Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 49 amma Þuríður væru akkerið í lífinu sem allt hið góða tengdist. Baldur var tengdafaðir minn í nokkur ár og enn fleiri ár þekkti ég hann og Þuríði. Ég hélt alltaf góðu sambandi við þau og við göntuð- umst oft með það að þrátt fyrir að við Snorri værum löngu skilin þá væri ég nú pínulítið tengdadóttir þeirra. Segja má að það að ná níutíu og eins árs aldri og búa á sama stað nánast frá fæðingu sé afrek út af fyrir sig. Baldur fæddist á Ytri- Tjörnum, ólst þar upp og bjó þar með konu sinni til dauðadags. Þrjú börn þeirra eru norðan heiða og veitir það Þuríði mikinn stuðning. Ég kynntist Baldri og Þuríði sautján ára, fékk að taka þátt í gleði þeirra og sorgum og fannst stór- kostlegt hvernig þau tóku mér sem einni af fjölskyldunni. Að fá að vera í sveitinni og umgangast reglur og ljúfleika þeirra voru forréttindi. Fáar manneskjur veit ég eins hlýjar og Baldur var; alltaf hafði hann tíma til að láta sig fjölskyld- una varða og voru tengdabörnin ekki undanskilin. Eins og sannur bóndi var hann vakandi yfir búi sínu, en einnig yfir velferð og ham- ingju niðja sinna. Að sækja hann heim var líka kapítuli út af fyrir sig. Boðið var til stofu og því besta tjaldað til og spjallað um allt milli himins og jarðar. Gaman fannst mér, er ég kom með mömmu í heim- sókn að Ytri-Tjörnum í haust, að sitja við lengi dags og rifja upp gamla tíma. Minni Baldurs var gott og ánægjulegt að vera með honum. Þegar fór að líða á daginn brá Bald- ur sér inn í sjónvarpsherbergi því það var að byrja fótbolti sem hann ætlaði ekki að missa af. Tækið var stillt hátt en hurðinni hallað aftur. Við mamma fórum í bíltúr meðan Þuríður hafði til matinn í seinna fallinu vegna fótboltaleiksins. Ég sat svo með Baldri góða stund áður en að borðhaldi kom og var unun að fylgjast með þessum lifandi manni skemmta sér sem ungur væri. Þótt Baldur ætti mörg ár að baki var hægt að tala við hann um öll mál. Best var ef maður náði honum ein- um, þá gat hann farið á flug; öll efni komu honum við og virtist hann fylgjast vel með fréttum um gang stjórnmála og annarra mála sem voru efst á baugi í þjóðfélaginu. Alltaf spurði hann mig um fjöl- skyldu mína og hagi. Baldur var hættur að fara til gegninga en fylgdist vel með mjólkurmagni og ástandi í fjósinu og virtist vera með allt á hreinu um búskapinn yfirleitt. Samheldnari hjón en Þuríði og Baldur er vart hægt að hugsa sér og verður erfitt fyrir hana nú þegar hann er farinn. Einhver sagði að líf- ið væri minningarnar okkar og þá aðallega þær góðu. Þar veit ég að Þuríður á stóran og góðan sjóð að tína úr. Ytri-Tjarnir með Baldri og Þuríði var yndislegur staður og verður það áfram þótt Þuríður búi þar ein með niðjum þeirra hjóna sem teknir eru við búskapnum. Það er í anda Baldurs að lífið haldi áfram á þeim bæ. Baldur var stórkostleg fyrirmynd sem börn, tengdabörn, barnabörn og allir sem hann þekktu nutu góðs af. Megi guð vera með Þuríði og allri fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum. Guðrún Vignisdóttir. Nú er skarð fyrir skildi, því geng- inn er hann Baldur föðurbróðir okk- ar. Hann ól allan sinn aldur á Ytri- Tjörnum, þar sem hann ólst upp í stórum systkinahópi. Hugur Baldurs stóð til búskapar og fór hann í bændaskólann á Hvanneyri og tók síðan við búi af föður sínum. Hann átti því láni að fagna að lifa blómaskeið íslensks landbúnaðar. Hann var fyrst með blandað bú en sneri sér síðan að kúabúskap eingöngu og var bú hans arðsamt og gott. Á Staðarbyggðinni þótti, og þykir kannski enn, góður siður að fara helst í fjós um miðjar nætur. En Baldur hafði ekki þann háttinn á. Eitthvað heyrði hann á nágrönnum sínum að hann þætti fara seint í fjós á morgnana. En hann rétti sinn hlut eitt sinn er hann var spurður að því, hvernig hann fengi svo góða nyt í kýrnar. Þá svaraði hann að bragði: „Ég leyfi þeim að sofa út.