Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 20
ERLENT 20 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ KAMBÓDÍUMAÐUR sem uppgötvaði að hann hafði gleymt veskinu sínu heima greiddi fyrir þrjá lítra af bensíni með litla frænda sínum. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir dagblaðinu Kampuchea Thmey sem sagði að frændurnir hefðu verið á ferðinni á mótorhjóli í leit að föður þess litla en áður en þeir komust á áfangastað varð hjólið bensínlaust. Þegar búið var að fylla á tankinn gerði sá eldri sér grein fyrir því að hann var ekki með peninga á sér. Með fortölum tókst honum að fá konuna sem seldi bensínið til að taka litla frænda, níu ára, í pant uns hann kæmi aftur með and- virði bensínlítranna þriggja, um 150 krón- ur. Síðan eru liðin tvö ár og ekkert bólar á frændanum á mótorhjólinu og bensín- sölukonan hefur ákveðið að ala litla frændann upp sem sinn eigin son. Blondínur vilja bækur KONUR vilja í rauninni alls ekki helst af öllu fá æsandi undirföt í jólagjöf, þótt jafn- an fjölgi mjög vandræðalegum og ráð- villtum (og í stöku tilvikum æstum) karl- mönnum í kvennærfatadeildum er nær dregur jólum. Að minnsta kosti hafa dansk- ar konur ekki áhuga, að sögn Ekstra Bladet sem greindi frá könnun sem Deloitte & Touche í Danmörku gerði og leiddi í ljós að konur óska sér helst bóka í jólagjöf. Strákarnir aftur á móti vilja helst fá geisladisk, myndband eða DVD – nú eða einhver verkfæri. En þeir hafa lítinn áhuga á því sem flestar konur ætla að gefa þeim, það er að segja gjafakortum hvers konar. Puðað á Potsdamer-torgi PRÓFESSORAR og námsmenn í Berlín halda nú maraþonfyrirlestur um eðl- isfræði undir berum himni í þeim tvíþætta tilgangi að mótmæla fyrirhuguðum nið- urskurði á fjárveitingum til háskólanna þriggja í borginni og komast á síður Heimsmetabókar Guinness. Lesturinn langi fer fram á Potsdamer- torgi og hófst á mánudaginn. Núverandi heimsmethafi í maraþonfyrirlestrahaldi er 24 ára Bandaríkjamaður sem fyrr á árinu talaði í 51 klukkustund og 44 mín- útur. Gaddafí á skólabekk HANNIBAL Gaddafí, sonur Lýbíuleiðtog- ans alræmda, hóf á mánudaginn nám við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn þar sem hann hyggst næla sér í MBA-gráðu með skipaútgerð og vöruflutninga sem sér- svið. Hannibal er á miðjum þrítugsaldri og mun ekki þurfa að flytja til Danmerkur á meðan hann stundar námið heldur fer það að mestu fram um Netið og á myndböndum. Dönsk stjórnvöld hafa ekki viljað tjá sig um málið, en faðir Hannibals, Moammar, er á svörtum lista víðast hvar í heiminum vegna meints stuðnings við hryðjuverkastarfsemi. Þær syndir föðurins virðast þó ekki munu koma niður á syninum því að refsiaðgerðir gegn Lýbíu varða einungis vopn. ÞETTA GERÐIST LÍKA Frændi í pant AP Fiskar sem glóa í myrkri munu koma á markað í Bandaríkjunum á næst- unni – og eru þetta fyrstu gena- breyttu gæludýrin þar í landi. Þó eru ekki líkur á að þessi augnayndi verði fáanleg í Kaliforníu, þar sem lög banna að dýr séu búin til í rannsókn- arstofum. Ekkert má nú, Arnold COLIN Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hvatti í gær Atlantshafsbandalagið (NATO) til að taka að sér stærra hlutverk í Írak, og fagnaði um leið „afdrátt- arlausara“ hlutverki Sameinuðu þjóðanna. Stríðið í Írak og þær diplómatísku deilur sem spruttu upp í aðdraganda þess ollu ein- hverri mestu kreppu í sögu