Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 18

Morgunblaðið - 01.11.2003, Side 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund skapti@mbl.is Rýmt á þremur mínútum | Allir nem- endur og starfsmenn grunnskólans, alls 384, þustu út á skólalóð snemma einn morg- uninn í liðinni viku. Ver- ið var að æfa viðbrögð við bruna samkvæmt öryggisáætlun skólans og tókst að rýma bygg- inguna á tæpum þremur mínútum. Fyrst hringdi skólabjallan í 10 sekúndur og eftir það viðstöðulaust á meðan á æfing- unni stóð. Allir áttu að hlaupa út á inniskóm eða sokkunum og ekki var gefinn tími til að fara í yfirhafnir. Kennarar báru ábyrgð á þeim hópi sem þeir voru að kenna og sáu um að rýmingaráætlun væri fylgt. Þetta var í fyrsta sinn sem slík æfing er framkvæmd í skólanum, en héðan í frá verður hún æfð á hverju hausti. Æfingin tókst vel þótt einhver smávægilegir hnökr- ar hafi komið í ljós eins og t.d. hvort allir hafi heyrt nógu vel í bjöllunni. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Fagna vínbúð | Tvær vínbúðir verða opn- aðar á landinu á næsta ári. Annars vegar á Hólmavík og hins vegar á Kirkjubæj- arklaustri, að því er fram kom í fréttablaði ÁTVR. Þessari ákvörðun er fagnað á heimasíðu Skaftárhrepps, en þar segir: „Þessar fréttir eru jákvæðar fyrir íbúa sveitarfélagsins og ekki hvað síst fyrir ferðaþjónustuaðila. Slík verslun mun styrkja Kirkjubæjarklaustur sem versl- unar- og þjónustustað.“ Surtseyjarsýning | Dagana 14. og 15. nóvember verður 40 ára afmælis Surtseyjar minnst með sérstakri Surtseyjarsýningu í máli og myndum í Náttúrugripasafninu í Vestmannaeyjum. Það var að morgni 14. nóvember 1963 sem skipverjar á Ísleifi II veittu athygli mikilli ólgu og reyk á sjó þar sem þeir voru við veiðar 20 kílómetra suð- vestur af Vestmannaeyjum. Fljótlega kom í ljós að eldgos var hafið á 130 metra sjávar- dýpi. Á öðrum degi reis Surtsey úr sæ. Gos- ið stó með stuttum hléum í þrjú og hálft ár. Margrét H. Blöndalopnar sýningu íKunstraum Wo- hnraum á sunnudag kl. 11, en verkum hennar hefur verið lýst sem „jarðfræði heimilisins“. Kunstraum Wohnraum er sýning- arstaður sem starfræktur var í Hanover í Þýskalandi frá árinu 1994, en hefur verið fluttur til Akureyrar. Í nánustu framtíð verður hann í stofu/eldhúsi í Ása- byggð 2, en þar búa Krist- ín Kjartansdóttir og Hlyn- ur Hallsson. Þau ráku Kunstraum Wohnraum á heimili sínu í Hanover, á þremur stöðum þar í borg áður en þau fluttu aftur á heimaslóðir, og er sýning Margrétar fyrsta opnunin í nýjum heimkynnum sýn- ingarrýmisins. Nýtt gallerí Búðardal | Lögreglan í Búðardal hefur undanfarið heimsótt grunnskólann og spjallað við börnin. Jó- hann lögregluvarðstjóri fer í bekkina með fræðslu- efni sem lögreglan hefur gefið út og fjallar um hin ýmsu málefni eins og framkomu okkar við aðra, hvernig best er að bregðast við stríðni. Þá eru teknir fyrir góðir siðir og hvernig ber að haga sér í leik og starfi, að vera jákvæður og umburð- arlyndur. Það er ekki annað að sjá en börnin hafi mjög gaman af þessu og eru virk í umræðu um þessi málefni sem snerta þau öll í daglegu lífi. Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdottir Lögreglan í heimsókn Um síðustu helgivar haldin ráð-stefna í sal Orku- veitu Reykjavíkur undir yfirskriftinni „Verðandi rými“, en rými getur víst hvorki verið hlutlaust né óvirkt. Þess vegna hefur list sem sett er upp í rými áhrif á rýmið og rýmið áhrif á listina. Á ráðstefnunni var fjallað um pólitískt og feminískt rými og hnykkt á því að verðandi rými sé rými sem er ekki orðið, er ekki, heldur er sífellt verðandi. Stefán Vilhjálmsson, matvælafræðingur á Ak- ureyri, veitti þessu at- hygli og gaf ráðstefn- unni rými í huga sínum. Athugasemd hans