Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 24
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Mótmæla breytingum RARIK | Bæj- arstjórn Blönduósbæjar samþykkti ályktun á fundi sínum 2. desember þar sem skipu- lagsbreytingum á RARIK er mótmælt. „Bæjarstjórn Blöndu- ósbæjar mótmælir harð- lega boðuðum skipulags- breytingum RARIK sem bera það með sér að verulega er dregið úr vægi 25 ára starfsemi RARIK á Blönduósi. Í ljósi veikrar stöðu atvinnumála á Norður- landi vestra telur bæjarstjórn það óásætt- anlegt að samfélagið beri skarðan hlut frá borði í þessum skipulagsbreytingum. Þeim eindregnu tilmælum er hér beint til iðn- aðar- og viðskiptaráðherra að skipulag þetta verði endurskoðað m.t.t. þess að á Blönduósi verði stjórnstöð á sviði dreifi- veitna, sambærilegt og á Stykkishólmi, Ak- ureyri, Egilsstöðum og Hvolsvelli.“ Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Sýnir í Pakkhúsinu | Karítas Þórðardótt- ir, Kæja, opnaði sýningu sína Yl me, sem er sölusýning, í Pakkhúsinu í Ólafsvík sunnu- daginn 30. nóvember síðastliðinn. Sýningin stendur til 23. desember. Sýnir hún peysur, jakka, vesti, toppa, sjöl og töskur úr íslenskri ull, sem er sérstak- lega meðhöndluð til að vera mjúk og létt. Kæja spinnur bandið sjálf og prjónar af fingrum fram sína eigin hönnun svo hver flík er einstök og persónuleg. Sýningin er opin á afgreiðslutíma Pakk- hússins í desember sem má nálgast á heimasíðu Snæfellsbæjar: www.snb.is Morgunblaðið/Elín Una Karitas Þórðardóttir með hönnun sína. Foreldrar vænt-anlegra leikskóla-barna á Egils- stöðum hafa nú þungar áhyggjur af húsnæðisleysi yngstu deildarinnar. Nokkur síðustu ár hefur yngsta deildin verið í leiguhúsnæði í kjallara Fosshótels Valaskjálfar og þar verið afgirt bráða- birgðaleiksvæði utan við. Nú hefur Sverrir Her- mannsson, hóteleigandi í Reykjavík, keypt Vala- skjálf og sagt leigusamn- ingnum upp frá og með 1. maí á næsta ári. Til stend- ur að byggja nýjan leik- skóla á Egilsstöðum en ekki er reiknað með að henn verði tekinn í notkun fyrr en í mars 2005. Leikskólaleit Kirkjuskóli var í Aðaldal um sl. helgi er sr. GylfiJónsson frá Möðruvöllum leiddi fjölskyldumessuí Nesi með þátttöku verðandi fermingarbarna. Að venju var aðventunnar minnst, lesið og leikið á hljóðfæri og beðið fyrir vinum og vandamönnum. Hér les Óskar Guðmundsson, nemandi í Hafralækjarskóla, við altarið í Neskirkju fyrir kirkjugesti. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Aðventan í Aðaldal Það er góður siðurað setja vísur íjólakortin. Baldur Hafstað, kennari í KHÍ, er einn af þeim hagyrð- ingum og leggur þá stundum út af þjóðfélags- umræðunni. Árið 2000 voru það launamál kenn- ara: Úti er dimmt í desember dimmra inni í skólunum enginn fær það fé sem ber – friður sé á jólunum. En Baldur slær líka á létta strengi. Hann orti árið 1997: Enn ég ríma, allt er hvítt yfir kímir gríma kortatímabilið blítt ég byrja í vímu og svíma. Við vaxtarbrodda kortaklór er klárt að toddý virki, svo á oddinn set ég bjór sál og boddý styrki. Ort í kortin pebl@mbl.is Tálknafjörður | Byrjað var að slátra 13,7 tonnum af eldisþorski úr kvíum hjá Þórsbergi ehf. á Tálknafirði á fimmtudag. Að sögn Jóns Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra hjá Þórs- bergi, er þetta fyrsta slátrunin hjá þeim á þessum vetri af fiski sem safnað var í sumar og vor, en áður var búið að slátra fiski sem var haldið eftir frá síðasta ári. Ráðgert er að slátra úr 7 kvíum, samtals u.