“ Önnur saga er af honum ungum, en hann hafði skroppið bæjarleið, ásamt einhverj- um af systrum sínum. Þau voru fót- gangandi því stutt var að fara, en dimmt var orðið og stjörnubjart á heimleiðinni. Þær systur hófu augu sín til himins, dáðust að stjörnunum og gerðust háfleygar mjög í tali. Heyrðist þá Baldur tauta sem við sjálfan sig: „O, þær verða nú samt að fara í skítinn á morgun.“ Hans hugur var sem sé niðri á jörðinni við búskapinn. Baldur var einstakt ljúfmenni, hress og léttur í lund, alltaf syngj- andi glaður. Bókstaflega! Eftir- minnilegt er þegar hann í fimm- tugsafmæli Benjamíns sonar síns fyrir fjórum árum var enn í fullu fjöri og dansandi kl. 3 að nóttu og skaut þar yngra fólki rækilega ref fyrir rass. Við minnumst þess oft hve gaman var þegar þau Ytri- Tjarna systkinin hittust á góðri stund. Þau voru ákaflega músikölsk og spiluðu flest á orgel, píanó eða harmoniku. Þá var nú glatt á hjalla. Gullnar veigar glóðu á skálum, það var spilað og sungið og vísurnar fæddust og flugu. En ekki aðeins voru systkinin gott söngfólk, heldur voru einnig liðtækir hagyrðingar þeirra á meðal. Baldur harmaði hæfileikaskort sinn við að yrkja, að honum fannst, en á móti kom að hann kunni þau býsn af ljóðum og vísum og var fljótur að grípa allt slíkt. Aldrei kom maður svo í Tjarn- ir að Baldur færi ekki með vísu- korn. Alltaf var tilefni til að rifja upp vísur í tengslum við liðna at- burði. Já, þetta voru góðir tímar. Nú eru aðeins Friðrik og Svafa eftir af 12 systkinum sem öll hafa náð háum aldri. En svona er gangur lífsins, eða eins og skáldið sagði: „Að heilsast og kveðjast, það er lífs- ins saga.“ Þetta er víst það sem við verðum að sætta okkur við. En það er alltaf gott að koma að Tjörnum. Þar er ættaróðal föðurættar okkar og ræturnar liggja þar djúpt. Þó föðurfólk okkar af eldri kynslóðinni sé óðum að hverfa yfir móðuna miklu finnum við nærveru þeirra þar á sérstakan hátt og vitum að þau eru ekki horfin okkur að eilífu. Mesta gæfuspor Baldurs var þeg- ar hann hitti konuefni sitt í kvenna- skólanum á Syðra-Laugalandi, en kvennaskólar voru sem gullnáma í sveitum víða um land á þeim árum. Hann réðst ekki á garðinn þar sem hann var lægstur, heldur náði í eina af kennslukonum skólans, Þuríði Helgu Kristjánsdóttur frá Hellu á Árskógsströnd. Hún er einstök í sinni röð og önnur eins úrvalskona er vandfundin. Hún stóð alla tíð við hlið manns síns sem klettur úr haf- inu og stóð af sér alla boða. Heimilið var þungt, mannmargt og mikill gestagangur. Hvíldi það ekki síst á hennar herðum en hún var vand- anum vaxin og vel það. Hjá þeim hjónum biðu manns alltaf höfðing- legar móttökur. Þau voru rausnar- leg og hjartahlý með afbrigðum og ákaflega skemmtileg heim að sækja. Af þeim hjónum er kominn mannvænlegur hópur, þau eignuð- ust sex börn, barnabörnin eru tutt- ugu og barnabarnabörnin farin að líta dagsins ljós. Þó söknuðurinn sé mikill nú þeg- ar Baldur er fallinn frá má hugga sig við það hve gleðilegt það er að