Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.02.2004, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN 32 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ UNDANFARIN misseri hefur gustað verulega um Háskóla Ís- lands. Umræða um bágan fjárhag stofnunarinnar hefur verið almenn meðal þeirra sem þar stunda nám og er sú skoðun almenn að við svo búið megi ekki sitja. Því miður hefur sú um- ræða alls ekki skilað sér með nægjanlega skýrum hætti út í þjóðfélagið að mati undirritaðrar. Um- ræðan utan veggja Háskólans hefur að allt of miklu leyti hverfst um skamm- tímalausnir, settar fram af stjórnmálamönnum, án þess að fulltrúar stúdenta hafi kom- ið þar nálægt. Það er því ljóst að einhvers staðar er pottur brotinn hvað varðar hagsmunagæslu stúd- enta. Hver er ástæða þess að stúd- entaráð hefur ekki haft bolmagn til að fá almenning í landinu í lið með sér gegn þeirri handstýrðu kreppu sem stjórnvöld hafa stefnt Háskól- anum í? Stúdentaráð í þágu stúdenta Stúdentar við Háskóla Íslands eru hagsmunahópur og Stúdentaráð Háskóla Íslands er kjörið til þess að gæta hagsmuna okkar. Því mið- ur hafa þessi hagsmunasamtök stúdenta verið klofin nú um langa hríð og hafa því ekki komið fram fyrir hönd stúdenta sem samstæð heild. Þetta veldur því að sam- takamáttur stúdenta við Háskóla Íslands er skertur og kemur í veg fyrir að stúdentar beiti sér sem þrýstiafl út í þjóðfélagið. Leikhús fáránleikans? Gallar þessa kerfis komu berlega í ljós á dögunum þegar mennta- málaráðherra ákvað, að ósk Stúd- entaráðs, að funda með stúdentum um fjárhag Háskólans. Stúdentar glöddust við en þá var fundinum frestað vegna eldfims ástands í stúdentastjórnmálunum nú í að- draganda kosninganna. Síðustu fréttir herma þó að nú sé búið að koma fundinum aftur á dagskrá og ber að fagna því. Það breytir því hins vegar ekki að skrípaleikur sem þessi er eingöngu til þess fallinn að rýra trúverðugleika Stúdentaráðs. Það er ekki boðlegt að megnið af starfsorku þeirra sem sitja í Stúd- entaráði fari í tilgangslausar þræt- ur sín á milli þegar hagsmunir stúdenta eru að langmestu leyti samrýmanlegir. Stúdentaráð á að hafa það að meginmarkmiði að bæta og standa vörð um hag stúd- enta. Háskólalistinn er nýtt afl innan Háskólans sem bauð fram til Stúd- entaráðs í fyrsta skipti á síðasta ári. Hlaut listinn tvo menn kjörna sem hlýtur að teljast við- unandi árangur. En betur má ef duga skal. Meginmarkmið Há- skólalistans var og er enn að breyta eðli hagsmunabaráttu stúdenta. Í dag berj- ast fylkingar gegn hvor annarri um völd í Stúdentaráði á meðan það sem stúdentar þarfnast fyrst og fremst er samstaða. Það er krafa okkar að þeir sem kosnir eru sem hagsmunafulltrúar stúdenta berjist fyrir hagsmunum stúdenta samein- aðir í nafni Stúdentaráðs, ekki í nafni Röskvu eða Vöku. Ekki eru Samtök atvinnulífsins klofin í fylk- ingar sem deila um hverjir séu raunverulegir hagsmunir fé- lagsmanna þeirra. Hví ætti Stúd- entaráð þá að deila innbyrðis? Við stúdentar þurfum samstöðu til að ná fram okkar málum, einkum í ljósi umræðu um fjöldatakmark- anir og skólagjöld. Háskólalistinn vill í framtíðinni sjá samhent Stúd- entráð laust við þann ríg og ill- deilur sem einkenna núverandi kerfi. Oft var þörf en nú er nauð- syn. Er hagsmunum háskólanema borgið í núverandi kerfi? Auður Lilja Erlingsdóttir skrif- ar um stúdentaráðskosningar ’Það er því ljóst að ein-hvers staðar er pottur brotinn hvað varðar hagsmunagæslu stúd- enta.