Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
„MÉR líður alveg ágætlega,“ sagði
Harpa Arnþórsdóttir í gær, tveimur
sólarhringum eftir að hún fór í fyrstu
nýrnaígræðsluna hérlendis, en nýra
úr bróður hennar var grætt í hana
undir stjórn Jóhanns Jónssonar,
ígræðsluskurðlæknis í Bandaríkj-
unum, á Landspítala – háskólasjúkra-
húsi við Hringbraut á þriðjudag.
„Þetta á sér langan aðdraganda og
langt er síðan fyrst var rætt um að ég
ætti að fara í aðgerð, um 10 ár,“ segir
Harpa. „Alltaf var að koma að henni
og það er frábært að þetta skuli vera
afstaðið og hafa verið gert hér.“
Um 20 til 25 manns komu beint að
brottnámi nýrans úr gjafanum og
ísetningu í þegann en hvor aðgerð tók
um þrjá tíma. „Þetta gekk mjög vel
og nýrað fékk strax réttan litarhátt,
en áður en við lokuðum skurðinum
var nýrað byrjað að búa til lítið magn
af þvagi sem er góðs viti,“ segir Jó-
hann, sem stjórnar árlega um 100
nýrnaígræðslum við Fairfax-
spítalann í Virginíu. „Við gerðum
strax blóðflæðisrannsóknir á nýranu
og fengum mjög jákvæðar nið-
urstöður.“
Morgunblaðið/Þorkell
Jóhann Jónsson ígræðsluskurðlæknir
og Harpa Arnþórsdóttir á Landspít-
ala – háskólasjúkrahúsi við Hring-
braut í gær.
„Mér líður
alveg
ágætlega“
Allt að sex/36
NÝR MÓTTÖKUDISKUR til að taka við sjón-
varpsefni hefur verið settur upp við Útvarps-
húsið. Er hann m.a. hugsaður til að taka við ýmsu
erlendu efni. Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins, segir að nýi diskurinn
styrki mjög rekstraröryggi og auki myndgæði við
móttöku efnisins. Diskurinn verður tilbúinn tik
notkunar á næstunni.
Morgunblaðið/Eggert
Móttökumöguleikar bættir
ÍSLENSKU fiskimjölsverksmiðjurn-
ar hafa tekið á móti ríflega hálfri
milljón tonna af kolmunna á árinu,
bæði af íslenskum og erlendum skip-
um. Ætla má að útflutningsverðmæti
aflans sé nærri 8 milljarðar króna.
Alls hafa íslensku skipin veitt tæp
474 þúsund tonn af kolmunna á þessu
ári, samkvæmt upplýsingum Fiski-
stofu, sem er meiri afli en nokkru
sinni fyrr. Nú eru aðeins um 73 þús-
und tonn eftir af kolmunnakvóta Ís-
lendinga en samt sem áður er hæpið
að kvótinn náist fyrir áramót.
Börkur NK hefur borið mestan
kolmunnaafla að landi af íslensku
skipunum á árinu, alls tæp 58 þúsund
tonn. Hólmaborg SU hefur veitt tæp
47 þúsund tonn, Jón Kjartansson rúm
45 þúsund tonn og Ingunn AK tæp 45
þúsund tonn. Samkvæmt samantekt
Samtaka fiskvinnslustöðva hafa ís-
lensku skipin landað ríflega 31 þús-
undi tonna í Færeyjum á árinu en
hins vegar hafa erlend skip landað
hérlendis um 74 þúsund tonnum. Því
hafa íslensku fiskimjölsverksmiðjurn-
ar tekið á móti ríflega hálfri milljón
tonna af kolmunna á árinu.
Kærkomin búbót
Elfar Aðalsteinsson, forstjóri
Eskju hf. á Eskifirði, segir þennan
góða kolmunnaafla kærkomna búbót,
enda hafi fáir gert ráð fyrir svo góðri
veiði. „Þetta er í raun tvöfalt meira
magn en við gerðum ráð fyrir að
mega veiða í upphafi ársins. Þetta
kemur sér vel, sérstaklega fyrir fyr-
irtæki eins og okkar sem er mjög háð
úthlutuðum kvóta í uppsjávarfiski.
Við höfum yfir um 20% kolmunna-
kvótans að ráða og þess vegna skiptir
þessi góði afli okkur mjög miklu máli.
Ég sé ekki fram á að við náum að
klára úthlutaðan kvóta, enda held ég
að bjartsýnustu menn hafi varla gert
ráð fyrir að við yrðum búnir að veiða
þó þetta mikið nú þegar líður að ára-
mótum.“ Elfar segir kolmunna ágætt
hráefni í bræðslu, því þó að lýsisinni-
hald hans sé lítið, sé mjölnýting betri
en í til dæmis loðnu. Hann segir að
fengist hafi viðunandi verð fyrir mjöl-
ið, en styrking krónunnar að undan-
förnu geri mönnum erfitt fyrir.
