Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 27
Stálu saltfiski | Starfsmaður fisk- verkunarinnar Stakksvíkur í Grindavík kom að tveimur mönnum um klukkan hálffimm í gærmorgun þar sem þeir voru að bera poka með saltfiski út úr fiskverkunarhúsi fyr- irtækisins. Hlupu mennirnir af vettvangi þeg- ar þeir urðu starfsmannsins varir en skildu eftir bifreið við húsið og þar mátti sjá fleiri poka með saltfiski. Málið var tilkynnt til lögreglunnar sem lagði hald á bílinn. SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 27 Reykjanesbær | Börn og fullorðnir skemmtu sér vel á jólaballi sem Árni Sigfússon bæjarstjóri bauð til á veitingahúsinu Ránni í gær. Jóla- ilmur var í lofti. Á ballið bauð Árni starfsfólki og þjónustunotendum Hæfing- arstöðvar fatlaðra, sambýla, þjón- ustuíbúða, Ragnarssels, Dósasels og iðkenda í íþróttafélaginu Nesi. Védís Hervör Árnadóttir, dóttir bæjarstjórans, söng jólalög og Baldur Guðmundsson lék með. Síð- an var boðið upp á piparkökur og kakó. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Jólin nálgast óðfluga: Ánægja skein úr hverju andliti þegar gengið var í kringum jólatré á skemmtun bæjarstjóra. Fengu að fara á jólaball í boði bæjarstjórans Jólailmur í lofti á skemmtun fatlaðra á Ránni Reykjanesbær | Nýir leigusamning- ar sem Fasteignir Reykjanesbæjar ehf. eru að gera við leigjendur fé- lagslegs íbúðarhúsnæðis bæjar- félagsins taka gildi um áramót. Áætl- að er að leiga hækki að meðaltali um tíu þúsund krónur á íbúð en dæmi eru um mun meiri hækkun og einnig að leiga lækki. Bæjarfulltrúar Sam- fylkingarinnar telja að gera þurfi ráðstafanir til að aðstoða þá sem fá á sig miklar hækkanir. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar ákvað á síðasta ári að færa allar fé- lagslegar íbúðir bæjarfélagsins undir sérstakt einkahlutafélag, Fasteignir Reykjanesbæjar ehf. Markmiðið var að gera allan kostnað við rekstur og viðhald íbúðanna sýnilegan og láta tekjur standa undir kostnaði þegar til lengri tíma væri litið. Einnig var tilgangurinn að jafna leigu íbúðanna. Með íbúðum sem Fasteignir Reykjanesbæjar hafa látið byggja á félagið nú og rekur tæplega 270 íbúð- ir. Undir viðmiðunarreglum Reykjanesbær sagði upp öllum leigusamningum á síðasta ári með það fyrir augum að fasteignafélagið gæti gert nýja samninga. Viðar Már Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og skipulagssviðs bæjar- ins, sem jafnframt gegnir stöðu framkvæmdastjóra fasteignafélags- ins, segir að þetta hafi verið gert samkvæmt leiðbeiningum félags- málaráðuneytisins. Hann segir að síðan hafi verið unnið að því að skoða allar íbúðirnar og gera nýja leigu- samninga. Verði því verki lokið um áramót þegar nýju samningarnir taki gildi. Eignirnar hafa verið flokkaðar upp á nýtt og nýtt leigugjald ákvarð- að út frá viðmiðunarreglum Íbúða- lánasjóðs. Viðar Már segir að ákveðið hafi verið að hafa leiguna lægri en reglurnar heimiluðu og lægri en í Reykjavík og munaði þar 5–10%. Hann segir að breytingarnar komi misjafnlega niður, þær geti leitt til hækkunar á leigu en einnig lækkun- ar. Taldi hann að meðalhækkun á íbúð væri um það bil 10 þúsund krón- ur. Spurður að því hvort ekki væri ótt- ast að einhverjir leigjendur ættu erf- itt með að greiða meiri leigu sagði Viðar Már að gert hefði verið ráð fyr- ir því að fjölskyldu- og félagsmálaráð aðstoðaði það fólk sem erfiðast ætti. Taldi hann að Reykjanesbær stæði sig vel á því sviði, miðað við önnur sveitarfélög. Allt að 26 þúsund kr. hækkun Sveindís Valdimarsdóttir, bæjar- fulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi í fjölskyldu- og félagsmálaráði, vakti á síðasta bæjarstjórnarfundi athygli á þeim vanda sem sumir leigjendur félagslegs húsnæðis stæðu nú frammi fyrir vegna hækkunar á húsaleigu. Hún sagði að fólk hefði haft samband við sig vegna þessa og í samtali við Morgunblaðið sagðist Sveindís vita um dæmi þess að leiga hækkaði um 26 þúsund krónur á mánuði. Á bæjarstjórnarfundinum kom fram hjá Árna Sigfússyni bæjar- stjóra að fjölskyldu- og félagsmála- ráð væri að fara yfir þessi mál og sér- stakar