Morgunblaðið - 05.12.2003, Qupperneq 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
30
39
12
/2
00
3
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
1.000.000.000 kr.
1. flokkur 2003.
Nafnverð útgáfu
Heildarnafnverð flokksins er 1.000.000.000 kr.
Skilmálar skuldabréfa
Skuldabréf 1. flokks 2003 eru til rúmlega 5 ára og greiðist verðbættur höfuðstóll skuldarinnar
í einu lagi 5. nóvember 2008. Skuldabréfin hafa tvo vaxtagjalddaga á ári, 5. maí
og 5 nóvember, fyrst 5. maí 2004 og síðast 5. nóvember 2008. Útgáfudagur bréfsins er
1. september 2003. Skuldabréfið ber 6,90% fasta ársvexti.
Auðkenni flokksins í Kauphöll Íslands verður OGVODA 03 1
Skráningardagur
Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá12. desember 2003.
Upplýsingar og gögn
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hefur Landsbanki Íslands hf.,
Laugavegi 77, 155 Reykjavík. Skráningarlýsingu og önnur gögn, sem vitnað er til í lýsingunni,
er hægt að nálgast hjá Landsbanka Íslands.
Vefsíða www.landsbanki.is
Og fjarskipti hf.
PHARMACO hefur samið við fjár-
málafyrirtækin ABN AMRO Rot-
hschild og Merill Lynch Internatio-
nal um ráðgjöf í tengslum við
skráningu félagsins á hlutabréfa-
markað í London. Í tilkynningu
Pharmaco til Kauphallar Íslands í
gær segir að stefnt sé að skráningu
félagsins í London á næsta ári.
Halldór Kristmannsson, forstöðu-
maður innri og ytri samskipta
Pharmaco, segir að skráning á hluta-
bréfamarkað í London sé til að
tryggja að hægt verði að fylgja eftir
frekari vexti félagsins. „Pharmaco er
orðið mjög stórt félag á íslenskan
mælikvarða og hefur sett sér metn-
aðarfull markmið um áframhaldandi
vöxt. Félagið hefur sagt að það ætli
að vaxa með fjárfestingum og sam-
einingum við erlend fyrirtæki en til
þess þarf gott aðgengi að fjármagni.
Við metum stöðuna þannig að mark-
aðurinn á Íslandi sé að verða of lítill
fyrir Pharmaco. Við teljum London
áhugaverðan kost fyrir okkar hlut-
hafa þar sem mörg af stærstu fyr-
irtækjum Evrópu eru þar skráð og
markaðurinn sá stærsti í Evrópu.
Þannig verði velta með bréf félags-
ins og aðgengi að fjármagni auðveld-
ara.“
Hann segir að vinnan við að skrá
félag inn á þennan markað sé mjög
mikil og því sé ekki hægt að segja
nákvæmlega til um tímasetningu á
þessu stigi, nema hvað stefnt sé að
því að skráningin eigi sér stað á
næsta ári.
Halldór segir Pharmaco verða
áfram skráð í Kauphöll Íslands en nú
sé að hefjast vinna með ráðgjöfum
þar sem metnir verði þeir valkostir
sem uppi séu.
Hlutabréf
Pharmaco verði
skráð í London
skekkir samanburður við Danmörku
myndina. Danir segja sjálfir að það
eigi alls ekki að miða við þá þar sem
ástandið þar sé afbrigðilegt. Fjár-
málakerfið í Danmörku hefur verið
að reyna að brjótast út úr því sem
þeir kalla nánast ólögmætt ástand
en samkvæmt löggjöf hafa þeir ekki
mátt innheimta þessi gjöld. Það er
hins vegar aðeins að fara að breyt-
ast, eins og fram kemur í fréttinni.“
Guðjón segir að frekar eigi að
miða við Noreg, Svíþjóð og jafnvel
Finnland hvað varðar gjöld af deb-
etkortum.
„Í þeim samanburði veit ég að við
komum ágætlega út. Því er vart
sanngjarnt að gefa undir fótinn með
það að ástandið sé verra hjá okkur.
