Morgunblaðið - 05.12.2003, Page 53
Jólakort Barna-
hjálpar Samein-
uðu þjóðanna
JÓLAKORT Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna, UNICEF, eru komin
út. Kortin eru prýdd listaverkum
eftir ýmsa listamenn. Þau eru frá
rúmlega 200 þjóðlöndum en allur
ágóði af sölunni fer til starfsemi
UNICEF meðal barna víða um
heim.
Starfsemi UNICEF á Íslandi hef-
ur opnað skrifstofu í Skaftahlíð 24 í
Reykjavík og er kortasalan opin
þar kl. 15-18. Auk þess hefur kort-
unum verið dreift í ýmsar verslanir.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 53
Hefur þú kynnt
þér tilboðin í
Sparimagazíni
fyrir desember?
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Berjarimi 22, 0106, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Ívar Logi Sigur-
bergsson Gröndal, gerðarbeiðendur Sparisjóður Hafnarfjarðar og
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, þriðjudaginn 9. desem-
ber 2003 kl. 15:00.
Brúnastaðir 51, 0101, Reykjavík, þingl. eig. þb.Hjördísar B. Magnúsd.
bt. Eyvindar Gunnarss. hdl., gerðarbeiðendur B.M. Vallá ehf. og
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 9. desember 2003 kl. 13:30.
Funabakki 6, hesthús hluti merktur C, 0301, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Örn Oddgeirsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn
9. desember 2003 kl. 10:30.
Furubyggð 8, Mosfellsbæ, þingl. eig. Margrét J. Þorsteinsdóttir,
gerðarbeiðandi Egilsson hf., þriðjudaginn 9. desember 2003 kl.
11:00.
Jörfagrund 42, 010202, Kjalarnesi, Reykjavík, þingl. eig. Finnbjörg
Konný Hákonardóttir og Sigurður Jónsson, gerðarbeiðendur Íbúða-
lánasjóður og Landsbanki Íslands hf., aðalstöðvar, þriðjudaginn
9. desember 2003 kl. 11:30.
Leiðhamrar 5, 50% ehl., 0101, Reykjavík, þingl. eig. Haukur Hannes-
son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 9. desember
2003 kl. 15:30.
Lyngrimi 22, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Bragi Gunnarsson, gerðar-
beiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 9. desember 2003
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
4. desember 2003.
ÝMISLEGT
Hvar erum við stödd?
Við erum stödd þar sem millistjórnandi ríkis-
fyrirtækis, Símans, er rekinn fyrirvaralaust
fyrir að upplýsa um meint alvarleg lögbrot,
þar sem æðstu ráðherrar letja forstöðumenn
ríkisstofnana til að upplýsa Fjárlaganefnd
Alþingis um stöðu stofnana sinna og þar sem
fyrir Alþingi liggur stjórnarfrumvarp sem
skerðir bein tengsl ríkisstarfsmanna við lög
og rétt, en tengir þá frekar geðþótta og einelti
yfirmanna sinna.
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.
I.O.O.F. 12 1841258½ Ek.
Bh.
I.O.O.F. 1 1841258 Ek.
Í kvöld kl. 20.30 heldur Jón E.
Benediktsson erindi „Bræðra-
lag“ í húsi félagsins, Ingólfs-
stræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Sigríðar Ein-
arsdóttur sem spjallar um Min-
osarmenninguna á Krít, sýnir
myndir og spilar gríska tónlist Á
sunnudögum kl. 17-18 er hug-
leiðingarstund með leiðbeining-
um fyrir almenning.
Guðspekifélagið hvetur til sam-
anburðar trúarbragða, heim-
speki og náttúruvísinda. Félagar
njóta algers skoðanafrelsis.
www.gudspekifelagid.is
Í kvöld kl. 20.00.
Bæn og lofgjörð í umsjón Elsa-
betar og Miriam.
Allir hjartanlega velkomnir.
Huglækningar/
heilun
Sjálfsuppbygging.
Samhæfing
líkama og sálar.
Áran.
Fræðslumiðlun.
Halla Sigurgeirsdóttir,
andlegur læknir.
Uppl. í síma 553 8260 milli kl.
18.00 og 19.00.
Fundur Parísar, félags þeirra
sem eru einar/einir, verður
haldinn 6. desember kl. 11.30
f.h. á Kringlukránni. Jólin rædd.
Janúarfundurinn verður haldinn
10. janúar 2004. Stjórnin
www.paris.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KVENFÉLAG Kópavogs færði nýlega endurhæfingadeild (göngudeild)
fyrir krabbameinssjúka við Landspítala - háskólasjúkrahús í Kópavogi
leirbrennsluofn að gjöf auk efnis til leirgerðar. Verðmæti gjafarinnar er
um 430.000 krónur. Nú þegar eru tveir leirlistarhópar teknir til starfa og
er það allt ungt fólk á aldrinum 20-40 ára. Starfsmenn iðjuþjálfunar eru
þær Erna Magnúsdóttir yfiriðjuþjálfi, Kolbrún Ragnarsdóttir iðjuþjálfi og
Steinþóra Þorsteinsdóttir aðstoðarmaður og leirlistakona.
