Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ SAMKVÆMT frumvarpi að fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2004, sem Þórólfur Árnason borgarstjóri mælti fyrir í borgar- stjórn í gær, hækka heildarskuldir borgarsjóðs og borgarfyrirtækja samanlagt um tíu milljarða króna, miðað við útkomuspá fyrir þetta ár. Fara heildarskuldirnar úr 63,6 millj- örðum í útkomuspá ársins upp í rúma 72 milljarða á næsta ári. Á sama tíma er reiknað með að heildareignir borg- arsamstæðunnar verði rúmir 180 milljarðar króna. Hreinar skuldir, sem eru heildar- skuldir að frádregnum peningalegum eignum, hækka milli ára um tæpa níu milljarða; fara úr 50,7 milljörðum á þessu ári í 59,2 milljarða árið 2004. Ef aðeins er litið til borgarsjóðs hækka heildarskuldirnar um rúman milljarð frá spá þessa árs, fara í rúm- lega 21,1 milljarð, og þar af er skulda- aukning um 885 milljónir vegna lán- töku fyrir flýtiframkvæmdum sem borgin ætlar að ráðast í á næsta ári til að mæta slaka á vinnumarkaði. Er ætlunin að greiða þau lán til baka á árunum 2005 og 2006. Heildartekjur borgarsjóðs árið 2004 eru áætlaðar 37,7 milljarðar, sem er 8,7% hækkun frá útkomuspá þessa árs. Hækkun skatttekna nemur 7,2% en hækkun heildartekna um- fram hækkun skatttekna er rakin til hærri tekna hjá Fasteignastofu og Skipulagssjóði, m.a. vegna sölu bygg- ingarréttar, að því er segir í grein- argerð með frumvarpi að fjárhags- áætluninni. Af áætluðum heildartekjum eru 81% skatttekjur. Rekstrargjöld næsta árs eru áætl- uð rúmir 38 milljarðar króna, sem er 4,6% hækkun frá þessu ári. Þar af eru 18,4 milljarðar í laun og launatengd gjöld, sem er nærri 6% hækkun milli ára. Af áætluðum rekstrargjöldum er launakostnaður 48%. Staðan sögð traust Rekstrarhalli borgarsjóðs, án tillits til fjármagnsliða, er upp á 428 millj- ónir, en ef 1,8 milljarða fjármagns- tekjur eru taldar með er rekstraraf- gangurinn 1,4 milljarðar. Arður frá fyrirtækjum er áætlaður 1,5 milljarð- ar, þar af 1,3 milljarðar af Orkuveitu Reykjavíkur, 160 milljónir af Lands- virkjun og 25 milljónir vegna Malbik- unarstöðvarinnar Höfða. Þórólfur Árnason, borgarstjóri, kynnti fjárhagsáætlunina á blaða- mannafundi áður en borgarstjórn kom saman í gær. Er þetta hans fyrsta áætlun frá því að hann tók við embættinu í febrúar sl. af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Sagði hann mikla vinnu og undir- búning liggja í áætluninni frá hendi fjármáladeildar, meiri en hann hefði getað ímyndað sér, enda væri borgin í raun stærsta fyrirtæki landsins með tugmilljarða króna veltu. Hann sagði fjárhagsáætlunina bera vott um trausta stöðu borgarinn- ar og fyrirtækja hennar. Auka ætti þjónustu við borgarbúa og fara í mikl- ar fjárfestingar án þess að hækka skatta. Útsvarið yrði óbreytt á næsta ári, 12,7%, á meðan flest nágranna- sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu væru með hærra útsvar. Ákvörðun borgarinnar lægi fyrir þrátt fyrir erf- itt efnahagsástand, aukið atvinnu- leysi, aukin útgjöld til félagsþjónust- unnar og atvinnuátak fyrir skólafólk. 