Morgunblaðið - 05.12.2003, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 9
HANNES Hlífar Stefánsson, stór-
meistari í skák, gerði jafntefli við
rússneska stórmeistarann Petr Kir-
iakov í 8. umferð Santo Domingo
Open, sem fram fór í fyrrinótt í
Dómíníska lýðveldinu. Hannes hef-
ur nú hlotið 6 vinninga og er í 3.–
14. sæti, hálfum vinningi á eftir
efstu mönnum. Þá sigraði Haraldur
Baldursson franska skákmanninn
Ludovic Cocogne og er Haraldur
nú í 84.–96. sæti með þrjá og hálfan
vinning.
Efstir á mótinu með 6,5 vinninga
eru Vadim Milov og Alexander
Moiseenko, en alls taka um 150
skákmenn þátt í þessu opna móti,
m.a. um 50 stórmeistarar. Níunda
og næstsíðasta umferð mótsins var
tefld í nótt.
Hannes
Hlífar með
jafntefli
FASTANEFND Bernar-sáttmálans
hefur komist að þeirri niðurstöðu
varðandi kæru nokkurra fugla- og
náttúruverndarfélaga vegna Kára-
hnjúkavirkjunar að send verði
nefnd til Íslands til að kanna málið
frekar og að tekin verði afstaða til
kærunnar á fundi fastanefndarinnar
að ári liðnu.
Meðal þeirra félaga sem stóðu að
kærunni er Fuglavernd Íslands og
var Einar Þorleifsson náttúrufræð-
ingur fulltrúi Fuglaverndar á fund-
inum. Hann sagðist sáttur við nið-
urstöðuna enda hafi aðstæður verið
þannig að ekki hafi verið hægt að
ná fram öllu sem stefnt var að, m.a.
að málið yrði opnað og tekið strax
fyrir.
Ástæðan fyrir því að fyrirtöku
kærunnar var frestað er m.a. sú að
tölum þeirra aðila sem stóðu að
kærunni bar ekki saman við tölur
sem fulltrúi Íslands í nefndinni, Jón
Gunnar Ottósson, forstöðumaður
Náttúrufræðistofnunar Íslands,
kynnti á fundinum.
Því var ákveðið að senda hingað
til lands nefnd á næsta ári skipaða
óháðum sérfræðingum sem taka
munu saman skýrslu um málið og
leggja fyrir fund fastanefndar
Bernar-sáttmálans á næsta ári.
Kæra fugla- og nátt-
úruverndarsamtaka
vegna virkjana
Afgreiðslu
frestað til
næsta árs
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Föt fyrir
allar konur
KARLMAÐUR á fertugsaldri slapp
ómeiddur úr bílveltu við Steingríms-
fjörð á miðvikudag. Ökumaðurinn,
sem var á leið til Hólmavíkur, missti
stjórn á bifreiðinni í mikilli hálku,
með þeim afleiðingum að hún valt
rétt norðan við bæinn Húsavík við
Steingrímsfjörð. Það má teljast
mildi að ökumaðurinn skyldi sleppa
því bifreiðin mun vera gjörónýt.
Slapp ómeiddur
úr bílveltu
Hólmavík. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristín Einarsdóttir
Þak bílsins lagðist saman í miðjunni og mildi þykir að ökumaðurinn hafi
sloppið nær ómeiddur.
♦ ♦ ♦
Síð pils með tjulli
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Bankastræti 14, sími 552 1555
Vandaður fatnaður
fyrir jól og áramót
Alltaf gott verð
Stakir sparijakkar
Glæsilegar blússur
og síð pils
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Dúnmjúkar
sængur og koddar.
Póstsendum
Sængurverasett
í úrvali
á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050
Hverfisgötu 6,
sími 562 2862
Kvenfatnaður
Verðum með kvenfatamarkað í Rauðagerði 25,
Kælitæknihúsinu, til 20. desember nk.
Verðdæmi: Gallabuxur frá kr. 1.500
Peysur frá kr. 1.000
Opnunartími frá kl. 12-19 alla daga nema sunnudaga.
Fatamarkaðurinn, Rauðagerði 25
Jólagjöfina færðu hjá okkur
Nóatúni 17•sími 562 4217
25% afsláttur
af öllum fatnaði út vikuna
Gullbrá Sendum í póstkröfu
Klapparstíg 44,
s. 562 3614
Nýtt útlit
í stáli
Froðuþeytari
fyrir
cappucino
Verð 2.995