Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 48

Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 48
48 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ                           BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í UPPHAFI var Hinn Eini. Og Hinn Eini svaf á sínu græna eyra. Og allt var harla gott. Þar til einn dag að Hinn Eini rumskaði. Og þegar Hann hafði vaknað almennilega af svefni sínum og opnað augun kvað við úr munni Hans: „Ég er aleinn! Ég hef ekkert til að veita mér félagsskap, ekkert til að tala við, og verst af öllu: ekkert til að elska!“ Svo mælti Hinn Eini og fallandi á kné sér byrgði hann augu sín hönd- um og grét sáran. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Hinum Eina hug- kvæmdist allt í einu að skapa neista af sjálfum sér sem Hann gæti átt samneyti við og skipst á gagnkvæmri elsku. Og þetta gerði Hinn Eini. Skóp hann neistana í óteljandi mörgum lit- brigðum. Og þeir elskuðu skapara sinn og hann þá. Og allt varð harla gott á ný. Þar til upp kom kurr nokkur meðal neistanna. Einn þeirra mælti: „Vissu- lega er vistin hjá föður/móður [því Hinn Eini var og er kynlaus] vorri dásamleg og unaðsleg. En hversu yndisleg sem hún er svalar hún ekki dýpstu þrá hjartna vorra, sem er að veita ást af fúsum og frjálsum vilja. Meðan ekkert er til utan kærleiks- faðmur föður vors og móður þá get- um við ekki valið um neitt: við eigum engra kosta völ nema að elska. Og slík ástúð er engin raunveruleg ást- úð, því kærleikurinn verður að vera valinn sem einn fjölmargra kosta – annars er hann dauður og ómerkur. Hafandi mælt þetta kváðu við húrrahróp frá öllum hinum neistun- um. En Hinn Hæsti kvað við sorg- mæddur: „Á ég þá að segja skilið við ykkur, börnin mín sem ég ann svo of- urheitt? En allt í lagi, ef ykkar vilji stendur staðfastur til þessa þá skal ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að uppfylla þessa þrá ykkar sem er jú aðeins endurspeglun kvalanna sem ég mátti líða er ég uppgötvaði einstæðingsskap minn.“ Og Hinn Hæsti tók til við að skapa börnum sínum skilyrði til að veita og þiggja ótilneydda fullkomna elsku. Hann skapaði efnisheiminn (and- stæðu sína) og setti honum lögmál til að neistarnir hefðu eitthvað sem reiða mætti sig á. Og þegar sköpun- inni var lokið eftir milljarði ára fóru neistarnir frá Guði og bjuggu um sig í grófum efnislíkömum. Og þar með hófst leikurinn mikli: að slíta af sér klafa efnisins og veita og þiggja af skapara sínum ótakmarkaðan og ótil- neyddan kærleika. Já, lesandi kær. Þú kannt að líta á allt ofantalið sem tómt húmbúkk og þvaður. Fínt er. Að taka afstöðu er til alls fyrst og ef afstaðan er í stöðugri gerjun og mótun mun hún að endingu leiða upp til Sannleikans háu hallar. Lifið heilir, samneistar kærir! Megi allt verða harla gott á ný! SVANUR KRISTJÁNSSON, prófessor við HÍ. Lífsgátan leyst Frá Svani Kristjánssyni Í ALÞINGISKOSNINGUNUM í vor urðu þau tíðindi að margt ungt fólk náði kjöri til Alþingis og að talningu atkvæða lokinni risu tveir turnar upp úr í kjörfylgi – turn Samfylkingarinn- ar og turn Sjálfstæðisflokksins. Auk þess gerðist það að fjórflokkakerfið brast í fyrsta sinn á lýðveldistíman- um. Trúlega munu þau tíðindi teljast mest í stjórnmálasögunni og að þau voru ekki notuð í kosningabaráttunni þó að á stökum stað slægi vinstri- stjórnarglýjunni fyrir. Undir jómfrúarræðum ungu þing- mannanna, sem margir biðu eftir með forvitni, varð margt fólk fyrir miklum vonbrigðum. Unga fólkið féll hvað um annað í þessari pólitísku manndóms- vígslu og ræðurnar voru leiðréttar og snyrtar framboðsræður og enginn flytur nema einu sinni sína jómfrúar- ræðu á elsta þinginu. Aldrei höfðu ný- ir þingmenn haft annan eins efnivið. Ný öld. Nýlokið atburðarás sem þjappaði heiminum saman á einum degi. Ný öld þegar sameiginlegur ótti mannkynsins læsti sig um heims- byggðina. Dagar sem engan hafði ór- að fyrir. Þegar forystumenn allra sterkustu stórveldanna annaðhvort fleygðu hálflesnum áróðursræðum eða flugu með hraðfleygustu flugvél- um hver í fangið á öðrum í sameig- inlegum ótta um eigið líf og féllust á sviptingu mannréttinda og fangelsan- ir án dóms en eftir sjónmati. 270 millj- óna „stórveldi“ sem safnað hefur magninu af eignum heimsins inn í peningahólf um allan heiminn var nú hrætt við að deyja og almenningur í Bandaríkjunum sá nú í fyrsta sinn með eigin augum sprengju „óvinar“ koma ofan úr loftinu og lenda á „Guðs eigin landi“. Í þessari stöðu komu ungu þing- mennirnir til setu á elsta löggjafar- þingi heimsins. Hátt á annan tug nýrra þingmanna hafði ekki vilja til að nota jómfrúarræðu sína til að kynna hugmyndir sínar um hin raun- verulegu verkefni mannkynsins á næstu árum og áratugum. Nýtt gild- ismat til að geta haldið jörðinni í byggð. Nýlega fengu ungu þingmennirnir svo fyrstu kennslustund hinna eldri á þinginu. Öryrkjaumræða tvö. Þrátt fyrir málstaðinn getur slík notkun orðanna leitt til falls lýðræð- isins. Kannski þurfa íslenskir stjórn- málamenn að snúa bökum saman. Það gera þeir þegar allir deila sam- eiginlegum ótta um líf sitt og lífið á jörðinni. Um þetta snúast stjórnmál í dag. HRAFN SÆMUNDSSON, fyrrv. atvinnumálafulltrúi. Ætla þingmenn að jarða lýðræðið? Frá Hrafni Sæmundssyni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.