Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 60
ÍÞRÓTTIR
60 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUUB Stevens var í gær vikið
frá störfum sem þjálfari þýska
knattspyrnuliðsins Hertha Berlín.
Hvorki hefur gengið né rekið hjá
liðinu á leiktíðinni. Það situr í
næstneðsta sæti þýsku Bundeslig-
unnar og var slegið út af pólsku
liði í UEFA-keppninni en kornið
sem fyllti mælinn hjá stjórn-
endum félagsins var 6:1 ósigur
gegn Werder Bremen í bik-
arkeppninni í fyrrakvöld.
Stevens tók við liði Herthu í
júní á síðasta ári eftir farsælt
starf hjá Schalke.
Hann stýrði liðinu í 5. sæti á
síðustu leiktíð en á yfirstandandi
leiktíð hefur allt farið í handa-
skolum og tveir sigrar í 14 leikj-
um í deildarkeppninni segir sína
sögu.
Eyjólfur Sverrisson og Michael
Preetz yfirgáfu lið Herthu Berlin
síðastliðið sumar og skörð þeirra,
bæði sem leikmenn og leiðtogar,
hefur liðinu ekki tekist að fylla.
Andreas Thom, þjálfari vara-
liðs Herthu, mun stýra Berl-
ínarliðinu í leiknum gegn Þýska-
landsmeisturum Dortmund á
morgun.
Hertha er fimmta félagið í
þýsku 1. deildinni sem rekur
þjálfara sinn á leiktíðinni. Ewald
Lienen var rekinn frá Gladbach,
Armin Veh frá Hansa Rostock,
Kurt Jara frá Hamburger og
Fridhelm Funkel frá Köln.
Stevens hættur sem
þjálfari Herthu Berlín
FÓLK
JALIESKY Garcia, landsliðsmað-
ur í handknattleik, skoraði 10 mörk
fyrir Göppingen gegn Wilhelms-
havener í þýsku bikarkeppninni í
fyrrakvöld. Þau dugðu þó skammt
því Wilhelmshavener sigraði
örugglega, 33:26. Gylfi Gylfason
skoraði 5 mörk fyrir Wilhelmshav-
ener.
ÞORVARÐUR Tjörvi Ólafsson
skoraði 6 mörk fyrir Århus GF og
Róbert Gunnarsson 5 þegar lið
þeirra vann Fredericia á útivelli í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik í fyrrakvöld, 32:27 Gísli Krist-
jánsson skoraði 3 mörk fyrir
Fredericia í leiknum.
SIGURSTEINN Arndal skoraði 2
mörk fyrir Team Helsinge sem
tapaði fyrir Kolding í dönsku úr-
valsdeildinni, 36:28. Hinn hálfís-
lenski Hans Lindberg gerði 8 mörk
fyrir Team Helsinge.
RÓBERT Gunnarsson er næst
markahæstur í dönsku úrvalsdeild-
inni en hann hefur skorað 75 mörk
fyrir Århus GF. Markahæstur er
Micke Næsby, félagi Gísla Krist-
jánssonar hjá Fredericia, með 85
mörk.
MORTEN Olesen, markvörður
danska knattspyrnuliðsins Bröns-
höj, varði mark Keflvíkinga þegar
þeir sigruðu Njarðvík í æfingaleik í
Reykjaneshöllinni í fyrrakvöld, 3:1.
Samkvæmt heimasíðu Keflavíkur
stóð Olesen fyrir sínu og lofaði
góðu en hann er til reynslu hjá
Keflvíkingum til sunnudags. Þór-
arinn Kristjánsson skoraði tvö
marka Keflvíkinga og Zoran Daníel
Ljubicic eitt.
VEIGAR Páll Gunnarsson skor-
aði bæði mörk KR-inga sem gerðu
jafntefli við Valsmenn í æfingaleik í
Egilshöll, 2:2. Guðni Rúnar Helga-
son og Birkir Már Sævarsson skor-
uðu mörk Hlíðarendaliðsins.
FRANSKI varnarmaðurinn Pasc-
al Cygan lætur í veðri vaka í viðtali
við enska fjölmiðla í gær að hann
kunni að vera á förum frá Arsenal.
Frakkinn er ósáttur við að fá ekki
fleiri tækifæri með liðinu en Kolo
Toure hefur haldið Cygan að mestu
fyrir utan liðið. Cygan, sem er 29
ára gamall, hefur verið orðaður við
Lille. París SG og Bastia hafa einn-
ig sýnt áhuga á að fá hann í sínar
raðir.
CLAUDIO Ranieri, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, hefur tekið stefnuna
á sigur í deildabikarkeppninni en
hans menn slógu út Reading í
fyrrakvöld og mæta Aston Villa í 8-
liða úrslitunum. Ranieri segist ætla
að halda áfram að stilla upp sínu
sterkasta liði í keppninni, en félög á
borð við Arsenal og Manchester
United, hafa að mestu látið minni
spámennina spila í keppninni. Í hin-
um bikarleikjunum mætast WBA -
Arsenal, Tottenham - Middles-
brough og Bolton - Southampton.
