvæði alþjóðalaga eigi
ekki við um meðhöndlun þeirra, geti
og muni líklega koma Bandaríkja-
mönnum í koll, fyrr eða síðar. Að
ætlast til að aðrir fari eftir reglum
sem sá sterkasti telur sig ekki þurfa
að virða sé ábyrgðarhlutur.
„Dramb er falli næst,“ segir Tol-
ley um viðleitni núverandi valdhafa í
Washington til að neyta þeirrar yfir-
burða valdastöðu sem Bandaríkin
njóta um þessar mundir í heiminum
til að fara aðeins eftir alþjóðalögum
þegar það hentar þeim. „Hver ný
kynslóð verður upp á nýtt að svara
spurningunni: helga markmiðin
meðölin?“ segir dr. Howard Tolley.
Morgunblaðið/Kristinn
Dr. Howard Tolley í ræðustól í Norræna húsinu, með dæmi um áróður
bandarískra gagnrýnenda „Bush-kenningarinnar“ í bakgrunni.
FYRRVERANDI fjármálaráðherra
Bretlands, Kenneth Clarke, sagðist í
gær ekki ætla að keppa við Michael
Howard um leiðtogahlutverkið í
Íhaldsflokknum, að því er breska
ríkisútvarpið, BBC, greindi frá.
Clarke gaf úr þessa yfirlýsingu fyrir
utan heimili sitt í Lundúnum í gær-
morgun. Hann og Howard áttu fund
í þinghúsinu í fyrrakvöld, og búist er
við að þeir fundi á ný.
Clarke er Evrópusinni og talinn
þungavigtarmaður í Íhaldsflokkn-
um. Vantraust var samþykkt á frá-
farandi flokksleiðtoga, Iain Duncan
Smith, á miðvikudaginn. Frestur til
að tilkynna framboð vegna leiðtoga-
kjörsins rennur út á fimmtudaginn í
næstu viku og komi fram fleiri fram-
boð en eitt verður fyrsta umferð
kjörsins meðal þingmanna þriðju-
daginn 11. nóvember.
Michael Portillo, fyrrverandi
varnarmálaráðherra, hefur lýst yfir
því að hann bjóði sig ekki fram og
sagst styðja Howard. Spáði Portillo
því í viðtali við BBC-útvarpið að eng-
inn færi fram gegn Clarke. Nánir
samverkamenn Johns Redwoods,
sem bauð sig fram gegn John Major
á sínum tíma, segja að hann fari ekki
fram heldur. Þá hefur Theresa May
einnig útilokað framboð, hún segir
að sem flokksformaður vilji hún
halda hlutleysi.
Clarke ekki fram
Reuters
Clarke setur upp hattinn eftir að
hafa rætt við fréttamenn í gær.
NORSKUR prófessor í nær-
ingarfræði, Kaare R. Norum,
vill að bannað verði að selja
pylsur og sælgæti á bensín-
stöðvum, að sögn Aftenposten.
Norum er sagður hafa haldið
fyrirlestur á offituráðstefnu í
Ósló á miðvikudag og varpað
þar fram hugmynd sinni.
„Það er búið að breyta bens-
ínstöðvum í stöðvar fyrir
heilsuspillandi mat,“ segir Nor-
um. Hann segist vita ofur vel að
hugmyndin um bann sé fárán-
leg en hann viðri hana til að ýta
undir umræður. „Það er ekkert
að því að fá sér öðru hverju
pylsu. En sala á óhollum mat
hefur aukist gríðarlega.“
Fulltrúar olíufélaganna vísa
hugmynd Norums á bug og
segja út í hött að taka upp
neyslustýringu af þessu tagi.
Vill banna
pylsurnar