Morgunblaðið - 05.12.2003, Side 26
AKUREYRI
26 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Samkvæmisbuxur
Jakkar
Toppar
Kjólar
Yfirhafnir með skinni
Snilldarbók um manninn
Grím Thomsen.
Ástir hans og barneignir.
Vináttu við konunga. Lífssorg
óhemjunnar frá Fredericia.
Loksins er þjóðsagan
um hinn grálynda Grím
kveðin í kútinn.
Lífsþorsti og leyndar ástir
er átakasaga um manninn
sem hefur fengið kaldar
kveðjur eftirtímans.
Meistaraverk.
VAR GRÍMUR THOMSEN
VARMENNI?
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
„Fróðleg lesning og skemmtileg“...“
Lára Magnúsardóttir • Mbl. 18. nóv. 2003
Ein með öllu
Spektro
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889,
fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum,
Árnesapóteki Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
Multivitamín, steinefnablanda
ásamt spirulínu, Lecthini, Aloe
vera o.fl. fæðubótarefnum.
NÚ Í upphafi aðventu fagnar Þela-
merkuskóli í Hörgárbyggð 40 ára
starfsamæli. Þessara tímamóta er
minnst með sögusýningu í húsnæði
skólans í dag, föstudag, frá kl. 16-
19 og á morgun, laugardag, frá kl.
13-17. Á meðan á sýningunni stend-
ur er boðið upp á kaffi í matsal og
nemendur sem stunda nám í Tón-
listarskóla Eyjafjarðar leika á
hljóðfæri.
Tæplega 100 nemendur eru í
Þelamerkurskóla í 1.-10. bekk, að
sögn Önnu Lilju Sigurðardóttur
skólastjóra. Samkennsla er í 1. og 2.
bekk, 3. og 4. bekk og 5. og 6. bekk
en í öðrum hópum er hver árgang-
ur fyrir sig í náminu.
Hörgárbyggð og Arnarnes-
hreppur reka Þelamerkurskóla og
sagði Anna Lilja að sveitarfélögin
styddu vel við bakið á skólanum og
rækju hann af myndarskap. Mjög
góð íþróttaaðstaða er á staðnum,
þar sem er bæði íþróttahús og
sundlaug.
Þelamerkurskóli var áður heima-
vistarskóli en nú eru allir nem-
endur keyrðir milli heimilis og
skóla og sjá fimm skólabílstjórar
um aksturinn. Starfsmenn skólans
eru 19 auk lausafólks.
Þelamerkurskóli 40 ára
Tímamótanna
minnst með
sögusýningu
Í útiskóla fengu yngstu nemendurnir að sækja jólatré fyrir Þelamerkurskóla í skógræktina ofan skólans.
öðru en að framlenging starfsleyf-
isins fáist nú eins og áður. „Menn
vilja losna við þessa starfsemi af úti-
vistarsvæði bæjarins eins og bæj-
arstjórn hefur margoft ítrekað. Og
þar sem ekki er um auðugan garð að
gresja í landi Akureyrarbæjar er
eina leiðin að leita að nýjum stað
fyrir utan bæinn.“
Sorpeyðing Eyjafjarðar hefur
horft til jarðarinnar Skúta í Hörg-
árbyggð sem hugsanlegan sorpurð-
unarstað og óskað eftir leyfi frá
sveitarstjórn til að hefja þar rann-
sóknir. Erindið var tekið fyrir á
fundi sveitarstjórnar í vikunni en af-
greiðslu málsins frestað til næsta
fundar.
Á fundi héraðsnefndar nýlega
kom m.a. fram það sjónarmið og
kannski væri um of horft á svæðið á
milli Glerár og Hörgár undir þessa
starfsemi. Guðmundur sagði að
vissulega væri horft til þess að starf-
semin væri sem næst Akureyri, sem
er langstærsta sveitarfélagið í Eyja-
firði.
„En auðvitað geta svo aðrir þættir
kollvarpað því, t.d. ef svæðið á Skút-
um væri ekki í myndinni.“ Einnig
hefur verið bent á að Akureyrarbær
eigi jörðina Skjaldarvík en Guð-
mundur sagði að menn væru háðir
leyfi frá sveitarstjórn Hörgárbyggð-
ar engu að síður. „En það hefur ver-
ið það viðhorf, ekki bara hjá Ak-
ureyringum, að í Skjaldarvík séu
menn farnir að horfa til þess að að
svæðið verði nýtt sem byggingar-
land einhvern tíma í framtíðinni.“
SORPEYÐING Eyjafjarðar
hefur sótt um framlengingu á
starfsleyfi fyrir sorpurðun á
Glerárdal ofan Akureyrar til
Úrvinnslustofnunar. Enn hefur
ekki fundist nýr urðunarstaður
fyrir sorp í Eyjafirði en bæj-
arstjórn Akureyrar hefur tekið
ákvörðun um að hætta urðun
sorps á Glerárdal og til stóð að
hætta því nú um áramótin þegar
starfsleyfið rynni út. Að sögn
Guðmundar Guðlaugssonar,
framkvæmdastjóra Sorpeyðing-
ar Eyjafjarðar, er þetta í þriðja
sinn sem sótt er um framleng-
ingu starfsleyfis á Glerárdal.
