Morgunblaðið - 05.12.2003, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 59
DAGBÓK
2
4
6
57
R
Æ
S
IR
Við erum hér
BORGART
ÚN
S
K
Ú
LA
T
Ú
N
SKÚLAGATA
Húsgögn Listmunir
Antiksalan
Skúlatúni 6 • Sími 553 0755 • www.antiksalan.is
Opið virkadaga frá kl. 10-18, laugard. kl. 11-18
Antikhúsgögn og gjafavörur
Glæslegt úrval af antikhúsgögnum,
borðlömpum, kertastjökum,
kertum og borðdúkum.
Fjölbreitt og fallegt jólaskraut.
520 7901 og 520 7900
kr. 14.155
Hverafold 1-3
Torgið Grafarvogi
Sími 577 4949
Glæsilegir hátíðarskór
Opnunartími: Frá kl. 11-18 mánud.-föstud. og frá kl. 12-16 laugard.
STJÖRNUSPÁ
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hæfileikarík/ur og
sjálfsörugg/ur og leitar ein-
hvers til að deila eldmóði
þínum með. Það munu hugs-
anlega verða mikilvægar
breytingar á lífi þínu á þessu
ári líkt og gerðist árið 1995.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er mikilvægt að þú hafir
það í huga að líf þitt getur
breyst mikið til batnaðar á
komandi ári. Það fer eftir því
hvað trú þín er sterk hversu
stórar breytingarnar verða.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ný ást gæti kviknað í brjósti
þér í dag, í næstu viku eða
snemma á næsta ári. Ham-
ingjan brosir við þér.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gerðu það sem þú getur til að
bæta aðstæður fjölskyldu
þinnar og heimilis. Næstu níu
mánuðina muntu hafa tæki-
færi sem þú færð ekki aftur
fyrr en eftir tólf ár.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hugsun er til alls fyrst. Því
skaltu gæta að því hvað þú
hugsar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur einstakt tækifæri til
að auka tekjur þínar á næstu
átta mánuðum. Gerðu það að
persónulegu markmiði þínu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Júpíter kemur með jákvæð
áhrif inn í stjörnumerkið þitt
á tólf ára fresti. Þetta er að
gerast núna og það mun vara
fram í september á næsta ári.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er mikið að gera hjá þér.
Þú verður að gæta þess að fá
næga hvíld og tækifæri til að
husa málin í ró og næði. Þetta
er mikilvægur tími í lífi þín.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Dagurinn hentar vel til að
kaupa fallega hluti handa
sjálfri/sjálfum þér og þínum
nánustu. Það sem þú kaupir
mun að öllum líkindum end-
ast í langan tíma.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ættir að þiggja þau heim-
boð sem þér berast. Félags-
lífið gengur vel í dag og hlut-
irnir eru líka loksins að
ganga upp á heimilinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er góður dagur til
samningaviðræðna og til að
ganga frá samningum. Þú
hefur orku og kraft til að
koma hlutunum í verk.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vinur þinn gæti komið með
góða tillögu varðandi at-
vinnumálin. Það er líklegt að
þessi einstaklingur geti
hjálpað þér. Vertu óhrædd/ur
við að þiggja greiða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er mikilvægt að þú fáir
næga hreyfingu. Mars hefur
verið í merkinu þínu mánuð-
um saman, því hefur spenna
verið að safnast upp í þér. Þú
þarft að veita henni útrás.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Frances Drake
ÁSAREIÐIN
Jóreyk sé ég víða vega
velta fram um himinskaut,
norðurljósa skærast skraut.
Óðinn ríður ákaflega
endilanga vetarbraut.
Sópar himin síðum feldi
Sigfaðir með reiddan geir,
hrafnar elta og úlfar tveir,
vígabrandar vígja eldi
veginn þann, sem fara þeir.
Sleipnir tungla treður krapa,
teygir hann sig af meginþrótt,
fætur ber hann átta ótt,
stjörnur undan hófum hrapa
hart og títt um kalda nótt.
Grímur Thomsen
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
70 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 6. desem-
ber verður sjötug Kristín
Sigfúsdóttir, Álfabrekku
13, Kópavogi. Hún tekur á
móti ættingjum og vinum í
safnaðarheimili Langholts-
kirkju laugardaginn 6. des-
ember frá kl. 10.30 f.h.
60 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 7. desember
er sextug Sveindís E. Pét-
ursdóttir, Leirdal 8, Vog-
um. Hún er með opið hús í
Glaðheimum, Vogum, laug-
ardaginn 6. desember, frá
kl. 20–24.