þau Þuríður áttu þess kost, alla sína tíð, að geta búið heima á Ytri-Tjörn- um. Baldur átti langa og góða ævi með góðum lífsförunaut, hann fékk að kveðja þetta líf án þess að þjást af langvarandi veikindum. Það má vissulega þakka Guði fyrir það. Að lokum þökkum við frænda okkar samveruna og eigi þarf að efa að hans munu bíða vinir í varpa hand- an landamæranna. Fyrir hönd fjöl- skyldunnar færum við Þuríði, börn- um hennar og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Minningin um góðan dreng lifir. Snæbjörg og Sigríður Bjartmarsdætur. Er falls ván at fornu tré er gam- alt orð. Baldur á Ytri-Tjörnum var orðinn 91 árs þegar hann dó, svo að við því mátti búast, að hann færi að kveðja. Hann var sjálfum sér líkur til hins síðasta og hélt persónuleika sínum og reisn, þessi gamli bænda- höfðingi. Baldur var mjög pólitískur og fylgdist vel með þjóðmálum. Hann bar mikinn metnað fyrir bænda- stéttina og lagði upp úr því, að menn ættu að vera frjálsir til at- hafna, en um leið ábyrgir fyrir gerð- um sínum, auðvitað. Hann gat verið gagnrýninn á fundum, vildi fá hreinskiptin svör, ef honum líkaði ekki, en var ævinlega skýr og gam- ansamur í ræðum sínum, orðhepp- inn og orðvís. Það var bjart yfir honum og hans málflutningi. Ég minnist margra góðra stunda í stofunni á Ytri-Tjörnum hjá þeim Þuríði og Baldri. Þar var mér tekið af gestrisni og hlýju og spjallað. Tíminn leið hratt, því að Baldur var skarpgreindur maður og margfróð- ur. Aldrei kom ég svo í þeirra hús, að ég væri ekki lengur þar en ég hafði ætlað mér. Baldur var gæfumaður í sínu lífi og þau Þuríður samhent og áttu barnaláni að fagna. Og svo nutu þau þess í ellinni, að Benjamín hafði tekið við búinu af þeim, og nú er Baldur Helgi farinn að vinna að því með föður sínum. Sjaldan bautarsteinar standa brautu nær nema reisi niður af nið segir í Hávamálum. Ræktunar- maðurinn horfir ekki til einnar kyn- slóðar, heldur horfir lengra fram. Þessi hugsun er bóndanum eðlis- læg. Halldór Blöndal. Við vorum miklir mátar á stúd- entsárum okkar, Ytritjarnabræður, Valgarður og Bjartmar Kristjáns- synir, og undirritaður, enda ná- grannar á Nýjagarði, og hélst vin- átta okkar, meðan þeir lifðu. Það mun verið hafa lýðveldishátíðarárið að haustinu, að Valgarður kom að norðan með ljósmyndaafrakstur sumarsins, en hann kunni snilldar- vel að fara með myndavél. Þar báru af brúðarmyndir af nýgiftum hjón- um, sem stóðu brosandi og geislandi af gleði á túninu framan við sókn- arkirkju brúðarinnar að Stærri-Ár- skógi. Þegar ég spurði, hvaða myndarfólk þetta væri, kvað hann þetta vera Þuríði Kristjánsdóttur frá Hellu og Baldur bróður sinn, sem tekið hefðu við búi á Ytritjörn- um af öldruðum foreldrum hans þá um haustið. Mynd þessi varðveittist síðan í huga mér ásamt vissunni um, að ekki væri íslenskum sveitum alls varnað, meðan slíkt manndómsfólk hygði á búrekstur. Það var svo ekki fyrr en löngu seinna, að við hjónin lentum á ein- hverjum hrakhólum með garðstæði undir kartöflur til heimilis. Þá var okkur bent á, að Baldur á Ytritjörn- um, sem stundaði mikla jarðepla- framleiðslu, væri vís til að leyfa okkur að setja ofan í fáeina hryggi á akri sínum, og þar var okkur sann- arlega ekki í kot vísað, heldur vel fagnað eins og gömlum vinum. Ekki væri okkur of gott að hola fáeinum hnöttóttum ofan í moldina þar á bæ, nóg væri landrýmið, eins og hver maður gæti séð. Það er að segja, þegar við komum í gúmmístígvélum