Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 1
RÁÐGJAFAR George W. Bush
Bandaríkjaforseta hafa orðið
verulegar áhyggjur af afdrátt-
arlausri sigurgöngu Johns
Kerrys í forkosningum Demó-
krataflokksins, sem nú standa
yfir, og vilja nú þegar hefja bar-
áttuna gegn Kerry vegna kom-
andi forsetakosninga, 18. nóv-
ember. Skoðanakönnun, sem
birt var fyrr í vikunni, sýndi að
Kerry nyti meira fylgis meðal
bandarískra kjósenda en Bush.
Útgönguspár sem gerðar
voru í forkosningunum sem
fram fóru á þriðjudaginn, þegar
Kerry sigraði í fimm ríkjum af
sjö, sem kosið var í, benda til að
demókrötum sé fyrst og fremst í
mun að velja sér frambjóðanda
sem geti borið sigurorð af Bush
í nóvember. Kerry beið ekki
boðanna og atyrti forsetann fyr-
ir að hafa „rekið fleyg“ meðal
bandarískra borgara, veikt
stöðu landsins og logið til um
herförina til Íraks.
Bush hefur gert átak í fjár-
söfnun vegna forsetakosning-
anna, og í desember var kosn-
ingasjóðurinn hans kominn í 110
milljónir dollara. Kosninga-
stjórar hans vilja strax byrja að
verja þessum peningum til að
takast á við demókratana og
tryggja áframhaldandi völd sín í
Hvíta húsinu. Bandarískir fjöl-
miðlar segja að þegar megi sjá
vísbendingar um að ráðgjafar
Bush muni ætla að fara þá leið
að finna þann ljóð á ráði Kerrys
að hann sé frjálslyndur demó-
krati frá Massachusetts. „Það
er aðfinnsla sem á endanum
reyndist Michael Dukakis dýr-
keypt, en hann var forsetafram-
bjóðandi Demókrataflokksins
1988,“ sagði dálkahöfundur í
The New York Times í gær.
Annar bandarískur dálkahöf-
undur, Robert Novak, sagði í
Chicago Sun-Times fyrr í vik-
unni, að menn forsetans hefðu
mestar áhyggjur af stríðshetju-
ímynd Kerrys. Einn stuðnings-
manna Bush hefði komist svo að
orði, að á meðan Kerry hefði
barist í Víetnamstríðinu „var
okkar maður að sötra bjór í Ala-
bama“. Repúblikanar hefðu
reynt að gera lítið úr stríðs-
hetjuímyndinni af Kerry með
því að vekja athygli á friðarbar-
áttu hans í kjölfar Víetnam-
stríðsins, en þeir hefðu ekki haft
erindi sem erfiði.
Menn Bush óttast Kerry
Reuters
John Kerry hélt í gær af stað í
kosningaferðalag til Michigan
og Maine, þar sem forkosn-
ingar fara fram um helgina.
Ekki deyja
úr stressi
Fimm
fyndnar
Leikritið Fimmstelpur.com
frumsýnt í kvöld Listir
STOFNAÐ 1913 36. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
DÓMSTÓLL í Hamborg í Þýskalandi sýknaði í
gær marokkóskan námsmann, Abdelghani
Mzoudi, af ákæru um aðild að hryðjuverkunum í
Bandaríkjunum 11. september 2001, á þeim for-
sendum að sannanir gegn honum væru ekki nægi-
lega sterkar til að hægt væri að finna hann sekan.
Yfirdómarinn í málinu, Klaus Ruehle, sagði:
„Mzoudi, þú ert sýknaður. En það er ekki ástæða
til að fagna.“ Dómstóllinn hefði ekki komist að
þessari niðurstöðu vegna þess að hann væri sann-
færður um sakleysi Mzoudis, „heldur vegna skorts
á sönnunargögnum“.
Saksóknarar sögðu úrskurði dómstólsins verða
áfrýjað, og skoruðu á bandarísk yfirvöld að endur-
skoða höfnun sína á beiðni um að leyfa dómstóln-
um í Hamborg að sjá sönnunargögn sem fengist
hefðu hjá lykilvitni úr al-Qaeda-hryðjuverkasam-
tökunum sem er í haldi Bandaríkjamanna.
Sýknaður af aðild
að 11. september
Hamborg. AFP.
Reuters
Mzoudi var brosmildur er hann ræddi við frétta-
menn eftir sýknudóminn yfir honum í gær.
NORSK fullorðinsfræðslumiðstöð hefur bannað
kennara að bera hálsmen með davíðsstjörnu þeg-
ar hann er að kenna, á þeim forsendum að um sé
að ræða „pólitískt tákn“, að því er norskir fjöl-
miðlar greindu frá í gær.
„Við ríkjandi kringumstæður er davíðs-
stjarnan tákn annars tveggja aðila að deilu sem
er líklega einhver sú harðasta sem nú geisar,“
sagði Kjell Gislefoss, yfirmaður fullorð-
insfræðslumiðstöðvarinnar í Kristiansand, í við-
tali við norska ríkisútvarpið, NRK. „Við vitum, að
trúarleg tákn geta jafnvel verið áhrifameiri en
orð, og við viljum ekki núa salti í opið sár.“ Gisle-
foss sagði að nemendur frá rúmlega 70 ólíkum
löndum sæktu námskeið hjá miðstöðinni.
Kennarinn sem um ræðir, Inge Telhaug, er
ekki gyðingur, en kvaðst vilja standa vörð um
rétt sinn til að bera stjörnuna í nafni tjáning-
arfrelsis. Menntunar- og rannsóknarráðherra
Noregs, Kristin Clement, sagðist andvíg banninu,
og kvaðst hafa haft samband við stjórnendur full-
orðinsfræðslumiðstöðvarinnar.
