Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 11
Mikið úrval af jólafötum
Markmið námskeiðsins er að gefa konum
tækifæri til að ræða mál sín og fá
uppörvun til að ganga gegnum erfiðar
tilfinningar inn í frelsi og gleði nýrra möguleika.
Námskeiðið er 4 mánudagskvöld
frá kl. 17.30-19 og byrjar 3. nóv.
Innritun á staðnum.
Kvennakirkjan • Laugavegi 59 • s. 551 3934
Lífið eftir skilnað
skerðingu sína á bótum til atvinnu-
lausra.“
Össur fór einnig inn á efnahags-
málin og sagði að samstaða sem
náðst hefði um „stórframkvæmdir
fyrir austan og víðar gæti skapað
hófstillt og töluvert langvinnt hag-
sældarskeið,“ þ.e. ef vel tækist til
með hagstjórn. Hann sagði að það
væri fyrst og fremst í hendi stjórn-
valda að vinna úr þessum aðstæðum
en aðhald og eftirlit sterkrar stjórn-
arandstöðu skipti einnig máli. „Sam-
fylkingin hefur því ábyrgðarfullu
hlutverki að gegna við þróun efna-
hagslífsins. Það þýðir ekki að við
þurfum að slá af hugsjónum okkar
og sterkum umbótavilja. Það þýðir
ekki að við munum ekki setja fram
kröfur um að ávinningum velsæld-
arskeiðsins verði deilt með rétt-
látum hætti til þeirra, sem minnst
mega sín og mest þurfa á liðsinni að
halda. Það þýðir hins vegar að við
munum haga okkur eins og ábyrgt
landsstjórnarafl, eins og flokkur
sem ætlar, og mun, setjast í rík-
isstjórn við fyrsta tækifæri.“
Svigrúm fyrir fernt
Össur sagði að allar umbætur
Samfylkingarinnar og umbóta-
hugmyndir þyrfti að tímasetja með
tilliti til þess hvernig hægt væri að
beita hagstjórninni „til að ná sem
mestu út úr þeim einstöku tækifær-
um sem nú eru framundan í efna-
hagslífinu,“ eins og hann orðaði það.
„Takist það, þá á að skapast á næstu
árum drjúgt svigrúm fyrir fernt: Í
fyrsta lagi hóflegar skattalækkanir
eins og Samfylkingi hefur boðað. Í
öðru lagi til að hrinda í framkvæmd
drjúgum hluta af þeim umbótum í
velferðarmálum sem Alþýðu-
samband Íslands hefur rökstutt svo
vel. Í þriðja lagi að rétta hlut sveit-
arfélaganna og undirbúa frekari til-
færslur á verkefnum til þeirra. Og í
fjórða lagi að ráðast í það sem Sam-
fylkingin telur úrslitaatriði um vel-
sæld framtíðarinnar, en það er að
stórefla fjárfestingar í menntun.“
Össur sagði að þetta allt gæti orðið
ávinningurinn ef ólíkum öflum á
vinnumarkaði og á stjórnmálasvið-
inu tækist að stilla saman strengi.
„Samfylkingin vill taka þátt í slíku
þjóðarátaki.“
EES ekki til frambúðar
Össur vék einnig að samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið.
„EES-samningurinn gengur nú í
gegnum hverjar hremmingarnar á
fætur öðrum. Nú síðast hafa Liech-
tenstein-búar tekið samninginn í
gíslingu vegna óskiljanlegrar eigna-
þrætu við Tékka og Slóvaka. Upp-
bygging samningsins er þannig að
25 þúsund manna ríkið Liechten-
stein getur haldið markaðsaðgengi
og þar með afkomu Íslands og Nor-
egs í fullkominni óvissu vegna
óskylds máls. Við það óröyggi er
ákaflega erfitt að búa. Þetta undir-
strikar veikleika EES-samnings-
ins.“
Össur sagði að þetta skýrði betur
en flest annað að við gætum ekki
byggt á EES-samningnum til fram-
búðar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um 700 þingfulltrúar höfðu skráð sig á landsfund Samfylkingarinnar og var setið í hverju sæti í íþróttahúsi Hauka
að Ásvöllum í gær. Að lokinni setningarhátíð og ræðu formanns voru fjölmennar umræður í fjórum málstofum.
STJÓRN Félags íslenskra leikara
hefur sent frá sér eftirfarandi opið
bréf til fulltrúa á landsfundi Sam-
fylkingarinnar:
„Ágæti Samfylkingarfélagi.