500 milljónir sparaðar Borgarstjóri greindi frá starfi sparnaðarnefndar borgarinnar, þar sem tekist hefði að ná fram um 500 milljóna króna sparnaði. Aðspurður hvaðan sá sparnaður kæmi sagði Þór- ólfur að tekist hefði að sporna við sjálfvirkri útgjaldaþenslu í ýmsum rekstri, s.s. símakostnaði, ferðakostn- aði og risnu borgarstarfsmanna. Áfram yrði unnið að auknum sparnaði án þess að skera niður þjónustu við borgarbúa. Benti hann á að 500 millj- ónir væru aðeins 1,5% af rekstrar- reikningi og hægt væri að gera betur. Borgarstjóri nefndi nokkra áfanga sem ætti að ná á næsta ári. Má þar til taka áform um að bjóða börnum heit- ar máltíðir í öllum grunnskólum næsta haust, leikskólapláss á að vera til reiðu fyrir börn niður að 18 mánaða aldri með opnun sjö nýrra deilda, ljúka á hreinsun strandlengjunnar, hækka grunnframfærslu í félagslegri aðstoð um 8,5%, taka innilaugina í Laugardal í notkun, einnig þrjá nýja gervigrasvelli, færa Hringbrautina, koma á árlegri Listahátíð, halda und- irbúningi áfram við tónlistar- og ráð- stefnuhúsið, fjölga starfssamningum menningarmála úr 15 í 25 og fjölga bílastæðum við Laugaveg á lóð Stjörnubíósins sáluga. Þórólfur sagði að hjá fyrirtækjum væri litið á rekstur sem eyðslu en rekstur við samfélagsþjónustu borg- arinnar væri ekki hvað síst fjárfest- ing, þannig væru framlög til skóla, tómstunda- og íþróttastarfs fyrst og fremst fjárfesting í unga fólkinu. Samanlagt væru þessir málaflokkar með 53% af útgjöldum borgarsjóðs. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2004 lögð fram í borgarstjórn Tíu milljarða skuldaaukning Áhersla er lögð á uppbyggingu og aðhald án þess að hækka skatta á borgarbúa                                           ! "#  # "! "$ % "# "%  $    &' &  $    &' & TENGLAR .............................................. www.rvk.is HELSTU fjárfestingar næsta árs hjá Reykjavíkurborg og borgarfyr- irtækjum eru vegna virkj- anaframkvæmda á Nesjavöllum og Hellisheiði, eða 8 milljarðar króna, framkvæmdir við færslu Hring- brautar, fjárfestingar í skóla- og æskulýðsmálum, uppbygging Norð- lingaholts og undirbúningur nýs hverfis í Úlfarsárdal. Heildarfjárfestingar nema 16,4 milljörðum og gert er ráð fyrir aukningu hreinna skulda vegna þeirra um 9,7 milljarða kr. Sem fyrr segir mun Orkuveitan fjárfesta fyrir 8 milljarða og síðan nema fjár- festingar borgarsjóðs fjórum millj- örðum, rúmur milljarður hjá Fé- lagsbústöðum, 825 milljónir vegna fráveituframkvæmda, aðallega síð- asti áfangi hreinsunar strandlengj- unnar, 810 milljónir hjá Bílastæða- sjóði, tæpar 800 milljónir á vegum Reykjavíkurhafnar, 243 milljónir hjá Strætó, 224 milljónir á skíða- svæðum borgarinnar, 89 milljónir hjá slökkviliðinu, 87 milljónir hjá vélamiðstöðinni, 69 milljónir á veg- um Sorpu og aðrar fjárfestingar nema rúmum 60 milljónum króna. Fjárfest fyrir 16,4 milljarða Morgunblaðið/Jim Smart Þórólfur Árnason borgarstjóri kynnir fjárhagsáætlunina í Ráðhúsinu ásamt Önnu Skúladóttur, fjármálastjóra borgarinnar, og Bjarna Ben Bjarnasyni, starfsmanni fjármáladeildar. ÞÓRÓLFUR Árnason, borgar- stjóri, sagði að Reykjavíkurborg hafi ekki gripið til þess ráðs að hækka útsvarshlutfallið þrátt fyrir að ákvarðanir ríkisvaldsins í skattamálum hafi trúlega kostað sveitarfélögin hátt á annan millj- arð króna. Í gær mælti hann í fyrsta skipti fyrir frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkur og borgarfulltrúar sjálfstæðismanna og F-listans gagnrýndu áætlunina. „Þegar frumvarp að fjárhags- áætlun ársins 2004 er skoðað er ekki hægt að greina að reynt sé að spara, hagræða og sporna gegn sí- fellt meiri útgjaldaþenslu,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti Sjálfstæðisflokksins, í borgar- stjórn í gær. „Engar raunhæfar aðgerðir eiga sér stað hvað varðar endurskoðun á rekstri einstakra starfsþátta, sviða, stofnana og fyr- irtækja borgarinnar.