húsaleigubætur hefðu komið til tals. Hann sagði þá hugmynd hins vegar of seint fram komna vegna næsta árs. Kom fram hjá bæjarstjóra að ekki væri gert ráð fyrir sérstakri fjárveitingu vegna þessa máls í fjár- hagsáætlun Reykjanesbæjar sem er í vinnslu um þessar mundir. Sveindís sagði að 32 milljónir vant- aði upp á að fjölskyldu- og félags- málasvið bæjarins gæti haldið sjó, miðað við óbreytt ástand, og hún kvaðst óttast að Reykjanesbær gæti lent í þeirri stöðu að brjóta fram- færslulög á einstaklingum á næsta ári, ef ekkert væri að gert. Aðrir bæj- arfulltrúar Samfylkingarinnar sem til máls tóku töldu að huga ætti að því að fresta gildistöku nýrra leigusamn- inga á meðan verið væri að huga að viðbrögðum við henni. Félagslegt húsnæði Reykjanesbæjar Leigan hækkar að jafnaði um 10 þúsund Jólaljósin tendruð | Kveikt verð- ur á jólatrénu í Garði á morgun kl. 18. Það stendur á horni Gerðavegar og Garðbrautar. Einar Jón Pálsson, varaoddviti hreppsnefndar, flytur ávarp. Söng- sveitin Víkingar syngur nokkur jóla- lög og jólasveinar koma í heimsókn. Afmælisbarn kveikir jólaljósin á jólatrénu. Við athöfnina býður hreppsnefnd Gerðahrepps upp á kakó og piparkökur. Jólamarkaður í Kjarna | Jóla- markaður lista- og handverksfólks verður haldinn í göngugötunni í Kjarna á aðventunni. Jólamarkaðurinn verður opinn í dag, föstudag, sem og föstudaginn 12. desember. Boðið verður upp á fjölbreytt úrval handgerðra muna. Í frétt á heimasíðu Reykjanes- bæjar sem stendur fyrir mark- aðnum kemur fram að mikil gróska er í starfi lista- og handverksfólks á Reykjanesi og nokkuð víst að hægt verður að kaupa fjölbreyttar jóla- gjafir. Jólatónleikar | Léttsveit Tónlist- arskóla Reykjanesbæjar heldur sína árlegu jólatónleika í dag, föstudag, kl. 19.30 í Kirkjulundi, safnaðar- heimili Keflavíkurkirkju. Bæði yngri og eldri léttsveit koma fram með fjölbreytta efnisskrá þar sem meðal annars er að finna mörg af fallegustu og hátíðlegustu jólalög- unum. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill og hvetur Tónlistarskólinn Suðurnesjamenn til að mæta. Knattborðsleikur | Billjarðsmót SamSuð, samtaka félagsmiðstöðva á Suðurnesjum, fer fram í félags- miðstöðinni Fjörheimum í Reykja- nesbæ í dag, föstudag, og hefst klukkan 16. Á mótinu verður keppt bæði í kvenna- og karlaflokki og verða þátttakendur frá öllum fimm félagsmiðstöðvunum á Suður- nesjum. Í fyrra sigraði Þruman í Grindavík í kvennaflokki og Fjör- heimar í Reykjanesbæ í karlaflokki. Síðasta sýningarhelgi | Sýningu Kristins Pálmasonar í Listasafni Reykjanesbæjar lýkur sunnudaginn 7. desember næstkomandi. Á sýn- ingunni eru meðal annars Krafta- verkamálverkaserían frá 1998 sem ekki hefur áður verið sýnd hér á landi. Kristinn hefur einnig unnið höggmynda- og hljóðinnsetning- arnar Hellinn og Kraftaverka- hljóðverkið sérstaklega fyrir þessa sýningu. Sýningarsalur Listasafns Reykja- nesbæjar er í Duushúsum í Keflavík og er opinn alla daga frá klukkan 13 til 17. Listamaðurinn verður sjálfur á staðnum næstkomandi sunnudag, milli kl. 15 og 16. Sýningu Kristins lýkur í dag.          Reykjanesbær | Skapa þarf aðstæður fyrir sjálfsprottið starf á Suðurnesjum fyrir þá sem eiga við geðraskanir að stríða og fyrir aðstandendur og koma á fót athvarfi fyrir þá sem búa við hvað mesta félagslega einangrun og eru óvinnufærir vegna geð- heilsubrests. Þetta er meðal niðurstaðna af opnum fundi um geðheilbrigði sem hald- inn var í húsi Sjálfsbjargar í Njarðvík. Sigursteinn Másson, for- maður Geðhjálpar, var gest- ur fundarins. Hann lagði meðal annars áherslu á að fólk væri vakandi fyrir líðan hvert annars. Það sæist í augum fólks hvort því liði vel eða illa. Mikilvægt væri að ræða við fólk þegar því virtist líða illa. Líflegar umræður urðu í kjölfar erindis Sigursteins. Samkvæmt upplýsingum Hjördísar Árnadóttur, fé- lagsmálastjóra Reykjanes- bæjar, kom þar meðal ann- ars fram að lítil geð- heilbrigðisþjónusta væri á svæðinu. Skapa þarf aðstæður fyrir sjálf- sprottið starf Opinn fundur um geðheilbrigði   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.