‘ Auður Lilja Erlingsdóttir Höfundur situr í stjórn Stúdentaráðs og er í MPA-námi í Háskólanum. STAÐA íslenskrar heimildar- myndagerðar er sú að menn ráðast ógjarnan í viðamiklar og dýrar myndir. Ísalnd er svo lítill markaður að hann greiðir ekki nema í undan- tekningartilvikum kostnað mynda sem eitthvað er borið í. En örfáir Ís- lendingar hafa náð því að gera heimildar- myndir sem erlendar sjónvarpsstöðvar taka til birtingar. Framboð mynda er svo mikið að aðeins myndir sem á einhvern hátt skara fram úr eiga mögu- leika á heimsdreifingu. Maður gleðst því þegar félagarnir ná þeim árangri og mynd- ir þeirra komast í um- ferð í útlöndum. Hér heima er ekki of mikið gert til að halda slíkum sigrum á lofti og engin trygging er fyrir því að sjónvarps- stöðvarnar okkar birti myndir sem fyllilega væru þess verð- ar. Ég reyni að fylgjast með því sem félagar mínir eru að glíma og sit helst ekki af mér að sjá þær íslensku myndir sem sýndar eru. Umfjöllun um heimildarmyndir er stopul og þær hverfa í skuggann ef annað er í umræðunni. Því langar mig til að tjá mig um mynd Kára G. Schram sem sýnd var nýlega og mér finnst hafa farið hljótt um. Myndin var í alla staði fagmannlega unnin. Kári leitar fanga þar sem snjallir menn eru fyr- ir. Magnús Magnússon er afburða sjónvarpsmaður og afar áheyrilegur lesari. Sama er að segja um fræði- mennina sem Kári leitar til, þeir byggja á ítarlegum rannsóknum og haldgóðum rökum. Strax í upphafi skynjaði maður að þarna var vandað til verks. Lýsing og umgjörð um handritakaflann var smekkleg. Sama var um leikmynd og búninga. Það er svo lítill vandi að klúðra slíku. Þegar kom að bardaga- senum var sama uppi á teningnum, „slow motion“ og hröð klipping ásamt hljóðeffektum virkuðu vel. Frumsamin tónlistin fellur mjög vel að myndinni og eykur hughrif. Leik- ararnir fara vel frá sínu, það á jafnt við þjálfað sviðsfólk og amatörana, þeir voru gegnumsneitt lausir við tilgerð. Engu var líkara en ævitýrið væri hluti af hversdags- lífinu. Á þetta reynir á nokkrum stöðum og tek ég sem dæmi fundi hinna norrænu manna og frumbyggja í Amer- iku, þar sem hvorugur skilur annan en við- skipti takast og þeir skiptast á gjöfum. Ég hef fylgst með skrifum Páls Bergþórs- sonar og alltaf fundist forvitnilegt það sem hann hefur fram að færa. Hjá Páli fara saman frjó hugs- un studd rökum sem öðrum gjarnan yfirsést. Kenningar hans um ferðir norrænna manna eru mjög líklega réttar. Saga landafundanna varð mun skýrari fyrir mér, þó ég eins og margir aðrir sem lesið hafa sögurn- ar, þekki þráðinn. Niðurlag myndarinnar um að tveir ólíkir kynstofnar sem ekki skildu mál hvor annars hafi verið óundir- búnir að deila með sér landi og gæð- um án árekstra er vafalaust rétt. Þetta hefur verið mannskepnunni þung þraut jafnvel þar sem um eina og sömu þjóð er að ræða. Ég vil að lokum óska Kára til hamingju með myndina og þakka góða skemmtun. Fyrsta ferðin Páll Steingrímsson skrifar um heimildarmyndir. Páll Steingrímsson ’Umfjöllun umheimildarmynd- ir er stopul.