okkar með spírað útsæðið, vorum við vinsamlega beðin að hafa okkur á burt sem skjótast og vera ekki að þvælast fyrir vinnandi fólki. Þar á bæ væri nefnilega sett niður með frambærilegum vélum og nútíma- legri ofurtækni. Hins vegar værum við hjartanlega velkomin í kaffisopa hvenær sem væri og ekki yrði amast við okkur í félagsskapinn til upptökunnar um haustið, þau væru nefnilega vön að taka upp með handafli til að særa ekki upp- skeruna. Þegar landsetar minntust á leigugjald fyrir jarðarafnotin og átroðninginn, urðu landeigendur slegnir skyndilegri heyrnardeyfu. Stóðu svo þessir óskráðu samningar óhaggaðir árum saman eða meðan þörf okkar krafði. Þetta var upphafið að gróinni áratuga vináttu milli heimilanna og skemmtilegum kynnum við þau sæmdar- og rausnarhjón, Þuríði og Baldur. Við hjónin teljum okkur mikinn ávinning að því að hafa fengið að kynnast þeim og eiga þau að sönnum tryggðavinum. Stund- um höfum við setið rausnarlegar veislur á heimili þeirra, en líka oft ekki neitað okkur um þá skemmtan að sviptast óvænt inn í eldhús til þeirra í lummukaffi. Húsbóndinn var alltaf skemmtinn, glaðvær og hress í bragði, sló fram óvæntum spurningum um sitthvað, sem hann hafði þá verið að velta fyrir sér, hafði ákveðnar skoðanir á efni eða efnistökum bóka, sem hann hafði nýlega lesið eða ræddi um stjórn- málaástandið, sem hann hafði oft áhyggjur af. Honum leist ekki allt- af á blikuna, þó að grunnt væri allt- af á gamanseminni. Sennilega má segja, að í stjórnmálum og þjóð- málum hafi hann verið frjálslyndur íhaldsmaður. Hann var líka ver- kavanur á velli opinberrar um- sýslu, enda þóttu lengi engin ráð ráðin í Öngulsstaðahreppi hinum forna, nema hann væri kvaddur til. Honum var alltaf treyst til að finna bestu lausn í hverju máli. Baldur var í senn „geysir gam- anyrða“ og brunnur fróðleiks, enda víðlesinn og fjölvís. Undraverð var þekking hans á íslenskum bók- menntum, fornum og nýjum, og ekki aðeins kunnugleiki hans á því sviði, heldur kunnátta. Hann gat, vel níræður öldungurinn, þulið bókarlaust og hikstalaust helstu kvæði helstu höfunda tveggja síð- ustu alda, það er að segja ef form kvæðanna og efni var honum að skapi. Þar að auki kunni hann ógrynni lausavísna og vissi deili á höfundum þeirra og tilefnum. Ef honum þótti eitthvað skorta á það, var hann ekki í rónni, fyrr en úr hafði verið bætt. Hið sama má raunar segja um málfarsleg atriði og allt, sem talist getur til þjóð- legra fræða. Er þá allt ótalið, sem lýtur að búskap og búfræðum, þar sem hann var alltaf vel heima. Handtök hans voru hröð og mark- viss og örugg, ekkert fálm eða hik. Alltaf mátti líka treysta á hollráð hans, hjálpsemi og greiðvikni, hver sem í hlut átti. Baldur á Ytritjörnum gekk ekki óstuddur langa ævibraut. Þuríður húsfreyja hans var honum fyllilega samboðin í orði og verki. Samtaka tókust þau á við dagleg störf og hvern þann vanda, sem að höndum bar, og samtaka önnuðust þau af ást og umhyggju barnahópinn sinn, sem nú geldur fósturlaunin í sömu mynt. Mikill bústólpi og landstólpi er af heimi genginn, heiðursmaður og höfðingi, góður maður og vandað- ur. Hann naut þeirrar gæfu að lifa glaður og reifur til hinsta dags, að hætti Hávamála. Honum skal vott- uð virðing og þökk fyrir fagurt líf, en Þuríði, börnum þeirra, tengda- börnum og frændliði öllu einlæg samúð okkar Ellenar. Sverrir Pálsson. Einhverju sinni er ég átti leið um Tjarnarhlöð og Baldur bóndi hafði boðið