þ.b. 80–100 tonnum. Smæsti fiskurinn er skilinn frá og verður hann alinn áfram til næsta hausts. Þetta er fimmta árið sem Þórsberg elur þorsk til slátr- unar, en fiskurinn er veiddur í dragnót að vori og fram eftir sumri og settur í kvíar. Hann er síðan fóðraður með loðnu, síld og afskurði. Samhliða eldinu hefur verið unnið markvisst að rann- sóknum á vexti, fitu, þéttleika holds o.fl. Rannsóknirnar eru unnar í samstarfi við Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins og Iðn- tæknistofnun og eru niðurstöður þeirra notaðar til þess að ná sem bestum árangri í eldinu og stuðla að sem mestum afurðagæðum. Í rannsóknaverkefninu eru fyr- irtækin Oddi á Patreksfirði, Gunnvör í Hnífsdal og ÚA á Ak- ureyri. Fyrirhugað er að Eskja á Eskifirði komi inn í verkefnið á næsta ári. Fram kom hjá Jóni að þessa dagana stendur fyrirtækið á vissan hátt á tímamótum í eld- inu, þar sem ákveðið hefur verið að hefja þorskseiðaeldi á landi, sem setta verða í kvíar næsta vor til framhaldseldis. Hafnar eru til- raunir til þess að veiða villt þorskseiði í mynni Tálkna- fjarðar, en þær tilraunir hafa ekki borið tilætlaðan árangur ennþá. Fyrirtækið hefur gert ráðstafanir til þess að verða sér úti um smáseiði ef veiðarnar bera ekki tilætlaðan árangur. Undanfarin þrjú ár hefur Þórsberg verið í umfangsmiklu rannsóknasamstarfi við ýmsar vísinda- og rannsóknastofnanir ásamt sérfræðingum á ýmsum sviðum. Hefur þetta samstarf leitt til þess að mikilvægar upp- lýsingar liggja fyrir um þorskeldi og gæði eldisafurða. Til þessa verkefna hefur fyrirtækið fengið úthlutað rannsóknakvóta til eld- isins. Morgunblaðið/Finnur Þórsberg slátrar þorski Fiskeldi Mörg handtök: Eldisþorski slátrað úr kví í Tálknafirði. Það getur stundum orðið kalsamt. Saurbær | Prédikunarstóll Staðarhóls- kirkju í Saurbæ í Dölum hefur verið gerður upp með nýjum eftirmyndum fornra, mál- aðra mynda af Kristi og guðspjalla- mönnunum fjórum, sem áður prýddu stólinn. Frum- myndirnar voru teknar úr stólnum þegar kirkj- urnar á Hvoli og Staðarhóli voru lagðar niður og sóknirnar sameinaðar um eina nýja kirkju á hól í miðri sveit, þar sem nú heitir Kirkjuhvoll en Staðarhólskirkja var vígð 1899. Stóllinn frá Staðarhóli var settur upp í nýju kirkjunni. Hann er frá árinu 1738, gjöf Bjarna Péturssonar sýslumanns hins ríka. Myndirnar, sem þá voru í stólnum, eru eftir einhvern óþekktan listamann, naívista, trú- lega íslenskan. Um aldamótin 1900 þóttu slík verk ekki góð, því voru myndirnar teknar úr stólnum. Þær gleymdust og lágu undir skemmd- um, er sr. Þórir Stephensen fann þær skömmu eftir að hann hóf prestskap þarna 1954. Hann vakti athygli Kristjáns Eldjárn, þáverandi þjóðminjavarðar, á myndunum. Hann varð mjög hrifinn af þeim, fékk þær til Þjóðminjasafnsins 1962, á aldarafmæli þess, og birti grein um þær og myndir í bókinni Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Lengi hefur verið áhugi fyrir því að fá eftirmyndir safngripanna í stólinn. Sú hug- mynd er nú orðin að veruleika. Fyrir milli- göngu Sigurbjargar Sverrisdóttur lista- verkakaupmanns var Bronus Grusas, fv. forstöðumaður listaakademíunnar í Lithá- en, fenginn til að gera myndirnar sem nú eru mikil stólsprýði. Aðventuhátíð á laugardag Þessa verður minnst á aðventuhátíð sem haldin verður í Staðarhólskirkju laugar- dagskvöldið 6. desember. Þar flytur sr. Ingiberg J. Hannesson, prófastur á Hvoli, ávarp og sr. Þórir Stephensen flytur að- ventuhugleiðingu. Skólabörnin úr sveitinni og kirkjukórinn leika og syngja undir stjórn Halldórs Þórðarsonar á Breiðaból- stað og Sigurðar Þórólfssonar í Innri- Fagradal. Eftir athöfnina verður farið yfir í félagsheimilið Tjarnarlund og kaffiveitinga notið. Nýjar myndir í prédikunar- stól Staðar- hólskirkju Myndir óþekkta, íslenska listamannsins eru nú stólsprýði á ný, um öld eftir að frummyndirnar voru fjarlægðar.   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.