“ Vilhjálmur sagði skuldastöðu borgarinnar sífellt versna og spár um skuldastöðu, ýmist sjálfs borg- arsjóðs eða borgarinnar, þ.e. borg- arsjóðs og fyrirtækjanna, ekki standast. Heildarskuldir Reykja- víkurborgar hafi vaxið úr 19 millj- örðum árið 1994, þegar Reykjavík- urlistinn tók við, í tæpa 64 milljarða á þessu ári. Á sama tíma hafi hreinar skuldir aukist úr 9 milljörðum í tæplega 51 milljarð. Rekstrarafgangur viðunandi Þórólfur Árnason, borgarstjóri, sagði að gripið hefði verið til sparnaðaraðgerða í rekstri borg- arinnar á þessu ári. Flötum nið- urskurði upp á eitt og hálft pró- sent hafi verið beitt við gerð yfirstandandi fjárhagsáætlunar og nú verði annað árið í röð lagt fram frumvarp þar sem ráðist sé gegn sjálfvirkri útgjaldaþenslu. „Þetta sparnaðarátak nú mun skila var- anlegum sparnaði sem nemur um 500 milljónum króna eða hálfum milljarði, án þess að það bitni á þjónustunni við borgarbúa,“ sagði borgarstjóri. Taldi hann viðunandi að rekstur Reykjavíkurborgar skilaði 225 milljóna króna afgangi samkvæmt fjárhagsáætlun næsta árs. Þá skili rekstur borgarsjóðs einnig veru- lega auknu veltufé frá rekstri, eða 33 þúsund krónum á hvern íbúa borgarinnar. „Þetta er sú lykiltala sem segir til um hversu mikið fé er til ráðstöfunar þegar rekstr- inum sleppir og sýnir afl borg- arinnar, meðal annars til að takast á við fjárfestingar,“ sagði Þórólfur. Sjö nýjar leikskóladeildir „Um leikskólana verður ekki annað sagt en að þjónustu þeirra hafi fleygt þannig fram í valdatíð Reykjavíkurlistans að líkja má við hljóðláta byltingu á fáum árum,“ sagði Þórólfur og fátítt væri að tveggja ára börn þurfi að bíða eftir skólavist. „Sú stefna hefur verið mörkuð að börn frá 18 mánaða aldri eigi kost á þjónustu leikskól- anna og til að uppfylla þau fyr- irheit verða opnaðir sjö nýjar leik- skóladeildir á næsta ári.“ Þá sagði borgarstjóri að nýleg könnun hefði sýnt að verulegur hluti borgarbúa telji sig ekki öruggan í miðborginni að kvöld- og næturlagi. Ekki megi loka aug- unum fyrir þessari vísbendingu því sé hún staðreynd hafi fágæt verð- mæti glatast. „Því er ákaflega mikilvægt að í samstarfsnefnd ríki og borgar, sem dómsmálaráðherra skipaði nú í sumar, náist samstaða um þær aðgerðir sem duga til að tryggja öryggi í borginni,“ sagði hann og talaði óbeint til Björns Bjarnasonar sem sat einnig í borg- arstjórn í gær. Óvönduð meðferð fjármuna Ólafur F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-listans, sagði að stjórn- endur borgarinnar mættu gera betur á ýmsum sviðum og nefndi „óvandaða meðferð á fjármunum Orkuveitu Reykjavíkur“ sem dæmi. Þá benti hann á „þá stað- reynd að hver fermetri skólahús- næðis í Reykjavík er umtalsvert dýrari en hjá nágrannasveitar- félögunum á höfuðborgarsvæðinu,“ þótt búa ætti vel að skólabörnum. Sagði hann að það væru ekki síst umferðarmálin og lélegar al- menningssamgöngur sem borg- arbúar hafi áhyggjur af og vilji bæta. „Ég vil efla almenningssam- göngur og auka framlög borgar- innar til þeirra,“ sagði Ólafur, svo hægt væri að bæta þjónustuna um leið og fargjöldum væri haldið lág- um. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn Ekki spornað gegn út- gjaldaþenslu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.