Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 11 ERLENDAR rannsóknir gefa vís- bendingu um að allt að 60–90% allra Parkinsonsjúklinga þjáist af svefn- röskunum. Talið er að taugahrörn- un sem sjúkdómurinn veldur svo og aukaverkanir lyfja séu tvær helstu orsakirnar. Ráðstefna um nýjungar í meðferð við Parkinsonsjúkdómn- um verður haldin í Sunnusal á Hótel Sögu í dag með yfirskriftinni „Við pöntuðum ekki Parkinson“ sem Parkinsonsamtökin á Íslandi standa fyrir. Rannsókn á svefnröskunum ís- lenskra Parkinsonsjúklinga sem Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir tauga- sjúkdómalæknir, Þórarinn Gíslason, yfirlæknir svefnrannsókna á Land- spítalanum, og Elsa Eiríksdóttir svefnrannsóknarmaður hafa nú far- ið af stað með er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Með henni er vonast til að hægt verði að kort- leggja umfang og eðli svefntrufl- anna hjá Parkinsonsjúkum og í framhaldi af því að bjóða þeim sem eiga við mestar truflanir að etja frekari rannsóknir í því skyni að reyna að draga úr einkennum. Markmiðið er að reyna að ná til sem allra flestra sjúklinga sem hafa fengið greiningu hér á landi. Ítarlegur spurningalisti Rannsóknin byggist á ítarlegum spurningalista sem þegar hefur ver- ið sendur til 250 Parkinsonsjúkra á Íslandi. Svörunin hefur verið sæmi- leg, en þegar á þó stór hluti þátttak- enda eftir að svara. Samkvæmt rannsókn á Parkinsonsjúklingum sem Sigurlaug hefur þegar gert er talið að þeir sem greinst hafi með Parkinsonveiki á Íslandi séu um 450 talsins. Þegar á því um helmingur þeirra eftir að fá spurningalistann í hendur. Samanburðarhópur verður valinn með slembiúrtaki úr þjóðskrá og verður miðað við að hann verði sambærilegur rannsóknarhópnum með tilliti til aldurs, kyns og búsetu. Þegar búið verður að greina nið- urstöður spurningalistans verður þeim hópi þátttakenda sem verst eru haldnir af svefntruflunum boðið að taka þátt í framhaldsrannsókn sem felur í sér nákvæma svefnrann- sókn hjá svefnrannsóknarstofu Landspítalans. Algengustu svefntruflanir sem Parkinsonsjúklingar hafa eru brota- kenndur svefn, truflun á skipulagi svefns, vöku og svefnstiga, dagsyfja, afbrigðileg hegðun og öndunartrufl- anir í svefni, t.d. kæfisvefn. Talið er að sjúkdómurinn sjálfur sem og lyfjagjöf geti haft áhrif þar á. Lengi hefur verið vitað að Park- insonsjúkir eiga við svefntruflanir að etja en sjónir manna fóru að beinast í auknum mæli að því eftir að ljóst varð að sjúklingarnir áttu það sumir til að sofna skyndilega, t.d. undir stýri. Í framhaldi af því var farið að rannsaka markvisst áhrif lyfjagjafar á svefntruflanir. Ákveðin tegund svefntruflana, þegar vöðaspenna verður í draum- svefni og viðkomandi gerir það sem kallað er að „leika eftir draumum sínum“ er meðal þess sem rann- sóknir benda til að Parkinsonsjúk- lingar glími við og hafi jafnvel glímt við áður en þeir greindust með sjúk- dóminn. „Getgátur hafa verið uppi um fylgni þarna á milli, hvort það eru sameiginlegar orsakir sem valda þessu er enn óvitað,“ útskýrir Elsa. Að sögn Sigurlaugar og Elsu er mjög misjafnt hvernig hægt er að bæta svefn fólks, fer það algjörlega eftir því hvaða svefntruflanir eiga í hlut. „Viss lyf hafa áhrif á svefninn, t.d. hjálpa til við að halda svefninum yfir nóttina,“ segir Sigurlaug. „En það þarf að meta hvert tilvik fyrir sig.