BIRGIR Guðjónsson hefur
verið endurkjörinn í lækna-
og lyfjanefnd Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandsins, IAAF,
til næstu fjögurra ára. Í
framhaldi af því var Birgi
falið að sjá um skipulag og
eftirlit með læknisþjónustu
og lyfjaeftirliti á heims-
meistaramóti unglinga sem
fram fer í Grosseto á Ítalíu á
næsta ári.
Birgir hjá IAAF
ÞAÐ er ekki aðeins í Evrópu sem
beðið er með eftirvæntingu eftir
því að dregið verði í riðla fyrir
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins í knattspyrnu í Frankfurt síð-
degis í dag. Þar kemur einnig í
ljós hvernig undanriðlar HM verða
skipaðir í Afríku, Asíu, Norður- og
Mið-Ameríku og í Eyjaálfu. Í Suð-
ur-Ameríku anda knattspyrnu-
áhugamenn rólega, þar leika allar
tíu þjóðirnar hver gegn annarri
og sú keppni hófst strax í sept-
ember. Forkeppni hefur reyndar
þegar farið fram í Asíu og Afríku
en þar var leikið um að fá að spila
í riðlakeppninni sem nú verður
dregið til. Af 205 aðildarþjóðum
Alþjóða knattspyrnusambandsins
(204 og Nýju-Kaledóníu sem er
verðandi meðlimur en fær að taka
þátt) voru 198 skráðar til leiks.
Þar af drógu þrjár sig úr for-
keppni þegar á reyndi, Guam og
Nepal í Asíu og Mið-Afríku-
lýðveldið í Afríku. Leikið er um 31
sæti í lokakeppninni sem fram fer
árið 2006 í Þýskalandi en 32. sætið
er frátekið fyrir gestgjafana. Nú
þurfa heimsmeistararnir í fyrsta
skipti að taka þátt í undankeppni,
Brasilíumenn hafa þegar leikið
fjóra leiki af 18 í Suður-Amerík-
uriðlinum. Fjöldi þjóða og sæta í
HM skiptast þannig eftir heims-
álfum:
Afríka: 51 þjóð leikur um 5 sæti.
Asía: 39 þjóðir leika um 4 sæti.
Evrópa: 51 þjóð leikur um 13
sæti.
Norður- og Mið-Ameríka: 34
þjóðir leika um 3 sæti.
Suður-Ameríka: 10 þjóðir leika
um 4 sæti.
Eyjaálfa: 12 þjóðir leika um eitt
sæti í aukakeppni en þar spila
sigurvegari Eyjaálfu, fimmta lið
Asíu, fjórða lið Norður- og Mið-
Ameríku og fimmta lið Suður-
Ameríku um tvö síðustu HM-
sætin.
HM-drátturinn í Frankfurt
Þótt sumir sundmenn hafi virstþungir á bikarmótinu í Sundhöll
Reykjavíkur fyrir
skömmu, þ.e.a.s. ekki
að gera eins og þeir
best geta, kom það
ekki á óvart því
margir af þeim lögðu æfingaáætlanir
sínar þannig upp að þeir yrðu í sínum
besta ham á Evrópumótinu nú, enda
sagði yfirþjálfari landsliðsins, Stein-
þór Gunnarsson, þá að flestir væru á
réttri leið. Auk þess henti 25 metra
laug Íslendingunum ágætlega því
þeir eru vanir að æfa á þeim lengdum.
Mótið er einnig stórmót en Íslend-
ingar hafa staðið sig vel þar, til dæmis
Örn, og það eflir hina en keppnisferð-
in tekur viku og það er alltaf strembið
að vera svo lengi að.
„Við förum með gott lið og þar af
nokkra nýja kandidata, sem stíga sín
fyrstu spor á Evrópumóti fullorðinna
en það eru samt flestir í liðinu
reynslumikið sundfólk, sem búið er
að fara í gegnum öll mót hjá ung-
lingalandsliðinu,“ sagði Steindór á
æfingu landsliðsins. „Það er mögu-
leikar á metum hjá öllum, eins og sést
ef skoðaðir eru tímar þeirra. Við
sættum okkur ekki við minna en að
tveir komist í úrslit og ef við náum
þremur í milliriðla verð ég mjög
ánægður. Markmið er samt helst að
bæta sína tíma og það er gott í sjálfu
sér því það er skref upp á við á af-
rekalistanum og gefur fyrirheit um
góðan árangur.“
Nokkrir sundmenn, sem náð höfðu
tilskildum árangri á mótið, áttu ekki
heimangengt eða eru við æfingar er-
lendis. Það eru Kolbrún Ýr Kristjáns-
dóttir, Lára Hrund Bjargardóttir,
Hjörtur Már Reynisson og Eva
Hannesdóttir.