Morgunblaðið/Eggert
Frá afhendingu gjafarinnar, f.v.: Kristín Pétursdóttir, formaður Kven-
félags Kópavogs, Erna Magnúsdóttir yfiriðjuþjálfi, Kolbrún Ragnarsdóttir
iðjuþjálfi, Steinþóra Þorsteinsdóttir, leirlistakona og aðstoðarmaður, og
Guðmunda Jóhannsdóttir, Rannveig Garðarsdóttir, og Hjördís Péturs-
dóttir sem eru í stjórn Kvenfélags Kópavogs.
Gáfu endurhæfingardeild
leirbrennsluofn
ÚT er komið jólaheftið af Barnagát-
um. Sem fyrr er þar að finna kross-
gátur og þrautir, sem ætlaðar eru
byrjendum. Lausn fylgir hverri gátu
í blaðinu. Útgefandi er ÓP útgáfan
og heftið fæst í öllum helstu bóka-
búðum og söluturnum.
Barnagátur
komnar út
Mynd úr bókinni Garðverkin
Steinn Kárason hefur sent Morg-
unblaðinu eftirfarandi athugasemd:
Í þættinum „Blóm vikunnar“, und-
ir yfirskriftinni „vetrarþankar“ í um-
sjón Sigríðar Hjartar í blaðinu í gær,
fimmtudaginn 4. desember, var
fjallað með öðru um bókina Garð-
verkin eftir Stein Kárason.
Hin frábæra myndskreyting við
„vetrarþankana“ er eftir hollensk-
sænska listamanninn Han Veltman
og er ein af nokkur hundruð skýring-
armyndum úr bókinni Garðverkin.
Nauðsynlegt er að halda þessu til
haga vegna myndhöfundarins og
rétthafa myndefnis. Lesandi gæti
álitið að um væri að ræða mynd-
skreytingu við „vetrarþankana“, því
ekki er bein tilvísun frá myndskreyt-
ingu í texta.
Héraðsdómur Reykjaness
Í frétt blaðsins í gær á bls. 6 var
ranglega sagt að Héraðsdómur
Reykjavíkur hefði kveðið upp dóm í
máli Kaupþings Búnaðarbanka gegn
Flugporti og Jórvík. Þarna átti að
standa Héraðsdómur Reykjaness og
er beðist velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
LJÓSIN verða tendruð á Óslóar-
trénu á Austurvelli sunnudaginn 7.
desember kl. 16. Lúðrasveit Reykja-
víkur hefur dagskrána kl. 15.30 með
því að leika jólalög. Kl. 16 flytur
Dómkórinn tvö lög og Kari Pahle,
borgarfulltrúi og formaður menn-
ingar- og menntamálanefndar Ósló-
ar, færir borgarstjóra, Þórólfi Árna-
syni, og öðrum Reykvíkingum tréð
að gjöf.
Alexander Örn Númason, 10 ára,
kveikir ljósin á trénu en fyrir ná-
kvæmlega 20 árum var það móðir
hans, Carolin Guðbjartsdóttir, sem
kveikti á jólatrénu á Austurvelli.
Felix Bergsson leikari segir frá
honum Augasteini og syngur nokkur
lög, til hans kemur einnig gestur úr
Hálsaskógi, söngelska klifurmúsin
Lilli.
Þá koma nokkrir jólasveinar í
heimsókn. Kynnir er Gerður G.
Bjarklind.
Rúm hálf öld er síðan Norðmenn
færðu Íslendingum í fyrsta sinn
grenitré að gjöf til að skreyta
Reykjavík.
Ljósin
tendruð á
Óslóartrénu
á Austurvelli
PERLUJÓL, jólahátíð fatlaðra,
verða í Súlnasal Hótel Sögu sunnu-
daginn 7. desember kl. 15.30–18.
Fram munu koma söngvararnir
André Bachmann og Þórunn Lárus-
dóttir ásamt Hljómsveitinni Jóla-
gleði, Leikhópurinn Perlan, leik-
stjóri Sigríður Eyþórsdóttir,
Lúðrasveit verkalýðsins, stjórnandi
Tryggvi M. Baldvinsson, Barnakór
Kársnesskóla, stjórnandi Þórunn
Björnsdóttir. Auk þess koma fram:
Jóki trúður, jólasveinar, Harold
Burr, Björgvin Franz Gíslason, Rún-
ar Júlíusson, Sigmar Vilhjálmsson
(Simmi Idol), Abba show (Príma-
donnur), leynigestur, Pétur pókus
töframaður og Móeiður Júníusdótt-
ir. Miðaverð er 500 kr. .
Jólahátíð
fatlaðra