‘ Höfundur er kvikmyndagerð- armaður. Á SÍÐASTA fundi Jafnréttisráðs var tekin til umfjöllunar sú sparnaðar- hugmynd stjórnenda Landspítala – háskóla- sjúkrahúss að flytja og endurskipuleggja þjón- ustu Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Jafn- réttisráð leggur áherslu á að alltaf sé til staðar aðstoð við þolendur kynferðisofbeldis og meðferð fyrir gerendur. Á fundinum kom fram að þær breytingar sem kynntar hafa verið megi á engan hátt skerða þá þjónustu sem veitt hefur verið undan farin ár. Hagræðing og sparnaður má alls ekki koma niður á þolendum nauðgana. Áralöng þjálfun starfsmanna og reynsla má ekki fyrir nokkurn mun tapast. Það tekur langan tíma að þjálfa upp nýtt starfsfólk, skipuleggja nýja vinnuferla og á með- an er þjónustan við þolendur nauðg- ana í hættu. Með því að flytja móttökuna á kvennadeildina er verið að leggja áherslu á að nauðganir séu „kvenna- mál“ en því má ekki gleyma að það eru alls ekki bara konur sem verða fyrir barðinu á þeim sem beita kynferð- islegu ofbeldi, þó svo að þær séu í mikl- um meirihluta. Einnig er mikill munur á andlegu og líkamlegu ástandi þeirra kvenna sem eru að ala börn, leita sér lækninga og þeirra sem eru að leita sér aðstoðar í kjölfar nauðgunar. Það eru sjálfsögð mannréttindi að tryggja þolendum nauðgana alla þá bestu sérhæfðu aðstoð og meðferð sem völ er á hverju sinni. Sá fjöldi sem ár- lega leitar til móttökunnar sannar þörfina á þjónustu sem þessari. Einnig ber að hafa í huga að all- stór hluti þeirra sem á síðasta ári komu á Neyð- armóttökuna var undir lögaldri og kallar sú stað- reynd á alveg sérstaka fagmennsku og að- stæður. Þeir sem leita til Neyðarmóttöku hafa upplifað glæp, allar að- stæður eru viðkvæmar enda hafa þolendur upp- lifað áfall sem krefst sér- stakrar áfallahjálpar, meðhöndlunar og ráð- gjafar. Á Neyðarmóttökunni er ekki bara framkvæmd líkamsskoðun og veitt læknishjálp heldur einn- ig bráðnauðsynleg fé- lagsráðgjöf og sál- fræðiaðstoð. Einnig er boðið upp á aðstoð lögfræðinga því augljóslega enda mörg nauðgunarmál sem dóms- mál. Við leggjum þá ábyrgð á herðar stjórnenda spítalans og yfirvalda heil- brigðismála að þau standi vörð um Neyðarmóttökuna og það starf sem þar er unnið. Eins og áður hefur komið fram eru þolendur kynferðisafbrota að langstærstum hluta til konur og því sérstakt réttindamál þeirra. Í von um að áfram verði unnið í fullri sátt þeirra fjölmörgu sem láta sig þetta mál varða. Stöndum vörð um sérhæfða þjónustu Fanný Gunnarsdóttir skrifar um Neyðarmóttöku vegna nauðgana Fanný Gunnarsdóttir ’Þeir sem leitatil Neyðarmót- töku hafa upp- lifað glæp …‘ Höfundur er formaður Jafnréttisráðs. ÞAÐ vakti athygli mína á dög- unum þegar ég fór út í búð að allt í einu voru komnir sveppir við hliðina á íslensku Flúðasvepp- unum sem kallast Náttúrusveppir. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að hér var um innflutta sveppi að ræða en allt gert til þess að þyrla ryki í augu okkar neytenda með því að láta líta út fyrir að innfluttu sveppirnir væru ís- lenskir. Mér er líka sagt að það hafi komið fyrir að innfluttir sveppir séu látn- ir í kassa merkta Flúðasveppum til þess að reyna að koma þeim inn- fluttu út! Þetta er óþolandi fram- koma innflytjenda og seljenda. Á Flúðum í Hrunamannahreppi eru framleidd um 80% þess græn- metis sem neytt er á Íslandi. Gam- an er að fylgjast með framþróun í þessum efnum þar sem garð- yrkjubændur sækja sér æ meiri fræðslu til Hollands sem er í raun það land sem er grænmetismiðstöð Evrópu. Það er löngu viðurkennt að íslenskar matvörur eru í hæsta gæðaflokki. Við gefum því alltof