Morgunblaðið - 01.11.2003, Page 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 37
AÐ undanförnu hefur átt sér stað
öldungis ótímabær umræða um hver
eigi að vera næsti forseti Íslands.
Virðist þessi um-
ræða nokkuð bundin
við stjórnmálamenn
sem hafa átt erfitt
með að sætta sig við
stöðu sína eða ekki
náð tilætluðum ár-
angri í stjórnmálum,
fólki sem er meira framboð af en eft-
irspurn. Þessi háttur, að draga
framboð til forseta Íslands inn í leið-
inlegar þrasdeilur innan einstakra
stjórnmálaflokka er afturför, fyrir
utan hversu ótímabær þessi umræða
er. Um það er almenn samstaða að
Ólafur Ragnar Grímsson hafi reynst
farsæll forseti. Þegar af þeirri
ástæðu er það lágmarks kurteisi að
honum gefist kostur á að tilkynna
hvort hann gefi kost á sér til endur-
kjörs. Bollaleggingar um mögu-
legan arftaka í embætti sem vonandi
verður ekkert á lausu eru því ótíma-
bærar, óviðeigandi og ekki í sam-
ræmi við hefðir, hversu vanhaldnir
af athygli eða virðingarstöðum sem
einhverjir kunna að vera. Fram að
því að núverandi forseti lætur frá
sér heyra ættu menn að halda aftur
af sér að vera sífellt í fjölmiðlum að
máta uppáhaldsstjórnmálamanninn
sinn í forsetastólinn. Gleymum því
að lokum ekki að það er svo almenn-
ingur í landinu sem kýs forseta, þ.e.
ef til kosninga kemur. Forsetar eru
ekki útnefndir af álitsgjöfum, spuna-
doktorum eða klappstýrum ein-
stakra stjórnmálamanna.
Forsetastóll-
inn mátaður
Eftir Hugin Frey Þorsteinsson
Höfundur er BA í heimspeki.
NOKKRAR umræður hafa orðið
um kostnað vegna heilbrigðisþjón-
ustu á Íslandi. Meðal annars er
vitnað í skýrslu OECD með tölum
frá árinu 2000 um að heilbrigð-
isþjónusta sé einna dýrust á Ís-
landi miðað við OECD-löndin.
Ég hef heimsótt OECD-
skrifstofu sem var vart einnar
messu virði því að þar starfaði
einn maður með aðstoðarmann á
úttekt á heilbrigðisþjónustu í
OECD-löndum. Þeirra verk var að
taka við tölfræðilegum upplýs-
ingum, og birta ein-
hverja samantekt
ómelt!
Að beiðni þáver-
andi landlæknis
fékk Sighvatur
Björgvinsson þá-
verandi heilbrigð-
ismálaráðherra tvo hagfræðinga
til þess að grunnskoða kostn-
aðartölur á Íslandi. Niðurstöður
birtust í OECD-hefti 1993 (Econ-
omic Surveys OECD 1993). Nið-
urstaðan var þessi: Ísland er eina
landið fyrir utan Þýskaland að
hluta til, sem flokkar hjúkr-
unarmál og umönnun, þar á meðal
vistun hjúkrunarsjúklinga, þ.á m.
aldraðra, undir heilbrigðismál og
greiðslur falla því undir heil-
brigðismál. Í öðrum löndum fellur
þessi flokkur undir félagsmál og
greiðist af félagsmálaráðuneytum
og félagasamtökum. Á þessum
tíma féllu einnig atvinnuleys-
isbætur undir heilbrigðismál á Ís-
landi og má vera að því hafi verið
breytt.
Miðað við útgjöld hins opinbera
til heilbrigðisþjónustu sem hlutfall
af vergri landsframleiðslu vörðu
Íslendingar 1,0% til öldrunar og
endurhæfingar 1994. Nú hefur sú
tala heldur hækkað samkvæmt
skýrslu um útgjöld hins opinbera
til heilbrigðismála frá þjóðhags-
stofnuninni sálugu 1996. Ef þessu
hefur verið breytt hefur það gerst
í gær og sést því ekki í skýrslum
OECD frá árinu 2000. Í OECD-
heftinu 1993 var einnig tekið tillit
til hlutfalls 15 ára og yngri sem er
óvenju hátt á Íslandi og hlutfalls
65 ára og eldri sem er nokkuð lágt
á Íslandi miðað við OECD. Talið
var að mikill kostnaður við
mæðra- og barnaþjónustu jafnaði
nokkuð út kostnað á þjónustu við
aldraða. Niðurstaða var sú að þeg-
ar tekið var tillit til rauntekna og
aldursskiptingar voru útgjöld til
heilbrigðismála mæld í kaup-
máttargildum (purchasing power
party) eða í „lækningakörfu“
þjónustunnar 4,2% neðan við
væntigildi heilbrigðisútgjalda
OECD-ríkja.
Framtalning útgjaldaliða til
heilbrigðisþjónustu á Íslandi hefur
ekki breyst frá 1994. Þar af leiðir
að heildarkostnaður vegna heil-
brigðisþjónustu sem hlutfall af
vergri þjóðarframleiðslu að frá-
dreginni þjónustu við hjúkr-
unarheimili er 8,0–8,4% en ekki
9,4% eins og fram kemur í skýrslu
OECD frá 2000. Aukningin frá
1980 er því ekki 3,4% heldur 2,0–
2,4% en þess skal getið að heil-
brigðisútgjöld heimila sem hlutfall
af vergri landsframleiðslu hafa
tvöfaldast frá árinu 1980.
Ómeltar og villandi upplýsingar um
kostnað heilbrigðisþjónustunnar
Eftir Ólaf Ólafsson
Höfundur er formaður FEB og
fyrrverandi landlæknir.
Undirföt fyrir konur
Skálastærðir: B-FF
Opið virka daga frá kl. 11-18,
laugardaga frá kl. 11-15.
undirfataverslun
Síðumúla 3
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.