Frumkvöðlastarfsemi
Elfar varar þó við því að menn geri
ráð fyrir svo miklum kolmunnaafla í
framtíðinni. Veiðarnar nú beri þess
merki að Íslendingar séu að tryggja
sér betri stöðu í samningum. „Með
góðri veiði eins og nú styrkist samn-
ingsstaða okkar gríðarlega. Það
gleymist hins vegar oft í umræðunni
að kolmunnaveiðarnar eru dæmi um
frumkvöðlastarfsemi í íslenskum
sjávarútvegi. Fyrirtækin hafa tekið
áhættu með því að sækja þessar veiði-
heimildir og gert það í eigin reikning.
Veiðar hafa aftur á móti skilað sjávar-
útveginum mikilli verðmætaaukningu
og vega þungt í heildinni, sérstaklega
þegar aflinn er jafnmikill og nú.“
Kolmunni fyrir 8 milljarða
Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason
Íslensku kolmunnaskipin hafa nú
veitt um 474 þúsund tonn á árinu,
meira en nokkru sinni fyrr.
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra boðaði á Alþingi í gær
niðurskurð framlaga til stofn-
framkvæmda við vegi á næsta ári
um samtals 1.551 milljón króna.
Nauðsynlegt væri að færa nið-
ur fjárveitingar til nokkurra verk-
efna í vegagerð á árinu 2004.
Sturla sagði í samtali við Morg-
unblaðið að lækkun fjárveitingar í
Norðvestur-, Norðaustur- og
Suðurkjördæmi næmi um 300
milljónum kr. í hverju kjördæmi
og samtals um 421 millj. í Suð-
vegna fleiri verka. Þar sem und-
irbúningur hefur verið tímafrek-
ari getum við dregið úr fjárfram-
lögum vegna þess að við komum
verkunum ekki af stað. Þetta á við
um verk eins og Reykjanesbraut-
ina í gegnum Kópavog og Garða-
bæ en nánast öll þessi verk, sem
fjárveitingar lækka til, fara af
stað á næsta ári. Það er því ekki
um það að ræða að við séum að
stöðva verkefni í neinum mæli
heldur er verið að hægja á fram-
kvæmdum.“
vestur- og Reykjavíkurkjördæm-
um. Spurður um áhrif þessa á ein-
stakar framkvæmdir sagði Sturla
að ekkert yrði hróflað við tvöföld-
un Reykjanesbrautar.
„Það er hins vegar fyrirsjáan-
legt að framkvæmdir fara hægar
af stað, m.a. við Gjábakkaveg og
Fífuhvammsveg í gegnum Kópa-
vog og Garðabæ. Þar höfum við
töluvert miklum fjármunum úr að
spila sem hafa safnast upp bæði á
þessu ári og því næsta. Við höfum
einnig tiltölulega rúm fjárráð
Vegafé lækkað um
1,5 milljarða króna
EITT til tvö þúsund króna verðmun-
ur er á 27 bókum af 37 í verðkönnun
ASÍ og Morgunblaðsins, sem gerð
var í hádeginu í gær. Könnunin náði
til 43 bóka af bóksölulista Félagsvís-
indastofnunar og náðist samanburð-
ur á 37. Verðmunur á bókunum
reyndist yfir 30% á 31 titli og mestur
115% í könnuninni.
Í krónum talið var mestur munur
2.531 króna, og var hann á lægsta og
hæsta verði bókarinnar Frægð og
firnindi: Ævi Vilhjálms Stefánsson-
ar. Munur á lægsta og hæsta verði
allra bóka í flokknum ævisögur og
endurminningar í könnuninni reynd-
ist vera á bilinu 1.000–2.500 krónur.
1.000–2.000
króna mun-
ur á bókum
30–115% munur/34
TOLLGÆSLAN á Keflavíkur-
flugvelli lagði hald á tæp tvö
kílógrömm af hassi í gær í
Leifsstöð þegar komufarþegar
frá Kaupmannahöfn fóru í
gegnum tollskoðun. Karlmaður
á sextugsaldri, sem búsettur
hefur verið í Danmörku um
nokkurra ára skeið, hafði límt
1.997 grömm af fíkniefnum á
magann og komst upp um hann
við reglubundið eftirlit toll-
gæslunnar. Málið sætir nú lög-
reglurannsókn en ekki liggur
fyrir hvort maðurinn var burð-
ardýr fyrir aðra eða hvort hann
ætlaði að flytja inn efnin fyrir
sjálfan sig.
Hinn handtekni mun ekki
hafa komið við sögu fíkniefna-
mála áður.
Áætlað söluverðmæti fíkni-
efnanna er þrjár milljónir
króna á götunni.
Tekinn
með tvö
kg af hassi