Ef Danmörk er frátalin finnst mér
samanburðurinn sýna að við stönd-
um vel að vígi gagnvart Norður-
löndunum hvað varðar verðsam-
keppni. Við erum alls ekki með
hærri debetkortagjöld,“ segir Guð-
jón.
NEYTENDUR á Íslandi njóta sam-
bærilegra og jafnvel betri kjara á
debetkortum en neytendur annars
staðar á Norðurlöndum, að sögn
Guðjóns Rúnarssonar fram-
kvæmdastjóra Samtaka banka og
verðbréfafyrirtækja.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að gjald fyrir hverja færslu sem eig-
andi debetkorts greiðir sé 12 til 13
krónur á Íslandi, 16 til 22 krónur í
Noregi en slík gjöld tíðkist ekki í
Danmörku og Svíþjóð. Árgjald de-
betkorts sé hins vegar lægra hér-
lendis, eða 250 til 275 krónur, en allt
að 2.900 krónur í hinum löndunum.
Samanburður við Danmörku
skekkir myndina
Guðjón telur að skilja megi frétt
Morgunblaðsins þannig að Íslend-
ingar séu sér á parti hvað færslu-
gjöld varðar.
„Það er hins vegar þvert á móti.
Reyndar er vísað í Noreg, sem er
hárrétt, þeir eru dýrari. Hins vegar
„Sambærileg kjör
á debetkortum“
BRESKA barnafatakeðjan
Adams, sem opnaði nýverið
verslun í Smáralind, íhugar
að opna tvær verslanir til við-
bótar á Íslandi á næstu árum.
Þetta kemur fram á frétta-
vefnum iccoventry.co.uk. Þar
kemur einnig fram að Adams
ætli að opna tvær verslanir í
Madríd á Spáni og leiti að
heppilegri staðsetningu fyrir
verslun í Barcelona.
Adams-barnafatakeðjan er
einnig að leita tækifæra í
Austur-Evrópu, Rússlandi og
Tékklandi.
Adams selur fatnað og
fylgihluti fyrir börn að 10 ára
aldri. Adams hefur selt
barnafatnað á Bretlands-
markaði í 70 ár og rekur yfir
400 verslanir á Bretlandseyj-
um. Einnig eru reknar um
100 verslanir í Evrópu og
Mið-Austurlöndum undir
merkjum þess og var Ísland
17. landið sem Adams opnaði
verslun í.
Adams
íhugar að
opna fleiri
verslanir
AMY Pascal, aðstoðarforstjóri
Sony Pictures, er samkvæmt nýjum
lista bandaríska tímaritsins Holly-
wood Reporter áhrifamesta konan í
heimi afþreyingariðnaðarins. Nafn-
bótina á hún einkum að þakka vel-
gengni kvikmyndarinnar um
kóngulóarmanninn, en tekjur
vegna myndarinnar nema 800 millj-
ónum Bandaríkjadala, eða tæpum
sextíu milljörðum íslenskra króna.
Pascal ber einnig ábyrgð á fleiri
vinsælum kvikmyndum, eins og
Daddy Day Care og Bad Boys 2.
Af öðrum konum á listanum má
nefna Opruh Winfrey, sem er í
sjötta sæti, og JK Rowling, sem er í
55. sæti og er jafnframt efsti
rithöfundurinn á listanum.
„Það er ekki nóg með það að fyr-
irtækið hafi þénað fimm milljarða
Bandaríkjadala á heimsvísu annað
árið í röð, heldur hefur Amy Pascal
verið einkar lunkin við að veðja á
rétta hesta, sem sést best á því hvað
hefur skilað sér af tekjum í kassann
í miðasölunni, en það er frábær
mælistika á áhrif í Hollywood,“
segir Christy Grosz, ritstjóri Holly-
wood Reporter, í samtali við BBC.
Niðursveiflan á tónlistarmarkaði
í heiminum varð þess valdandi að
forstjórar í tónlistariðnaðinum
duttu út af topp-tíu listanum.
Leikkonan Julia Roberts hafnaði
í 13. sæti listans.
Reuters
Stjórnandi Sony áhrifa-
mest kvenna í Hollywood
Fréttasíminn
904 1100