til stofu barst talið að barn- eignum og barnaláni. Þótti honum þau afrek lítil til afspurnar að eiga aðeins eitt barn, bóndanum sem notið hafði láns barna og barna- barna um ævina og spurði hvort enn væri ekki tóm úr að bæta. Komumaður kvað það eigi útilokað en engin áform væru þó í þá veru. Talið barst síðan að þjóðmálunum sem gjarnan voru honum hugleik- in. En áminningin um að hverjum manni væri hollt að eiga nokkuð af- komenda var dæmigerð fyrir gam- ansemi Baldurs og þann hæfileika að geta látið flest flakka við komu- menn á þann hátt að bæði gestur og gestgjafi höfðu ánægju af. Baldur hafði þann hátt að bjóða gesti til skrifstofu að þiggja tár af staupi og gjarnan korn úr dós á meðan Þuríður kona hans brá kaffikönnu á eldavél. Á kontórnum fóru fram þróttmiklar umræður, hvort sem þjóðmál, mál landbún- aðar og bænda, sögulegur fróðleik- ur, skáldskapur eða eilífðarmál voru tekin til skrafs. Hvar sem bor- ið var niður var gestgjafinn vel heima enda fróðleiksfús og bækur gjarnan á borðshorninu. Þótt þjóð- málin væru honum þæg og eilífð- armálin kunn svo lærðir máttu sig stundum vara þá naut hann sín aldrei betur en þegar skáldskapur var annars vegar. Einkum ljóða- gerð hefðbundinna hagleiksmanna á íslenska tungu og undra mátti minni hans. Allt fram á síðustu ár fór hann ekki aðeins með vísu og vísu heldur langa ljóðabálka og minnist ég þess að hafa hlýtt á hann fara með Gunnarshólma Jón- asar Hallgrímssonar án þess að hafa staf á blaði kominn nær að ní- ræðu. Baldur á Tjörnum var einn þeirra heiðursmanna sem lifði öld- ina ef svo má segja. Hann fæddist inn í heim fortíðarinnar sem hann ásamt samferðamönnum og konum vann að því að breyta. Hann lagði lóð sinnar tíðar að þeim miklu um- breytingum sem urðu á landbúnaði og skilaði jörð sinni annarri og endurbættri í hendur næstu kyn- slóða. Þrátt fyrir framsýni og framkvæmdir lagði hann gömlu amboðin aldrei þó að fullu frá sér. Fram á síðustu æviár gekk hann á tún á góðum sumardögum með orfið og bar ljá að grasi. Þannig hitti ég hann síðast að því mig minnir. Átti leið um sveitina í leit að myndefni í sláttarbyrjun og staðnæmdist þar sem Baldur Benjamínsson, sonarsonur hans, vann að heyskap. Eftir að hafa myndað dráttarvélina samlita tún- gróðrinum ræddi ég um stund við hinn aldna bónda sem studdist við sláttufæri sitt í túnfætinum. Ég hygg að honum hafi hvorki fundist sumar né heyskapartíð bæri hann eigi ljá að velli. Og enn voru þjóð- málin rædd. Að þessu sinni á lækj- arbakkanum á Ytri Tjörnum. Baldur bar hag bændastéttar- innar fyrir brjósti og fannst að syrti nokkuð að. Roskinn bóndi með ævistarf að baki leiddi hugann að vanda landbúnaðar og sveita. Til hvers hafði verið unnið í nær heila öld. En honum auðnaðist að horfa á afkomendur halda starfi hans áfram. Þrjár kynslóir Ytri Tjarnabænda voru að störfum að kvöldi sólríks sumardags. Og aðeins brot af því barnaláni sem hann taldi hverjum manni mikilvægt um leið og hann rétti gesti guðaveig í stofunni forð- um og minnti hann á þau sannindi. Þórður Ingimarsson.  Fleiri minningargreinar um Baldur H. Kristjánsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR MARTEINSSON, Meiri-Tungu, sem lést föstudaginn 28. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju í Holtum laugar- daginn 6. desember kl. 14.00. Guðmar Ragnarsson, Jóhanna Jónsdóttir, Þórunn Ragnarsdóttir, Sæmundur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.