bandalagsins, en þrjú ríki sem voru andvíg stríðinu, Frakkland, Þýskaland og Belgía, vildu ekki að Tyrklandi yrði veitt aðstoð. Powell benti á að bandalagið veitti nú þegar tæknilega aðstoð við pólsku deildina í fjölþjóðalið- inu sem er í Írak og að 16 NATO- ríki væru í hópi bandamannaríkj- anna sem standa að hersetunni í landinu. Hann rifjaði ennfremur upp að í ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 16. októ- ber væri „hvatt til þátttöku fjöl- þjóða og staðbundinna samtaka í þessu starfi“. Markmið Bandaríkjastjórnar í Írak væru tvö. Að íraska þjóðin tæki sem fyrst við stjórnartaum- unum í landinu og komið yrði á fót „frjálsu, lýðræðislegu og stöð- ugu Írak sem byggi í sátt og sam- lyndi við nágranna sína“, sagði Deilan um aukið varnarsam- starf Evrópuríkja, sem jafnframt eiga aðild að NATO, blossaði upp þegar fjögur ríki ESB, Lúxem- borg, Belgía, Frakkland og Þýskaland kynntu í aprílmánuði áform um að koma á fót sjálf- stæðri stjórnstöð á vettvangi varnarmála. Hún verður í Belgíu. Ríkisstjórn Íslands er sammála því mati sem fram kom í máli Col- ins Powells á fundi utanríkisráð- herranna í Brussel í gær. Spurð- ur um afstöðu Íslendinga sagði Gunnar Gunnarsson, fastafulltrúi Íslands hjá NATO, í samtali við Morgunblaðið á miðvikudag að Íslendingar styddu hugmyndirn- ar um aukið framlag Evrópuríkja til varnarsamstarfsins (ESDP). „En við teljum mjög mikilvægt að þetta sé þróað með þeim hætti að ekki sé gefið til kynna að einhvers konar samkeppni verði tekin upp við Atlantshafsbandalagið. Ekki megi draga í efa að Atlantshafs- bandalagið sé grundvöllur örygg- is- og varnarmála Evrópuríkja og menn verði að gæta þess að ekki komi upp misskilningur í Atlants- hafssamskiptunum vegna ESDP,“ sagði Gunnar Gunnars- son. Powell. „Bandaríkjamenn fagna því að NATO leggi meira að mörkum til að þessi markmið megi nást.“ Robertson lávarður, fram- kvæmdastjóri NATO, tók undir orð Powells um þörfina á auknu hlutverki bandalagsins í Írak. Mega ekki veikja NATO Í ræðu sinni á tveggja daga fundi utanríkisráðherra banda- lagsins ítrekaði Powell þá afstöðu Bandaríkjastjórnar að áform til- tekinna ríkja Evrópusambandsins um aukið samstarf í varnarmálum mættu ekki verða til þess að veikja NATO. Slíkt „gætu Banda- ríkjamenn ekki samþykkt“. Bandaríkjamenn fögnuðu hins vegar tillögum sem fallnar væru til að efla varnarmátt Evrópu- ríkja. Þau áform yrði á hinn bóg- inn að fella að Atlantshafssam- starfinu. Powell vill auka hlut NATO í Írak Brussel. AFP. Bandaríkjamenn ítreka andstöðu við varnaráform Evrópuríkja RÚSSNESKA stjórnin ætlar að krefjast breytinga á Kyoto-sáttmálanum og mun ekki fullgilda hann ef einhver önnur ríki gera það ekki. Andrei Íllaríonov, efnahagsráðgjafi Vla- dímírs Pútíns, forseta Rússlands, lýsti yfir þessu á fundi með evrópskum kaupsýslumönn- um í Moskvu í gær. Kemur þessi yfirlýsing á sama tíma og fulltrúar 180 ríkja eru á fundi í Mílanó á Ítalíu um sáttmálann en hann getur ekki tekið gildi nema Rússar undirriti hann. Íllaríonov sagði, að í núverandi mynd þjón- aði sáttmálinn ekki hagsmunum Rússa og þess vegna væri verið að semja um breytingar á Suður-Kóreu, Brasilíu og Mexíkó en þau sleppa að sinni við að draga úr menguninni. Rússland er þriðji mesti mengunarvaldurinn í heimi á eftir Bandaríkjunum og Kína en talið var, að Kyoto-sáttmálinn væri því mjög hag- stæður. Ástæðan er sú, að mengunin