Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SVO fullyrti Sigurður Þ. Ragnars-
son veðurfréttamaður í blaðaviðtali
í endaðan nóvember. Taldi hann
sig sjá í sínum gögnum nokkra
vissu fyrir því að jólin yrðu rauð í
Reykjavík þetta árið. Ekki er gott
að átta sig á því við hvað Sigurður
styðst í sinni sérstöku jólaspá.
Vera má að hann hafi haft hliðsjón
af tölvukeyrslum bandarísku veð-
urstofunnar sem reiknaðar eru
fyrir andrúmsloft jarðarinnar 20
daga fram í tímann. Þessar
keyrslur má m.a. finna á slóðinni
www.wetterzentrale.de/topkarten.
Ekkert er því til fyrirstöðu að
keyra líkan sem þetta 30 eða þess
vegna 100 daga fram í tímann.
Reynslan hefur hins vegar kennt
veðurfræðingum að verulegar
skekkjur fari að koma fram á 5.–8.
degi og lítið sé á slíkum úteikn-
ingum byggjandi eftir það. Mér
dettur einnig í hug að Sigurður
hafi jafnvel stuðst við eina af fjöl-
mörgum veðurlagsspám sem víða
eru reiknaðar og gefnar út. Slíkar
spár eru gefnar úr í formi með-
altala eða hvort tilteknir veður-
þættir verði hærri eða lægri en
meðaltal yfir tiltekið tímabil. Eina
slíka spá rakst ég t.d. á á netinu,
þýska að uppruna, og gildistími
hennar er desembermánuður í
heild sinni. Þar er því spáð að
meðalloftþrýsingur mánaðarins
verði mun hærri en venja er til
fyrir sunnan og suðaustan Ísland,
en lægri yfir Grænlandi. Þessa nið-
urstöðu má hæglega túlka sem svo
að mildir vindar úr suðri og suð-
vestri verði ríkjandi í desem-
bermánuði.
Það segir hins vegar ekkert um
það hvernig veðrið kemur til með
að vera frá degi til dags í jólamán-
uðinum. Einn daginn gæti verið
austanátt með rigningu í Reykja-
vík, þann næsta suðvestanátt með
snjókomu, þar næst sunnanátt með
hlýindum o.s.frv. Staðreyndin er
sú að engar nýjar aðferðir hafa lit-
ið dagsins ljós á síðustu árum sem
gera mönnum kleift að spá veðrinu
frá degi til dags lengra fram í tím-
ann en þetta 5 til 10 daga.
Hvort jörð verði snævi þakin
þegar jólahátíð gengur í garð
ræðst vitanlega af veðrinu upp úr
20. desember. Gangi spá Sigurðar
Þ. Ragnarssonar um rauð jól eftir
er það ekki neitt annað en helber
tilviljun. Líkurnar eru þó allmiklar
því reynslan sýnir að alauð jörð er
í Reykjavík u.þ.b. annað hvert ár.
Glannaskap þann sem Sigurður Þ.
Ragnarsson sýnir við veðurspár
sínar leyfa veðurfræðingar sér
ekki. Enda er geta vísindanna tak-
mörkuð til að sjá fyrir framtíð-
arveðrið og daglega breytingu
þess, þótt framfarir hafi verið afar
miklar síðustu tvo áratugina í gerð
líkana sem keyrð eru í öflugum
tölvum. Sigurður er ákaflega
áhugasamur um allt það er lýtur
að veðri, en hann er ekki veð-
urfræðingur og kannski þess
vegna getur hann leyft sér að gefa
út hæpnar veðurspár eins og þessa
með snjóinn á jólunum.
EINAR SVEINBJÖRNSSON,
veðurfræðingur.
Jólin verða
rauð í ár!
Frá Einari Sveinbjörnssyni
MÉR er ljúft að svara fyrirspurn frá
Þór Jens Gunnarssyni, sem birtist
hér í blaðinu á sunnudaginn. Þau
voru þrjú á leið til Svíþjóðar og
lentu í því að ein ferðataska þeirra
misfórst og skilaði sér ekki til þeirra
í Suður-Svíþjóð fyrr en um tveimur
sólarhringum síðar.
Þótt þróuð hafi verið fullkomin
gæða- og eftirlitskerfi í kringum far-
angursflutninga flugfélaga kemur
það endrum og sinnum fyrir að tösk-
ur misfarast. Í flestum tilvikum er
um að ræða mannleg mistök. Öll
flugfélög og flugvellir keppast við að
ná sem bestum árangri á þessu sviði
og alþjóðastofnanir taka saman og
birta samanburð um frammistöð-
una. Icelandair stendur vel í þeim
samanburði, og hið sama má segja
um flugvellina í Keflavík og Kastrup
í Kaupmannahöfn sem hér koma við
sögu. En það dugar ekki alltaf til.
Icelandair er þátttakandi í alþjóð-
legu samstarfi, World Tracer, viða-
miklu kerfi sem heldur utan um far-
angur sem misferst. Út úr því kerfi
má lesa að taska Þórs Jens var til-
kynnt töpuð skömmu eftir lendingu í
Kaupmannahöfn, klukkan 19.05 á
föstudagskvöldi. Strax kom í ljós að
hún hafði orðið eftir í Keflavík og
samkvæmt skráningu hafði starfs-
maður þar sett hana á ranga farang-
urskerru. Taskan fór með næsta
flugi héðan, á laugardagsmorgni, til
Kaupmannahafnar og var komin
þangað upp úr hádegi, þar sem far-
angursþjónusta SAS tók við henni.
Taskan var skráð út úr kerfinu í
Kaupmannahöfn kl. 01.29 aðfaranótt
sunnudags og fór með flugi SK402
til Stokkhólms og þaðan með flugi
JZ475 til Kristianstad á sunnudegi.
Þetta var heilmikið og óþarflega
tímafrekt ferðalag og á því eru ekki
aðrar skýringar en mannleg mistök
starfsmanna á Kastrup.
Um leið og ég bið Þór Jens vel-
virðingar á óþægindunum þá hvet
ég hann til þess að hafa samband við
þjónustueftirlit Icelandair, Aðal-
skrifstofu við Reykjavíkurflugvöll,
sími 505-0300, óski hann frekari
upplýsinga um ferðalag töskunnar
góðu.
Með kærri kveðju,
GUÐJÓN ARNGRÍMSSON,
upplýsingafulltrúi Icelandair.
Svar til Þórs Jens
Frá Guðjóni Arngrímssyni