Aukakíló Arnar farin
Örn Arnarson hefur titil að verja.
„Mér líst vel á þetta mót. Ég er í tals-
vert betri æfingu en í fyrra – var þá
með nokkur aukakíló eftir mjög langt
sumarfrí og hef nú synt hraðar en
venjulega. Ég vil helst koma heim
með einn eða tvo gullpeninga um
hálsinn og verð ekki sáttur ef mér
tekst ekki að verja titil minn í tvö
hundruð metrunum. Það mitt aðal-
markmið og sprettirnir eru meira
aukagreinar,“ sagði þrautreyndur
kappinn og gaf hinum heilræði. „Það
lítið hægt að gera úr þessu ef maður
hefur ekki æft nógu vel, það er of
seint að bjarga því. Á mótinu þarf að
reyna minnka stressið eins og hægt
er. Njóta þess frekar að synda með
fólki með sömu getu. Margir gera of
mikið af því að horfa í kringum sig og
sjá heimþekkt sundfólk en það er
nokkuð sem má ekki láta slá sig útaf
laginu.“
Írís Edda lætur
meiðsli ekki aftra sér
Írís Edda Heimisdóttir, úr Íþrótta-
bandalagi Reykjanesbæjar, hefur
ekki getað æft af fullum krafti vegna
meiðsla síðustu daga en er óðum að
ná sér. „Mótið leggst vel í mig.
Reyndar hef ég átt við meiðsli í öxl að
stríða, en það var verið að sprauta í
öxlina svo það er að lagast og ég er
bjartsýn á framhaldið því ég hef æft
vel í vetur og þessi meiðsli eiga ekki
að hafa mikil áhrif. Ég átti í sömu
meiðslum fyrir heimsmeistaramótið í
sumar og fór þá líka í sprautur og það
kom vel út svo að ég þarf ekki að hafa
of miklar áhyggjur,“ sagði Íris Edda
og þrátt fyrir taugaspennu vegna
mótsins hyggst hún standa fyrir sínu.
„Það er ekki annað hægt en vera svo-
lítið stressuð en það verður að vona
það besta. Markmiðið er að taka Ís-
landsmetið af Ragnheiði Runólfsdótt-
ur í hundrað metra bringusundi, sjálf
á ég það í tvö hundrað. Ég ætti að ná
því og ætla mér það. Þetta eru gömul
met og það þarf að slá þau.“
Stefnt lengi að þessu móti
„Ég mun reyna við Íslandsmet í
hundrað metra baksundi og í fimmtíu
metrunum,“ sagði Anja Ríkey Jak-
obsdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarð-
ar. Hún er taka þátt í sínu öðru Evr-
ópumóti og veit því að hverju hún
gengur. „Ég hef æft af fullum krafti
fyrir þetta mót enda búin að stefna að
því lengi og mér ætti að ganga vel,
það verður að gefa allt sitt í þetta og
ég æfi á hverjum degi og stundum
tvisvar á dag. Ég held að þetta verði
mjög skemmtilegt svo ég ætla að ná
fram mínu besta og síðan er stefnan
sett á Ólympíuleikana.“
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Sundlandslið á leið á Evrópumót í Dublin. Fremst eru Steindór Gunnarson yfirþjálfari og Anja Rík-
ey Jakobsdóttir. Fyrir aftan þau frá vinstri eru Þuríður Einarsdóttir aðstoðarþjálfari, Hlín Ástþórs-
dóttir fararstjóri, Sigrún Benediktsdóttir Óðni, Ragnheiður Ragnarsdóttir SH, Jakob Jóhann
Sveinsson Ægi, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir Ægi, Louisa Isaksen Fjölni, Örn Arnarson ÍRB, Jón
Oddur Sigurðsson ÍRB, Heiðar Ingi Marinósson SH og Írís Edda Heimisdóttir ÍRB.
Tíu landsliðsmenn í sundi taka þátt í Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug
Örn Arnarson á titil
að verja í Dublin
FLESTIR bestu sundmenn íslands halda á mánudaginn til Írlands,
þar sem Evrópumeistaramótið í 25 metra laug fer fram í Dublin.
Mikið er í húfi – ekki bara að Örn Arnarson takist að verja titil sinn í
200 metra baksundi – heldur stefna allir sundmennirnir á að bæta
sína persónulegu tíma til að komast í, eða halda sig í, Ólympíuhópi
Sundsambandsins. Á síðasta Evrópumóti voru sjö Íslandsmet sett
og komu sundmenn heim með einn gullpening og einn úr bronsi.
Stefán
Stefánsson
skrifar