Morgunblaðið - 05.12.2003, Page 35
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 35
Tré- og álrimlagardínur
Sólvarnargardínur
Felligardínur
Flekar
Strimlar
NÝTT
Bambusgardínur
NÝTT
Tauvængir og efni
Smíðum og
saumum eftir máli
Stuttur
afgreiðslutími
Pílutjöld ehf.
Faxafeni12,
108 Reykjavík
s. 553 0095,
www.pilu.is
A u aurum
Bankastræti 4 Sími 551 2770
GÓÐIR HÁLSAR!
Nýtt
Jólavörur frá
Bretlandi
4 stk. í pakka Verð kr. 2.900
Diskamottur
Klapparstíg 44, sími 562 3614
FARSÍMANOTKUN hefur marg-
faldast á undanförnum árum, ekki
síst meðal barna og unglinga. Eins
og öll tækni hefur hún jákvæðar og
neikvæðar hliðar. Aðalatriðið er að
notfæra sér tæknina á skyn-
samlegan hátt en ánetjast henni
ekki. Farsímar senda frá sér og taka
á móti útvarpsbylgjum. Útvarps-
bylgjur hafa verið notaðar lengi, en
mikil notkun farsíma hefur vakið
spurningar um áhrif þeirra á heilsu-
far fólks, t.d. um tengsl farsímanotk-
unar við háþrýsting, höfuðverk,
heilabilun, krabbamein eða ofhitnun
höfuðkúpu eða heila. Ef svo væri
gæti farsímanotkun orðið alvarlegt
lýðheilsuvandamál í framtíðinni.
Vísindarannsóknir hafa ekki sýnt
fram á tengsl farsíma við sjúkdóma
eða heilsuvanda. Þó er staðfest að
farsímanotkun er hættuleg í um-
ferðinni og að hún getur verið
streituvaldandi. Ekki er vitað um
langtímaáhrif á heilsu þar sem um
nýlega tækni er að ræða.
Ekki er talið nauðsynlegt að
banna notkun farsíma vegna hugs-
anlegra áhrifa þeirra á heilsufar.
Hins vegar hafa t.d. stofnanir eins
og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
bandaríska Fæðu- og lyfja-
málastofnunin og breska heilbrigð-
isráðuneytið ráðlagt fólki að tak-
marka lengd símtala og að nota
helst ekki farsíma í umferð. Sér-
staklega eru foreldrar beðnir að
gæta þess að börn og ungmenni noti
farsímann í hófi. Ástæðan fyrir því
að fjalla sérstaklega um börn og
ungmenni er að höfuðkúpa þeirra er
þynnri og taugakerfið ekki eins
þroskað.
Skertur svefn og hreyfingarleysi
Ástæða er til að nefna önnur
vandamál sem tengjast far-
símanotkun og varða heilsu og vel-
ferð barna og ungmenna. Benda má
á að notkun farsíma get-
ur skert svefn þar sem
ekki er óalgengt að send
séu SMS-boð eða hringt
að næturlagi. Notkun
farsíma eykur á hreyf-
ingarleysi barna, sem er nægilegt
vandamál nú þegar. Einelti hefur
tíðkast með notkun farsíma. Hugs-
anlega, sem þó er ekki sannað, getur
notkun farsíma haft áhrif á fé-
lagslega færni fólks, þar sem ekki er
nauðsynlegt að eiga samskipti sem
fólgin eru í nálægð við aðra mann-
eskju. Jákvæð áhrif farsíma á heilsu
og velferð fólks á öllum aldri eru að
hann auðveldar samskipti. Fyrir for-
eldra er farsíminn ákveðið örygg-
istæki. Fyrir fatlaða er farsíminn
dýrmætt tæki til að geta átt sam-
skipti við aðra. Hægt er að nota far-
símann til að koma jákvæðum, og
reyndar neikvæðum, skilaboðum til
hóps af fólki. Kennarar hafa bæði já-
kvæða og neikvæða reynslu af far-
símum í kennslu. For-
eldrar verða að bera
ábyrgð á uppeldi barna
sinna og setja ákveðnar
reglur um notkun far-
síma og hafa eftirlit með
því hvernig þeir eru notaðir.
Anna Björg Aradóttir hjúkr-
unarfræðingur Landlæknisembætt-
inu
FRÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU
Börn og farsímanotkun
Notkun far-
síma eykur
hreyfingarleysi
barna.
VINKONURNAR Heiður Ýr, Svala,
Drífa og Birta Mjöll, sem allar eru í
9. bekk í Öldutúnsskóla, fylgjast
grannt með unglingatískunni og nú
er enginn maður með mönnum
nema að vera með efnismikla litríka
trefla eða einlit sjöl um hálsinn. Mik-
ið úrval trefla og sjala er að finna í
tískubúðunum. Alls ekki er þó nauð-
synlegt að fjárfesta í þessu þarfa-
þingi í búðunum því margir prjóna-
treflar og sjöl, sem unglingunum
finnast spennandi, leynast inni í
mömmu- og ömmuskápum, ef vel er
að gáð. Þegar þær stöllur eru spurð-
ar nánar út í tískustraumana, svara
þær því til að tískan sé mjög fjöl-
breytt og nánast allt gangi. Stelp-
urnar séu þó helst í gallabuxum,
annaðhvort útvíðum eða beinum
með brett upp á. Bolirnir séu gjarn-
an hafðir þröngir og sumir með
flegnu hálsmáli þannig að öðrum
megin sé hægt að láta þá lafa niður á
öxlina. Utan yfir bolina eru hett-
umittispeysur úr „joggingefni“ vin-
sælar og svo mittisúlpur með hettu
og skinnkraga, ef kalt er í veðri.
Derhúfur og derennisbönd þykja
líka svolítið spennandi. Hjá strákun-
unum segja þær að tískan sé keimlík
stelputískunni þar sem gallabuxur
og bolir séu efst á vinsældalistanum.
TÍSKA
Morgunblaðið/Eggert
Stöllurnar: Svala Eyjólfsdóttir, Heiður Ýr Guðjónsdóttir, Drífa Andrésdóttir og Birta Mjöll Klemensdóttir fylgjast
grannt með tískustraumunum og eru auðvitað allar komnar með hlýtt hálstau. Svala fékk sinn trefil í jólagjöf í
fyrra, Heiður Ýr er með trefilinn hennar mömmu sem henni finnst voða fínn og Drífa keypti sinn trefil í Vero
Moda í haust. Birta Mjöll fékk þennan fína trefil að láni hjá vinkonu sinni en amma hennar prjónaði hann.
Ömmutreflar spennandi