Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 57
Jóla- og afmælis-
hátíð í Kópavogi
JÓLA- og afmælishátíð fyrir alla
fjölskylduna verður á morgun, laug-
ardaginn 6. desember, í Hamraborg,
Kópavogi.
Kl. 14 verða jólatónleikar
strengjasveita Tónlistarskóla Kópa-
vogs í Salnum. Kl. 15.30 verður 20
ára afmælisfagnaður náttúrufræði-
stofunnar í Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs, Safnahúsinu. Flutt verður
strengjatónlist á vegum Tónlistar-
skóla Kópavogs, Skólakór Kársness
syngur undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur, Sigurrós Þorgríms-
dóttir, formaður lista- og menning-
arráðs, flytur ávarp og Leikfélag
Kópavogs færir börnunum jóla-
glaðning. Einnig verður boðið upp á
kaffiveitingar.
Ljósin verða kveikt á vinabæjar-
jólatrénu frá Nörrköping kl. 16.45 á
flötinni fyrir framan Gerðarsafn og
Safnahúsið. Þar mun Skólahljóm-
sveit Kópavogs flytja jólalög, ávarp
flytja sendiherra Svíþjóðar, Bertel
Jobeus, og Sigurður Geirdal bæjar-
stjóri Kópavogs, Skólakór Kársness
syngur undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur og jólasveinar koma í
heimsókn og skemmta fólki. Kaffi-
veitingar verða í boði frá kl. 16.30 í
Safnahúsinu.
Hafnfirsku
jólatrén
HIN árlega jólatréssala Skógræktar-
félags Hafnarfjarðar hefst nú um
helgina í Höfða, húsi félagsins í Höfð-
askógi við Hvaleyrarvatn. Þá verða
trén einnig seld í Jólaþorpinu á
Thorsplani 13. og 14. desember og
einnig hinn 20.
Hafnfirsku jólatrén eru falleg fura,
sem fellir ekki barrið, og ekki þarf að
minna á, að þau eru alltaf nýhöggvin
og fersk. Þar að auki er boðið upp á
greinabúnt eins og hver vill og kakó
og kökur fyrir gesti og gangandi.
Um þessa helgi, laugardaginn 6. og
sunnudaginn 7., verður opið í Höfða
frá klukkan 10 til 18 báða daga. Um
aðra helgi, 13. og 14. des., verður opið
í Höfða frá 10 til 18 en í Jólaþorpinu
frá 12 til 17. Síðasti söludagur verður
svo 20. desember en þá verður opið í
Höfða frá 10 til 16 en í Jólaþorpinu frá
10 til 22. Hafnfirðingar! Höldum upp
á jólin með hafnfirskum trjám og
hjálpum um leið til við að græða upp
landið.
Jólahlutavelta og kaffisala Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra á höfuðborg-
arsvæðinu verður haldin á morgun,
laugardaginn 6. og sunnudaginn 7.
desember kl. 14–17, báða dagana, í fé-
lagsheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12.
Í vinning er m.a. sjónvarp.
Örkin hans Nóa verður með jóla-
basar á morgun, laugardaginn 6. des.
kl. 14–17 að Reykjavíkurvegi 68, 2.
hæð. Á boðstólum verður bútasaum-
ur, trévara, kerti, myndir, jólaskreyt-
ingar, aðventukransar, bakkelsi og
föndur eftir börnin. Einnig verður
selt kaffi og vöfflur á kr. 300. Örkin
hans Nóa er kristilegt starf meðal
barna og unglinga. Allur ágóði renn-
ur til starfsins.
Á MORGUN
Námskeið hjá NLFÍ til að hætta að
reykja. Heilsustofnun NLFÍ, Hvera-
gerði, heldur námskeið fyrir þá sem
vilja hætta reykingum dagana 11.–18.
janúar nk. Meðal annars er fræðsla
um slökun og streitulosandi æfingar.
Á NÆSTUNNI
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930 FRÉTTIR
mbl.is
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111