“ Spurningalistinn er mjög ítarleg- ur og munu niðurstöður hans gefa ýmiskonar upplýsingar um Parkin- sonsjúka á Íslandi, verði þátttaka næg. Listinn samanstendur af spurningum er snúa að svefni, svefnröskunum, dagsyfju, líðan og lífsgæðum. Mikilvægt að fá sem flesta Sigurlaug segir mikilvægt að fá sem flesta til þátttöku. „Það er mik- ilvægt að sjá hvenær á sjúkdóms- ferlinu svefntruflanir fara að gera vart við sig, hvort þær eru frá byrj- un og hverjar þeirra eru frá byrjun. Síðan hvort það breytist með vax- andi meðferð eða með þróun sjúk- dómsins. En við þurfum að fá svör- un frá 2⁄3 þeirra sem fá spurningalistann sendan til að könnunin sé marktæk.“ Um 15–18% þeirra sem greinst hafa með Parkinsonsjúkdóminn á Íslandi fá fyrstu einkenni fyrir fimmtugt. Sigurlaug segir þennan hóp langt frá því einsleitan enda tal- ið að um fleiri en einn sjúkdóm sé að ræða sem valdi truflunum á sama boðefnakerfi í heila og valdi því svipuðum einkennum. Parkinsonsjúklingum sem ekki hafa þegar fengið spurningalistann sendan en vilja taka þátt í rann- sókninni er bent á að hafa samband í síma 543-5710 eða 543-9301. Ráðstefna Parkinsonsamtakanna um nýjungar í meðferð á Hótel Sögu í dag Svefnraskanir Parkinson- sjúklinga rannsakaðar Morgunblaðið/Jim Smart Elsa Eiríksdóttir og Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir segja mikilvægt að fá sem flesta Parkinsonsjúklinga til að taka þátt í rannsókninni. LISTAHÁTÍÐ lesblindra verður haldin í Háskólabíói á sunnudag, en þar eru þátttakendur nokkrir fremstu listamenn þjóðarinnar sem eru lesblindir, auk þess sem Ron Davis, upphafsmaður Davis- kerfisins, heldur fyrirlestur um til- urð kerfisins og hvernig má nota það til að virkja afburðahæfileika lesblindra. Lesblind.com stendur fyrir há- tíðinni í samstarfi við Háskóla Ís- lands, Prentsmiðjuna Odda, tíma- ritið Lifandi vísindi og hugbúnaðarhúsið Emojo. Aðgang- ur er ókeypis og öllum opinn. Axel Guðmundsson, Davis-leiðbeinandi og einn af forsvarsmönnum vefsíð- unnar Lesblind.com, segir að þó engar opinberar tölur séu til yfir fjölda fólks með lesblindu hafi sér- kennari metið það svo að u.þ.b. tí- undi hver Íslendingur sé lesblind- ur. Axel fullyrðir að það sé algengt að lesblindir hafi ákveðna náðar- gáfu í t.d. fjármálum og ýmsum listum. Listahátíð lesblindra á sunnudag Kringlunni - sími 568 1822 Náttföt, náttkjólar & náttsloppar Verslunin hættir Gríptu tækifærið og fáðu glæsilega antikmuni og húsgögn á einstöku verði Mikill afsláttur Opið alla helgina Grensásvegi 14, sími 588 9595 Mikið úrval Skyrtur kr. 1.750 • Sloppar kr. 4.900 Náttföt frá kr. 2.500 Laugavegi 34, sími 551 4301- Opið sunnudag 13-18 Kringlunni 8-12, sími 553 3600, www.olympia.is DÖMU OG HERRA náttfatnaður nærfatnaður sloppar HVORKI fleiri né færri en 18 til- boð bárust frá verktökum víðs veg- ar af landinu í útboði Vegagerð- arinnar á Grundartangavegi. Um er að ræða 2,6 km nýjan kafla frá þjóðveginum að hafnarsvæði Grundartangahafnar. Á verkinu að vera lokið í sept- ember á næsta ári. Áætlun Vegagerðarinnar var upp á 48,8 milljónir króna. Ellefu tilboð voru undir áætlun, það lægsta frá Jöfnun ehf. á Sel- fossi upp á 38,5 milljónir. Næstu boð komu frá Þrótti í Skilmanna- hreppi, 39,7 milljónir, og Skóflunni á Akranesi, 39,9 milljónir. Hæsta tilboð var frá Vélaleigu Halldórs Sigurðssonar og Vélaleigunni Klakki á Akranesi, eða 72,4 millj- ónir, og Loftorka var næsthæst með 65 milljóna kr. tilboð. Átján tilboð í Grundar- tangaveg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.