um rými er með hefðbundnu rími og vitsmunalegri kveðju: Um hagnýt fræði funda menn á femínisma herðandi, en ég er naumast orðinn enn, er þó sífellt verðandi. Verðandi rými Hveragerði | Tinna Dögg Sig- urðardóttir, sem er nemandi í 6. bekk, er glænýr Hvergerð- ingur og er þar að auki nem- andi númer 400 í grunnskól- anum. Í tilefni af komu 400. nemandans í skólann var tekið á móti Tinnu Dögg með blóm- um, að hvergerðskum sið. Þetta er í fyrsta sinn sem fjöldi nemenda er slíkur og eftir að Tinna Dögg kom hafa í það minnsta þrír bæst í hóp- inn. Fjölgun íbúa síðustu misseri, aukning í nýbygg- ingum íbúðarhúsnæðis eru meðal þeirra þátta sem sýna ótvírætt fram á að Hveragerði er vaxandi bær. Þessari aukn- ingu þarf að bregðast við og því næg verkefni sem bíða bæjaryfirvalda. Ef fram held- ur sem horfir mun skólinn, sem nýlega er búið að byggja við, þurfa aukið kennslurými til að sinna auknum nem- endafjölda. Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Tímamót í Hveragerði: Með Tinnu Dögg á myndinni eru Guðjón Sigurðsson skólastjóri, Inga Lóa Hannesdóttir umsjónarkennari Tinnu Daggar og Helga Guðjónsdóttir aðstoðarskólastjóri. Tinna Dögg nemandi númer 400 Vaxandi bær Akranesi | Allar líkur eru á því að reist verði þriggja hæða hús við Stillholt 2 á Akranesi og í því húsi er gert ráð fyrir níu íbúðum sem verða sérhannaðar með þarfir aldraðra í huga. Björn S. Lárusson sagði við Morgunblað- ið að nú stæði yfir grenndarkynning vegna fyrirhugaðra framkvæmda og ef engar al- varlegar athugasemdir yrðu gerðar gætu framkvæmdir hafist eftir um mánuð. Á byggingarreitnum stendur hús sem hefur þjónað ýmsum tilgangi í gegnum tíð- ina og má þar nefna veitingastað, hár- greiðslustofu, frystigeymslu og margt ann- að en flestir Skagamenn þekkja húsið sem „Rauðu mylluna“. Það er ekki langt síðan að verktakar hófu endurbætur á núverandi húsnæði en þær framkvæmdir stóðu stutt yfir og gárungar á Akranesi hafa í daglegu tali kallað húsið „Svikamylluna“. Björn er í samvinnu við verktakafyrir- tækið Rúmmeter sem er m.a. í eigu Her- manns Hinrikssonar úr Reykjavík en Verð- bréfastofan er eigandi núverandi húsnæðis. „Það er ætlunin að sex íbúðir verði seldar en þrjár verða í eigu þeirra sem byggja húsið og verða leigðar út. Um leið og það spurðist út um þessar íbúðir fengum við margar fyrirspurnir og það er ljóst að eftirspurnin verður næg,“ segir Björn og telur að staðsetningin sé ákjósanleg fyrir þá sem eldri eru. „Það er stutt í stjórnsýsluhúsið, félagsað- stöðu aldraðra, verslanir, bókasafnið, sjúkrahúsið og það er ljóst að þeir sem búa nú þegar á þessu svæði í bænum vilja eiga möguleika á að vera sem lengst á „sínu“ svæði.“ Björn leggur áherslu á að ef þær til- lögur sem nú hafa verið lagðar fyrir verði ekki samþykktar verði lítið framkvæmt á þessu svæði á næstu misserum. „Við gerðum samning með þeim for- merkjum að gamla húsið verði rifið, ef það gengur ekki upp fellur þetta um sjálft sig,“ segir Björn. Íbúðir fyrir aldraða í stað „Rauðu myllunnar“ Morgunblaðið/Sigurður Elvar Hverfur: Húsið sem stendur við Stillholt 2 verður jafnað við jörðu og þriggja hæða nýbygging rís á lóðinni með 9 íbúðum .       Komin niður á stjörnupall | Nemendur í Húsabakkaskóla í Svarfaðardal hafa lesið 23.765 blaðsíður í sérstöku lestrarátaki sem staðið hefur yfir í skólanum frá því 1. sept- ember. „Bókaskrímslið gráðuga var búið að lofa nemendum poppi og safa þegar þeir hefðu náð því að lesa sig niður á stjörnupall. Í dag munu nemendur því gæða sér á poppi og safa á meðan þeir hlusta á kennara sinn lesa fyrir sig úr upplestrarbók bekkjarins,“ segir um lestrarátakið á heimasíðu skólans.    mbl.isFRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.