Eins og kunnugt er hefur Leik-
félag Reykjavíkur átt við gífurlegan
fjárhagsvanda að etja. Stöðugildum
leikara hefur fækkað úr 28 fastráðn-
um leikurum niður í 13. Lausráðnir
leikarar höfðu u.þ.b. 15 stöðugildi á
ári en hafa nú 10. Fastráðnir leik-
mynda- og búningahöfundar finnast
ekki lengur. Fjöldi annarra starfs-
manna leikhúsins hefur misst vinn-
una. Þetta er gífurleg blóðtaka fyrir
leikhúslistamenn á Íslandi sem hing-
að til hafa ekki haft of mikið starfs-
öryggi. Núverandi ráðamenn borg-
arinnar hafa kosið að loka augum
sínum fyrir því mikilvæga hlutverki
sem Borgarleikhúsið gegnir sem
annar stærsti vinnuveitandi lista-
manna á Íslandi.
Borgarleikhúsið er glæsilegasta
og best búna leikhús landsins og
þrátt fyrir að síðasta leikár hafi tek-
ist afar vel og áhorfendur á leiksýn-
ingar og aðra viðburði í Borgarleik-
húsinu hafi verið á annað hundrað
þúsund manns þá dugar það ekki til.
Samningur Leikfélags Reykjavíkur
og Reykjavíkurborgar er til ársins
2012 og hafa stjórnendur LR gert
sem í þeirra valdi stendur til að upp-
fylla samninginn, en allt kemur fyrir
ekki, borgaryfirvöld eru ekki til við-
tals um lagfæringu á framlagi borg-
arinnar. Við segjum lagfæringu því
framlagið er of lágt.
Í tíð fyrrum borgarstjóra ríkti
gagnkvæmur skilningur og þegar sá
mikli vandi sem við blasti var ljós þá
fékk þáverandi borgarstjóri sam-
þykki borgarráðs fyrir aukafjárveit-
ingu og vildi í framhaldi af því skoða
málið og finna viðunandi lausn því að
samningurinn væri greinilega óhag-
stæður Leikfélagi Reykjavíkur. Ef
sú aukafjárveiting sem var veitt af
fyrrum borgarstjóra fengist til fram-
búðar væru störf fjölda listamanna
tryggð, sem og öflugt listrænt starf í
Borgarleikhúsi.
Borgarleikhúsið er einn af þremur
vinnuveitendum leikhúslistamanna
sem greiðir laun skv. kjarasamn-
ingum. Ef leiklist á að þrífast á Ís-
landi er nauðsynleg að viðhalda öfl-
ugu Borgarleikhúsi.
Við skorum á þig, kæri samfylk-
ingarfélagi, að þrýsta á fulltrúa þína
hjá R-listanum svo að borgaryfirvöld
hefji alvöru viðræður við stjórnendur
Leikfélags Reykjavíkur með það að
takmarki að tryggja áframhaldandi
rekstur öflugs leikhúss og listastofn-
unar í Borgarleikhúsi.
Með fyrirfram þökk og ósk um
góðan landsfund,
stjórn Félags íslenskra leikara,
Randver Þorláksson,
Edda Arnljótsdóttir,
Valur Freyr Einarsson,
Jóna Guðrún Jónsdóttir og
Helga I. Stefánsdóttir.“
Opið bréf til fulltrúa á landsfundi
Samfylkingarinnar
Borgaryfirvöld
hefji alvöru við-
ræður við LR
fjölmiðla er upplýsa um mál er varða
almannahagsmuni.
Lagt er til að tekið verði upp í
stjórnarskrána ákvæði um að
stjórnmálaflokkarnir taki þátt í
skoðanamyndun þjóðarinnar, séu
lýðræðislega skipulagðir og gæti
lýðræðis innan sinna vébanda. Jafn-
framt að í stjórnarskrá verði kveðið
á um skyldu þeirra til að gera grein
fyrir fjárreiðum sínum.
Baráttumál Samfylkingarinnar er
að tryggja stórauknar fjárfestingar í
menntun, jöfn tækifæri til mennt-
unar alla ævi og markvissar umbæt-
ur á öllum skólastigum. Fjölbreytt
og traust menntun sé grundvöllur
velferðar þjóðarinnar í alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi.