Davíðsstjarna
bönnuð
Ósló. AFP.
EINARS Repse, forsætisráðherra Lettlands, til-
kynnti í gærkvöldi að hann myndi biðjast lausnar
fyrir sig og ráðuneyti sitt, en stjórn hans hefur set-
ið í rúmt ár. Kvað Repse stjórn-
ina ekki geta náð fullnægjandi
árangri án meirihluta á þingi.
Snurða hljóp á þráðinn hjá
stjórn Repses í síðustu viku,
þegar einn aðildarflokka stjórn-
arinnar sagði sig úr henni, og
skildi hana eftir með einungis
45 þingsæti af 100. Í gær kröfð-
ust stjórnarandstæðingar enn-
fremur afsagnar tveggja ráð-
herra, og sagði Repse það hafa haft áhrif á þá
ákvörðun sína að hætta.
Lettneska
stjórnin fallin
Riga. AP.
Einars Repse
Allra hagur að uppræta streitu-
vandamál í vinnunni Daglegt líf
Fólkið í dag
Fólkið Miðjan á Hlemmi
Járnskvísan Bréfaskipti
Jörgens Sörensens Ragnar í
Trabant dillar brjóstunum
SPARISJÓÐAFRUMVARP við-
skiptaráðherra, Valgerðar Sverr-
isdóttur, var samþykkt, með
áorðnum breytingum efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis, á
ellefta tímanum í gærkvöldi. Var
frumvarpið samþykkt með 43 at-
kvæðum gegn einu, Péturs H.
Blöndal, þingmanns Sjálfstæðis-
flokks. Guðlaugur Þór Þórðarson
og Sigurður Kári Kristjánsson,
Sjálfstæðisflokki, og Helgi
Hjörvar, Samfylkingu, sátu hjá.
Fyrr um daginn hafði efna-
hags- og viðskiptanefnd fundað
stíft allan daginn og fram á kvöld.
Á meðan var þingfundum ítrekað
frestað, en að sögn Halldórs
Blöndals, forseta Alþingis, er
ekki vaninn að halda þingfundi er
fastanefndir sitja á fundi.
Tillaga Péturs felld
Kristinn H. Gunnarsson, vara-
formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar, mælti fyrir breytingar-
tillögum meirihluta nefndarinnar
í gærkvöldi. Allar breytingartil-
lögur meirihlutans náðu fram að
ganga. Pétur H. Blöndal mælti
einn fyrir minnihlutaáliti og lagði
fram eina breytingartillögu sem
gekk út á að lögin tækju ekki til
SPRON-málsins svokallaða held-
ur einungis til þeirra sparisjóða
sem hygðust fara sömu leið í
framtíðinni. Sú tillaga var felld.
Meðal breytingartillagna sem
samþykktar voru er að „fyrir
fund stofnfjáreigenda [sem
ákveður að breyta sparisjóðnum í
hlutafélag] verða engar skuld-
bindandi ákvarðanir teknar fyrir
hönd sjálfseignarstofnunarinn-
ar“, eins og það er orðað. Þá mun
fjármálaráðherra skipa einn full-
trúa í stjórn sjálfseignarstofnun-
arinnar í stað samtaka spari-
sjóða. Loks var samþykkt
breyting um að árétta í gildis-
tökuákvæði frumvarpsins að
lagasetningin tæki ekki til spari-
sjóða sem hefðu þegar tekið
ákvörðun um hlutafélagavæð-
ingu, er þar átt við nb.is-sparisjóð
hf. og Sparisjóð Kaupþings hf.
Valgerður Sverrisdóttir sagði
undir lok umræðna að hún von-
aðist til þess að lögin yrðu til þess
að samkeppnin á markaði minnk-
aði ekki „því það er mikilvægt að
hún sé til staðar“, sagði hún.
PÉTUR Blöndal, formaður efnahags- og við-
skiptanefndar og stjórnarmaður í SPRON,
greiddi einn atkvæði gegn sparisjóðafrumvarp-
inu, en hér greiða samþingmenn hans atkvæði
með því. „Það er svakalegt að það skuli sett lög til
að ógilda samninga sem gerðir eru í samræmi við
lög. Þetta veldur mikilli réttaróvissu því í raun
getur hver og einn búist við því að samningar sem
menn geri verði síðar gerðir ógildir,“ sagði Pétur
í samtali við Morgunblaðið og vísar þar til samn-
inga um kaup KB banka á SPRON.
„Það ótrúlega er að gerast að Alþingi Íslend-
inga er að setja sérstök lög til höfuðs einstökum
löglegum samningum milli einkaaðila. Þetta er al-
varlegt brot á réttarríkinu,“ sagði Pétur í umræð-
unum í gærkvöldi. Pétur sagði að stjórn SPRON
hlyti að velja þann kost að hætta við hluta-
félagavæðingu og rifta samningum. „Hugsanlega
getur stjórn SPRON beint hugsanlegu tapi sínu að
ríkissjóði. Frumvarpið hefur þegar valdið miklum
óróa meðal starfsmanna og viðskiptamanna
SPRON sem sparisjóðurinn tapar á,“ sagði hann.
Fundur verður í stjórn SPRON um áhrif hinnar
nýju löggjafar árdegis í dag.
Morgunblaðið/Þorkell
„Þetta er alvarlegt brot á réttarríkinu“
Frumvarp um spari-
sjóði samþykkt 43:1