HÓPUR Íslendinga gerði
sér ferð til Madeira í síðasta
mánuði til að taka þar þátt í
vikulangri bridshátíð. Ís-
lendingarnir stóðu sig al-
mennt vel, en bestir af öllum
voru Bjarni H. Einarsson og
Ragnar Magnússon. Þeir
unnu tvímenningskeppni
hátíðarinnar, þriggja daga
mót með þátttöku 84 para.
Alda Guðnadóttir og Krist-
ján Snorrason urðu í 5. sæti
í tvímenningnum, og Sveinn
Rúnar Eiríksson og Erlend-
ur Jónsson í því sjöunda. Í
mótsblaði hátíðarinnar er að
finna þetta spil með sig-
urvegurunum:
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ K96
♥ G1064
♦ 103
♣D876
Vestur Austur
♠ G73 ♠ Á10
♥ D9 ♥ K752
♦ ÁKG8 ♦ D964
♣5432 ♣G109
Suður
♠ D8542
♥ Á83
♦ 752
♣ÁK
Ragnar og Bjarni voru í
AV í vörn gegn tveimur
spöðum eftir þessar látlausu
sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass Pass
Pass
Ragnar hitti á magnað út-
spil – hjartadrottningu.
Suður tók strax með ás,
lagði niður ÁK í laufi og
spilaði svo spaða á kónginn.
Bjarni drap, tók hjartakóng
og gaf makker stungu.
Ragnar kannaði næst stöð-
una með tígulkóng og
Bjarni kallaði. Þá spilaði
Ragnar tígli undan ásnum
yfir á drottninguna og
Bjarni tryggði vörninni
sjötta slaginn með því að
spila fjórða hjartanu.
Einn niður og toppskor.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 5. des-
ember, verður sextugur
Tryggvi Eyvindsson. Af því
tilefni bjóða Tryggvi og Jó-
hanna vinum og vanda-
mönnum að gleðjast með
sér í Þrastarlundi 1, Garða-
bæ, frá kl. 20.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3
e5 7. Rf3 Dc7 8. Bg5 Rbd7 9.
a4 h6 10. Bh4 g5 11. Bg3
Rc5 12. Rd2 Be6 13. Be2 O-
O-O 14. O-O h5 15. h4 Bh6
16. Ha3 g4 17. Bd3 Kb8 18.
He1 Bf4 19. Rf1 d5 20. exd5
Rxd5 21. Rxd5 Bxd5
22. Re3 Bc6 23. b4
Rxd3 24. cxd3 Dd6
25. Db1 Hhe8 26.
Kh2 Bxe3 27. fxe3 f5
28. Hf1 Hf8 29. Dc1
Dxb4 30. Bxe5+ Ka8
31. Bg3 De7 32. Hc3
De6 33. a5 Dd5 34.
Hf2 Hf6 35. Da3 He8
36. Hc5 Dd7 37. e4
Hef8 38. Hcxf5 Hxf5
Staðan kom upp í
atskákmóti sem lauk
fyrir skömmu í Beni-
dorm. Veselin Topa-
lov (2735), hafði hvítt
gegn Sergey Karjakin
(2562). 39. Dxf8+! Hxf8 40.
Hxf8+ De8 41. Hxe8+ Bxe8
42. Bc7 hvítur fær nú unnið
biskupaendatafl vegna frí-
peða sinna tveggja á mið-
borðinu. 42...b5 43. axb6
Kb7 44. Kg3 a5 45. Kf4 a4
46. Bd6 Kxb6 47. g3 Kc6 48.
Ba3 Bf7 49. Kg5 Kd7 50.
Kf6 Bb3 51. d4 Bc2 52. Ke5
Kc6 53. d5+ Kd7 54. Kd4 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 5. des-
ember, er sjötug Björg Að-
alsteinsdóttir, Suðurhólum
16, Reykjavík. Björg tekur
á móti gestum á heimili sínu
á afmælisdaginn.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 5. des-
ember, er sextugur Daði
Ágústsson, framkvæmda-
stjóri. Hann og eiginkona
hans, Halldóra E. Kristjáns-
dóttir, deildarstjóri, taka á
móti vinum og vandamönnm
í veislusal Ferðafélags Ís-
lands, Mörkinni 6, Reykja-
vík, á milli kl. 18 og 21 á af-
mælisdaginn.
Prófum einu sinni
enn: Spegill, spegill
herm þú mér …