Í þessu ljósi, segir í drögum um
mennta- og menningarmál, vill
landsfundur að skólavist fimm ára
barna verði gjaldfrjáls með sama
hætti og grunnskólinn. Nýta skuli
betur fyrstu ár grunnskólans með
auknum áherslum á upplýsinga-
tækni, raungreinar, tungumál og
sköpun. Þá segir að útskriftaraldur
úr framhaldsskóla verði lækkaður
og kannaðir verði kostir þess og
gallar að börn hefji grunnskólanám
einu ári fyrr en nú sé.
Afnema ábyrgðar-
mannakerfi LÍN
Styrkja á stöðu pilta í skólakerf-
inu og efla stoðkerfi allra skólastiga
vegna fatlaðra nemenda og nem-
enda með sérþarfir eins og lestr-
arerfiðleika. Gera á sérstakt átak,
samkvæmt drögunum, til að tryggja
eðlilega námsframvindu þeirra
barna sem ekki hafa íslensku sem
fyrsta mál og íslenskra barna sem
lengi hafa búið erlendis.
Hafnað er skólagjöldum í öllu
námi í grunn- og framhaldsskólum
og í háskólum hins opinbera. Þá seg-
ir að endurskoða verði framfærslu-
grunn námsmanna sem liggi að baki
útreikningi námslánaþarfar. Af-
nema verði ábyrgðarmannakerfi
námslána í því skyni að tryggja fullt
jafnræði allra til að taka námslán,
óháð aðstæðum aðstandenda náms-
manna.
Landsfundur Samfylkingar vill
verja vaxandi hlutfalli af landsfram-
leiðslu til menntamála samkvæmt
drögum að ályktun og fjárfest verði í
víðtæku menntaátaki. Listnám og
nýsköpun verði aukin með því að
hlúa að skapandi starfi í grunn- og
framhaldsskólum, m.a. með skipu-
lögðu samstarfi við frumkvöðla,
lista- og vísindamenn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Margrét Frímannsdóttir, Jóna Dóra Karlsdóttir og eiginmaður hennar
Guðmundur Árni Stefánsson á landsfundi Samfylkingarinnar í gær.
Össur Skarphéðinsson gerði að-
búnað og kjör verkamanna við
Kárahnjúka að umtalsefni í ræðu
sinni á landsfundi Samfylking-
arinnar. Hann sagði að baráttan við
Kárahnjúka væri baráttan fyrir
grundvallarréttindum. „Við förum
ekki í grafgötur með að tapist hún
mun það leiða til gagngerra breyt-
inga á vinnumarkaði. Erlendar
starfsmannaleigur munu þá í
stórum stíl flytja inn fátækt verka-
fólk til að vinna erfiðustu störfin á
lágmarkstöxtum við lágmarks-
aðbúnað.“ Össur sagði að Samfylk-
ingin hefði sett málefni starfs-
mannaleigna og farandverkafólks á
dagskrá hjá EFTA. „Við höfum tek-
ið málið upp við systurflokka okkar
á Norðurlöndunum og ég flyt ykkur
nú þær fregnir að við munum taka
málið upp á vettvangi mannrétt-
indanefndar Evrópuráðsins í næsta
mánuði.“
Kárahnjúkadeil-
an til mannrétt-
indanefndar
LÚÐVÍK Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, sagði í ávarpi sínu
við upphaf landsfundar Samfylking-
arinnar í Hafnarfirði í gær að „rík-
isstjórn íhalds og framsóknar stæði
höllum fæti og hefði aldrei á sínum
ferli mætt veikari til þings en nú á
þessu hausti.“ Sagði hann að þá
stöðu yrði Samfylkingin að nýta
sem kostur væri.
Lúðvík sagði ennfremur að krafa
um samfylkingu jafnaðar- og fé-
lagshyggjufólks hefði alla tíð verið
skýr í hugum þjóðarinnar. „Sá lang-
þráði draumur er orðinn staðreynd
og sú staðreynd er ekki aðeins okk-
ar styrkur, heldur felur hún í sér
ríka skyldu gagnvart þjóðinni og
samfélaginu.“ Hann sagði að staða
og styrkur Samfylkingarinnar væri
meiri en margir gerðu sér grein
fyrir. „Við höfum á að skipa öflugri
og samhentari sveit þingmanna en
nokkru sinni fyrr. Við eigum jafn-
framt fjölmennari hóp sveit-
arstjórnarmanna en jafnan áður, og
kröftugt bakland félaga og stuðn-
ingsmanna um land allt. Þennan
styrk verðum við að nýta sem kost-
ur er.“
Lúðvík Geirsson
Ríkisstjórnin
stendur höllum fæti