Guðmundur sagði að leyfið
væri jafnan gefið út til fjögurra
ára í senn og hann á ekki von á
Sorp af Eyjafjarðarsvæðinu áfram urðað á Glerárdal
Sótt um framlengingu á
starfsleyfi í þriðja sinn
Jólatónleikar | Tvennir nemenda-
tónleikar verða haldnir í Laug-
arborg um helgina á vegum Tónlist-
arskóla Eyjafjarðar. Fyrri
tónleikarnir verða í kvöld,
föstudagskvöldið 5. desember, kl.
20:30 þar sem fram koma nemendur
á blásturshljóðfæri, píanó, hljóm-
borð, fiðlu og harmónikku. Þeir síð-
ari verða á morgun, laugardaginn
6. desember, kl. 13:30 þar sem fram
koma nemendur á blásturshljóð-
færi, píanó, hljómborð og gítar.
Allir eru velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
Hans og Gréta | Óperudeild Tón-
listarskólans á Akureyri flytur óp-
eruna Hans og Grétu eftir Engilbert
Humperdinck í Ketilhúsinu á Akur-
eyri á laugardag, 6. desember kl.
20.30. Flytjendur eru nemendur óp-
erudeildar ásamt kór Tónlistarskól-
ans og píanóleikara. Leikstjóri er
Sigríður Aðalsteinsdóttir og undir-
leik annast Daníel Þorsteinsson.
Óperan er byggð á ævintýrinu um
Hans og Grétu og er jafnan sýnd um
jólaleytið í þýskumælandi löndum.
Óperan verður flutt á íslensku í þýð-
ingu Jakobs Jóhanns Smára og er
ætluð áheyrendum á öllum aldri, ekki
síst grunnskólanemum sem fá frítt
inn en almennt miðaverð er kr. 500.
Aðrar sýningar verða mánudaginn
8. des., þriðjudaginn 9. des. og mið-
vikudaginn10. des. kl. 18.30 í Ketil-
húsinu.
Tónleikar | Óskar Pétursson held-
ur útgáfutónleika ásamt Jónsa í
Svörtum fötum og Karlakór Ak-
ureyrar-Geysi í KA-heimilinu nk.
sunnudag, 7. desember kl. 17.
Forsala aðgöngumiða er í Penn-
anum/Bókval Hafnarstræti, Penn-
anum/Eymundsson Glerártorgi og
KA-heimilinu.
Hátíðartónleikar | Í tilefni af út-
gáfu hljómdisksins Áfram veginn
með karlakórnum Heimi, verða há-
tíðartónleikar haldnir í Glerár-
kirkju á Akureyri á föstudagskvöld,
5. desember og hefjast þeir kl.
20.30. Þar mun kórinn syngja
margar af perlum íslenskra og er-
lendra sönglaga. Einsöngvarar
verða sópraninn Margrét Stefáns-
dóttir, Sigfús Pétursson, kenndur
við Álftagerði, og bassasöngvarinn
Stefán Reynisson. Undirleikari er
Thomas R. Higgerson. Stjórnandi
er Stefán R. Gíslason. Miðar á tón-
leikana eru seldir við innganginn.
Karlakórinn Heimir hefur starf-
að samfleytt í yfir 75 ár og er tíma-
mótunum fagnað með útgáfu
hljómdisksins en á honum er að
finna lög eins og Undir bláhimni,
Fram í heiðanna ró, Erla, Sprettur
og Ísland.
Sýningu lýkur | Sýningu Péturs og
Tuma Magnússona, Trompet úr
járni og veltuminkur, í Galleríi +,
Brekkugötu 35 á Akureyri lýkur á
sunnudag, 7. desember. Sýningin er
opin laugar- og sunnudaga frá kl. 12–
17 og aðra daga eftir samkomulagi.
Smáskúlptúrar | Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir og Jón Laxdal verða
með til sýnis og sölu smáskúlptúra
og myndir í Kompunni frá og með
laugardeginum 6. desember. Komp-
an er lítið sýningarrými á vinnustofu
þeirra í Kaupvangsstræti 23, en Að-
alheiður hefur rekið Kompuna sl. 6
ár. Vinnustofan verður opin alla
daga fram til jóla frá kl. 14 til 17.
SAMVER hf. hefur keypt meiri-
hluta hlutafjár í Aksjón ehf. og er
stefnt að sameiningu félaganna á
næsta ári.
Aksjón og Samver eru rótgróin
fyrirtæki í sjónvarpsrekstri. Samver
var stofnað árið 1984 og rak um
tíma Eyfirska sjónvarpsfélagið og
hefur verið umsvifamikið í fram-
leiðslu sjónvarpsefnis á landsvísu.
Aksjón hefur frá árinu 1997 staðið
fyrir rekstri bæjarsjónvarps á Ak-
ureyri. Með sameiningu félaganna
er stefnt að því að efla starfsemi
sjónvarpsstöðvarinnar og sækja
fram við framleiðslu sjónvarpsefnis
fyrir landsmarkað, segir í frétt.
Félag í eigu stofnenda Aksjón
mun eignast fjórðungshlut í samein-
uðu fyrirtæki Aksjón og Samvers.
Sjónvarpsáhorfendur munu strax í
desember verða varir við endur-
bætta dagskrá Aksjón, og á árinu
2004 verður kannaður grundvöllur
fyrir stækkun sendisvæðsins stöðv-
arinnar og nýjungar verða kynntar í
dagskrárgerð.
Samver og Aksjón sameinuð