sjaldan gaum. Hráefnið er ferskt enda loftið hér heilnæmt og við eigum alla möguleika til þess að vernda hreinleikann. Við verðum að vanda okkur því sérstaða okkar eru líka hluti af markaðssetningu landsins. Það er einnig staðreynd að útlend- ingar borða meira lambakjöt hér á landi sem er framreitt af okkar snilldarmat- reiðslumeisturum en það sem við flytjum út. Matreiðslumeist- arar landsins eru lyk- illinn að því að kynna útlendingum matvöru framleidda hér á landi. Íslensk framleiðsla á oft á tíðum í vök að verjast. Fyrir því eru auðvitað margar ástæður, ekki síst sú að við búum orðið í alþjóðlegu sam- félagi þar sem mikil samkeppni ríkir og erfitt getur verið að keppa við lönd þar sem launakjör eru ólík því sem gerist hér. Við búum í landi sem er tiltölulega stórt að flatarmáli með ótrúlega fáa íbúa þannig að markaðurinn er ógnar- smár. Þetta hefur allt sína kosti og galla. Ekki vildum við vera ein- angruð hér. Við viljum taka þátt í þeim möguleikum sem felast í hin- um stóra heimi. Við eigum að sjálf- sögðu að nýta okkur þá möguleika sem við höfum. Að plata neytendur! Ísólfur Gylfi Pálmason skrifar um sveppi Ísólfur Gylfi Pálmason NÝRÁÐINN fréttastjóri Stöðvar 2 sagði í sjónvarpsviðtali að trúverð- ugleiki væri forgangsverkefni sitt í nýju starfi. Ekki skal undra því Sigríð- ur Árnadóttir, starfsmaður RÚV til margra ára, kemur til starfa á fjölmiðli sem er þekktur fyrir að setja við- skiptahagsmuni eigenda sinna í önd- vegi og þá einatt á kostnað faglegra sjónarmiða og almannahagsmuna. Ráðning Sigríðar og áherslan sem hún leggur á trúverðugleika frétta- stofu Stöðvar 2 sýnir að í verki kann- ast eigendur nýja fjölmiðlarisans við gagnrýnina sem þeir afneita í orði: Ríka tilheigingu þeirra sjálfra til að misnota aðstöðu sína og hafa óeðlileg áhrif á fréttaflutning fjölmiðla í þeirra eigu. Fyrri eigendur Stöðvar 2 höfðu mis- þyrmt faglegri æru fyrrverandi frétta- stjóra svo illilega að nýju eigendurnir sáu þann kost vænstan að bjóða í starfsmann RÚV til að vera í forsvari fyrir fréttastofuna. Um leið og Sigríði er óskað vel- farnaðar í starfi er ástæða til að rifja upp þau sannindi að traust verður ekki keypt eins og hver annar varn- ingur. Traust er áunninn verðleiki sem við mis- notkun lætur fljótlega á sjá. Núna stjórnar fyrirtækja- samsteypan Baugur þrem af þeim sex fréttastofum landsins sem daglega flytja almenningi fréttir. Eignarhald Baugs á Fréttablaðinu, DV og Stöð 2/ Bylgjunni skapar fyrirtækjasamsteyp- unni aðstöðu til að vera ráðandi um dagskrá opinberrar umræðu. Þegar einn aðili hefur náð slíkri stöðu á jafn viðkvæmum vettvangi og fjölmiðlar eru þarf ekki að spyrja hvort ný- fengið vald verði misnot- að heldur hvernig og til hve mikils skaða það verður. Það þykir sjálf- sagt hjá nágrannaþjóð- um okkar í austri og vestri að þjóðþingin setji reglur til að reisa skorð- ur við fákeppnisvaldi á fjölmiðlamarkaði. Samtök evrópskra blaðamanna, IFJ, hvetja stjórnvöld að gæta þess að almenningur verði ekki ofurseldur fyrirtækjasamsteypum á fjölmiðlamarkaði. Í skýrslu sem þeir gáfu út á síðasta ári undir heitinu European Media Ownership: Threats on the Landscape, eru tilgreindar fjór- ar forsendur fyrir frjálsri fjölmiðlun. Baugur reynir að kaupa sér traust Páll Vilhjálmsson skrifar um fjölmiðla Páll Vilhjálmsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.