Morgunblaðið - 05.12.2003, Page 25
Morgunblaðið/Jim Smart
SKAMMDEGIÐ lýsist upp þegar kveikt er á jólaljósum um bæ og borg. Bið-
in eftir jólunum getur orðið erfið fyrir börnin sem hugsa til jólanna með til-
hlökkun, og tíminn fram að jólum æði lengi að líða. Þá er ágætt að stytta
sér stundir við að undirbúa, enda margt sem þarf að gera áður en jólin
loksins koma.
Jólaljósin heilla
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 25
V
ín
m
e
ð
jó
la
m
a
tn
u
m
V
ín
m
e
ð
jó
la
m
a
tn
u
m Í tilefni af útkomu bæklingsins
munu birgjar áfengis, í samvinnu við ÁTVR, halda kynningu á vínum
með jólamatnum.
V í n m e ð j ó l a m a t n u m
Á kynningunni gefst fólki kostur á að kynna sér bæklinginn og smakka á
vínunum ásamt þeim mat sem þau eiga best við. Rúmlega 80 vín-
tegundir verða kynntar, ásamt smakkprufum af lambakjöti, nauta-
kjöti, hangikjöti, hamborgarhrygg, kalkúna, villibráð, fiski og ábætis-
réttum.
Aðgangseyrir er 1000 krónur.
Miðafjöldi takmarkaður. 20 ára aldurstakmark.
Laugardaginn 6. desember
í Hvammi á Grand Hótel frá kl. 16-19.
Grafarvogur | Þórólfur Árnason borgar-
stjóri opnaði á þriðjudag nýjan leikskóla
að Bakkastöðum 77 í Staðahverfi í Graf-
arvogi. Leikskólinn hlaut nafnið Bakki en
sú venja hefur skapast að efnt er til sam-
keppni um nöfn nýrra leikskóla. Að þessu
sinni bárust 40 tillögur frá börnum, for-
eldrum og starfsmönnum og tengdust
margar örnefnum í nágrenni leikskólans.
Bakki er teiknaður af Dagnýju Helga-
dóttur, arkitekt á Fasteignastofu Reykja-
víkurborgar, og er hann gerður úr fær-
anlegum einingum þar sem hugmyndir
eru um að í framtíðinni verði byggður
leikskóli í Staðahverfi í tengslum við
grunnskóla. Þrjár deildir eru á Bakka og
geta 68 börn dvalið þar samtímis. Leik-
skólastjóri er Ingibjörg E. Jónsdóttir.
Leikskólinn
Bakki tekur
til starfa
Þriggja deilda skóli: Á leikskólanum Bakka verður rými fyrir 68 börn í einu.
Morgunblaðið/Þorkell
Fagnað með börnunum: Þórólfur Árnason borgarstjóri naut aðstoðar
ungu kynslóðarinnar við opnun leikskólans á þriðjudaginn.
Reykjavík | Samtök foreldrafélaga
fyrir leikskóla í Reykjavík voru end-
urvakin nýlega, og hafa nú tekið til
starfa af fullum krafti að nýju. Til-
efnið var það að leikskólaráð ákvað að
taka upp þá nýbreytni að loka leik-
skólum Reykjavíkurborgar í mánað-
artíma síðastliðið sumar. Var því blás-
ið í lúðra og félagið endurvakið í
byrjun febrúar með það markmið að
leiðarljósi að vera málsvari foreldra
og leikskólabarna út á við.
Helstu mál sem samtökin ákváðu
að beita sér fyrir voru eftirfarandi:
1. Mótmæli gegn sumarlokunum og
gera könnun á viðhorfum foreldra
gagnvart sumarlokunum.
2. Að knýja á um endurskoðun gjald-
skrármála, með það að markmiði
að giftir foreldrar væru ekki látnir
niðurgreiða gjöldin fyrir einstæða
foreldra, námsmenn og leikskóla-
kennara.
3. Að koma á hverfafélögum til að
vinna saman í hverju hverfi.
4. Að vera málsvari barna og foreldra
í leikskólaráði Reykjavíkur.
5. Að koma á laggirnar heimasíðu til
að foreldrar gætu nálgast margvís-
legar upplýsingar varðandi leik-
skólamál og jafnframt komið með
ábendingar. www.borninokkar.is
6. Að huga að öryggismálum leik-
skólabarna í Reykjavík.
Samtök foreldrafélaga
hafa verið endurvakin
Hafnarfjörður | Börn úr Hafnarfirði og nágrenni
geta í desember kynnst því hvernig jólin voru hald-
in hátíðleg í húsi Bjarna riddara við Vesturgötu
fyrir 200 árum síðan, í boði Byggðasafns Hafn-
arfjarðar.
Um 1200 börn hafa verið skráð í jólaboð Sívert-
sens-fjölskyldunnar þar sem hópum af krökkum
verður kynnt helgihald fyrri tíma. Þar verður sagt
frá eplum, frá heimsókn danska krónprinsins, frá
kertunum, og hræðslu fólks við drauga, álfa og
jólasveina. Að lokum slæst í hópinn rammíslenskur
jólasveinn sem segir þeim sögur af sér og sínum.
Jól með Bjarna riddara
Móttökuleikskóli | Leikskólaráð
Leikskóla Reykjavíkur samþykkti
nýlega að skipa leikskólann Garða-
borg móttökuleikskóla fyrir börn
hælisleitenda. Þetta kemur fram á
vef Reykjavíkurborgar. Leikskólinn
mun bera ábyrgð á því að veita börn-
um hælisleitenda leikskólavist þegar
á þarf að halda og mun starfsfólk
leikskólans sérhæfa sig í að takast á
við verkefnið með aðstoð fagfólks á
þessu sviði.