þar er nú þriðjungi minni en hún var 1990 vegna þess samdráttar, sem varð í efnahagslífinu eftir hrun Sovétríkjanna. Rússar hefðu því átt að geta selt hluta af mengunarkvóta sínum á Vesturlöndum en þeir sjá hins vegar fyrir sér mikinn vöxt í efnahags- lífinu og vilja því ekki binda sig við 1990- mörkin. honum. Tækist það ekki, yrði hann ekki bor- inn undir atkvæði á rússneska þinginu. Sagði Íllaríonov, að sáttmálinn myndi að óbreyttu draga úr hagvexti í Rússlandi um eitt pró- sentustig. Vilja ekki binda sig Með sáttmálanum var 38 iðnríkjum, þar á meðal Rússlandi, gert að draga svo mjög úr kolsýringsmengun, að 2010 yrði hún 5,2% minni en hún var 1990. Sagði Íllaríonov, að annaðhvort yrði að breyta þessum viðmið- unum hvað Rússland varðaði eða skipa því á bekk með þróunarríkjum á borð við Kína, Rússar vilja breytingar á Kyoto-sáttmálanum Moskvu. AFP. ÞESSIR dansarar og hljóðfæraleikarar tóku á móti Elísabetu Englandsdrottningu þegar hún heimsótti þorpið Karu, nærri Abuja, í Nígeríu í gær. Drottn- ingin er í opinberri heimsókn til Nígeríu, sem áður var ein af nýlendum Bretaveldis. Er þetta fyrsta heimsókn hennar til Nígeríu í næstum hálfa öld. Reuters Tóku vel á móti Elísabetu TALIÐ er víst, að um sjálfsmorð hafi verið að ræða í 11 af 26 rannsökuðum tilfellum er fólksbílar og flutninga- bílar rákust saman á norskum þjóð- vegum. Þetta kemur fram í skýrslu frá rannsóknastofnuninni Sintef og í framhaldi af henni hefur Torild Skogsholm samgönguráðherra kvatt til skyndifundar um málið með fulltrúum vegagerðarinnar, félags flutningabílstjóra og fleiri samtaka að því er fram kemur í Aftenposten. Rannsóknin náði til 26 árekstra á beinum vegarköflum, sem höfðu dauða í för með sér. Er því slegið föstu, að bílstjórar 11 fólksbíla hafi ekið framan á flutningabílana í því skyni að stytta sér aldur. „Skelfileg sýn“ Alf Ragnar Karlsen, talsmaður flutningabílstjóra, fullyrðir, að hlut- fall sjálfsmorðanna sé miklu hærra en fram komi í rannsókninni. „Það er skelfileg sýn, sem sumir félaga minna hafa upplifað. Fólks- bíll, sem stefnir beint á þá og bíl- stjórinn jafnvel brosandi og veif- andi,“ sagði Karlsen og bætti við, að sumir flutningabílstjóranna liðu miklar sálarkvalir á eftir. Mörg sjálfsmorð á veg- um úti Fólksbílum ekið viljandi á flutningabíla TVÆR stúlkur af írönsku og belgísku bergi brotnar hafa leitað hælis í belg- íska sendiráðinu í Teheran og vilja fá að fara aftur til Evrópu. Íranskur fað- ir stúlknanna, sem eru fjórtán og sex ára gamlar, hafði tekið þær með sér til Írans eftir að hann skildi við belg- íska móður þeirra. Þær vilja hins veg- ar snúa aftur til móður sinnar. Stúlkurnar flúðu heimili föður síns á þriðjudag og fóru með leigubíl í belgíska sendiráðið, að því er fram kom á fréttasíðu BBC. Hafa belgísk stjórnvöld heitið þeim „fullri vernd“ en vilja þó reyna að komast hjá deil- um við yfirvöld í Teheran. Louis Michel, utanríkisráðherra Belgíu, hefur lýst sig reiðubúinn til að fara til Teheran í því skyni að finna lausn á málinu. Móðir stúlknanna hef- ur lagalegt forræði yfir börnunum og gáfu belgísk stjórnvöld á sínum tíma út alþjóðlega handtökuskipun á hend- ur föðurnum eftir að hann fór með stúlkurnar, Yasmine og Söru Pourh- ashemi, til Írans í kjölfar sumarleyf- isdvalar í Grikklandi í ágúst. Vilja fá að snúa aftur til Belgíu ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.